KA - Valur 30-33 | Svöruðu fyrir sig en tókst ekki að landa sigri

Árni Gísli Magnússon skrifar
Valur - KA Olís deild karla Vetur 2026
Valur - KA Olís deild karla Vetur 2026

Valur er kominn í 2-0 forystu í undanúrslitaeinvígi sínu gegn KA eftir þriggja marka sigur í KA heimilinu í kvöld. Valsmenn virtust ætla eiga þægilegan dag eftir sterkan fyrri hálfleik en úr varð æsispennandi leikur sem réðst á lokamínútunni.

Valsmenn geta tryggt sig í úrslitaeinvígið með sigri í næsta leik sem fram fer að Hlíðarenda á mánudag.

Það voru gestirnir sem byrjuðu leikinn betur og voru komnir með fjögurra marka forystu eftir rúmar átta mínútur, staðan þá 3-7.

Valsmenn héldu áfram að auka forskot sitt og fór það fljótlega upp í sjö mörk en sóknarleikur KA var flatur og auðlesinn oft á tíðum fyrir vörn gestanna.

Sóknarleikur Valsmanna gekk betur og dreifðist skorið á milli manna en Arnór Snær Óskarsson var fremstur meðal jafningja með fjögur mörk í hálfleiknum á meðan Einar Rafn Eiðsson hélt KA á floti með sex mörk.

Leikurinn varð jafnari eftir því sem leið á hálfleikinn en KA menn náðu ekki að komast nær en fjórum mörkum undir.

Undir lok hálfleiksins gerðist stórt og umdeilt atvik. Arnór Ísak Haddson tók þá hraustlega á Þorgilsi Jón Svölu Baldurssyni í vörninni sem endaði með því að þeir lentu saman á gólfinu og lá við handalögmálum áður en leikmenn og dómarar stigu inn í.

Að lokum fengu báðir leikmenn að líta rauða spjaldið og Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA fékk auk þess tveggja mínútna brottvísun og KA þurfti því að taka annan mann út af.

Staðan þarna var 12-17 og um tvær mínútur til hálfleiks. Valsmenn leiddu svo 14-19 í hálfleik.

Allt annað KA lið mætti til leiks í síðari hálfleik, eða svo mætti halda, þar sem spilamennskan var mun betri og úr varð hörkuleikur.

KA spilaði megnið af hálfleiknum sjö gegn sex sóknarlega sem skilaði mörgum einföldum mörkum þar sem Bjarni Ófeigur spilaði félaga sín í gríð og erg upp í flottar stöður.

Þá datt Ágúst Elí Björgvinsson í algjöran ham í markinu og varði hvert skotið og dauðafærið á eftir öðru.

KA jafnaði leikinn í fyrsta skipti frá því á upphafsmínútunum á 46. mínútu og var á þeim tímapunkti komin svakaleg stemning í húsið sem hjálpaði eflaust mikið til.

Liðin skiptust í raun á að skora alveg þangað til á lokamínútu leiksins og spennan því ærandi. KA menn fóru illa að ráði sínu í lokin og skoruðu gestirnir síðustu þrjú mörkin og lokatölur því 30-33 Val í vil.

Atvik leiksins

Það urðu alvöru læti og stympingar þegar Þorgils Jón Svölu Baldursson fékk boltann á línunni og reyndi að sækja á en Arnór Ísak Haddsson tók vel á honum og enduðu þeir félagar í gólfinu og lá við handalögmálum áður en leikmenn stöðvuðu það og úr urðu svo enn meiri stympingar og mikil læti í húsinu.

Þorgils Jón og Arnór Ísak fengu báðir að líta rauða spjaldið.

Stjörnur og skúrkar

Arnór Snær Óskarsson er heilinn í sóknarleik Vals og skoraði tíu mörk úr tólf skotum.

Bjarni Í Selvindi og Allan Norðberg voru líka frískir með fimm mörk hvor og Allan stóð vörnina vel líka.

