Fótbolti
Bent vorkennir Sunderland Darren Bent er leiður yfir því hversu illa Sunderland hefur gengið síðan hann var seldur frá félaginu í janúar síðastliðnum. Enski boltinn 18.4.2011 15:30
Fáum vonandi sóknarmann á næstu dögum Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, segist vera vongóður um að liðið bæti við sig framherja áður en keppni í Pepsi-deildinni hefst um næstu mánaðamót og vonandi strax í þessari viku. Íslenski boltinn 18.4.2011 14:45
Dalglish: Liverpool enn besta félagið í Englandi Kenny Dalglish, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að félagið sé enn besta félagið í Englandi, ef ekki í öllum heiminum. Enski boltinn 18.4.2011 13:30
Vona að Íslendingar fjölmenni Íslenska U21 árs landsliðið í knattspyrnu tekur þátt í úrslitakeppni EM í fyrsta skipti í sumar. Mótið fer fram í Danmörku og er stærsta mót sem Danir hafa haldið. Þar á bæ vonast menn til að Íslendingar fjölmenni. Íslenski boltinn 18.4.2011 13:00
Ferguson ekki reiður út í Scholes Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segist ekki vera reiður út í Paul Scholes fyrir rauða spjaldið sem hann fékk í leiknum gegn Manchester City um helgina. Enski boltinn 18.4.2011 12:30
Davies baðst afsökunar Kevin Davies hefur beðið stuðningsmenn Bolton afsökunar á frammistöðu liðsins í tapleiknum gegn Stoke í ensku bikarkeppninni um helgina. Enski boltinn 18.4.2011 11:41
Enn snjóar á íslenska knattspyrnuvelli - vallarstjórar svartsýnir Þegar íbúar höfuðborgarsvæðisins vöknuðu í morgun blasti við þeim hvít jörð og falla snjókornin enn þegar þessi orð eru skrifuð. Aðeins þrettán dagar eru í fyrsta leik á Íslandsmótinu, Pepsi-deild karla. Íslenski boltinn 18.4.2011 10:51
Sjáðu dramatíkina á Emirates - öll mörk helgarinnar Eins og alltaf á mánudagsmorgnum má sjá öll mörk helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni hér á Vísi ásamt öllum helstu tilþrifunum. Enski boltinn 18.4.2011 10:15
Bale bestur og Wilshere efnilegastur Gareth Bale, leikmaður Tottenham, var í gærkvöldi útnefndur besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar af leikmönnum deildarinnar. Enski boltinn 18.4.2011 09:45
Þrjú íslensk mörk um helgina Íslenskir knattspyrnumenn voru víða á ferðinni um helgina og þrír þeirra skoruðu mark fyrir sín lið. Hér má sjá myndböndin. Fótbolti 18.4.2011 09:37
Meiðsli Carragher reyndust ekki alvarleg Jamie Carragher fyrirliði Liverpool bar sig vel eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Arsenal í dag þar sem að Carragher var borinn af velli vegna höfuðhöggs. Gera þurfti átta mínútna hlé á leiknum á meðan hugað var að meiðslum varnarmannsins en hann missti meðvitund eftir að hafa lent í samstuði við liðsfélaga sinn John Flanagan. Fótbolti 17.4.2011 21:15
Wenger tók ekki í höndina á Dalglish í leikslok Arsene Wenger knattspyrnustjóri Arsenal var alls ekki sáttur við að Liverpool skyldi skora úr vítaspyrnu og jafna metin þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir þann uppbótartíma sem aðstoðardómarinn hafði gefið til kynna á Emirates vellinum í dag. Arsenal og Liverpool skildu jöfn, 1-1, en bæði mörkin voru skoruð úr vítaspyrnum eftir að venjulegur leiktími var liðinn. Fótbolti 17.4.2011 20:00
Veigar Páll skoraði tvívegis í 3-2 tapleik Stabæk Veigar Páll Gunnarsson skoraði tvívegis fyrir Stabæk í dag í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta en það dugði ekki til í 3-2 tapleik liðsins gegn Molde á útivelli. Þetta eru fyrstu mörk Veigars á tímabilinu en Stabæk er með 6 stig eftir fimm leiki og er um miðja deild í áttunda sæti. Fótbolti 17.4.2011 19:00
Fer Tevez í ítalska boltann? Samkvæmt ítalska dagblaðinu Corriere dello Sport verður það algjört forgangsatriði hjá Inter Milan að festa kaup á Carlos Tevez, fyrirliða Manchester City fyrir næsta tímabil. Enski boltinn 17.4.2011 18:15
Markasúpa á Ítalíu Sex leikir fóru fram í seríu A á Ítalíu í dag og mörkin létu ekki á sér standa. Fiorentina og Juventus gerðu markalaust jafntefli í stærsta leik dagsins sem verður að teljast slæm úrslit fyrir bæði lið. Fótbolti 17.4.2011 15:32
Stoke flaug í úrslitaleikinn Stoke fór auðveldlega í úrslit enska bikarsins en þeir gerðu sér lítið fyrir og rótburstuðu Bolton 5-0 í undanúrslitunum á Wembley í dag. Enski boltinn 17.4.2011 14:45
Ótrúlegt jafntefli á Emirates - tvær vítaspyrnur í uppbótartíma Arsenal og Liverpool gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag í hreint mögnuðum leik. Dómari leiksins dæmi tvær vítaspyrnur í uppbótatíma og liðin skildu því jöfn. Enski boltinn 17.4.2011 14:45
Toure: Við ætlum okkur að skrifa nýja sögu Yaya Toure hetja Manchester City er ákveðin í því að vinna enska bikarinn í lok leiktíðarinnar. Toure skoraði eina mark leiksins í gær gegn erkifjendunum í Machester United, en markið kom eftir slæm varnarmistök hjá þeim rauðklæddu. Enski boltinn 17.4.2011 14:42
Ferdinand skýtur föstum skotum á Balotelli Rio Ferdinand, leikmaður Manchester United, er ekki parsáttur með framkomu Mario Balotelli, leikmanni Machester City, eftir undanúrslitaleikinn í ensku bikarkeppninni í gær. Enski boltinn 17.4.2011 14:30
Wilshere er ekki aðeins fljótur - hann hleypur líka langt Jack Wilshere leikmaður Arsenal er ekki aðeins góður i fótbolta því samkvæmt mælingum sem breska dagblaðið Daily Mail hefur framkvæmt í samstarfi við EA Sports er hann í sérflokki hvað varðar yfirferð og hraða í ensku úrvalsdeildinni. Niðurstöður mælinga sem gerðar voru á leiktíðinni voru birtar í dag og Wilshere er sá fljótasti í Arsenalliðinu og þar fyrir utan er hann sá sem hleypur mest í hverjum leik. Enski boltinn 17.4.2011 13:30
Ferguson segir að Scholes sé einn besti leikmaðurinn í sögu Man Utd Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United segir að Paul Scholes sé einn besti leikmaður félagsins frá upphafi en hann eigi einnig það til að missa algjörlega stjórn á skapi sínu líkt og í leiknum í gær gegn Manchester City. Scholes fékk rautt spjald í leiknum um miðjan síðari hálfleik eftir ruddalega tæklingu þegar Man Utd var marki undir og eftir það var á brattann að sækja. Enski boltinn 17.4.2011 12:45
Bayern München rúllaði yfir Leverkusen - Dortmund í góðri stöðu Tveir leikur fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Borussia Dortmund var í engum vandræðum með Freiburg, en toppliðið vann 3-0. Bayern München valtaði yfir Leverkusen 5-1 og því breikkaði bilið milli Dortmund og Leverkusen. Fótbolti 17.4.2011 00:00
Kolbeinn skoraði sitt 12. mark á tímabilinu fyrir AZ Alkmaar Kolbeinn Sigþórsson, sem er lykilmaður í U21 árs landsliði Íslands, skoraði fyrsta mark AZ Alkmaar í kvöld í 3-1 sigri liðsins gegn Den Haag í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Jóhann Berg Guðmundsson er meiddur og var hann því ekki í leikmannahópnum. Fótbolti 16.4.2011 22:30
FH varði titilinn með 3-0 sigri gegn Blikum í Meistarakeppni KSÍ Bikarmeistaralið FH sigraði Íslandsmeistaralið Breiðabliks, 3-0, í Meistarakeppni KSÍ í kvöld en leikurinn fór fram í Kórnum í Kópavogi. Pétur Viðarsson skoraði fyrsta mark leiksins rétt undir lok fyrri háfleiks. Matthías Vilhjálmsson bætti við öðru marki um miðja síðari hálfleik og þegar korter var eftir af leiknum skoraði Hannes Þ. Sigurðsson þriðja og síðasta mark FH-inga. Fótbolti 16.4.2011 20:21
Messi og Ronaldo skoruðu báðir - Barcelona er enn með 8 stig forskot Stórliðin Real Madrid og Barcelona áttust við í hinum eina sanna El Clasíco á Bernabeu vellinum í Madrid. Barcelona í kvöld. Tveir af bestu leikmönnum heims, Lionel Messi og Cristiano Ronaldo, skoruðu mörkin en leikurinn endaði 1-1. Það gekk mikið á í síðari hálfleik þar sem að Real Madrid missti mann af velli með rautt spjald en lokakafli leiksins var frábær þar sem Real Madrid var síst lakari aðilinn - manni færri. Fylgst var með gangi mála á boltavakt Fréttablaðsins og visir.is. Barcelona er með 85 stig í efsta sæti deildarinnar en Real Madrid er í öðru sæti með 77 stig. Fótbolti 16.4.2011 19:45
Jóhannes Karl með þrumufleyg sem tryggði Huddersfield sigur Jóhannes Karl Guðjónsson skoraði sigurmark Huddersfield á útivelli gegn Charlton í ensku 2. deildinni í dag. Sigurinn var mikilvægur fyrir Huddersfield sem er í öðru sæti deildarinnar á eftir Brighton sem er með 77 stig en Huddersfield er með 67 stig. Markið skoraði Jóhannes með skoti beint úr aukaspyrnu á 83. mínútu af um 30 metra færi. Enski boltinn 16.4.2011 17:32
Man City leikur til úrslita - Yaya Touré tryggði sigurinn Manchester City og Manchester United áttust við í dag í undanúrslitum ensku bikarkeppninnar á Wembley og tryggði Yaya Touré Man City 1-0 sigur með marki á 52. mínútu. Paul Scholes var rekinn af leikvelli í liði Man Utd í síðari háfleik. Man City hefur ekki leikið til úrslita um enska bikarinn frá árinu 1981 og liðið hefur ekki unnið titil frá árinu 1976. Fylgst var með gangi mála í leiknum á boltavakt Fréttablaðsins og visir.is. Enski boltinn 16.4.2011 16:00
Gylfi lék í 45 mínútur í 1-0 sigri Hoffenheim Gylfi Sigurðsson lék í 45 mínútur með Hoffenheim í 1-0 sigri liðsins gegn Frankfurt í dag í þýsku 1. deildinni. Gylfi kom inná sem varamaður í upphafi síðari hálfleiks en hann hefur aðeins fengið tækifæri í byrjunarliðinu hjá Hoffenheim í 6 leikjum það sem af er tímabilinu. Fótbolti 16.4.2011 15:23
Örebro tapaði á útivelli gegn Tyresö - Edda í byrjunarliðinu Landsliðskonan Edda Garðarsdóttir var í byrjunarliði Örebro sem tapaði 2-1 á útivelli gegn Tyresö í dag í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir var ekki í leikmannahóp Örebro í dag en liðið er með 1 stig að loknum tveimur leikjum. Fótbolti 16.4.2011 14:14
Jónas Guðni var í byrjunarliði Halmstad í tapleik Jónas Guðni Sævarsson fyrrum leikmaður KR og Keflavíkur var í byrjunarliði Halmstad í dag í 2-0 tapleik liðsins gegn GAIS frá Gautaborg í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Hallgrímur Jónasson var á varamannabekk GAIS og kom hann ekkert við sögu í leiknum. Fótbolti 16.4.2011 14:04
Uppgjörið: Keflavík - Grindavík 99-105 | Grindavík styrkti stöðu sína á toppi deildarinnar Körfubolti