Lífið
Leaves spila á Nasa Útgáfutónleikar Leav-es verða á Nasa í kvöld. Plata sveitarinnar We Are Shadows hefur fengið góða dóma hvarvetna en hún kom út 11. maí síðastliðinn. Lífið 9.7.2009 05:30
Hræddur við aðdáendurna Breski leikarinn Robert Pattison er víst búinn að fá sig fullsaddan af ágangi aðdáenda í New York. Pattison, sem sló í gegn sem vampíran Edward Cullen í kvikmyndinni Twilight, er hundeltur af kvenkyns aðdáendum sínum hvert sem hann fer. Lífið 9.7.2009 05:00
Skriður kominn á Baywatch-myndina Svo virðist sem nýjasta tískan í Hollywood séu kvikmyndir og sjónvarpsþættir frá níunda áratugnum. Nýlega var tilkynnt að gera ætti kvikmynd eftir sjónvarpsþáttunum The A-Team og í vikunni varð ljóst að lögregluhetjan T.J. Hooker myndi rata á hvíta tjaldið. Lífið 9.7.2009 04:15
Úr leiklist í pólitík Kal Penn, sem fór með hlutverk læknanemans Lawrence Kutner í þáttunum um House, hefur ákveðið að segja skilið við leiklistina og snúa sér að stjórnmálum. Búið er að skrifa persónuna Lawrence Kutner út úr þáttunum svo að Penn geti einbeitt sér að pólitíkinni. Penn, sem réttu nafni heitir Kalpen Modi, mun sitja í menningarráði Obama-stjórnarinnar í Washington. Lífið 9.7.2009 03:45
Clooney orðaður við Jack Ryan Samkvæmt vef kvikmyndatímaritsins Empire er George Clooney sagður vera áhugasamur um að taka að sér hlutverk leyniþjónustumannsins Jack Ryan. Ryan þessi er þekktasta persóna bandaríska rithöfundarins Tom Clancy og hefur svo sem áður birst á hvíta tjaldinu í líki Alecs Baldwin, Harrisons Ford og nú síðast Bens Affleck í Sum of All Fears. Lífið 9.7.2009 03:00
Konur að taka yfir Mýrarboltamótið „Við erum komnir með lið frá Kanada og svo hafa pólskir túristar boðað komu sína. Við erum í þeirra augum orðið eitthvert gósenland þar sem allt er nánast gefins,“ segir Jóhann Bæring Gunnarsson, drullusokkur hins árlega Mýrarboltamóts sem haldið er á Ísafirði um verslunarmannahelgina. Lífið 9.7.2009 03:00
Gogoyoko komin í gagnið Tónlistarverslunin og netsamfélagið gokoyoko.com er komið í gagnið. Til að byrja með sitja Íslendingar einir að síðunni, en fleiri lönd fylgja brátt í kjölfarið. Lífið 9.7.2009 02:30
Brjálæðið í kringum Brüno Grín og gaman fékk algjörlega nýja ásjónu með kvikmyndinni Borat þar sem Sacha Baron Cohen brá sér í líki sjónvarpsmannsins frá Kasakstan. Sacha Baron er mættur aftur en nú sem austurríska tískugúrúið Brüno. Myndin verður frumsýnd í kvikmyndahúsum um helgina. Lífið 9.7.2009 02:00
Klárlega markaður fyrir Sumar á Íslandi „Lagið frá Buffinu heitir Prinsessan mín og er fyrsta lagið sem sveitin sendir frá sér sem er ekki eftir neinn meðlim sveitarinnar," svarar Hannes Friðbjarnarson meðlimur Buff aðspurður út í þeirra framlag á nýrri safnplötu sem ber heitið „Sumar á Íslandi," með vinsælustu hljómsveitum landsins. „Lagið er eftir Dr.Gunna og kom það til þannig að Doktorinn hreinlega bað okkur um að taka lag eftir sig, fyrir rúmu ári síðan, þá var staðan hjá okkur þannig að við vorum í óðaönn að klára plötuna okkar sem kom út fyrir síðustu jól, og fannst eins og við gætum ekki einbeitt okkur að þessu lagi. En vildum þó fá að halda í það, sem var ekkert mál. Svo á þessu ári þegar við vorum að spá í nýjum lögum þá var þetta lag mjög ofarlega á lista. Það er hresst og skemmtilegt og við náðum allir að tengja mjög vel við það. Svo hefur það blundað þengi hjá okkur að gera lag með miklum hljómborðum og hárri kúabjöllu svo þetta varð útkoman. Dr.Gunni kann að búa til hressandi lög og við settum okkar stíl á það, sem er greinilega að virka því það er búið að vera mjög vinsælt í sumar og fólk tekur vel við sér á böllum þegar það er spilað," segir Hannes. Klárlega markaður fyrir svona plötur „Það er klárlega markaður fyrir svona plötur á íslandi. Þarna er að finna vinsælustu lögin í dag í bæði popp og rokkdeildinni. Þessi lög hafa ekki komið út á geisladiski áður svo að við erum bjartsýnir," segir Jón Þór Eyþórsson hjá útgáfufyrirtækinu Senu sem getur út plötuna. „ Þetta er mjög blönduð plata svo að hún er fyrir alla. Rennur ljúflega í gegn," segir Jón Þór að lokum. Lífið 8.7.2009 14:22
