Erlent

Segja Avatar byggja á kynþáttahyggju

Hin vinsæla kvikmynd James Cameron, Avatar, er sögð fela í sér kynþáttahyggju. Þetta segir í frétt á vef Daily Telegraph. Gagnrýnendur segja að í boðskap sögunnar megi lesa að litaðir menn séu frumstæðir og ófærir um að bjarga sjálfum sér. Telegraph segir að þessa gagnrýni sé að finna í hundruðum bloggfærslna, YouTube myndskeiða og Twitter færslna.

Erlent

Tveir handteknir í Angóla

Yfirvöld í Angóla hafa handtekið tvo menn sem grunaðir eru um að hafa gert skotárás á rútu fótboltalandsliðs Tógó en þrír létust í árásinni. Mennirnir voru handteknir í Cabinda héraði þar sem árásin var gerð á föstudaginn var. Árásin hefur varpað skugga á Afríkukeppnina sem nú stendur yfir og hefur landslið Tógó dregið sig út úr keppninni og þriggja daga þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í landinu. Aðskilnaðarsamtök í Cabinda héraði hafa lýst árásinni á hendur sér.

Erlent

Upplýsingar um brjóstahaldara átak gegn brjóstakrabbameini

Það hefur vakið athygli undanfarið að konur skrifi liti eins og rauður eða svartur, í svokallaða „statusa“ á samskiptavefnum Facebook. Margir hafa klórað sér í kollinum vegna uppátækisins, aðallega karlmenn þó, því litirnir sem konurnar skrifa tákna lit brjóstahaldarans sem þær eru klæddar í. Nú hefur komið í ljós að uppátækið er runnið undan rifjum grasrótahóps sem vill vekja athygli á brjóstakrabbameini.

Erlent

Þóttist vera breskur lögreglumaður í þrjú ár

Bretinn, Stuart Howatson, var dæmdur í tuttugu mánaða fangelsi fyrir að þykjast vera lögreglumaður í Bretlandi í þrjú ár. Stuart, sem er 31 árs gamall, óf sinn blekkingarvef svo vel að jafnvel eiginkonan hans vissi ekki betur en að hún væri gift stálheiðarlegum lögreglumanni.

Erlent

Grunaður hryðjuverkamaður reyndist kossakrimmi

Lögreglan í New York hafði loks hendur í hári kossakrimma sem fór inn fyrir öryggisvæði án leyfi á flugvelli í Newark í Bandaríkjunum. Lögreglan þar í borg leitaði að manninum af mikilli ákefð og fann loksins.

Erlent

Óeirðir geisa vegna skotárásar

Hundruð innflytjenda, sem flestir eru af afrískum uppruna, hafa undanfarna daga staðið fyrir óeirðum í bænum Rosarno á Suður-Ítalíu. Ástæða óeirðanna er skot­árás óþekkts manns þar sem tveir innflytjendur særðust. Kveikjan að árásinni er kynþáttahatur, að sögn innflytjendanna.

Erlent

Sjö kirkjugestir myrtir

Sjö manns létu lífið þegar þrír vopnaðir menn gerðu í fyrrinótt árás á koptíska kirkju í bænum Nag Hammadí í Egyptalandi.

Erlent

Dregið um aðgang að Blair

Bretland Mikill áhugi er hjá almenningi í Bretlandi á yfirheyrslu yfir Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra, sem verður í lok þessa eða byrjun næsta mánaðar.

Erlent

Harka í hvalastríði

Hvalavinir á vegum samtakanna Sea Shepherd yfirgáfu skip sitt, Ady Gil, skömmu áður en það sökk í gær við Suðurskautslandið. Skipið hafði lent í árekstri við japanskt hvalveiðiskip á miðvikudag.

Erlent

Hjónabönd samkynhneigðra leyfð í Portúgal

Portúgalska þingið samþykkti í dag lög sem heimila samkynhneigðum að giftast. Þingið hafnaði aftur á móti tillögu um að samkynhneigðir mættu ættleiða. Jose Socrates, forsætisráðherra, sagði að um réttlætismál væri að ræða og breytingin væri hluti af nútímavæðingu Portúgals.

Erlent

Hraðbátur Sea Sheperd er sokkinn

Hraðbátur Sea Sheperd samtakanna sem lenti í árekstri við eftirlitsskip á vegum japanskra hvalveiðimanna á dögunum er sokkinn. Báturinn, sem er mjög hraðskreiður og vel tækjum búinn var í togi á leið til hafnar þar sem gera átti við hann þegar línan slitnaði og báturinn sökk niður á hafsbotn.

