Erlent

Sakar Palin um skítkast

Barack Obama hefur sakað Söru Palin um skítkast eftir að hún sagði að hann væri í vinfengi við hryðjuverkamann.

Erlent

Reiðhjólaþjófafaraldur í Stafangri

Reiðhjólaþjófnaður í Stafangri í Noregi er að verða að faraldri að sögn lögreglu þar. Að meðaltali hefur verið tilkynnt um milli 50 og 60 stolin hjól hvern mánuð

Erlent

Bretar mega aka fullir

Breska stjórnin hefur hafnað tillögu heilbrigðisyfirvalda um að leyfilegt áfengismagn í blóði ökumanna verði lækkað úr 80 í 50 milligrömm á hverja 100 millilítra.

Erlent

Listi yfir látna vikulega vegna fjársvika

Þjóðskrár Bretlands, Skotlands og Wales hyggjast taka upp þá starfsreglu að senda dulkóðaðan lista yfir nöfn og kennitölur þeirra sem deyja í hverri viku til banka og lánastofnana til að fyrirbyggja sviksamlega notkun á nöfnum þeirra og persónueinkennum.

Erlent

Flugvél Maós boðin til sölu

Aukinni velsæld fylgja ný úrlausnarefni. Bílaeign hefur aukist mjög í Kína á síðustu árum. Nú er svo mikill skortur á bílastæðum í kringum verslunarmiðstöð í bænum Zhuhai að forstjórinn ætlar að selja gamla flugvél, sem þar var til sýnis.

Erlent

Palin sakar Obama um að vingast við hryðjuverkamenn

Þau tíðkast nú hin breiðu spjótin í aðdraganda bandarísku forsetakosninganna því Sarah Palin, varaforsetaefni repúbilkana, sakaði í dag Barack Obama, forsetaefni demókrata, um að vingast við hryðjuverkamenn sem beindu spjótum sínum að eigin landi.

Erlent

Obama gagnrýnir stefnu McCains í heilbrigðismálum

Barack Obama, forsetaframbjóðandi demokrata, gagnrýndi stefnumál McCains, forsetaframbjóðanda republikana, harðlega í dag. Hann segir að tillögurnar gagni út á það að milljónir Bandaríkjamanna verði að berjast í bökkum til þess að kaupa heilbrigðistryggingu.

Erlent

OJ Simpson sakfelldur fyrir vopnað rán

Ruðningskappinn O.J. Simpson var í gærkvöldi sakfelldur fyrir vopnað rán og tilraun til mannráns og gæti átt yfir höfði sér lífstíðar fangelsi. Dómari úrskurðar um refsingu í desember.

Erlent

Bush hefur staðfest björgunaráætlunina

George W. Bush hefur staðfest framvarp um aðgeraáætlun Bandaríkjastjórnar sem ætlað er að bjarga fjármálakerfi Bandaríkjanna. Sjö hundruð milljörðum dollara verður varið til að kaupa upp undirmálslán bandarískra lánastofnana.

Erlent

Palin og Biden á kurteisu nótunum í gær

Kappræður varaforsetaefnanna Söru Palin og Joe Biden í nótt þykja hafa verið á kurteisum og háttvísum nótum. Ýmislegt bar á góma í ræðuhöldunum, til dæmis brottflutningur bandarískra hermanna frá Írak

Erlent

Mandelson snýr aftur

Peter Mandelson mun snúa aftur í bresku ríkisstjórnina, að því er fréttastofa Reuters greinir frá. Mandelson hefur síðustu ár gegnt embætti framkvæmdastjóra viðskiptamála hjá Evrópusambandinu.

Erlent

Líkamsleifar finnast við flugvél Fossetts

Björgunarmenn fundu beinflís við flak flugvélar ævintýramannsins Steve Fossets í gær. Lögregluyfirvöld í Madera sýslu, þar sem vélin fannst, sögðu flísina litla, en voru vongóð um að hún nægði til að bera kennsl á Fossett með genarannsóknum.

Erlent