Erlent Rice og Gates funda með leiðtogum arabaríkja í Egyptalandi Herstuðningur Bandaríkjanna til Ísraels, Egyptalands og Saudi Arabíu verður stóraukinn á næstu árum. Utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Bandaríkjanna funda nú með leiðtogum nokkurra arabaríkja í því augnamiði að fá stuðning þeirra til að aðstoða ríkisstjórnina í Írak og koma í veg fyrir frekari kjarnorkuáætlanir Írana. Erlent 31.7.2007 13:28 Rússar minnka tengsl við Hamas Rússar ætla að draga úr samskiptum sínum við Hamas samtökin til þess að sýna Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna stuðning. Þetta var tilkynnt eftir fund Abbas með Vladimir Putin, sem fullvissaði forsetann um að Rússar styddu hann sem réttkjörinn leiðtoga Palestínumanna. Erlent 31.7.2007 12:48 Vísindamenn finna gen sem eykur líkur á því að verða örvhentur Vísindamenn hafa uppgötvað fyrsta genið sem virðist auka líkurnar á því að fólk verði örvhent. Vísindamennirnir, sem eru frá Oxford háskóla í Bretlandi, komust einnig að því að það að hafa þetta gen auki líkurnar lítillega á því að fá ýmsa geðsjúkdóma, þar á meðal geðklofa. Erlent 31.7.2007 12:01 Við heyrðum ópin og grátinn hvert í öðru Erlent 31.7.2007 10:07
Rice og Gates funda með leiðtogum arabaríkja í Egyptalandi Herstuðningur Bandaríkjanna til Ísraels, Egyptalands og Saudi Arabíu verður stóraukinn á næstu árum. Utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Bandaríkjanna funda nú með leiðtogum nokkurra arabaríkja í því augnamiði að fá stuðning þeirra til að aðstoða ríkisstjórnina í Írak og koma í veg fyrir frekari kjarnorkuáætlanir Írana. Erlent 31.7.2007 13:28
Rússar minnka tengsl við Hamas Rússar ætla að draga úr samskiptum sínum við Hamas samtökin til þess að sýna Mahmoud Abbas, forseta Palestínumanna stuðning. Þetta var tilkynnt eftir fund Abbas með Vladimir Putin, sem fullvissaði forsetann um að Rússar styddu hann sem réttkjörinn leiðtoga Palestínumanna. Erlent 31.7.2007 12:48
Vísindamenn finna gen sem eykur líkur á því að verða örvhentur Vísindamenn hafa uppgötvað fyrsta genið sem virðist auka líkurnar á því að fólk verði örvhent. Vísindamennirnir, sem eru frá Oxford háskóla í Bretlandi, komust einnig að því að það að hafa þetta gen auki líkurnar lítillega á því að fá ýmsa geðsjúkdóma, þar á meðal geðklofa. Erlent 31.7.2007 12:01
Verðbólga yfir hundrað þúsund prósent í Zimbabwe í árslok Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn sagði í dag að verðbólga í Zimbabwe, á ársgrundvelli, gæti náð hundrað þúsund prósentum í lok þessa árs. Þetta fullyrðir Abdoulaye Bio Tchane, yfirmaður afrískra þróunarmála hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Til þess að takast á við verðbólguna í landinu ætlar seðlabankinn í Zimbabwe sér að gefa út nýjan peningaseðil, sem verður tvöfalt hærri að verðgildi en sá hæsti sem nú er í umferð. Erlent 31.7.2007 09:55
Fylgst með stærð áfengra drykkja á Skotlandi Opinberir eftirlitsmenn fylgjast nú með stærð drykkja á veitingahúsum og hótelum á Skotlandi. Tveggja vikna átak stendur nú yfir til að tryggja að skammtastærðir séu réttar, en brögð hafa verið að því að vertar snuði viðskiptavini sína. Í sambærilegri könnun á síðasta ári mældu eftirlitsmennirnir 343 drykki, og reyndist tæpur helmingur þeirra of lítill. Erlent 31.7.2007 08:09
Geymdi lík fjögurra fyrirbura á heimili sínu Líkamsleifar fjögurra fyrirbura fundust í plastpokum á heimili 37 ára gamallar konu í Maryland fylki í Bandaríkjunum í gær. Konan var flutt á spítala með miklar blæðingar og krampa, og komust læknar að því að hún hefði verið ófrísk. Því var leitað á heimili hennar. Þar fannst lík nýjasta barnsins vafið í teppi. Tvö önnur fundust svo í plastpoka í kistli í svefnherbergi konunnar. Stuttu seinna fannst það fjórða í húsbíl hennar. Öll barnanna voru fyrirburar, en ekki er vitað hvernig þau létust. Fyrir á konan fjögur önnur börn á unglingsaldri. Erlent 31.7.2007 08:08
Farsímar notaðir til að lýsa skurðaðgerð Skurðlæknar í Argentínu notuðu ljós frá farsímaskjám til að lýsa skurðstofu, þegar þeir þurftu að fjarlægja botnlanga sjúklings í rafmagnsleysi á laugardaginn.Hinn 29 ára Leonadro Molina lá á skurðarborðinu þegar rafmagnið fór af Policlinico spítalanum í Villa Mercedes. Ættingi mannsins safnaði saman farsímum nærstaddra notaði þá til að lýsa skurðarborðið. Rafmagnið komst á klukkutíma síðar, og var deyfingin þá að hverfa úr líkama mannsins. Erlent 31.7.2007 08:05
Álag vegna englaumræðu olli veikindum Mörtu Lovísu Ástæðan fyrir tveggja vikna veikindaleyfi sem Marta Lovísa noregsprinsessa hefur tekið sér er álag vegna fjölmiðlaumfjöllunar um meintar samræður hennar við engla. Þessu heldur blaðið Verdens Gang fram. Prinsessan vakti heimsathygli í síðustu viku þegar hún upplýsti að hún gæti talað við dýr og engla. Hún átti að lesa Pétur og Úlfinn fyrir skólabörn í Bodö í Noregi á fimmtudaginn, en aflýsti því vegna krankleika sem hún vildi ekki útskýra nánar. Erlent 31.7.2007 07:27
Stóraukinn herstuðningur Bandaríkjanna við Mið-Austurlönd Háttsett bandarísk sendinefnd er nú á leið til Mið-Austurlanda, eftir að bandaríkjamenn staðfestu áætlanir sínar um að stórauka vopnasölu til Ísraels, Egyptalands og Sádi Arabíu, vinaþjóða sinna í Mið-Austurlöndum Erlent 31.7.2007 07:24
Herlið Dana á leið heim frá Írak Síðustu dönsku hermennirnir halda heim frá Írak í dag, og lýkur þar með þáttöku Dana í hernaðaraðgerðum þar í landi. Sjö af átta herfylkjum danska hersins hafa verið kölluð heim en 110 hermenn bíða eftir að verða sóttir. Til stóð að þeir færu fyrr, en brottför þeirra seinkaði vegna bilunar í flugvél. Breskur her mun taka yfir það svæði sem Danir hafa haft umsjón með. Erlent 31.7.2007 07:20
Talibanar myrða annan Suður-Kóreskan gísl Lík annars Suður Kóresks gíslsins af þeim tuttugu og þremur sem Talibanar tóku til fanga 19 júní síðastliðinn fannst í Gasní sýslu í Afganistan í nótt. Þeir hafa marg framlengt frest sem þeir gáfu Afgönskum stjórnvöldum til að láta lausa talibana sem þau hafa í haldi, en sá síðasti þeirra rann út á hádegi í gær. Stjórnvöld segjast ekki munu verða við við kröfum þeirra. Talsmaður talibananna, Sabíúlla Mújahíd, sagði þá ætla að myrða fleiri gísla verði föngunum ekki sleppt. Erlent 31.7.2007 07:19
Rússar viðurkenna Abbas sem leiðtoga Utanríkisráðherra Rússlands lýsti forseta Palestínu sem „lögmætum leiðtoga“ Palestínumanna í gær. Abbas heimsækir Rússland þessa dagana í von um álíka stuðning frá Pútín. Ísraelsmenn leyfa flóttamönnum frá Írak að snúa heim. Erlent 31.7.2007 05:15
Tvö þúsund milljarðar til Ísraelsmanna Bandaríkjastjórn mun eyða mörgum milljörðum dollara í hernaðaraðstoð til bandamanna sinna í Mið-Austurlöndum á næstu árum. Erlent 31.7.2007 05:00
Hrapaði niður fjall eftir bónorð Velsk kona hrapaði af fjalli í Wales eftir að kærastinn hennar bað hennar. Þurfti að sauma tíu spor í höfuð hennar eftir fallið. Erlent 31.7.2007 04:30
Blaðamönnum boðið til Gaza Hamas-samtökin buðu í gær hópi erlendra blaðamanna í kynnisferð um Gaza-ströndina.Tilgangur ferðarinnar var að sýna fram á að svæðið væri „öruggt, hreint og grænt" eftir valdatöku Hamas-samtakanna. Erlent 31.7.2007 02:00
Segjast hafa vegið annan gísl frá Kóreu „Í guðanna bænum sendið börn mín til baka svo ég geti haldið utan um þau,“ bað móðir tveggja Suður-Kóreumanna sem talibanar halda í gíslingu í Afganistan. Erlent 31.7.2007 01:15
Eldingu laust niður tvisvar Hinn 68 ára Don Frick varð fyrir eldingu á föstudag í annað sinn á ævinni. Hitt atvikið átti sér stað sléttum 27 árum áður. Erlent 31.7.2007 01:15
Loka íslömsku vikublaði Yfirvöld í Úsbekistan lokuðu í gær íslamska vikublaðinu Odam Orasida (Meðal fólksins), eftir því sem ritstjóri blaðsins segir. Erlent 31.7.2007 01:00
Síðasta herdeild Dana fer heim Sjö af átta herdeildum Dana í Írak hafa yfirgefið landið. Síðasta herdeildin átti að yfirgefa landið í dag en flugvélin sem flytja átti hermennina til Kúveit er ónýt. Því er beðið eftir nýrri vél. Þetta kemur fram í fréttum TV2/Nyhederne í Danmörku. Erlent 31.7.2007 01:00
Send í meðferð til Múrmansk Rússneskur andófsmaður hefur verið neyddur til að dvelja á geðspítala nálægt Múrmansk í Rússlandi, segir skákmeistarinn og stjórnmálamaðurinn Garrí Kasparov. Erlent 31.7.2007 00:45
Danir kalla hermenn sína heim frá Írak Danski herinn mun kalla hermenn sína heim frá Írak á morgun og þar með lýkur þátttöku Dana í hernaðaraðgerðum þar í landi. Breskur her mun taka yfir það svæði sem Danirnir hafa haft umsjón með. Þetta kemur fram á danska fréttavefnum tv2.dk. Erlent 30.7.2007 23:24
Vopnum smyglað á Gaza-svæðið í gegnum göng Egypski herinn fann um helgina nokkur hundruð metra löng göng í bænum Rafah í Egyptalandi sem talið er að hafi verið notuð til að smygla vopnum inn á Gaza-ströndina. Inngangurinn að göngunum var falinn inni í svefnherbergisskáp. Erlent 30.7.2007 21:54
Deilt um vegaframkvæmdir í Póllandi Innan Evrópusambandsins er íhugað að leggja lögbann við vegaframkvæmdir í Póllandi sem ógnað gætu friðuðu lífríki. Vegurinn sem á að tengja borgirnar Varsjá og Helsingi liggur í gegnum Rospuda-dalinn - mólendi þar sem fágætar plöntur og dýr þrífast. Erlent 30.7.2007 21:00
Mynbandsupptaka af suður-kóreskum gíslum birt Al Jazeera sjónvarpsstöðin birti í dag myndbandsupptöku af nokkrum suður-kóreskum gíslum sem eru í haldi talibanskra mannræningja. Myndirnar sýna að minnsta kosti sjö af þeim konum sem rænt var fyrir 11 dögum og hermenn í bakgrunni. Al Jazeera sjónvarpsstöðin segir myndbandið ekki tekið upp í Afghanistan. Erlent 30.7.2007 20:43
Myspace heimasíða tileinkuð látnum Á MyDeathspace.com hefur verið útbúin heimasíða sem minnir um margt á kirkjugarð. Þar er að finna tengingu inn á 2500 Myspace-síður látinna einstaklinga og hefur síðunni verið líkt við minningargreinar dagblaða. Þar fást upplýsingar um einstaklingana sem oftast hafa látið lífið fyrir aldur fram. Sagt er frá nafni, aldri sem og dánarorsök. Erlent 30.7.2007 19:43
Íranar beittir þrýstingi Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands og George Bush forseti Bandaríkjanna telja mikilvægt að beita Írana þrýstingi til að koma í veg fyrir frekari kjarnorkuáætlanir þeirra. Þetta kom fram á blaðamannafundi þeirra í Camp Davíd í Bandaríkjunum í dag. Erlent 30.7.2007 19:30
Dönsk yfirvöld gagnrýnd fyrir að bjóða Íraka sem giftur er tveimur konum landvistarleyfi Danski þjóðarflokkurinn hefur harkalega gagnrýnt útlendingayfirvöld í Danmörku fyrir að bjóða íröskum túlki sem giftur er tveimur konum landvistarleyfi. Hann krefst þess að túlkurinn skilji við aðra þeirra eða honum verði vísað úr landi vegna fjölkvænisins. Erlent 30.7.2007 18:51
Bergman leikstýrði yfir sextíu kvikmyndum Sænski kvikmyndaleiksstjórinn Ingmar Bergman lést í morgun á heimili sínu í Faro í Svíþjóð, 89 að aldri. Bergman leikstýrði yfir sextíu kvikmyndum yfir ævina og hlaut óskarsverðlaunin fyrir þrjár myndir. Erlent 30.7.2007 18:43
Mannræningjar hafa tekið einn af lífi Talíbanskir mannræningjar sem hafa haft 22 suður Kóreumenn í haldi tóku einn þeirra af lífi að því er fréttastofan Reuters greinir frá. Erlent 30.7.2007 18:35