Erlent
FBI býður 1 milljón dollara fyrir Gerena Aðeins einn af þeim sem eru á lista FBI yfir þá tíu sem eru efstir á lista yfir eftirlýsta glæpamenn er verðlagður á eina milljón dollara, ef þannig má að orði komast. Bandaríska alríkislögreglan býður eina milljón dollara, tæplega 130 milljónir króna, fyrir upplýsingar sem leiða til handtöku Victors Manuels Gerena. Erlent 18.1.2012 23:59
Krúttlegi ísbjörninn Knútur settur í brons Ísbjarnahúninn Knútur sem lést fyrir tæplega ári síðan fær styttu af sér reista fyrir utan dýragarðinn í Berlín þar sem hann eyddi fjórum árum af ævi sinni. Erlent 18.1.2012 23:07
Hungraður sebrahestur bragðaði á stúlku Sebrahestur nartaði í stúlku eftir að hafa fengið að bragða á gómsætum kartöfluflögum. Vitanlega var félagi stúlkunnar með snjallsíma á lofti og náðist atvikið því á myndband. Erlent 18.1.2012 22:30
Skipstjóri Concordia segist hafa dottið í björgunarbátinn Skipstjóri skemmtiferðaskipsins Costa Concordia heldur því fram að hann hafi hrasað á þilfari skipsins og þannig dottið í björgunarbát sem ferjaði fólk á þurrt land. Erlent 18.1.2012 22:00
George Lucas yfirgefur Hollywood Leikstjórinn George Lucas hefur lýst því yfir að hann ætli ekki að framleiða aðra stórmynd. Hann ákvað þetta eftir að hafa staðið í ströngu við framleiðslu nýjustu kvikmyndar sinnar. Erlent 18.1.2012 20:53
Titillag Titanic var í spilun þegar Costa Concordia strandaði Titillag kvikmyndarinnar Titanic ómaði um ganga skemmtiferðaskipsins Costa Concordia er það strandaði undan vesturströnd Ítalíu með hörmulegum afleiðingum. Erlent 18.1.2012 20:24
Wahlberg: Ég hefði bjargað flugvélinni 11. september Leikarinn Mark Wahlberg lýsti því yfir í dag að hann hefði bjargað farþegum flugs 93 eftir að hryðjuverkamenn yfirtóku flugvélina 11. september árið 2001. Aðstandendur þeirra sem fórust með flugvélinni hafa hvatt leikarann til að biðjast afsökunar á ummælum sínum. Erlent 18.1.2012 20:01
Náði mynd af andliti í Norðurljósunum Hinn tuttugu og fimm ára gamli ljósmyndari, Jonathan Tucker, náði ótrúlegri mynd af Norðurljósunum á dögunum. Tucker var staddur í Kanada þegar hann tók myndina en þegar hann kom heim tók hann eftir því að andlit sést mótað í ljósunum. Myndin var tekin í Yukon en á henni sést mótað fyrir nefi, kinnum og brosandi munni í grænu ljósunum. Erlent 18.1.2012 20:00
Stal vöruflutningabíl fullum af vodka Atvinnulaus Rússi stal vöruflutningabíl fullum af vodka og öðru áfengi í Rússlandi nýlega en lögreglan stöðvaði hann þó áður en hann náði að taka sjúss af einni flösku. Erlent 18.1.2012 17:31
Fundu höfuð af manni undir Hollywood skiltinu Afhoggið höfuð fannst á göngustíg sem liggur upp að hinu heimsfræga Hollywood skilti í hlíðunum fyrir ofan Los Angeles. Lögreglan í borginni reynir nú að finna út af hverjum höfuðið er en um mann á fimmtugsaldri er að ræða. Konur sem voru að viðra hundana sína gengu fram á höfuðið í gær. Erlent 18.1.2012 13:28
Tíðar hákarlaárásir í Ástralíu undanfarið Ástralskur brimbrettakappi liggur nú alvarlega slasaður á sjúkrahúsi eftir að hákarl réðst á hann. Árásin átti sér stað í bænum Newcastle sem er norðan við stórborgina Sidney. Fyrr í mánuðinum varð önnur hákarlaárás á sömu slóðum og í desember sú þriðja. Hákarlaárásir eru annars fátíðar í Ástralíu og en á síðustu 22 árum hafa 27 látið lífið í slíkri árás. Erlent 18.1.2012 13:21
Björgunaraðgerðum hætt í Costa Concordia Björgunaraðgerðum hefur verið hætt í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem liggur á hliðinni undan ströndum Ítalíu. Skipið hefur færst úr stað og því er ekki talið óhætt fyrir björgunarmenn að athafna sig í því. Erlent 18.1.2012 13:15
Öflugir háloftavindar valda flugfélögum vandræðum Gífurlega öflugir háloftavindar yfir norðanverðu Atlantshafinu hafa valdið mörgum flugfélögum sem fljúga milli Evrópu og Bandaríkjanna miklum vandræðum. Erlent 18.1.2012 07:55
Versti bylur í manna minnum skellur á Seattle Íbúar við norðvestanverða Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna búa sig nú undir versta byl sem skollið hefur á svæðinu í heila kynslóð. Erlent 18.1.2012 07:46
Reykbombu kastað að Hvíta húsinu Reykbombu var kastað yfir girðinguna kringum Hvíta húsið í Washington í gærkvöldi. Þar höfðu rúmlega 1.000 félagar í Occupy hreyfingunni haldið mótmælafund. Erlent 18.1.2012 07:43
Skattamál Romney í sviðsljósinu Skattamál Mitt Romney hafa verið í sviðsljósinu í prófkjörsbaráttu Repúblikanaflokksins þessa vikuna. Erlent 18.1.2012 07:40
Loftsteinar frá Mars fundust í Marokkó Afar sjaldgæfir loftsteinar, sem koma frá Mars, hafa fundist í Marokkó í Afríku. Um er að ræða nær sjö kíló af loftsteinum en slíkir steinar fundust síðast á jörðinni fyrir um 50 árum síðan eða 1962. Erlent 18.1.2012 07:26
Herskipið Absalon verður að sleppa sómölskum sjóræningjum Allar líkur eru á að 25 sjóræningjar sem verið hafa í haldi um borð í danska herskipinu Absalon út af strönd Sómalíu verði settir á land að nýju í Sómalíu og sleppi þar með við refsingu. Erlent 18.1.2012 07:23
Segja vandann við EES skort á lýðræði Norska Evrópunefndin segir EES-samninginn hafa þjónað norskum hagsmunum vel, en gallinn sé sá að Norðmenn taki ekki þátt í ákvörðunum. Utanríkisráðherra Noregs telur EES-samninginn mikilvægari nú fyrir Noreg en árið 1994. Erlent 18.1.2012 07:15
Segja Mubarak vera fórnarlamb „Mubarak er hvorki harðstjóri né blóðþyrstur maður,“ sagði Farid el-Deeb, verjandi Hosni Mubarak í réttarhöldum, þar sem ákæruvaldið fer fram á dauðadóm. Erlent 18.1.2012 06:30
Stjórnarskránni þarf að breyta Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins segir að nokkur ákvæði nýrrar stjórnarskrár, sem tók gildi í Ungverjalandi um áramótin, standist ekki reglur Evrópusambandsins. Erlent 18.1.2012 03:00
Bauð viðskiptavinum munnmök í staðinn fyrir kjúklinganagga Bandarísk kona var handtekinn við McDonalds-stað í Los Angeles á dögunum. Konan, sem er þrjátíu og eins árs, bauð karlkyns viðskiptavinum sem voru staddir í bílalúgunni munnmök í skiptum fyrir kjúklinganagga. Konan hefur nú verið ákærð fyrir athæfið og verður leidd fyrir dómara á næstu dögum þar sem hennar gæti beðið eins árs fangelsis vist og þúsund dollara sekt. Erlent 17.1.2012 23:31
Bílstóll bjargaði lífi 10 vikna stúlku Tíu vikna stúlka lifði hræðilegt bílslys af í Kaliforníu. Bílstóll stúlkunnar var staðsettur í aftursæti bílsins og er talið að það hafi bjargað henni. Erlent 17.1.2012 23:21
Draugur Díönu prinsessu náðist á myndband Sérfræðingar í hinu dulræna rannsaka nú myndband sem tekið var í kirkju í Glasgow. Á myndbandinu virðist andlit Díönu Prinsessu birtast í glermálverki. Erlent 17.1.2012 23:01
Metnaðarfullir leikfangasmiðir hanna risavaxna bílabraut Finnskir bílaáhugamenn hafa líklega hannað hröðustu og stærstu bílabraut veraldar. Erlent 17.1.2012 22:44
Stúlka þóttist vera piltur - reyndi að sænga hjá vinkonum sínum Nítján ára gömul stúlka í Bretlandi hefur verið ákærð fyrir að hafa platað vinkonur sínar til að stunda kynlíf með sér. Stúlkan lifði tvöföldu lífi og þóttist vera piltur þegar atvikin áttu sér stað. Erlent 17.1.2012 22:18
Gekk að eiga látna unnustu sína Tælenskur maður gekk að eiga látna unnustu sína í óhugnanlegri athöfn fyrr í mánuðinum. Hann jarðsetti síðan eiginkonu sína eftir að hjónabandið var innsiglað. Erlent 17.1.2012 21:31
Sálir stóðhesta hreinsaðar í eldi - myndir Hin árlega Luminarias hátíð var haldin í spænska smábænum San Bartolome de Pinares í dag. Reiðmenn og bændur hreinsa þá sálir dýra sinna með því sveipa þau þykkum reyk. Erlent 17.1.2012 20:52
Costa Concordia: Fimm lík fundust til viðbótar í dag Björgunaraðgerðir standa enn yfir í skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við Ítalíustrendur á föstudaginn var. Fimm lík til viðbótar fundust í dag og er því staðfest að ellefu hafi látist. 24 er þó enn saknað. Farþegar og aðstandendur þeirra sem saknað er hafa þegar hafið undirbúning að málshöfðun gegn skipafélaginu. Skipstjóra Concordia er kennt um hvernig fór en hann er sagður hafa skyndilega breytt um stefnu áður en skipið sigldi á kletta skammt undan ströndinni. Erlent 17.1.2012 14:20
Svíar slegnir óhug Svíar eru slegnir óhug eftir að sænsk, 38 ára gömul kona og átta mánaða gömul dóttir hennar, fundust látnar í íbúð í bænum Arboga í Svíþjóð í gær. Sænska lögreglan rannsakar málið sem morðmál, en sænskir fjölmiðlar hafa ekkert fengið staðfest um hvernig þeim gæti hafa verið ráðinn bani. Samkvæmt sænska Dagbladet var fannst konan í stofu íbúðarinnar og dóttirin í svefnherberginu. Konan mun hafa verið með áverka á hálsinum og það eru helst þessir áverkar sem fá lögregluna til að gruna að andlát mæðgnanna hafi borið að með saknæmum hætti. Konan hafði búið við heimilisofbeldi og árið 2010 hafði þáverandi unnusti hennar verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn henni og að hafa hótað henni lífláti. Erlent 17.1.2012 10:14