Erlent
Hinn fullkomni er læknir með góðan húmor Hin fullkomna kona er mjúkholda hjúkrunarfræðingur frá Sheffield, en hinn fullkomni karlkyns félagi væri læknir frá Newcastle með ríkulegt skopskyn og smekk fyrir kasmírpeysum. Þetta er niðurstaða könnunar sem Grazia-tímaritið breska gerði um hinn fullkomna félaga. Erlent 12.12.2006 05:00
Vilja frysta viðræður Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins sátu í gær á rökstólum í Brussel um það hvernig bregðast skuli við því að Tyrkir hafa ekki staðið við skuldbindingar um að opna hafnir sínar og flugvelli fyrir umferð og viðskiptum frá gríska hluta Kýpur. Talsmenn sambandsins höfðu hótað Tyrklandsstjórn því að hlé yrði gert um óákveðinn tíma á aðildarviðræðum Tyrkja, yrði hún ekki við kröfum ESB að þessu lútandi. Erlent 12.12.2006 05:00
Kúgun kvenna skaðar heilsu Konur eru oft útilokaðar frá ákvarðanatökum fjölskyldunnar um matar- og lyfjakaup sem veldur því að börn þeirra eru vannærð og þeirra eigin heilsa í hættu. Þetta segir í nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna um rannsókn sem náði til þrjátíu landa í öllum heimsálfum. Erlent 12.12.2006 05:00
Fær ekki viðhafnarútför Chile-menn hafa skiptar skoðanir á Augusto Pinochet, einræðisherra Chile um sautján ára skeið, sem lést á sunnudag. Sumir fagna láti hans en aðrir syrgja. Erlent 12.12.2006 04:30
Helförin var rædd í ríki klerkanna Umdeild ráðstefna um helförina gegn gyðingum var opnuð í Teheran í gær. Utanríkisráðherrann Manouchehr Mottaki sagði í opnunarávarpi að tilgangurinn væri „hvorki að afneita né sanna að helförin hafi átt sér stað“, en frumkvæðið að boðun hennar átti Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti, sem hefur sagt helförina vera „goðsögn“ og að þurrka bæri Ísrael af landakortinu. Erlent 12.12.2006 04:30
Fleiri vændiskonur horfnar í Ipswich Breska lögreglan óttast að rað-morðingi gangi laus í Suður-Englandi. Lík þriggja kvenna, sem allar störfuðu sem vændiskonur, hafa fundist á síðustu dögum og leikur grunur á að tvær konur til viðbótar séu horfnar. Erlent 12.12.2006 04:15
Bandaríkin svíki ekki eigin grunngildi Kofi Annan, fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, beindi spjótum sínum að Bandaríkjastjórn er hann hélt eina síðustu ræðu sína í embætti í gær. Bandaríkin hefðu sérstöku ábyrgðarhlutverki að gegna vegna risaveldisstöðu sinnar. Erlent 12.12.2006 00:15
Mistök að ýja að kjarnavopnum Ísraela Talskona Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, sagði hann ekki hafa ætlað að segja að Ísraelar ættu kjarnavopn í sjónvarpsviðtali í kvöld. Hann taldi þar upp nafn Ísraels með öðrum kjarnorkuveldum, sem gengur þvert á þá stefnu sem ísraelsk stjórnvöld hafa fylgt undanfarin ár, að neita að gefa upp hvort ríkið eigi kjarnavopn eða ekki. Erlent 11.12.2006 23:11
Fjöldi ökumanna sektaður í Reykjavík 11 ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík um helgina. Yngstur þeirra er liðlega 16 ára piltur sem hefur aldrei öðlast ökuréttindi eins og gefur að skilja. Þá stöðvaði lögreglan för 9 ökumanna sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Tveir þeirra voru nú teknir fyrir þetta brot öðru sinni. Erlent 11.12.2006 23:07
Fuglesang loks lentur við alþjóðlegu geimstöðina Sænski geimfarinn með hljómfagra nafnið, Christer Fuglesang, er ekki einasta kominn út í geim, heldur lentur við alþjóðlegu geimstöðina. Flaugin sem hann og félagar þeyttust með út fyrir hvolfin jarðarinnar lagðist að geimstöðinni upp úr tíu í kvöld. Lendingin á geimstöðinni er hættulegasti hluti ferðarinnar, að sögn Dagens Nyheter. Erlent 11.12.2006 22:51
