Erlent

Hamas og Fatah berjast

Öryggissveitir Hamas á Gaza ströndinni réðust í dag inn í hverfi stuðningsmanna Fatah hreyfingarinnar. Fatah hefndi sín með árásum á hverfi Hamas á Vesturbakkanum.

Erlent

Unglingar myrtir við sundiðkun í Michigan

Níu ungmenni voru að synda í á í Marinette sýslu í Michigan á fimmtudagskvöldið. Þau áttu sér einskis ills von þegar allt í einu maður vopnaður riffli hóf formálalaust skothríð á þau.

Erlent

Geislavirk efni láku úr kafbáti

Geislavirk efni láku úr bandarískum kafbáti sem var í heimsókn í Japan fyrr á þessu ári. Yfirvöld segja að lekinn hafi verið svo lítill að hann hafi ekki valdið neinum skaða.

Erlent

Airbus A380 lenti á Kennedy velli í fyrsta sinn

Airbus A380 lenti í fyrsta sinn á bandarískri jörðu í gær eftir áætlunarflug. A 380 vélin, sem er stærsta farþegaflugvél í heimi, lenti á Kennedy vellinum í New York. Hún er frá flugfélaginu Emirates, flaug frá Dubai og voru 489 farþegar um borð. Mikil eftirvænting ríkti vegna flugsins því að Airbus er í mikilli samkeppni við Boeing flugframleiðandann um framtíðarstöðu á flugvélamarkaði.

Erlent

Ríkisnefnd um mannasiði fyrir Ólympíuleikana

Kínverjum hefur verið gert að taka sig á í mannasiðum fyrir Ólympíuleikana - svo sem að hætta að hrækja um allar götur og smjatta. Sérstök ríkisnefnd hefur verið sett á laggirnar til að tryggja framfarir í mannasiðum - nefnd til uppbyggingar andlegrar siðmenningar, eins og hún heitir.

Erlent

Pelosi kemur í veg fyrir kosningu um olíuborun

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings notar vald sitt til þess að koma í veg fyrir kosningu um hvort létta eigi banninu við olíuboranir við strendur Bandaríkjanna. Hefur þetta valdið mikilli óánægju meðal Repúblikana sem hafa þrýst á þingið í margar vikur að létta banninu.

Erlent

Harðlínumenn í Ísrael vilja kosningar

Harðlínumenn í ísraelsku stjórnarandstöðunni krefjast þess nú að efnt verði til kosninga þegar í stað. Það gæti orðið til þess að helsti haukurinn í Likud-bandalaginu, Benjamin Netanyahu, komist aftur til valda.

Erlent

Mao-iðnaður fyrir Ólympíuleika

Heilmikill Mao-iðnaður er orðinn til fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í Kína eftir rúma viku. Þessi fyrrum æðsti leiðtogi Kína nýtur enn mikillar hylli meðal Kínverja og nú er arfleifð hans og ímynd meðal þess helsta sem ferðamenn í Kína sækja í. Fréttastofa beinir kastljósinu að Kína í dag og næstu daga í aðdraganda Ólympíuleikanna.

Erlent

Voðaverk framin í Kenýa

Bandarísk mannréttindasamtök hafa hvatt til þess að vopnasölubann verði sett á Kenya vegna manndrápa og voðaverka hersins í ættbálkadeilum í vesturhluta landsins. Breska varnarmálaráðuneytið íhugar að stöðva þjálfun kenýskra hermanna sem sakaðir eru um aðild að málinu.

Erlent

Karadzic fyrir rétt í dag

Radovan Karadizc virtist samstarfsfús þegar réttarhöldin yfir honum hófust í Haag í dag, öfugt við fyrrum samherja sinn Slobodan Milosevitsj, sem var viðskotaillur þar frá fyrsta degi.

Erlent

Vilja að Brown sparki Miliband

Tveir þingmenn breska Verkamannaflokksins vilja að Gordon Brown, forsætisráðherra og leiðtogi flokksins, víki David Miliband, utanríkisráðherra, úr ríkisstjórnina vegna blaðagreinar sem hann ritaði nýverið.

Erlent

Olían hlýðir engum markaðslögmálum

Chakib Khelil forseti OPEC sagði á blaðamannafundi á Indónesíu að eðlilegast sé að framboð og eftirspurn stjórni markaðsverði. Því sé ekki til að dreifa með olíuna.

Erlent

Ákærur lesnar yfir Karadzic

Ákærur voru lesnar yfir Radovan Karadzic fyrrum leiðtoga Bosníu-Serba í stríðsglæpadómstólnum í Haag í dag. Karadzic sat þögull á meðan kærurnar voru lesnar upp en hann er kærður fyrir þjóðarmorð, glæpi gegn mannkyninu og stríðsglæpi.

Erlent

Ætla 100 prósent diplómatísku leiðina

Bretar eru 100 prósent einbeittir á að fara diplómatísku leiðina í deilu þeirra og annarra þjóða við Írana um kjarnorkumál þeirra. Þeir vilja ekki að Ísraelsmenn ráðist á kjarnorkustöðvar Írana. Þetta sagði David Miliband utanríkisráðherra Bretlands í dag.

Erlent