Erlent
Geimskot gekk snuðrulaust fyrir sig Geimskultunni Atlantis var skotið á loft frá Canaveral-höfða á Flórída í gær. Þetta er fyrsta geimskot Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, NASA, á þessu ári. Erlent 9.6.2007 11:00
Dauðarefsing afnumin í Rúanda Þjóðþing Rúanda samþykkti í gærkvöld að afnema dauðarefsingu í landinu og taka í staðinn upp lífstíðarfangelsi. Með því er búist við að skriður komist á mál á hendur mönnum sem sakaðir eru um aðild að þjóðarmorðunum í Rúanda árið 1994 þar sem um 800 þúsund manns voru drepnir á um 100 dögum. Erlent 9.6.2007 10:44
Segja Tyrki hafa gert árásir á norðurhluta Íraks Írakar segja Tyrki hafa gert ítrekaðar flugskeytaárásir á norðurhluta Íraks í vikunni. Utanríkisráðherra Íraks hefur sent Tyrkjum mótmælabréf vegna þessa. Erlent 9.6.2007 10:30
Bush til fundar við páfa George Bush Bandaríkjaforseti kom í Vatíkanið í morgun til fundar við Benedikt páfa sextánda. Þetta er fyrsti fundur þeirra. Búist er við að páfi ræði við forsetann um stríðið í Írak og vanda kristinna þar í landi. Erlent 9.6.2007 09:52
Gátu ekki leyst öll vandamál heimsins Mótmælendur voru ánægðir með afrek sín í Heiligendamm. Bush sat inni á hóteli með magakveisu meðan hinir leiðtogarnir héldu fund. Pútín segir eldflaugavarnakerfi Bandaríkjamanna sín vegna mega vera í Tyrklandi eða Írak. Erlent 9.6.2007 07:00
Segist tilbúinn að skila Gólan Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hefur sagt sýrlenskum yfirvöldum að hann sé tilbúinn að skila Gólan-hæðum. Þetta kom fram í umfjöllun ísraelska blaðsins Yediot í gær. Erlent 9.6.2007 06:45
Fangelsi með vitund ráðamanna Svissneski stjórnmálamaðurinn Dick Marty fullyrðir, í nýrri skýrslu sem hann vann fyrir Evrópuráðið, að bandaríska leyniþjónustan CIA hafi starfrækt leynileg fangelsi í Póllandi og Rúmeníu á árunum 2003 til 2005. Hann segir fangelsin hafa verið starfrækt með fullri vitund ráðamanna. Erlent 9.6.2007 06:30
Paris Hilton aftur í fangelsið Paris Hilton kallaði á móður sína og hrópaði: „Þetta er ekki réttlátt!“ þegar hún var leidd grátandi út úr dómsal í Los Angeles í gærkvöldi. Dómarinn hafði skipað henni að snúa aftur í fangelsi til að afplána allan 45 daga dóminn sem hún hafði hlotið fyrir skilorðsbrot. Erlent 9.6.2007 05:00
Gegn Kúrdum í Norður-Írak Tyrknesk stórskotalið sprengdu skotmörk innan landamæra Írak, þar sem talið var að uppreisnarmenn úr röðum Kúrda héldu til. Leiðtogar Kúrda í Írak og Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, vöruðu Tyrki við að ýta undir ólgu á svæðinu með aðgerðunum. Erlent 9.6.2007 04:15
Ólympíumynd veldur flogum Kynningarmyndband fyrir merki Ólympíuleikana sem haldnir verða í London árið 2012 hefur verið fjarlægt af vefnum. Í ljós kom að myndbandið hefur valdið því að sumir áhorfendur fá flogaköst af því að berja það augum. Erlent 9.6.2007 03:45
Græningjar ekki í stjórn Í gær slitnaði upp úr sex daga stjórnarmyndunarviðræðum á Írlandi, þar sem stjórnarflokkur Bertie Aherns forsætisráðherra hafði reynt að mynda stjórn með Græningjum. Erlent 9.6.2007 03:00
Símsamband við Vatnajökul Breski listamaðurinn Katie Paterson hefur gert listunnendum kleift að hlusta á Vatnajökul bráðna með einu símtali. Paterson varð hugfangin af íslensku jöklunum á ferð sinni um landið. Hún kom fyrir hljóð-nema í Jökulsárlóni og í síma má heyra skruðninga, brak og bresti þegar jökullinn molnar og skellur á yfirborði lónsins. Símanúmerið hjá Vatnajökli er 00-44-7758-225698. Erlent 9.6.2007 02:00
Vilja ræða mannréttindabrot Kína Sænsk yfirvöld munu ekki veigra sér við að ræða slæma frammistöðu Kínverja í mannréttindamálum við Hu Jintao Kínaforseta. Þetta var haft Carl Bildt utanríkisráðherra í gær. Kínaforseti heimsækir Svíþjóð um helgina ásamt sendinefnd. Erlent 9.6.2007 01:45
Putin reiðubúin að deila upplýsingum með bandaríska hernum Vladimir Putin, forseti Rússlands, sagðist í dag tilbúinn að deila upplýsingum úr ratsjárstöð þeirra í Aserbaídsjan með bandaríska hernum. Erlent 8.6.2007 22:17
Reglur um vegabréf mildaðar í USA Reglur um framvísun vegabréfa fyrir Bandaríkjamenn á leið sinni inn og út úr Bandaríkjunum verða mildaðar í sumar. Sem kunnugt er hertust reglurnar mikið eftir hryðjuverkaárásirnar í New York 2001. Erlent 8.6.2007 22:13
Atlantis komin á loft Geimskutla Nasa, Atlantis, tókst á loft frá Flórída í Bandaríkjunum nú rétt í þessu, eða klukkan 23:38 að íslenskum tíma. Flugtakið gekk vel og var á áætluðum tíma. Erlent 8.6.2007 20:41
Paris í fangelsi á ný Dómarinn í máli Parisar Hilton hefur fyrirskipað að hún verði send rakleiðis í fangelsi á ný og skuli dúsa þar allan þann tíma sem hún var dæmd til. Paris brotnaði niður þegar að dómarinn kvað upp úrskurð sinn og grét hástöfum. Hún var síðan leidd í handjárnum út í lögreglubíl og þaðan var hún keyrð í fangelsið á ný. Erlent 8.6.2007 19:15
65 íslenskar konur vilja bætur vegna sílikonbrjósta 65 íslenskar konur sem fengu sílikonfyllingar í brjóst á árinu 1992 eða fyrr hafa lagt fram kröfu um skaðabætur á hendur fyrirtækinu sem framleiddi þær. Erlent 8.6.2007 18:16
Hægt að hlusta á Vatnajökul bráðna í símanum Nú getur maður fylgst með gangi hlýnunar jarðar í símanum sínum. Skoskur listamaður hefur komið hljóðnema fyrir í vatni við rætur Vatnajökuls. Erlent 8.6.2007 18:16
Færeyingar hvattir til að hætta þorskveiðum Alþjóða hafrannsóknarráðið (ICES) leggur til að hætt verði veiðum á þorski á færeyska landgrunninu og að færeyska fiskidagakerfið verði endurskoðað á komandi ári. Ráðið telur hrygningarstofn þorsksins svo lítinn að ekki sé vitað hvað verður ef veiðar halda áfram. Erlent 8.6.2007 17:38
Cheney hjá lækni Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, fór í reglulega hjartaskoðun í morgun, samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar. Cheney er 66 ára gamall. Hann hefur fjórum sinnum fengið hjartaáfall og fékk gangráð ígræddan fyrir sex árum. Erlent 8.6.2007 16:54
Danstilskipun til að draga úr offitu Kínverska menntamálaráðuneytið hefur upplýst að það hyggist láta skólabörn landsins læra að dansa, til þess að draga úr offitu. Gagnfræðaskólakrökkum verður til dæmis skipað að læra vals. Kínverjar hafa alltaf stært sig af því að vera grennri en vesturlandabúar. Það hefur hinsvegar breyst með aukinni velmegun og vestrænum skyndbitastöðum. Erlent 8.6.2007 16:42
Paris Hilton komin í Metropolitan dómshúsið Paris Hilton er nú komin á fund Michael Sauer dómara í Metropolitan dómshúsinu. Þangað var hún flutt handjárnuð í lögreglufylgd. Hundruðir paparassa biðu stjörnunnar þegar hún renndi í hlaðið. Erlent 8.6.2007 16:26
Olmert tilbúinn til þess að skila Golan hæðum Hægri menn í Ísrael eru sjóðandi reiðir yfir fréttum um að Ehud Olmert forsætisráðherra hafi sagt Sýrlendingum að hann sé reiðubúinn að skila þeim Golan hæðum. Ísraelar hertóku hæðirnar í sex daga stríðinu árið 1967. Olmert setur þau skilyrði að Sýrlendingar slíti öll tengsl við Íran og Hisbolla og hætt stuðningi við hryðjuverkamenn. Og geri friðarsamning við Ísrael. Erlent 8.6.2007 16:15
Matís leitar leiða til að koldíoxímerkja matvæli Matís (Matvælarannsóknir Íslands) leita nú leiða til þess að koma til móts við kröfur Tesco, stærstu verslunarkeðju Breta, um koldíoxíðmerkingar matvæla. Erlent 8.6.2007 15:25
Bærileg vist í höndum sjóræningja Dönsku sjómennirnir á flutningaskipinu sem var rænt undan ströndum Sómalíu í síðustu viku hafa það þokkalegt, samkvæmt upplýsingum sem danska utanríkisráðuneytið hefur aflað sér. Ráðuneytið vill ekki upplýsa hvort það sé í sambandi við sjóræningjana sjálfa. Fimm Danir eru um borð í Danica White. Erlent 8.6.2007 14:33
Vélmenni hjálpar vísindamönnum að skilja börn Vélbarnið CB2 er nýjasta hönnun japanskra vísindanna. CB2 þykir líkari fyrirmyndinni en fyrri kynslóðar vélmenn. Hreyfingarnar eru mun mýkri en áður hefur sést hjá vélmönnum, húðin er úr sílikoni, hann sýnir svipbrigði, getur skriðið og tekið skref þótt óstöðugur sé. Erlent 8.6.2007 13:01
Mannréttindasamtök gefa út skýrslu um „horfna“ fanga Sex mannréttindasamtök gáfu í dag út upplýsingar um 39 einstaklinga sem talið er að sé haldið föngnum í leynifangelsum Bandaríkjanna. Einnig hefur verið greint frá nöfnum ættingja hinna horfnu fanga sem sjálfir hafa valið í leynifangelsum. Þar er jafnvel um að ræða börn, allt niður í 7 ára aldur. Íslandsdeild Amnesty hefur sent sendiráði Bandaríkjanna hér á landi afrit af skýrslunni. Erlent 8.6.2007 13:00
Fjórtán myrtir á heimili lögreglustjóra Byssumenn réðust inn á heimili lögreglustjórans, Colonel Ali Delyan Ahmed, í Baquba einni hættulegustu borg Íraks í dag. Fjórtán manns voru myrtir, þar á meðal eiginkona lögreglustjórans og bróðir. Auk þeirra týndu ellefu lífverðir lögreglustjórans lífi. Fjórum börnum lögreglustjórans var rænt. Erlent 8.6.2007 11:28
Ekkert Coca-Cola, bara Afri-Cola Þó að Coca-Cola sé auglýst sem „hið eina sanna" er það hvergi að finna á G8 fundinum í Heiligendam í Þýskalandi sem nú stendur yfir. Blaðamönnum sem sækja fundinn hefur hins vegar verið boðið upp á þýskan kóladrykk sem kallast Afri-Cola og er tappað á flöskur í nágrenni fundarstaðarins. Erlent 8.6.2007 11:01