Hríseyjarsund á koppinn „Frábært framtak. Vonandi komið til að vera. Ég stökk strax til þegar spurt var hvort ég vildi vera með. Þó ég sé að vinna um helgina. Þarf bara að redda mér flugi norður, synda og svo til baka aftur," segir Benedikt Hjartarson bakari og sjósundskappi. Lífið 8.7.2009 07:00
Eyfi ekki raðmorðinginn í Suður-Karólínu „Ég hef verið víða í Bandaríkjunum en ekki komið til Karólínu. Ég þekki konu sem heitir Karólína en hún býr í Hafnarfirði," segir Eyjólfur Kristjánsson tónlistarmaður - Eyfi. Lífið 8.7.2009 06:00
Dánarvottorð Jacksons birt Þeir aðdáendur sem borið hafa þá von í brjósti að Michael Jackson sé á lífi gætu hafa misst vonina þar sem dánarvottorð konungsins hefur verið gert opinbert. Lífið 7.7.2009 22:19
Bræddi heimsbyggðina á minningarathöfn - myndband Paris-Michael Katherine Jackson, dóttir poppkonungsins Michael Jackson kallaði fram tár heimsbyggðarinnar þegar hún ávarpaði fjöldann á minngarathöfn sem fram fór í Staples Center í Los Angeles fyrr í kvöld. Þegar Marlon Jackson, bróðir Michael hafði lokið máli sínu og var við það að slíta athöfninni steig dóttirin fram og bað um að fá að ávarpa fjöldann. Lífið 7.7.2009 20:15
Vörurnar rjúka út jafnóðum og þær koma Umboðssalan sem Geir Sveinsson hleypti af stokkunum ásamt nokkrum félögum sínum hefur heldur betur slegið í gegn. Fréttastofa hafði spurnir af því að vörurnar rykju út jafnóðum og þær kæmu. Lífið 7.7.2009 20:11
Geta séð Björk í sturtu í Vesturbæjarlaug Óvíst er hvort fjallagarpurinn, blaðamaðurinn og rithöfundurinn Páll Ásgeir Ásgeirsson myndi skrifa fyrir Íslendinga það sem hann lætur eftir sér í texta ætluðum erlendum túristum í bókinni The Real Iceland sem er nýútkomin. Lífið 7.7.2009 07:30
Fagnar frekar en að syrgja MJ Páll Óskar Hjálmtýsson ætlar að fagna lífi og list Michaels Jackson á Nasa á laugardagskvöld. Til þess hefur hann fengið með sér hljómsveitina Jagúar, Alan Jones og Seth Sharp auk Yesmine og danshóps hennar. Allur ágóði kvöldsins rennur til Barnaspítala Hringsins, en miðaverð er 2.000 krónur. Lífið 7.7.2009 07:00
Bubbi opnar Gay Pride í ár „Ég ætla að syngja um hommann sem býr í öllum karlmönnum. Verið kræfur til kvenna? Jájá, en það gerir að verkum að maður skilur hommana. Neinei, ef við hættum að fíflast þá snýst þetta um að gangast við mennskunni í sjálfum sér og sjá tærleikann í vatninu,“ segir Bubbi Morthens. Lífið 7.7.2009 06:00
Þriðja plata Melchior Hljómsveitin Melchior hefur gefið út sína þriðju plötu. Sveitin hefur allt frá stofnun árið 1973 flutt frumsamið kammerpopp. Þótt tónlistin megi flokkast sem popp hafa sígild hljóðfæri leikið lykilhlutverk í útsetningum og hefur rafmögnun tónlistarinnar alltaf verið hófleg. Lífið 7.7.2009 04:45
Jackson gengur aftur Aðdáendur poppgoðsins Michael Jackson eru sannfærðir um að söngvarinn hafi gengið aftur og birst þeim í sjónvarpsþætti sem var sýndur á bandarísku sjónvarpsstöðinni CNN. Þátturinn ber nafnið „Inside Neverland" og í honum spjallar þáttastjórnandinn Larry King við Jermaine, bróður Jacksons. Lífið 7.7.2009 04:15
Hundinum Dímon finnst skemmtilegast að spranga Hundurinn Dímon veigrar það ekki fyrir sér að spranga í Vestmannaeyjum. Eigandinn segist vera stoltur af hundinum og vonast til að hann geti kennt öðrum dýrum að spranga. Lífið 7.7.2009 04:00
Tónleikar í 21 ár Sumartónleikar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar hefjast í dag í tuttugasta og fyrsta sinn. Alls eru níu tónleikar á dagskrá í sumar, en fyrstar stíga á stokk Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari og Siu Chui Li píanóleikari. Dagskrá kvöldsins samanstendur af Sónötu í e-moll BWV 1034 eftir Bach, Rising from the Ashes eftir Tarek Younis, Sónatínu eftir Pierre Sancan og Inngang og tilbrigði um Trockne Blumen eftir Franz Schubert. Tónleikarnir hefjast klukkan hálf níu og er aðgangseyrir 1.500 krónur. Lífið 7.7.2009 03:45
Opið lengur Vegna fjölda áskorana hefur sýningartími ljósmyndasýningar Leós Stefánssonar ljósmyndara og myndlistarnema verið lengdur. Lífið 7.7.2009 03:30
Heimsækir veik börn Leikarinn Johnny Depp kom í óvænta heimsókn á barnaspítala í London í síðustu viku. Depp, sem var í borginni til að kynna nýjustu kvikmynd sína, kom klæddur sem sjóræninginn Jack Sparrow og eyddi löngum tíma með börnunum. „Johnny var mjög vinalegur. Hann eyddi löngum tíma í að spjalla við starfsfólk spítalans og sjúklingana og börnin fengu að taka mynd af sér með Jack Sparrow,“ var haft eftir heimildarmanni. Spítalinn sem Depp heimsótti var sá sami og dóttir hans dvaldi á árið 2007 eftir mikil veikindi og með þessu vildi leikarinn þakka starfsfólkinu fyrir vel unnin störf. Lífið 7.7.2009 03:00
Stjörnufans á minningarathöfn Jacksons Á morgun fer fram minningarathöfn um Michael Jackson í Staples Center í Los Angeles. Talið er að um 11.000 manns muni sækja athöfnina en aðgangur á hana er ókeypis. Þar af leiðandi komust mun færri að en vildu eins og gefur að skilja. Lífið 6.7.2009 21:08
Natalie Imbruglia vekur athygli á neyð veikra kvenna Natalie Imbruglia syngur um einmanakennd og skömm í vinsælasta lagi sínum sem kallast Torn. Og enn beinir Imbruglia sjónum að þessum neikvæðu tilfinningum en hún hefur vakið athygli Sameinuðu þjóðanna á Lífið 6.7.2009 19:39
Kveður Michael með stæl „Sko mig langar einfaldlega að gera eitthvað fyrir Michael Jackson. Það er minningarathöfn á morgun og það var akkúrat laust pláss á Nasa á laguardaginn og ég var laus og hljómsveitin Jagúar og allir listamennirnir sem ég hringdi í," segir Páll Óskar Hjálmtýsson aðspurður um minningarviðburð sem haldinn verður á laugardaginn á Nasa. „Þetta verður góðgerðarminningarveisla þar sem við söfnum peningum fyrir Barnaspítala hringsins sem er mjög mikið í anda Michael Jackson. Og ég get alveg þeytt skífum í sjö klukkutíma ef því er að skipta. En ég mun sem plötusnúður fara yfir feril Michael frá barnæsku til dauðadags. „Ákveðinn hápunkur verður þegar hljómsveitin Jagúar stígur á svið. Ég tek nokkur lög og svo mætir Yasmin ásamt dönsurum og þau taka Thriller og Smooth Criminal. Liði á eftir að bilast. Ég get ekki beðið og hlakka mikið til," segir Páll Óskar. „Þetta verður meksíkósk jarðarför þar sem við fögnum frekar lífi og tilveru viðkomandi í stað þess að vera í sorg og sút og eymd og ég held að Michael Jakcson vilji hafa það svoleiðis og þakka fyrir það sem allt sem hann gaf okkur." Lífið 6.7.2009 13:22
Afturganga Michael - myndband Ef meðfylgjandi myndband er skoðað má greinilega sjá skuggaveru bregða fyrir á gangi Neverland búgarðsins í beinni útsendingu í þætti Larry King. Margir halda því fram að um afturgöngu Michael Jackson er að ræða. Sjá myndbandið hér. Lífið 6.7.2009 10:46
Plötu Jóhanns lekið á netið Þetta kemur mér ekki á óvart. Þetta er bara normið í dag, segir tónlistarmaðurinn Jóhann Jóhannsson. Lífið 6.7.2009 08:00
Vottaði Jackson virðingu sína Madonna vottaði Michael Jackson virðingu sína á tónleikum í gær, sem hún hélt á sama sviði og Micheal ætlaði að hefja tónleikaröð sína siðar í þessum mánuði. Lífið 5.7.2009 09:00
Maó formaður fylgist með Davíð Óhætt er að kalla nýjasta viðtali hennar Agnesar Bragadóttur við Davíð Oddsson pólitíska bombu í samfélaginu. Fyrrum forsætisráðherrann, seðlabankastjórinn og formaður Sjálfstæðisflokksins lætur gamminn geysa með miklum krafti. Lífið 4.7.2009 17:47