Smávaxin stúlka með stóra rödd 1. ágúst 2011 16:00 Mynd/AFP
Hin breska Amy Winehouse lést aðeins 27 ára gömul á heimili sínu í London fyrir viku. Söngkonan sem barðist við áfengis- og eiturlyfjafíkn í mörg ár fyrir opnum tjöldum. Þrátt fyrir að margir hafi talið fráfall Amy Winehouse óumflýjanlegt, í ljósi áralangrar baráttu hennar við áfengis- og eiturlyfjafíkn sem fór að stórum hluta fram fyrir augum almennings, voru ýmsir á þeirri skoðun í byrjun þessa árs að söngkonan væri óðum að komast í það form sem aflaði henni gríðarlegra vinsælda og aðdáunar tónlistarunnenda um allan heim nokkrum árum fyrr. Í janúar hélt hún fimm tónleika í Rio de Janeiro í Brasilíu og var mál manna að þar hefði brugðið fyrir sýnishorni af þeim miklu hæfileikum sem vímuefnaþokan hafði haldið í felum of lengi. Í byrjun júní, strax að lokinni stuttri dvöl á enn einni meðferðarstofnuninni, söng Winehouse sjö lög fyrir lítinn hóp vina og vandamanna á hinum fræga tónleikastað 100 Club á Oxford Street í London. Í samtali við blaðamann Guardian segist einn viðstaddra hafa verið þess fullviss að söngkonan væri komin á beinu brautina, í flestum skilningi, þetta kvöld. Í minningarræðu um dóttur sína sagði Mitch Winehouse, faðir Amy, þetta hafa verið frábært kvöld. Að rödd Amy hefði verið góð og hnyttni og tímasetningar í fullkomnu lagi. Aðeins sex dögum síðar hóf Winehouse hljómleikaferð um Evrópu sem marka átti veglega endurkomu hennar á sjónarsviðið á réttum forsendum. Á fyrstu tónleikunum í Belgrad í Serbíu kom hún klukkutíma of seint á svið og áberandi drukkin í ofanálag. Winehouse virtist eiga í mestu erfiðleikum með að muna textana í lögum sínum, muldraði í stað þess að syngja og var að lokum bauluð niður af sviðunu af vonsviknum áhorfendum. Hljómleikaferðalagið var blásið af og umboðsmenn Winehouse gáfu út þá yfirlýsingu að henni yrði gefinn eins langur tími og nauðsynlegur væri til að ná sér aftur á strik. Í samtali við Guardian segjast vinir söngkonunnar hafa verið afar hissa á uppákomunni, því allt hefði virst á uppleið hjá Winehouse í undanfara ferðarinnar. Aðeins rúmum mánuði síðar var hún látin. Nákvæm dánarorsök er enn ókunn, þrátt fyrir linnulausar getgátur fjölmiðla.
Mest lesið Lesbíur selja litríka íbúð Lífið „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Tónlist Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Tónlist Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Tónlist Josh Grisetti látinn 44 ára að aldri Bíó og sjónvarp Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Lífið „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Lífið „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ Lífið Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Bíó og sjónvarp Leikarinn Sam Neill er látinn Lífið Fleiri fréttir Lesbíur selja litríka íbúð „Fimmtán ár af hreinu himnaríki“ „Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ Stjörnulífið: Patrekur og Gísli Marteinn saman á Bad Bunny Leikarinn Sam Neill er látinn „Við unnum í nágrannalottóinu“ Steiney frumsýnir kærastann „Ertu að segja mér að ég endi í hjólastól?“ Ferðast um heiminn og setur Íslandsmet Ógleymanlegt galdrabrúðkaup á tásunum Krakkatía vikunnar: Víkingar, Njáll og pasta Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin sögð komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum Sjá meira
Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Bíó og sjónvarp
Bestu hlutverk Sams Neill: Andkristur, fornleifafræðingur og menn á barmi sturlunar Bíó og sjónvarp