Hafísinn gæti heyrt sögunni til eftir 34 ár Bandarískir og kanadískir vísindamenn spá því í nýlegri rannsókn að Norðurpóllinn verði íslaus síðsumars strax árið 2040, vegna hlýnunar andrúmsloftsins. Að þeirra mati mun hafísinn hopa fjórfalt hraðar eftir 20 ár en hann hefur nokkurn tíma gert í sögunni. Erlent 11.12.2006 22:37
Gates-hjónin leggja fram 6 milljarða gegn malaríu Stofnun Gates-hjónanna Bills og Melindu hefur heitið tæpum sex milljörðum íslenskra króna til baráttunnar við malaríu í heiminum. Fénu verður varið til betra eftirlits, rannsókna á bólusetningum og til að fyrirbyggja sjúkdóm sem verður rúmlega milljón manna að aldurtila á ári. Erlent 11.12.2006 22:05
Íslamskur skæruliðahópur hótar fleiri sprengjum í Alsír Alsírskur skæruliðahópur íslamskra öfgasinna hefur lýst ábyrgð á hendur sér á sprengjuárás á rútu sem flutti erlenda olíuiðnaðarmenn. Þá varar hópurinn við frekari árásum. Alsírskur bílstjóri rútunnar lést í árásinni á sunnudaginn og særði níu manns, þeirra á meðal fjóra Breta og einn Bandaríkjamann. Erlent 11.12.2006 21:55
Olmert viðurkennir kjarnavopnaeign Ísraela Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, varð í kvöld, að því er virðist, fyrstur ísraelskra ráðamanna til að viðurkenna það sem marga grunaði: að Ísraelar búi yfir kjarnavopnum. Ekki er ljóst af ummælum hans í viðtali sem sýnt var í kvöld, hvort honum varð fótaskortur á tungunni, eða hvort það var ætlun hans að viðurkenna kjarnavopnaeign landsins. Erlent 11.12.2006 20:05
Rændu 70 milljónum úr brynvörðum bíl Íraskir byssumenn dulbúnir sem hermenn stálu í dag einni milljón Bandaríkjadala, að jafnvirði tæplega 70 milljóna íslenskra króna, úr brynvörðum bíl sem var á leið til íraska seðlabankans í Bagdad. Ræningjarnir 10 rændu einnig fjórum öryggisvörðum á einni erilsömustu götu höfuðborgarinnar. Erlent 11.12.2006 19:42
Deilt um helförina Tvær ráðstefnur um helför gyðinga hófust í Íran og Þýskalandi í dag. Í Teheran er spurt hvort helförin hafi í raun átt sér stað en í Berlín er fullyrt að þeir sem neiti því geri það einvörðungu í pólitískum tilgangi. Gögn Þjóðverja sjálfra um ódæðin séu næg sönnun. Erlent 11.12.2006 19:28
Ekki öllum harmdauði Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, er ekki öllum harmdauði, en hann lést á sjúkrahúsi í höfuðborginni, Santiago, í gær 91 árs að aldri. Landar hans skiptast í tvær fylkingar sem ýmist syrgðu hann eða stigu gleðidans við fregnir af andlátinu. Erlent 11.12.2006 19:22
Tengsl milli jafnréttis og velferðar barna Náin tengsl eru á milli jafnréttis kynjanna og velferðar barna, samkvæmt nýrri skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, sem birt var í dag. Þar er vitnað til rannsókna sem sýna að ef karlmenn og konur hefðu jafnmikil völd í ákvarðanatökum myndi vannærðum börnum fækka í heiminum. Erlent 11.12.2006 19:14
Fresta aðildarviðræðum Tyrkja Utanríkisráðherrar Evrópusambandsins samþykkti á fundi sínum í dag að fresta hluta af undirbúningsviðræðum um aðild Tyrkja að ESB um óákveðinn tíma. Tregðu Tyrkja við að opna Kýpverjum hafnir sínar og flugvelli er sögð ástæðan. Erlent 11.12.2006 18:22
Fimmtu vændiskonunnar saknað Lögreglan í Bretlandi leitar nú fimmtu vændiskonunnar sem horfið hefur á stuttum tíma og óttast raðmorðingja sem líkir eftir verkum hins alræmda Kobba kviðristu, sem Englendingar kalla Jack the ripper. Þrjár þessara fimm hafa þegar fundist myrtar. Erlent 11.12.2006 18:12
Albert afhenti trúnaðarbréf í Washington Albert Jónsson afhenti í dag George W. Bush, forseta Bandaríkjanna sem trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Bandaríkjunum. Afhendingin fór fram á skrifstofu forsetans í Hvíta húsinu. Albert var ráðgjafi Davíðs Oddssonar í utanríkismálum til margra ára og leiddi samninganefnd Íslendinga í varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn. Erlent 11.12.2006 17:39
Íhuga að opna kistu Páls postula Embættismenn í Páfagarði eru að velta því fyrir sér að láta opna stóra þykka marmarakistu, sem talið er að geymi jarðneskar leifar Páls postula. Búið er að reyna að taka röntgen myndir af kistunni, en hún er of þykk til þess að sjáist inn í hana. Erlent 11.12.2006 16:25
Veira herjar á farþega stærsta skemmtiferðaskips heims Stærsta skemmtiferðaskip heims, Royal Caribbean´s Freedom of the Seas, er nú fast við bryggju í Miami eftir að magakveisa kom upp meðal farþega í annað skiptið á stuttum tíma. Erlent 11.12.2006 16:04
Fjórir rannsakaðir í Þýskalandi vegna hugsanlegrar póloneitrunar Verið er að rannsaka fjórar manneskjur í Þýskalandi vegna gruns um að þær hafi orðið fyrir sams konar eitrun og dró Alexander Litvinenko, fyrrverandi njósnara hjá KGB, til dauða. Erlent 11.12.2006 15:37
Verdi í gallabuxum Franski tenórinn Roberto Alagna stormaði af sviðinu á Scala óperunni í Milanó í gær, eftir að hópur áhorfenda púaði á hann. Þetta gerðist í miðjum flutningi á óperunni Aidu, eftir Verdi. Púið var ekki vegna þess að Alagna stæði sig illa, heldur til þess að lýsa vanþóknun á þeim ummælum hans að áhorfendurnir í Scala óperunni væru erfiðir og duttlingafullir. Erlent 11.12.2006 15:19
Brenndu myndir af forseta Írans Tugir stúdenta brenndu myndir af Mahmoud Ahmadinejad, forseta Írans, og köstuðu kínverjum til þess að trufla ræðu sem hann flutti við háskóla í Teheran, í dag. Þetta er í fyrsta skipti sem Ahmadinejad er sýndur svo opinn fjandskapur, síðan hann vann stórsigur í forsetakosningum árið 2005. Erlent 11.12.2006 14:32
Pardew rekinn frá West Ham Alan Pardew var í dag sagt upp störfum sem knattspyrnustjóri West Ham eftir slakt gengi liðsins í ensku úrvalsdeildinni. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu, sem er nú í eigu Íslendinga, að það sé gert með hagsmuni félagins í huga en Kevin Keen, þjálfari liðsins, tekur við því tímabundið. Erlent 11.12.2006 14:02
Von á yfirlýsingu um framtíð Pardews hjá West Ham Greint var frá því á Sky-sjónvarpsstöðinni fyrir stundu að vænta mætti yfirlýsingar frá Íslendingafélaginu West Ham um framtíð knattspyrnustjórans Alans Pardews síðar í dag. Erlent 11.12.2006 13:36
Danir kaupa eina geit á mínútu Hjálparstofnun dönsku kirkjunnar er lent í vanda útaf sístækkandi geitahjörð sinni. Stofnunin hleypti um helgina af stað söfnun fyrir fátæka í Afríkuríkinu Malawi, þar sem Danir voru hvattir til þess að kaupa geit í jólagjöf handa þeim. Erlent 11.12.2006 13:30
Óttast raðmorðingja vændiskvenna Breska lögreglan óttast að raðmorðingi, ámóta og hinn illræmdi Jack The Ripper, herji á vændiskonur í Ipswich í austurhluta landsins. Þrjár vændiskonur hafa fundist myrtar þar síðastliðna níu daga. Hinnar fjórðu er saknað og lögreglan telur ástæðu til þess að hafa áhyggjur af öryggi hennar. Erlent 11.12.2006 13:10