Þorvaldur Örn Þorvaldsson var svo sannarlega betri en enginn í vörinni með heil 10 lögleg stopp.

Hjá KA var Einar Rafn Eiðsson atkvæðamestur með átta mörk úr tólf skotum.

Magnús Dagur, Bjarni Ófeigur og Dagur Gautason voru með fjögur mörk hver og Bjarni átti auk þess fjölmargar stoðsendingar.

Ágúst Elí Björgvinsson datt í ham í síðari hálfleik og endaði með 16 varða bolta sem gerir 35,6% markvörslu.

Skúrkstitlinn verður KA liðið bara að taka á sig fyrir frammistöðuna í fyrri hálfleik sem gerði þeim erfitt fyrir og varð þeim í raun að falli.

Dómarar

Anton Gylfi og Jónas fengu ekki auðveldan leik til að dæma en þeir hefðu líka getað dæmt hann betur. Mörg víti í leiknum voru ódýr og línan virtist ekki vera eins svo hinu megin oft á tíðum fyrir keimlíkt atvik.

Rauðu spjöldin líklega rétt og vel gert að henda ekki fleirum út af og missa þetta í vitleysu.

Stemning og umgjörð

Vel mætt í KA heimilið og stemningin í síðari hálfleik sérstaklega til mikillar fyrirmyndar. Lætin voru ótrúlega mikil sem skilaði sér augljóslega til leikmanna.

Viðtöl 

„Sigurinn kemur á mánudaginn“

Andri Snær Stefánsson, þjálfari KA, var svekktur eftir naumt tap gegn Val í öðrum leik liðanna í undanúrslitaviðureign Olís deildar karla en Valsmenn eru nú komnir í 2-0 forystu og geta klárað einvígið með sigri í næsta leik.

„Ég er bara ógeðslega svekktur. Við lögðum svakalega orku í að vinna upp forskot Valsara og erum bara gríðarlega svekktir að hafa ekki fengið sigur út úr þessu og erum bara svekktir.“

KA tapaði fyrsta leiknum úti með 18 mörkum og fór illa af stað í dag sem reyndist dýrkeypt.

„Við vorum lengi í gang og í raun og veru ólíkir okkur, fimm mörkum undir í hálfleik og það er bara í seinni hálfleik sem við ræsum okkur almennilega. Núna erum við allavega búnir að kveikja á okkur og ég er bara svekktur að við höfum ekki náð að koma í veg fyrir þessa hröðu miðju hjá Val, þeir skora alltof mörg ódýr mörk sem var bara óþarfi.“

KA spilaði sjö gegn sex stóran hluta síðari hálfleiks sem gekk mjög vel og má ætla að liðið ætli að reyna leika sama leik í næsta leik.

„Þetta er alltaf bara ákveðinn póker og við erum búnir að spila þetta mikið í vetur og þetta kom okkur allavega yfir þröskuldinn að fá almennilegar stöður og við gerðum það helvíti vel en eins og ég segi erum við líka góðir sex á sex og við þurfum bara að, engin spurning að vinna Valsarana á mánudaginn.“

Stemningin í KA heimilinu var stórkostleg og gat Andri ekki annað en verið stoltur og þakklátur stuðningsfólkinu.

„Þetta er ótrúlegt, enn og aftur er maður með gæsahúð í KA heimilinu. KA fólk á allt hrós skilið, þetta er þvílík orka sem þeir gefa okkur inni á vellinum og ég er bara svekktur að hafa ekki gefið fólkinu okkar sigur. KA fólk átti það skilið en sigurinn kemur þá bara á mánudaginn og við fáum annan leik hér í KA-heimilinu.“

Stuðningsmenn og leikmenn KA virtust oft á tíðum ósátt með dómgæsluna, sérstaklega þegar Valsmenn voru að komast á vítalínuna, en Andri vildi ekkert setja út á dómara leiksins.