Erlent

Ekkert lát á frosthörkum í Evrópu

Frosthörkur halda áfram að angra menn í Evrópu.Í gærkvöldiurðu tafir á flugvöllum í Bretlandi, Frakklandi, Írlandi og í Hollandi. Þá festist lest í Ermarsundsgöngunum í tvo klukkutíma og þurfti að aflýsa ferðum fjögurra annara lesta sem áttu að fara um göngin. Í gær fór frostið í Þýskalandi víða niður fyrir tíu gráður og eru saltbirgðir margra sveitarfélaga því sem næst á þrotum. Í Amsterdam hefur mikil snjókoma orsakað miklar tafir og lá strætisvagnakerfið að mestu niðri í gær.

Erlent

Ekki hægt að afgreiða lán til Íslands

„Fréttir síðustu daga frá Íslandi,“ segir sænski þingmaðurinn Carl B. Hamilton á bloggi sínu, „gera það að verkum að Svíþjóð getur ekki greitt nein lán til Íslands.“

Erlent

Reynt að blása í glæðurnar

Ríkisstjórn Baracks Obama í Bandaríkjunum býr sig nú undir eina tilraunina enn til þess að koma friðarviðræðum Ísraela og Palestínumanna af stað.

Erlent

Hluthafar tapa milljörðum

Framhjáhald bandaríska kylfingsins Tigers Woods hefur skilið meira eftir sig en tætta fjölskyldu og í kringum tug hjákvenna. Nýleg könnun sem birt var í Bandaríkjunum í síðustu viku bendir til að hluthafar átta fyrirtækja sem gert höfðu auglýsingasamning við snillinginn með kylfuna hafa tapað samtals tólf milljörðum dala, jafnvirði 1.500 milljarða íslenskra króna, á gengisfalli hlutabréfa í fyrirtækjum sem honum tengdust.

Erlent

Ígildi vantrauststillögu

Tveir fyrrverandi ráðherrar Verkamannaflokksins í Bretlandi vilja að skorið verði úr um hversu mikils fylgis Gordon Brown forsætisráðherra nýtur í raun innan flokksins.

Erlent

Vill heilbrigðislög sem fyrst

Barack Obama Bandaríkjaforseti leggur hart að flokksfélögum sínum bæði í öldunga- og fulltrúadeild Bandaríkjaþings að samþykkja sem allra fyrst endanlega útgáfu heilbrigðisfrumvarpsins, sem báðar deildirnar samþykktu hvor í sínu lagi fyrir jól.

Erlent

Obama: Mistökin að lokum mín

Barack Obama, Bandaríkaforseti, segir að bandarískum yfirvöldum hafi mistekist að vinna úr upplýsingum sem þau bjuggu yfir áður en nígerískur hryðjuverkamaður reyndi um jólin að sprengja flugvél á leið til Bandaríkjanna. Farið verði yfir verklag en mistökin væru á endanum á hans ábyrgð. Forsetinn hefur áður gagnrýnt njósnastofnanir Bandaríkjanna harðlega vegna málsins.

Erlent

Nærbuxnasprengjumaðurinn ákærður

Maðurinn sem reyndi að sprengja upp farþegaflugvél yfir bandarísku borginni Detroit var ákærður í gærkvöldi. Nígeríumaðurinn Umar Farouk Abdulmutallab er ákærður í sex liðum en hann reyndi að sprengja farþegaþotu með 290 farþega innanborðs í loft upp á jóladag með sprengju sem falin var í nærfötum hans.

Erlent

Þak féll á þúsund danska grísi

Björgunarmenn í Danmörku vinna nú hörðum höndum að því að bjarga þúsund grísum á svínabúi í Sindal, en í nótt féll þak á svínabúinu ofan á grísina. Vonast er til þess að um 80 - 90 prósent dýranna hafi lifað af en þakið, sem er um 700 fermetrar að flatarmáli, féll á þau vegna þess að mikill snjór hafði safnast á það í vetrarhörkunum sem geysað hafa í Danmörku eins og annars staðar í Evrópu undanfarna daga.

Erlent

Brown stóð af sér storminn

Talið er að Gordon Brown forsætisráðherra Breta hafi staðið af sér uppreisn samflokksmanna sinna í gær. Tveir fyrrverandi ráðherrar í ríkisstjórn Browns, þau Geoff Hoon og Patricia Hewitt hvöttu til þess í gær að þingmenn Verkamannaflokksins héldu leynilega kosningu þar sem skorið yrði úr um hvort Brown njóti enn trausts til þess að leiða flokkinn í komandi kosningum í vor.

Erlent

Skotið á kirkjugesti

Sex eru látnir eftir að byssumenn skutu á hóp kirkjugesta sem voru að koma frá guðsþjónustu í austurhluta Egyptalands í gær. Kirkjan tilheyrir Koptí-reglunni sem heldur jóladag hátíðlegan 7. janúar og var skotið á kirkjugestina úr bíl sem ók hjá þegar fólkið kom út. Sjö slösuðust í skotárásinni. Um níu prósent Egypta tilheyra reglunni en 90 prósent þeirra eru múslimar.

Erlent