Erlent
Staðfestir brottför Sýrlandshers Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hefur staðfest að sýrlenskir hermenn og leyniþjónustumenn séu farnir frá Líbanon. Annan tilkynnti þetta á blaðamannafundi í morgun. Annan sagði fréttamönnum að hann gæti staðfest að brottflutningnum væri lokið alls staðar í landinu og að það ætti einnig við um landamærahéruð ríkjanna. Erlent 24.5.2005 00:01
Færri smitaðir en óttast var Heilbrigðisyfirvöld í Östfold í Noregi telja nú að færri séu smitaðir af hermannaveiki en óttast var í gær, en þá var talið að fjöldi veikra og látinna myndi hugsanlega tvöfaldast. Alls hafa 33 af þeim rúmlega hundrað, sem leitað hafa til Östfold-sjúkrahússins vegna gruns um smit, greinst með veikina og hafa fimm þeirra látist. Hins vegar hafa aðeins tveir leitað til sjúkrahússins með einhver einkenni frá því snemma í morgun og það bendir til þess færri séu smitaðir en talið var áður. Erlent 24.5.2005 00:01
Auka framlög til þróunarmála Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu í dag að auka framlög sín til þróunarmála til þess að styðja við baráttu Sameinuðu þjóðanna gegn fátækt í heiminum. Fimmtán eldri aðildarþjóðirnar stefna að því að verja að minnsta kosti 0,51 prósenti af þjóðartekjum til hjálparstarfs árið 2010 og 0,7 prósentum af tekjunum fimm árum síðar, en Danir, Svíar, Hollendingar og Lúxemborgara hafa þegar náð þessum markmiðum. Erlent 24.5.2005 00:01
Mannvíg halda áfram í Bagdad Tveir Írakar létust í morgun þegar bílasprengja reið af við fjölfarna götu í Bagdad. Að minnsta kosti átta liggja sárir. Rúmlega 600 manns, þar af fimmtíu bandarískir hermenn, hafa fallið í landinu frá því uppreisnarmenn blésu til nýrrar sóknar í kjölfar myndunar nýrrar ríkisstjórnar landsins í síðasta mánuði. Erlent 24.5.2005 00:01
Töldu sig hafna yfir lög Hæstiréttur Pitcairn-eyju hefur hafnað beiðni sex manna á Pitcairn-eyju í Kyrrahafi um að máli þeirra verði vísað frá. Erlent 24.5.2005 00:01
Lafontaine genginn úr SPD Oskar Lafontaine, sem var lengi einn helsti forystumaður þýska jafnaðarmannaflokksins SPD, hefur sagt sig úr flokknum og hyggst bjóða sig fram fyrir klofningsframboð vinstrisinna í boðuðum kosningum til Sambandsþingsins. Erlent 24.5.2005 00:01
Alvarlegasta tilfellið í mörg ár Hermannaveikin sem komin er upp í Noregi er alvarlegasta tilfellið á Norðurlöndum í mörg ár. Óttast að tvöfalt fleiri eigi eftir að veikjast innan fárra daga og þeim sem deyja af völdum veikinnar eigi eftir að fjölga um helming. Nú hafa 93 verið lagðir inn á Östfold-sjúkrahúsið í Fredrikstad vegna gruns um lungnabólgu og staðfest er að 29 þeirra eru með hermannaveikina. Af þeim eru fimm dánir. Erlent 24.5.2005 00:01
Einn blóðugasti dagurinn í Írak Írakskir borgarar upplifðu einn blóðugasta dag í tæpt ár í gær en að minnsta kosti 50 Írakar létu lífið í sprengjutilræðum víðs vegar um landið. Rúmlega 600 manns, þar af 50 bandarískir hermenn, hafa fallið í landinu frá því uppreisnarmenn blésu til sóknar í kjölfar myndunar nýrrar ríkisstjórnar landsins í apríl síðastliðnum. Erlent 24.5.2005 00:01
Rýma byggðir vegna eldgoss Stjórnvöld í Kólumbíu gáfu út fyrirmæli um það í dag að um níu þúsund íbúar í hlíðum eldfjallsins Galeras skyldu fluttir á brott þar sem vísindamenn búast við að fjallið fari að gjósa. Nokkur skjálftavirkni hefur verið á svæðinu og telja vísindamenn að gos geti hafist innan nokkurra daga eða vikna. Erlent 24.5.2005 00:01
