
Sport

Bournemouth og Leicester komu til baka á ævintýralegan hátt
Mikil dramatík var í leikjum Ipswich Town og Bournemouth og Leicester City og Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Dramatík þegar Arsenal gerði jafntefli á Craven Cottage
Arsenal gerði 1-1 jafntefli við Fulham í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Antonio búinn í aðgerð
Michail Antonio, framherji West Ham United, hefur gengist undir aðgerð vegna áverkanna sem hann varð fyrir í bílslysi í gær.

Norris vann og tryggði McLaren fyrsta titilinn í 26 ár
Lando Norris hrósaði sigri í Abú Dabí kappakstrinum, síðustu keppni tímabilsins í Formúlu 1. Með sigrinum tryggði hann McLaren heimsmeistaratitil bílasmiða.

Setti tvö og var bestur á vellinum
Ísak Bergmann Jóhanesson fór mikinn með liði Fortuna Dusseldorf sem vann 5-0 sigur á Einstracht Braunschweig í þýsku B-deildinni í dag.

Áttundi sigur Alberts og félaga í röð
Albert Guðmundsson kom inn á sem varamaður þegar Fiorentina vann Cagliari, 1-0, í ítölsku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var áttundi deildarsigur Fiorentina í röð.

Tryggvi stigahæstur á vellinum
Landsliðsmiðherjinn Tryggvi Snær Hlinason var stigahæstur á vellinum þegar Bilbao Basket tapaði fyrir Baskonia, 67-69, í spænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í dag.

Fimmtíuogsex stig Jókersins fóru til spillis
Nikola Jokic setti persónulegt stigamet þegar Denver Nuggets tapaði fyrir Washington Wizards, 122-113, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.

Brestir í samstarfi Ratcliffe og Ashworth
Svo virðist sem Sir Jim Ratcliffe hafi látið reka Dan Ashworth úr starfi íþróttastjóra Manchester United.

Arnór ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val
Arnór Smárason hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Val. Hann tekur við starfinu 1. janúar næstkomandi.

Íþróttastjórinn hættur hjá United eftir fimm mánuði í starfi
Dan Ashworth er hættur sem íþróttastjóri Manchester United aðeins fimm mánuðum eftir að hann tók við starfinu.

Tók starfi í NBA eftir hvatningu frá íslenskum vinkonum
Kvennakarfan verður í brennidepli í þriðja þætti Kanans sem verður sýndur í kvöld. Þar verður meðal annars rætt við fyrrverandi leikmann Keflavíkur sem starfar við þjálfun í NBA.

LA Galaxy MLS-meistari í sjötta sinn
Úrslitaleikur MLS-deildarinnar í fótbolta fór fram í nótt. Þar hafði Los Angeles Galaxy betur gegn New York Red Bulls, 2-1.

Lokkur úr hári Maradona til sölu og metinn á margar milljónir
Yfir tvö hundruð sjaldgæfir munir úr heimi íþróttanna verða á uppboði í París næstu helgi.

Fékk framlengdan samning hjá Malmö eftir þrennuna
Eftir að hafa skorað þrennu í bikarleik í vikunni hefur Daníel Tristan Guðjohnsen framlengt samning sinn við sænska félagið Malmö. Samningurinn gildir nú til næstu fjögurra ára, eða til ársloka 2028.

Mbappé á skotskónum og Real Madrid getur tekið toppsætið af Barcelona
Real Madrid bætti upp fyrir slæmt tap í vikunni með öruggum 3-0 sigri á útivelli gegn Girona. Erkifjendur þeirra frá Barcelona misstigu sig fyrr í dag og Madrídingar geta tekið toppsætið af þeim með sigri í leiknum sem þeir eiga til góða.

Öll hin úrvalsdeildarliðin fóru örugglega áfram
Aþena féll úr leik í VÍS bikarkeppni kvenna í körfubolta fyrr í dag. Öll önnur lið úrvalsdeildarinnar, sem mættu liðum úr næstefstu deild, unnu nokkuð þægilega sigra í sínum leikjum.

Eddie Howe biður stuðningsmenn Newcastle afsökunar
Newcastle gerði sér ferð til Brentford í dag og tapaði 4-2. Eddie Howe, þjálfari liðsins, hefur beðið stuðningsmenn afsökunar á frammistöðunni og lofar því að þeir muni leggja sig alla fram við að gera stuðningsmenn stolta á ný.

Elvar rekinn af velli er Melsungen endurheimti efsta sætið
Melsungen endurheimti efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með 29-27 sigri á útivelli gegn Wetzlar í 13. umferð.

Forest aftur á sigurbraut en United tapað tveimur í röð
Manchester United þurfti að sætta sig við annað tapið í röð þegar Nottingham Forest kom í heimsókn. Leiknum lauk með 2-3 sigri gestanna sem fóru upp í fimmta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

„Við vorum aldrei að fara gefast upp“
Njarðvík tók á móti ríkjandi bikarmeisturum Keflavík í 16-liða úrslitum VÍS bikarsins. Það var ljóst að um mikinn baráttuleik yrði að ræða og voru það stelpurnar í Njarðvík sem slógu út nágranna sína í Keflavík með minnsta mun 76-75.

Júlíus tryggði Fredrikstad bikarmeistaratitilinn
Júlíus Magnússon tryggði titil þegar hann skoraði úr fimmtu vítaspyrnu Fredrikstad í úrslitaleik norsku bikarkeppninnar gegn Molde.

McLaren langt komið með að tryggja sér heimsmeistaratitil bílasmiða
Lando Norris verður fyrstur af stað og liðsfélagi hans, Oscar Piastri, annar í síðasta kappakstsri tímabilsins í Formúlu 1 sem fer fram í Abú Dabí á morgun. McLaren er langt komið með að tryggja sér heimsmeistaratitil bílasmiða.

Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 76-75 | Bikarmeistararnir úr leik
Njarðvík vann 76-75 og sló ríkjandi bikarmeistara Keflavíkur úr leik í sextán liða úrslitum VÍS bikars kvenna. Brittany Dinkins reyndist hetja Njarðvíkur, hún kom liðinu yfir með vítaskoti þegar aðeins 5,1 sekúnda var eftir og stal svo boltanum í lokasókn Keflavíkur.

Jón Daði aftur utan hóps og ólíklegt talið að hann verði áfram hjá Wrexham
Jón Daði Böðvarsson virðist ekki eiga framtíð fyrir sér hjá enska félaginu Wrexham United ef marka má umfjöllun staðarmiðilsins þar í bæ. Hann var skilinn eftir utan hóps þriðja leikinn í röð í dag.

Michail Antonio lenti í alvarlegu bílslysi
Michail Antonio, framherji West Ham í ensku úrvalsdeildinni, lenti í alvarlegu bílslysi en ástand hans er nú talið stöðugt. Antonio er með meðvitund og tjáir sig með tali en grannt er fylgst með líðan hans.

Frábært gengi Brentford á heimavelli heldur áfram
Brentford heldur áfram að gera það gott á heimavelli en í dag vann liðið Newcastle United, 4-2, í ensku úrvalsdeildinni. Þá sigraði Aston Villa botnlið Southampton, 1-0.

City kom tvisvar til baka á Selhurst Park
Manchester City lenti tvisvar sinnum undir gegn Crystal Palace á Selhurst Park í ensku úrvalsdeildini í dag en kom til baka í bæði skiptin. Lokatölur 2-2.

Staða Bayern á toppnum styrktist
Staða Bayern München í efsta sæti þýsku úrvalsdeildarinnar styrktist enn frekar í dag. Bæjarar unnu Hedenheim 4-2 á meðan Eintracht Frankfurt, sem situr í öðru sæti og hafði unnið fjóra deildarleiki í röð, gerði 2-2 jafntefli við Augsburg.

Fjórar fengu enga hvíld í bikarsigri Ármanns gegn Aþenu
Úrvalsdeildarliðið Aþena tapaði 68-72 á heimavelli gegn fyrstu deildar liði Ármanns í sextán liða úrslitum VÍS bikars kvenna. Fjórir leikmenn Ármanns spiluðu allar fjörutíu mínúturnar.