„Þetta var auðvitað bara alvöru fullorðins leikur í úrslitakeppni og ég held að þetta sé klárlega okkar langbesta dómarapar þannig ég hef ekkert út á dómarana að klaga svona strax eftir leik“, sagði Andri að endingu, kurteis sem endranær.

„Getur allt gerst í svona einvígi“

Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, var ánægður með sigur síns liðs gegn KA í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Olís deildar karla. Valur er kominn í 2-0 forystu í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sig í úrslit.

„Ég er bara mjög ánægður með að hafa náð að landa þessu hérna. Þetta var gríðarlega erfitt og við vissum það auðvitað, þetta er náttúrulega mjög erfiður útivöllur og KA mennirnir eru bara feykilega öflugir. Þeir voru ekki á sínum degi í fyrsta leiknum og við vorum mjög góðir þar en þetta var bara járn í járn og í raun og veru hefði getað endað báðu megin.“

KA fór í sjö á sex stóran hluta síðari hálfleiks sem Valsmenn réðu illa við.

„Þeir bara ná að gera mjög vel, Bjarni (Ófeigur Valdimarsson) er mjög öflugur í því og náttúrulega mikil ógn af honum bæði í skotunum og með frábæra sendingargetu þannig að við þurfum að leggjast yfir það og undirbúa okkur betur fyrir það. Við erum bæði búnir að missa Þorgils (Jón Svölu Baldursson) út af sem er okkar svona kannski helsti varnarmaður en við gerðum ekki nægilega vel og vorum búnir aðeins að fara á milli 5-1 og 6-0 og þurfum aðeins að leggjast yfir þetta og gera þetta betur því að það er ekkert ólíklegt að þeir beiti þessu gegn okkur á mánudaginn.“

Jón Þorgils og Arnór Ísak Haddsson fengu báðir að líta rauða spjaldið undir lok fyrri hálfleiks eftir að hafa lent saman og út brutust miklar stympingar.

„Ég eiginlega bara sá þetta ekki, eða skilurðu það varð bara allt vitlaust þarna, ég var hinu megin á bekknum þannig ég held þetta hafi bara verið rétt og dómararnir hafi bara gert vel í að henda ekki einhverjum tveimur, þremur rauðum í viðbót þarna. Bara skynsamlega gert og ég held þeir hafi bara leyst vel úr þessu“, sagði Ágúst þegar hann var spurður út í atvikið.

Heldurðu að Þorgils Jón gæti farið í leikbann?

„Ég stórefast um það, miðað við hvernig þessu leikur var og svona þá var þetta nú bara svona tilfinningar þannig nei ég efast um það.“

„Við hvílum bara á morgun og ferðumst núna eitthvað í nótt og æfum laugardag og sunnudag og það getur allt gerst í svona einvígi. Ég er búinn að vera lengi í þessu og þetta getur farið í allar áttir enn þá þannig við bara þurfum að einbeita okkur að því að undirbúa okkur vel og búa til góða frammistöðu á mánudaginn og svo sjáum við bara til hvernig það þróast“, sagði Ágúst um undirbúning fyrir næsta leik.

Umræða skapaðist eftir fyrsta leik liðanna að Hlíðarenda um dapra mætingu á pallana frá Valsfólki en Ágúst vísar því til föðurhúsanna.

„Það var bara ágætis mæting í Valsheimilið, það var appelsínugul viðvörun og annað sko og fótboltinn að spila á sama tíma þannig mér finnst það nú ekki sanngjörn gagnrýni en það var bara fín mæting, rúmlega 500 manns og góð stemning. Valur er að berjast í körfubolta, handbolta og fótbolta, karla og kvenna, það er ekkert einfalt að koma á alla þessa leiki en ég vona innilega að við fáum góða mætingu á mánudaginn og frábæra stemningu.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira