Erlent

Sarkozy í varðhaldi

Nicolas Sarkozy fyrrverandi forseti Frakklands var í morgun færður til yfirheyrslu af lögreglu vegna gruns um spillingu þegar hann gegndi forsetaembættinu.

Erlent

Blendin viðbrögð við stofnun Kalífadæmis

Samtökin Íslamskt ríki í Írak og Austurlöndum nær, ISIS, lýstu því yfir í gær að þau hafi stofnað kalífadæmi á landi sem tilheyrir Sýrlandi og Írak. Í kjölfarið lýstu samtökin því yfir að þau hafi skipt um nafn, og muni hér eftir heita Islamska ríkið.

Erlent

Háttsettur hershöfðingi rekinn

Háttsettur hershöfðingi í kínverska alþýðuhernum hefur verið rekinn úr kommúnistaflokki landsins og verður væntanlega sóttur til saka fyrir að þiggja mútur. Þrír aðrir hátt settir meðlimir flokksins hafa einnig verið reknir úr flokknum.

Erlent

Isis lýsa yfir stofnun kalífadæmis

Íslömsku öfgasamtökin Isis hafa lýst yfir stofnun nýs ríkis á landsvæðum sem tilheyra Sýrlandi og Írak og hefur leiðtogi þeirra, Abu Bakr al-Baghdadi verið útnefndur kalífi og leiðtogi allra múslima. Þetta hefur lengi verið yfirlýst stefna samtakanna en nú þegar þau viðast stjórna stórum landsvæðum í löndunum tveimur hefur verið ákveðið að ganga alla leið og var tilkynningu þess efnis send út á Netinu í nótt.

Erlent

Mannskæðar árásir í Nígeríu

Að minnsta kosti 10 manns hafa fallið í árásum vígamanna, sem talið er að séu liðsmenn öfgasamtakanna Boko Haram, á nokkur þorp í norðausturhluta Nígeríu í dag.

Erlent

Stjórnarherinn í Írak endurheimtir Tíkrit

Stjórnarherinn í Írak gerði í dag áhlaup á hersveitir uppreisnarmanna öfgasamtakanna ISIS í borginni Tíkrit í norðurhluta landsins, og er borgin nú á valdi stjórnarhersins. Talið er að um 60 liðsmenn ISIS hafi fallið í árásinni.

Erlent

Fjallaljón náðist við steikhús í Bandaríkjunum

Sérstök sveit lögreglunnar sem sér um að handsama dýr var kölluð út og handsömuðu ljónið. Að sögn ABC-fréttastofunnar í Bandaríkjunum skaut einn lögreglumaður að ljóninu en hitti ekki, eins og sjá má í myndbandi sem fylgir fréttinni.

Erlent