Bush og Jintao funda á árinu George Bush Bandaríkjaforseti og Hu Jintao, leiðtogi Kína, munu heimsækja hvor annan á þessu ári. Bush hefur ekki verið vinsæll hjá kínverskum yfirvöldum til þessa en í upphafi fyrra kjörtímabilsins síns sagði hann að hann myndi gera allt til að hjálpa Taívan til að verjast ágangi Kína í baráttu sinni til sjálfstæðis. Erlent 24.5.2005 00:01
Sharon vill sleppa fleiri föngum Ariel Sharon, forsætisráðherrra Ísraels, greindi frá því í dag að hann hygðist leggja það til við ríkisstjórn sína að sleppa 400 palestínskum föngum í frekari viðleitni til þess að koma friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Sharon er nú staddur í Washington og á fundi með bandarískum stuðningsmönnum Ísraels í dag lýsti hann því enn fremur yfir að traustið milli Ísraela og Palestínumanna myndi aukast ef fyrirhugaður brottflutningur gyðinga úr landnemabyggðum á Gasaströndinni myndi heppnast vel. Erlent 24.5.2005 00:01
Málflutningi lokið í Jackson-máli Verjendur Michaels Jackson luku málflutningi sínum fyrir rétti í gær, eftir að hafa kallað 50 vitni fyrir hann á þremur vikum. Síðasta vitnið var leikarinn Chris Tucker. Næstsíðastur var spjallþáttastjórnandinn frægi Jay Leno, sem mætti fyrir réttinn á þriðjudag. Erlent 24.5.2005 00:01
Flóð í suðurhluta Kína Mikil rigning hefur verið í suðurhluta Kína að undanförnu með tilheyrandi flóðum. Björgunarsveitir hafa verið uppteknar við að hjálpa fólki víðs vegar um svæðið en samgöngur hafa gengið brösuglega vegna flóðanna sem enn hafa þó ekki haft alvarlegar afleiðingar í för með sér. Búist er við áframhaldandi rigningu á næstu dögum og undirbúa yfirvöld sig fyrir að ástandið versni. Erlent 24.5.2005 00:01
800 þúsund börn týnast árlega Tvö óhugnanleg sakamál þar sem börn eru fórnarlömbin hafa vakið mikla athygli í Bandaríkjunum og víðar að undanförnu. Slíkir harmleikir eru þó því miður ekki einsdæmi. Erlent 24.5.2005 00:01
Kemst upp um barnaníðinga á Ítalíu Lögreglan á Ítalíu hefur yfirheyrt 186 manns, þar á meðal þrjá presta, eftir að upp komst um vefsíðu barnaníðinga á Netinu. Þar voru vistaðar myndir sem sýna börn á aldrinum fjögurra til átta ára pyntuð og beitt kynferðislegu ofbeldi. Auk þriggja presta kaþólsku kirkjunnar eru borgarstjóri, kennari og læknir meðal þeirra sem nýttu sér aðgang að síðunni. Erlent 24.5.2005 00:01
Létust í umferðarslysi á Írlandi Fimm skólastúlkur létu lífið í árekstri skólabíls og tveggja fólksbíla á Írlandi í gær. Alls voru 50 börn í rútunni og eru sex þeirra talin lífshættulega slösuð en einungis eitt barn slapp óslasað úr skólabílnum sem valt á hliðina. Lögreglan segir að stúlkurnar sem létust hafi verið á aldrinum þrettán til sextán ára en orsök slyssins eru ekki kunn þó mikil rigning hafi eflaust átt sinn þátt í að slysið hafi orðið. Erlent 24.5.2005 00:01
Sjö hermenn falla í Írak Sjö bandarískir hermenn féllu í Írak í dag í tveimur sprengjuárásum. Í fyrri árásinni létust þrír hermenn á eftirlitsferð í miðborg Bagdad þegar bílsprengja sprakk nærri ökutæki þeirra. Skömmu síðar var greint frá því að fjórir hermenn hefðu látist í árás í bænum Haswa suður af höfuðborginni. Erlent 24.5.2005 00:01
Ormagöngin óhentug Breskir og bandarískir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að svonefnd ormagöng séu ekki hentug til tímaferðalaga. Erlent 24.5.2005 00:01
Ráðist gegn ópíumbændum Eftir að hafa sætt ámæli fyrir að draga lappirnar í baráttunni við ópíumræktendur hafa afgönsk yfirvöld blásið til stórsóknar síðustu daga. Erlent 24.5.2005 00:01
Hátt í 100 á spítala vegna veiki Þeir nálgast hundraðið, sem lagðir hafa verið inn á sjúkrahús í Noregi vegna gruns um hermannaveiki. Veikin sem blossaði upp í Fredrikstad er alvarlegasta tilfelli hennar á Norðurlöndum í mörg ár. Erlent 24.5.2005 00:01
Segja al-Zarqawi sáran Hópur á vegum al-Qaida samtakanna í Írak greindi frá því í dag að Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi samtakanna í landinu, væri særður. Í yfirlýsingu frá hópnum sem birt var á heimsíðu íslamskra öfgamanna kemur þetta fram en þar eru múslímar hvattir til að biðja fyrir leiðtoganum. Ekki hefur fengist staðfest hvort yfirlýsingin er ófölsuð. Erlent 24.5.2005 00:01
Handtóku mannréttindafrömuð Stjórnvöld í Úsbekistan hafa handtekið mannréttindafrömuð sem greindi fréttamönnum frá því þegar úsbekskar hersveitir skutu á og drápu mótmælendur í borginni Andijan um miðjan mánuðinn. Frá þessu greina mannréttindasamtökin Huma Rights Watch og krefjast þess að manninum verði sleppt tafarlaust. Samtökin segja að yfirvöld í Úsbekistan reyni með þessu hindra að umheimurinn fái nákvæmar lýsingar á því sem gerðist 13. maí í Andijan. Erlent 24.5.2005 00:01
Al-Zarqawi sagður særður Á vefsíðu sem al-Kaída í Írak hefur notað til að birta yfirlýsingar sínar birtust í gær fregnir um að Jórdaninn Abu Musab al-Zarqawi, leiðtogi þeirra, hefði særst í árás. Erlent 24.5.2005 00:01
Sprengt við stúlknaskóla Ofbeldið í Írak hélt áfram í gær sem aldrei fyrr. Sex Írakar dóu í sprengingu fyrir utan barnaskóla í Bagdad í gær og sjö bandarískir hermenn biðu bana í árásum í eða við höfuðborgina. Erlent 24.5.2005 00:01
Stakk þrjá menn á lestarstöð Maður vopnaður hnífi gekk berserksgang á neðanjarðarlestarstöð í Stokkhólmi í gærkvöld og stakk þrjá menn. Einn þeirra er illa særður. Vitni segja að þær fimmtán mínútur sem liðu áður en lögregla náði að handsama manninn hafi verið líkastar martröð. Ekki er ár liðið síðan sami maður stakk fólk á annarri lestarstöð í borginni. Erlent 24.5.2005 00:01
Hugðist selja al-Qaida sprengiefni 68 ára gamall Bandaríkjamaður hefur verið handtekinn fyrir að reyna að selja, að hann hélt, félaga í al-Qaida sprengiefni. Sá síðari reyndist þó vera fulltrúi frá alríkislögreglunni þar í landi og var maðurinn sem fyrr segir handtekinn. Ef maðurinn verður sakfelldur gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsi og sekt upp á 15 milljónir króna. Erlent 24.5.2005 00:01
Ráðherra rauf heimsókn til Japans Wu Yi, varaforsætisráðherra Kína, rauf skyndilega opinbera heimsókn sína til Japans á mánudag og afboðaði fund sem þá stóð til að hún ætti með Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans. Innt eftir skýringum á þessu tilgreindi Kínastjórn í gær reiði vegna heimsókna japanskra ráðamanna í hof þar sem minning japanskra herforingja er heiðruð. Erlent 24.5.2005 00:01
Mænusóttarfaraldur í Jemen Mænusóttarfaraldur geisar nú í Jemen og hafa 108 börn þegar lamast af hennar völdum, samkvæmt upplýsingum fréttastofu <em>Reuters</em>. 14 tilfelli hafa einnig greinst í Indónesíu. Bólusetningarherferð er að fara af stað en sjúkdómsins hefur ekki orðið vart í þessum löndum í meira en áratug. Veiran leggst á heila og mænu, einkum hjá börnum undir fimm ára aldri, og getur lamað þau á nokkrum klukkustundum og jafnvel dregið þau til dauða. Erlent 24.5.2005 00:01
Kalam kemur í heimsókn Dr. A.P.J. Abdul Kalam, forseti Indlands, kemur í opinbera heimsókn til Íslands í boði forseta Íslands á sunnudaginn kemur og mun dvelja hér til 1. júní. Erlent 24.5.2005 00:01
Óttast að tvöfalt fleiri látist Hermannaveikin, sem blossað hefur upp í Noregi á síðustu sólarhringum, er alvarlegasta tilfelli veikinnar á Norðurlöndum í mörg ár. Óttast er að fjöldi látinna og veikra tvöfaldist á næstu dögum. Erlent 24.5.2005 00:01