Fáum vonandi sóknarmann á næstu dögum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. apríl 2011 14:45 Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV. Mynd/Daníel
Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, segist vera vongóður um að liðið bæti við sig framherja áður en keppni í Pepsi-deildinni hefst um næstu mánaðamót og vonandi strax í þessari viku. ÍBV varð fyrir áfalli þegar að Gunnar Heiðar Þorvaldsson, sem var þá nýbúinn að semja við liðið, ákvað að taka tilboði Norrköping í Svíþjóð og halda aftur í atvinnumennskuna. Heimir segir forgangsmál að fá framherja en liðið fór nýlega í æfingaferð til Spánar þar sem þrír enskir leikmenn voru til reynslu hjá félaginu. „Við höfum verið að velta fyrir okkur nokkrum möguleikum og alls ekki útilokað að einhver af þeim leikmönnum sem voru með okkur á Spáni komi í sumar,“ sagði Heimir við Vísi. Hann segir einnig að slæmt veðurfar hafi sett strik í reikninginn en liðið hefur ekkert getað æft á grasi. „Þá er ekki viturlegt að fá leikmenn á reynslu á meðan svo er. En þetta er allt opið enn þá og vonandi verður meira að frétta síðar í vikunni.“ Tveir af þeim leikmönnum sem voru til reynslu hjá félaginu eru á mála hjá Crewe á Englandi og sá þriðji hjá Newcastle. Þetta yrðu því lánsmenn sem þyrftu að fara aftur til sinna félaga áður en mótið klárast hér á Íslandi. ÍBV á þó góða reynslu af slíkum lánsmönnum. James Hurst var einn besti leikmaður deildarinnar í fyrra og Eyjamenn fengu tvo sterka leikmenn fá Crewe fyrir tveimur árum. Heimir segir að Hurst hafi verið áhugasamur um að koma aftur. „Honum dauðlangar til þess en hann fékk ekki leyfi til þess. Hann er einnig að fara að spila með U-19 ára liði Englands í sumar. Hann hefur þó verið að tala vel um okkur og við eigum bara plús inni fyrir þetta.“ „Hið sama má segja um strákana frá Crewe. Það virðist bara gera mönnum gott að koma til Vestmannaeyja.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira