Sport

Stóra leyndarmálið um markverði í vítakeppnum afhjúpað

Hópur vísindamanna í Hollandi hefur sett fram skemmtilega kenningu sem margir fótboltaþjálfarar eiga eflaust eftir að nýta sér í framtíðinni. Samkvæmt niðurstöðu rannsóknar sem sérfræðingarnir gerðu eru meiri líkur á því að markverðir skutli sér til hægri í vítaspyrnum sem framkvæmdar eru við hátt spennustig í úrslitaleikjum eða vítaspyrnukeppnum.

Fótbolti

Bronsið á NM í höfn eftir 19 stiga sigur á Norðmönnum

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tryggði sér bronsið á Norðurlandamótinu í Sundsvall með því að vinna 19 stiga sigur á Norðmönnum, 80-61, í lokaleik sínum í dag. Íslenska liðið endaði því mótið á tveimur sigurleikjum eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum sínum á móti Finnum og Svíum.

Körfubolti

Golfskóli Birgis Leifs: Röðun hreyfinga í framsveiflunni

Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, fer hér yfir röðun hreyfinga í framsveiflunni. Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Rétt röð hreyfinga á mjöðmum, höndum og öxlum er eitt af lykilatriðum í golfsveiflunni og Birgir Leifur sýnir hér hvaða áherslur hann leggur sjálfur á í þessum atriðum.

Golf

Veðurguðinn heim á Selfoss

Knattspyrnumaðurinn Ingólfur Þórarinsson hefur gengið til liðs við Selfoss. Ingólfur hefur verið á mála hjá Víkingum en fengið fá tækifæri í búningi reykvíska félagsins í sumar. Sunnlenska.is greinir frá þessu.

Íslenski boltinn

Knattspyrnufélög Evrópu ósátt við FIFA

Þjóðverjinn Karl-Heinz Rummenigge, formaður samtaka evrópskra félagsliða (ECA), vill að félögin standi fyrir byltingu gegn spilta fólkinu sem ræður ríkjum hjá FIFA eins og Rummenigge orðaði það.

Fótbolti

Tíu ára einhentur golfstrákur sýnir snilldartakta - myndband

Tíu ára gamall enskur strákur, Leo Millar, hefur vakið athygli í heimalandinu og víðar fyrir golfleik. Þegar Millar fæddist kom í ljós að á hann vantaði alla fingur á hægri hendina en hann lætur það ekki aftra sér frá því að slá golfbolta og stunda aðrar íþróttir. Með hjálp stoðtækjasmiða hefur Millar fengið sérstakt "grip“ á hægri hendina og eftir að hafa stundað æfingar í aðeins sjö vikur er Millar farinn að slá golfboltann hátt í 200 metra.

Golf

Stórsigur Chelsea á Kitchee í Asíu-bikarnum

Chelsea tók heimamenn í Kitchee í kennslustund í Asíu-bikarnum í knattspyrnu. Chelsea vann stórsigur í leiknum 4-0 og leikur í úrslitum keppninnar á laugardag. Andstæðingurinn verður Aston Villa sem vann Blackburn í fyrri leik dagsins.

Enski boltinn

Innsend frétt frá veiðihóp sem var koma úr Veiðivötnum

"Við félagarnir vorum að veiðum í Veiðivötnum á dögunum og veiddist bara ágætlega þrátt fyrir að lenda í leiðindar veðri í tvo hálfa daga. Þrátt fyrir það er fiskurinn enn til staðar í vatninu þannig að það er um að gera að láta sig hafa það að reyna.

Veiði

Holl með 81 lax úr Hítará I

Við heyrðum af holli sem lauk veiðum nýlega í Hítará I og lokatalan er allsvakaleg! 81 lax sem er met í Hítará. Það hafa verið að detta í ánna stórar göngur eins og víðar á Mýrunum, sem skilar sér í þessari frábæru veiði.

Veiði

Vandræðagangur hjá CSKA Sofia í Búlgaríu

Búlgarska knattspyrnusambandið hefur lokað á félagaskipti miðjumannsins Marquinho frá CSKA Sofia til kýpverska félagsins Anorthosis Famagusta. Ástæðan er vandgoldnar skuldir búlgarskra félagsins við önnur félög.

Fótbolti

Skemmtilegur leikur hjá Veiðihorninu

Veiðihornið í Síðumúla hefur bryddað upp á skemmtilegum og nýstárlegum getraunaleik. Það er í sjálfu sér ekkert nýstárlegt við getraunir, en hvernig þessi leikur er settur upp er skemmtilegt nýnæmi. Og verðlaunin eru flott.

Veiði

Leikmenn mega ekki fá sér húðflúr á keppnistímabilinu

Forráðamenn þýska fótboltaliðsins Werder Bremen hafa bannað leikmönnum liðsins að fá sér húðflúr á meðan keppnistímabilið stendur yfir. Að mati félagsins eiga leikmenn liðsnis ekki að standa í slíkum aðgerðum á meðan þeir eru í vinnunni og geta þeir aðeins skreytt líkama sinn á meðan þeir eru í sumarfríi.

Fótbolti

Ísland upp um eitt sæti á styrkleikalista FIFA

Ísland og Færeyjar hækka á nýjasta styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun. Ísland er nú í sæti númer 121 en landsliðið náði sögulegri lægð á listanum í síðasta mánuði þegar liðið var í 122. sæti. Grenada, Tæland og Liechtenstein eru í sætunum fyrir ofan.

Fótbolti

Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig á að taka stefnuna í högginu?

Birgir Leifur Hafþórsson fer hér yfir hvernig best er að stilla sér upp fyrir högg. Atvinnukylfingurinn bendir á algengustu villurnar sem áhugamenn gera þegar þeir stilla sér upp fyrir högg og taka þar með ranga stefnu frá upphafi. Atriðið er úr Golfskóla Birgis Leifs sem sýndir eru á Stöð 2 sport.

Golf

Steve Williams allt annað en sáttur við Tiger Woods

Steve Williams, sem nýverið var sagt upp störfum sem kylfuberi hjá Tiger Woods, segir að virðing hans á bandaríska kylfingnum hafi ekki verið upp á marga fiska eftir að upp komst um framhjáhald Woods í lok árins 2009.

Golf

Veiðidagbók Strengja komin í gagnið

Loksins hefur rafræna veiðidagbókin í Breiðdalsá komist í lag eins og sjá má vefnum hjá www.strengir.is . Og veiðin er komin yfir 300 laxa og að langmestu leyti vænn tveggja ára lax sem hefur veiðst enn, á bilinu 70-85 cm og í áberandi góðum holdum þetta sumarið.

Veiði

Hálendisveiðin gengur vel

Veiði hefur glæðst mjög í Veiðivötnum og er nú í góðu meðallagi eftir rólega byrjun. Þetta kemur fram á Veiðivatnavefnum sem Örn Óskarsson stýrir af myndarskap.

Veiði

Michael Owen telur að hann fái fleiri tækifæri á næstu leiktíð

Framherjinn Michael Owen, sem nýverið samdi við enska meistaraliðið Manchester United til eins árs, segir að Alex Ferguson ætli honum stórt hlutverk með liðinu á næstu leiktíð. Owen, sem er 31 árs gamall, hefur verið hjá Man Utd frá því hann kom til liðsins frá Newcastle árið 2009. Hann fékk fá tækifæri með aðalliði Man Utd á síðustu leiktíð en Owen segir að Ferguson ætli að nota hann meira á næsta tímabili.

Enski boltinn

Veigar Páll fær góðar kveðjur frá stuðningsmönnum Stabæk

Stuðningsmenn norska fótboltaliðsins Stabæk óska Veigari Páli Gunnarssyni velgengni á nýjum vinnustað fótboltamannsins í Þrándheimi. Veigar Páll hefur verið einn af vinsælustu leikmönnum Stabæk hjá stuðningsmönnum liðsins en hann er nú á förum til meistarliðs Rosenborg.

Fótbolti

Button ekur í 200 Formúlu 1 mótinu á sunnudaginn

Það verða tímamót hjá Jenson Button hjá McLaren á sunnudaginn. Þá keppir hann í sínu 200 Formúlu 1 móti. Á sunnudaginn verður keppt á Hungaroring brautinni skammt frá miðborg Búdapest. Button vann sinn fyrsta sigur í Formúlu 1 á brautinni árið 2006.

Formúla 1

Vægast sagt lélegur með hægri

Guðmundur Reynir Gunnarsson, bakvörður KR-inga, hefur farið á kostum með liðinu í sumar. Hann segir sig langa í atvinnumennsku hvenær sem af því verður. Guðmundur Reynir átti frábæran leik í 4-0 sigrinum á Breiðablik í 12. umferð Pepsi-deildar og er besti

Íslenski boltinn