Erlent

Ók á bíla og elti fólk með hníf á lofti

Það þykir ganga næst kraftaverki að ekki slösuðust fleiri en einn þegar óður maður á fertugsaldri gekk berserksgang á fjölfarinni götu í Árósum í gær, vopnaður jeppabifreið og eggvopni.

Erlent

Vonir Blair dvína

Vonir Tonys Blair fyrrverandi forsætisráðherra Breta um að verða fyrsti forseti ráðherraráðs Evrópusambandsins fara nú dvínandi. Leiðtogar sambandsins hittust í gær og á fundinum stuðningsmönnum Blairs ekki að tryggja nægilegan stuðning við hugmyndina.

Erlent

Neyðarástand í New York vegna svínaflensu

David Paterson, ríkisstjóri New York, hefur lýst yfir neyðarástandi í ríkinu vegna svínaflensufaraldursins. Í New York-borg einni saman hafa 800.000 manns greinst með flensuna síðan hennar varð fyrst vart í vor.

Erlent

Áttundi fóturinn finnst við Vancouver

Áttunda mannsfætinum hefur nú skolað upp á Kyrrahafsströnd Kanada, nálægt Vancouver. Fæturnir hafa fundist einn af öðrum yfir tveggja ára tímabil en töluvert langt er um liðið síðan fótur fannst síðast á svæðinu.

Erlent

Hussein hugðist flýja úr fangelsinu

Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, hafði gert áætlun um að flýja úr fangavistinni hjá Bandaríkjamönnum árið 2006 með aðstoð manna sem voru honum hliðhollir.

Erlent

Pelosi kynnti frumvarp um umbætur

Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar, lagði í dag fram frumvarp Barack Obama, Bandaríkjaforseta, um umbætur í heilbrigðiskerfinu. Frumvarpið miðar að því að lækka útgjöld og gera heilbrigðistryggingar ódýrari fyrir landsmenn.

Erlent

Nýja stjórnin gagnrýnd

Verkalýðshreyfingin og stjórnarandstaðan í Þýskalandi gagnrýna nýja ríkisstjórn Angelu Merkel kanslara og segja stjórnina ekki bjóða upp á neinar nýjar lausnir. Ný ríkisstjórn tók formlega við í Þýskalandi í gær. Kristilegir demókratar, flokkur Merkel, og Frjálsir demókratar mynda hina nýju stjórn en áður sátu kristilegir demókratar í stjórn með sósíaldemókrötum.

Erlent

Ræða friðarumleitanir

George Mitchell, sérstakur erindreka Bandaríkjastjórnar í málefnum Mið-Austurlanda, kom til Jerúsamlem í Ísrael í dag. Hann hyggst reyna hvað hann getur til að fá Ísraela og Palestínumenn til að setjast á nýjan leik við samningaborðið. Bandaríkjamönnum er ekki síður umhugað að liðka fyrir sátt á milli Hamassamtakanna og Fatahhreyfingarinnar. Von er á Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Ísraels um helgina.

Erlent

Japanir gera eldflaugatilraunir

Japanar sýndu í dag að þeir eru fullfærir um að skjóta niður eldflaugar sem skotið yrði á land þeirra frá Norður-Kóreu. Japanskt herskip notaði í dag nýja tegund af loftvarnaeldflaugum til þess að skjóta niður bandaríska kjarnorkuflaug, sem að sjálfsögðu var ekki með neinn kjarnaodd. Loftvarnaflaugin virkaði fullkomlega.

Erlent

Heimskir glæponar

Lögreglan í bænum Carroll í Iowa í Bandaríkjunum átti ekki í miklum erfiðleikum með að finna tvo innbrotsþjófa sem hún fékk tilkynningu um.

Erlent

Umferðargenið er fundið

Nú er orðið tilgangslaust að bölva glórulausum ökumönnum í umferðinni. Þeir geta nefnilega ekkert að þessu gert.

Erlent

Loftslagsmál og Lissabon-sáttmálin rædd í Brussel

Loftslagsmál og Lissabon-sáttmálinn eru þau mál sem líklegast þykir að brenni mest á leiðtogum Evrópusambandsþjóðanna þegar þeir hittast á leiðtogafundi í Brussel í dag. Á fundinum er stefnt að því að komast að niðurstöðu um hve mikið hvert aðildarland sambandsins þarf að greiða til þróunarríkjanna til þess að hjálpa þeim í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

Erlent

Sjóræningjar hóta að myrða hjónin

Sómölsku sjóræningjarnir, sem rændu breskum hjónum þar sem þau voru í siglingu um Indlandshaf, hafa hótað að myrða hjónin og brenna bein þeirra, eins og það er orðað, verði ekki orðið við kröfum þeirra um lausnargjald.

Erlent

Skotlandsmet í of hröðum akstri

Tæplega þrítugur skoskur hárgreiðslumaður hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi fyrir að aka vélhjóli á tæplega 270 kílómetra hraða eftir vegi þar sem hámarkshraðinn er 90 kílómetrar á klukkustund.

Erlent

BA hækkar gjöld enn á ný

Breska flugfélagið British Airways mun á ný hækka innritunargjöld fyrir farangur 10. nóvember og hækkar gjald fyrir þriðju tösku sem innrituð er úr 32 pundum í 72 sem er jafnvirði rúmra 14.000 króna.

Erlent

Hvetja Palestínumenn til að sniðganga kosningar

Hamas samtökin hvetja Palestínumenn á Gaza ströndinni til að sniðganga forseta- og þingkosningar sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna og leiðtoga Fatah samtakanna, hefur boðað til í í janúar á næsta ári. Samtökin segja að kosningarnar sé ólöglegar. Hamas samtökin hröktu Fatah frá Gaza ströndinni með vopnavaldi árið 2007.

Erlent

Ný stjórn tekin við í Þýskalandi

Ný ríkisstjórn tók formlega við í Þýskalandi í dag. Kristilegir demókratar, flokkur Merkel, og Frjálsir demókratar mynda hina nýju stjórn en áður sátu kristilegir demókratar í stjórn með sósíaldemókrötum. Angela Merkel, leiðtogi kristilegra, verður áfram kanslari, Guido Westerwelle, leiðtogi Frjálsra demókrata, verður utanríkisráðherra.

Erlent

Fordæmir morðin á starfsmönnum SÞ

Ban Ki-moon, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, fordæmdi í kvöld morðin á starfsmönnum samtakanna í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í nótt. Hann segir þau sýna hversu grimmir og óskammfeilnir Talíbanar séu í aðgerðum sínum.

Erlent

Margir enn fastir í húsarústum

Margir eru enn fastir undir brennandi húsarústum eftir sprengjuárásina sem gerð var í Pakistan í morgun. Slökkviliðsmenn og björgunarsveitir reyna í örvæntingu að bjarga þeim áður en það er um seinan.

Erlent

Hefði étið T-Rex í morgunmat

Steingervingafræðingar í Bretlandi eru nú búnir að raða saman kjálkabeinum úr risavöxnu sæskrímsli sem fundust í fjöru í Dorset. Fyrstu beinin fundust árið 2002 og síðan hafa fundist tuttugu og fimm til viðbótar.

Erlent