Jafnt í fyrsta leiknum undir stjórn Arteta | Chelsea tapaði aftur á heimavelli

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aubameyang skoraði fyrsta mark Arsenal undir stjórn Arteta.
Aubameyang skoraði fyrsta mark Arsenal undir stjórn Arteta. vísir/getty

Mikel Arteta stýrði Arsenal í fyrsta sinn þegar liðið gerði 1-1 jafntefli við Bournemouth á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Dan Gosling kom Bournemouth yfir á 35. mínútu eftir sendingu frá Jack Stacey. Pierre-Emerick Aubameyang jafnaði fyrir Arsenal á 63. mínútu og þar við sat.

Arsenal, sem er án sigurs í síðustu þremur leikjum sínum, er í 11. sæti deildarinnar. Bournemouth er í því sextánda.

Southampton gerði góða ferð til Lundúna og vann 0-2 sigur á Chelsea.

Hinn 19 ára Michael Obafemi og Nathan Redmond skoruðu mörk Southampton sem hefur unnið tvo leiki í röð. Dýrlingarnir eru í 14. sæti deildarinnar.

Chelsea er í 4. sæti deildarinnar. Liðið hefur tapað tveimur heimaleikjum í röð og fjórum af síðustu sex leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni.

Jordan Ayew tryggði Crystal Palace sigur á West Ham United, 2-1, með stórkostlegu marki eftir mikinn einleik.

Robert Snodgrass kom West Ham yfir á 57. mínútu en Cheikhou Kouyaté jafnaði ellefu mínútum síðar. Ayew skoraði svo sigurmark Palace á lokamínútunni.

Með sigrinum komst Palace upp í 8. sæti deildarinnar. West Ham er í 17. sæti, aðeins einu stigi frá fallsæti.

Aston Villa vann afar mikilvægan sigur á Norwich City, 1-0, í nýliðaslag á Villa Park. Conor Hourihane skoraði eina mark leiksins á 64. mínútu, átta mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður.

Villa er í 18. sæti deildarinnar en Norwich er á botninum með tólf stig, átta stigum frá öruggu sæti.

Þá gerðu Sheffield United og Watford 1-1 jafntefli. Gerard Deulofeu kom Watford yfir en Oliver Norwood jafnaði fyrir Sheffield United úr vítaspyrnu.

Sheffield United er í 6. sæti deildarinnar en Watford í því nítjánda.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira