Íslenski boltinn

Rúnar: Aldrei gaman að tapa fótboltaleikjum

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Það er aldrei gaman að tapa fótboltaleikjum,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, eftir leikinn í kvöld.

„FH-ingar áttu þetta kannski bara miklu meira skilið en við. Við fengum virkilega góð færi í lokin og hefðum með smá heppni náð að jafna leikinn, en FH-ingar fengu líka fullt af færum og áttu að vera búnir að klára leikinn fyrir löngu".

„Það var samt alltaf smá líf í leiknum og við áttum alltaf fínan möguleika. Það vantaði fjóra byrjunarliðsmenn í liðið í kvöld og við hreinlega réðum ekki við það. Þessi skakkaföll riðluðu öllum okkar leik í kvöld þrátt fyrir að góðir menn komu inn í liðið, þeir eru ekki eins vanir því að spila saman“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×