Lífið

Vill ekki kvænast Rihönnu

Tónlistarmaðurinn Chris Brown fagnaði 24ra ára afmæli sínu um helgina í Las Vegas á meðan kærasta hans, Barbardos-bjútíið Rihanna, hélt tónleika í New York.

Lífið

Spennusagnafíklarnir mættu í þetta partí

Spennusagnafíklar og aðdáendur Sólveigar Pálsdóttur rithöfundar fögnuðu og skáluðu fyrir útgáfu bókarinnar Hinir réttlátu í útgáfuteiti á fimmtudaginn var. Fyrsta skáldsaga Sólveigar, Leikarinn, kom út síðastliðið vor og hlaut afar lofsamlega dóma. Þegar hefur verið samið um útgáfurétt Leikarans í Þýskalandi og búið er að selja kvikmyndaréttinn til Íslenska kvikmyndafélagsins.

Lífið

Sjáðu þegar Reese Witherspoon var handtekin

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þegar Hollywoodleikkonan Reese Witherspoon og eiginmaður hennar, James Toth, voru handtekin og í kjölfarið fangelsuð í stutta stund á föstudaginn í Atlanta í Bandaríkjunum. Toth ók undir áhrifum áfengis og var stöðvaður af lögreglunni. Reese var handtekin fyrir að trufla framgang réttvísinnar þegar lögreglumenn höfðu afskipti af eiginmanni hennar fyrir umferðarlagabrot eins og sjá má í myndskeiðinu.

Lífið

Strax komin í bikiní

Glamúrfyrirsætan Holly Madison mætti á opnun hótels í Las Vegas um helgina og lék á alls oddi í bikiníi, aðeins sex vikum eftir að hún eignaðist dóttur sína Rainbow.

Lífið

Boltakúnstir á Barnaspítala

Bandaríska körfuboltaliðið Harlem Globetrotters hélt vel heppnaða sýningu fyrir troðfullu húsi í Kaplakrika um síðustu helgi. Nokkrir meðlimir liðsins notuðu tækifærið og heimsóttu Barnaspítala Hringsins.

Lífið

Lopez lætur líða úr sér

Jennifer Lopez, 43 ára, var upptekin við tökur á ströndinni í Miami í gær klædd í fallegan appelsínugulan sundbol með varalit í stíl. Um er að ræða nýtt tónlistarmyndband fyrrum Idol dómarans við lagið Live it up. Eins og sjá má á myndunum tók hún sig vel út og hikaði ekki við að láta líða úr sér á sólbekknum þegar tækifæri gafst. Skrollaðu niður í grein til að sjá myndskeið.

Lífið

Sjóðheitur á sviði

Justin Timberlake, stillti sér upp með eiginkonu sinni, leikkonunni Jessicu Biel, 31 árs, baksviðs á tónleikum sem hann hélt í gærkvöldi. Hér má einmitt sjá heyra 32 ára stjörnuna taka lagið “Suit & Tie”.

Lífið

Fékk hús frá fyrrverandi

Þúsundþjalasmiðurinn Julianne Hough og Idol-kynnirinn Ryan Seacrest hættu saman í mars síðastliðnum eftir þriggja ára samband. Ryan ákvað að gefa Julianne nokkuð myndarlega skilnaðargjöf.

Lífið

Djammar með fyrrverandi

Tónlistarmaðurinn Chris Brown hélt upp á 24ra ára afmæli sitt í Hollywood um helgina. Hann bauð til stórrar veislu og bauð öllum vinum sínum, þar á meðal fyrrverandi kærustu sinni Karrueche Tran.

Lífið

Giftu sig með sólgleraugu

Meðfylgjandi mynd var tekin af nýgiftu Keiru Knightley, 28 ára, og James Righton í gær í Mazan í Frakklandi. Um var að ræða 30 mínútna langa athöfn þar sem leikkonan grét hamingjutárum á meðan þau játuðust hvort öðru. Hjónin yfirgáfu kirkjuna með Ray-ban sólgleraugu eins og sjá má. Síðan keyrðu þau úr kirkjunni beint í veisluna á Renault Clio.

Lífið

Missti alla vinina í meðferð

X Factor-dómarinn Demi Lovato tékkaði sig inn í meðferð árið 2010 en hún hafði glímt við átröskun og aðra geðsjúkdóma um nokkurt skeið. Hún segist hafa komist að því hverjir raunverulegir vinir hennar voru eftir meðferðina.

Lífið

Ekki detta í það um helgar

"Það er til svo ótrúlega margt hollt og gott og maður þarf ekki alveg að detta í það um helgar. Þið sem eruð búin að púla alla vikuna og líður rosalega vel á hollu fæði og góðri hreyfingu þá meikar ekki sens að detta í óholllustu um helgar. Heldur velja sér hollari rétti sem er samt "trít" eða eitthvað sem þið borðið ekki alla daga," segir Jóhanna Þórarinsdóttir einkaþjálfari Evrópumeistari í bekkpressu beðin um uppskriftir sem smakkast vel en eru ekki óhollar.

Lífið

Sjarmör á skítugum skóm

Leikarinn Keanu Reeves splæsti í afar lekker grá jakkaföt þegar nýjasta mynd hans Generation Um var frumsýnd vestan hafs. Skótauið skemmdi lúkkið örlítið.

Lífið

Ekki í stuði fyrir paparassa

Fyrirsætan Abbey Crouch var ekki par hrifin af því þegar paparassar mynduðu hana í bak og fyrir á stefnumóti með eiginmanni sínum, knattspyrnumanninum Peter Crouch.

Lífið

Hérna er Lindsay í meðferð

Partípían Lindsay Lohan tékkaði sig nýverið inn í meðferð en hún var dæmd til að eyða níutíu dögum þar eftir að hún laug að lögregluþjónum sem rannsökuðu bílslys sem hún lenti í síðasta sumar.

Lífið

Stuð á stuttmyndahátíð

Stutt- og heimildamyndahátíðin Reykjavík Shorts & Docs Festival verður haldin 9. til 16. maí í Bíó Paradís, Kex Hostel og í Slipp Bíó / Reykjavík Marina. Þetta er í 11. sinn sem hátíðin er haldin og að venju er fjölbreytt úrval íslenskra og erlendra stutt- og heimildamynda.

Lífið

Kelidýrið David Beckham

Fótboltakappinn David Beckham eyddi afmælisdeginum sínum í París, borg ástarinnar. Hann var myndaður í bak og fyrir ásamt eiginkonu sinni Victoriu og dóttur þeirra, Harper sem er 21 mánaða gömul. Ef myndirnar eru skoðaðar má sjá að David fær ekki nóg af því að knúsa dóttur sína.

Lífið

Hönk með húmor

Leikarinn Gerard Butler heimsótti Washington í Bandaríkjunum fyrir stuttu og var duglegur að setja myndir af ferðalagi sínu á Twitter.

Lífið

Sigruðu frumkvöðlakeppni kvenna

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar MIA, sigurvegarinn í frumkvöðlakeppni kvenna sem Íslandsbanki, Félag kvenna í atvinnulífinu og Opni háskólinn í Reykjavík stóðu fyrir, hlaut tveggja milljóna króna styrk frá Íslandsbanka. Þær Bylgja Bára Bragadóttir og Álfheiður Eva Óladóttir standa að baki MIA en þær þróuðu hugmynd sem felst í framleiðslu á fljótandi sápum og froðusápum.

Lífið