Innlent

Fréttamynd

Annasamt hjá lögreglu í Kópavogi

Mikill erill hefur verið hjá lögreglunni í Kópavogi í allan dag. Nú rétt fyrir klukkan fimm höfðu fjórir árekstrar orðið í bænum en engin slys urðu á fólki. Þá hefur vel á annan tug ökumanna verið stöðvaður vegna hraðaksturs að sögn lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Ítarleg rannsókn á þorskum

Hjá Hafrannsóknarstofnun er hafin rannsókn á því hvort erfðafræðilegir þættir eða umhverfisþættir hér við land eigi sök á því að sífellt minni þorskur komi í net sjómanna.

Innlent
Fréttamynd

Vilja annars konar stóriðju

Á nýafstöðnum aðalfundi Samfylkingarinnar í Eyjafirði þar sem ályktað var um atvinnumál og byggðaþróun vekur athygli að ekki er minnst á nýtt álver. Í ályktuninni segir að efla skuli stóriðju við Eyjafjörð í formi menntunar, ferðaþjónustu, heilbrigðismála og matvælaiðnaðar svo sem bláskeljaræktunar en ekki er minnst á álver.

Innlent
Fréttamynd

Dagblað í deiglunni

Útgáfa nýs viku- eða dagblaðs er í undirbúningi en mikil leynd hvílir yfir útgefendum þess.

Innlent
Fréttamynd

Engin niðurstaða með brottkast

Engin niðurstaða liggur fyrir um hversu miklum sjávarafla er hent fyrir borð á íslenska fiskiskipaflotanum þrátt fyrir þriggja ára starf sérstakrar nefndar sjávarútvegsráðuneytisins í því máli.

Innlent
Fréttamynd

Almenningur bjóði í Símann

Fréttastjóri Morgunblaðsins telur raunhæfan möguleika á því að almenningur í landinu taki höndum saman og bjóði í Símann. Fólki sé einfaldlega nóg boðið og vilji fá að leysa til sín sína eigin eign. Orri Vigfússon er sannfærður um að hugmyndin geti orðið að veruleika og er reiðubúinn til að leiða hreyfingu almennings.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Getur ógnað lífríki Íslands

"Ég óskaði eftir þessum upplýsingum þar sem ég tel að lífríki landsins sé verulega ógnað ef Kóngakrabbinn nær fótfestu hér við land," segir Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Hann hefur borið fram fyrirspurn til umhverfisráðherra um hvort stjórnvöld hyggist grípa til fyrirbyggjandi aðgerða.

Innlent
Fréttamynd

Bíða dóms í Þýskalandi

Íslendingarnir tveir sem handteknir voru með mikið magn fíkniefna um borð í Hauki ÍS við leit tollayfirvalda í Bremerhaven í byrjun janúar bíða nú dóms í málinu.

Innlent
Fréttamynd

Hafa fjóra mánuði til stefnu

Ekkert olíufélaganna þriggja, Olís, Esso og Skeljungs, sem dæmd voru til greiðslu sekta vegna ólöglegs samráðs þeirra samkvæmt úrskurði Samkeppnisstofunar hafa enn greitt sekt sína. Skutu öll félögin málinu fyrir áfrýjunarnefnd samkeppnismála sem úrskurðaði einnig um sekt en lækkaði sektargreiðslur.

Innlent
Fréttamynd

Risaborar nýtast vart lengur

Risaborar þeir er notaðir eru vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka og hafa reynst framar vonum munu að líkindum ekki nýtast í önnur verkefni þegar að framkvæmdum fyrir austan lýkur.

Innlent
Fréttamynd

Lokað í norðurátt við Húnaver

Þjóðvegi eitt rétt vestan við Húnaver verður lokað í norðurátt nú í hádeginu og er vonast til að hægt verði að opna hann að nýju um hálftvö eða tvöleytið í dag. Flutningavagn með frystum matvælum fór út af veginum í gær, losnaði frá bílnum og valt. Til að fjarlægja vagninn þarf fyrst að tæma gáminn og getur það tekið dálítinn tíma.

Innlent
Fréttamynd

Hafnaði bótakröfu vegna afsagnar

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun ríkið af rúmlega þrettán milljóna króna kröfu Valgerðar Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, en hún taldi sig hafa verið neydda til að segja af sér.

Innlent
Fréttamynd

Vísir fjölsóttasti vefurinn

Vísir mælist nú fjölsóttasti vefur landsins samkvæmt samræmdri vefmælingu Modernuss. Í liðinni viku heimsóttu 203.738 notendur Vísi en það eru rúmlega 20% fleiri notendur en í vikunni þar á undan. Þetta er í fyrsta sinn sem fjöldi notenda Vísis fer yfir 200.000 í einni viku.

Innlent
Fréttamynd

Ekki færri HIV-smit í 15 ár

Fimm manns greindust með HIV-smit hér á landi á síðasta ári og hafa ekki færri greinst með veiruna síðustu 15 árin, að því er fram kemur í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins. Fyrstu þrjá mánuði þessa árs hefur verið tilkynnt um tvö tilfelli af HIV-smiti hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Ekki þvinguð til uppsagnar

Íslenska ríkið var í gær sýknað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur af bótakröfum Valgerðar Bjarnadóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu, en hún fór fram á rúmar þrettán milljónir króna fyrir töpuð laun og miskabætur vegna missis þeirrar stöðu sinnar.

Innlent
Fréttamynd

Heimsækja stofnanir og fyrirtæki

Þriggja daga opinber heimsókn forsetahjónanna til Akureyrar og Eyjafjarðarsvæðisins hófst í morgun. Þau munu í dag heimsækja fjölmargar stofnanir og fyrirtæki.

Innlent
Fréttamynd

Áfram spenna á húsnæðismarkaði

Spennan á húsnæðismarkaði á höfuðborgarsvæðinu heldur áfram að magnast. Ef litið er fjórar vikur aftur í tímann hefur verð hækkað um fimm prósent sem er talsvert yfir meðallagi síðustu tólf mánaða. Þá var húsnæðisveltan á höfuðborgarsvæðinu tæpir fimm milljarðar í síðustu viku sem er nokkru yfir meðallagi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Efling RÚV geri fjölmiðlalög óþörf

Sex þingmenn Samfylkingarinnar lögðu fram þingsályktunartillögu í desember þar sem segir að bregðast megi við þróun fjölmiðlunar á ljósvakavettvangi með því að efla Ríkisútvarpið. Með því að efla Ríkisútvarpið þurfi ekki að setja lög um einkafjölmiðla. Nú lýsir Samfylkingin stuðningi við tillögur um lagasetningu á fjölmiðla.</font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Eyða meiri peningum ytra

Íslendingar virðast vera að nýta sér sterka stöðu krónunnar til mikilla viðskipta erlendis ef marka má aukningu á krítarkortaviðskiptum landans í útlöndum. Í febrúar straujuðu Íslendingar fyrir 2,1 milljarð króna í útlöndum og er það um þriðjungi meira en á sama tíma í fyrra. Þá voru íslenskir farþegar um Keflavíkurflugvöll 36 prósentum fleiri í febrúar í ár en í sama mánuði í fyrra samkvæmt morgunkorni Íslandsbanka.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Óska aðstoðar umhverfisráðuneytis

"Að mínu viti er ekki seinna vænna að grípa til róttækari aðgerða en verið hefur hingað til," segir Ingvar Atli Sigurðsson, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands. Kanínur eru orðnar alvarlegt vandamál í Eyjum og þrátt fyrir að ýmsum vopnum hafi verið beitt í baráttu gegn þeim heldur þeim áfram að fjölga.

Innlent
Fréttamynd

Segir ummæli ósmekkleg og ótímabær

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, varaformaður Samfylkingarinnar, segir að ummæli Össurar Skarphéðinssonar formanns um að fátt nýtt komi frá framtíðarhópi flokksins séu ósmekkleg og ótímabær. Össur lét ummælin falla í Silfri Egils á Stöð 2 í gær þegar hann gagnrýndi vinnubrögð framtíðarhópsins, en Ingibjörg Sólrún fer fyrir hópnum.

Innlent
Fréttamynd

Ummæli borgarstjóra fráleit

"Ummæli borgarstjóra varðandi þetta mál gagnvart okkur sjálfstæðismönnum eru fráleit og eiga sér enga stoð í raunveruleikanum," segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðismanna í borgarstjórn.

Innlent
Fréttamynd

Sædýrasafn í stað kvóta

"Kvótinn er allur horfinn og að mínu mati getur stórt sædýrasafn að einhverju leyti fyllt það skarð sem það hefur skilið eftir sig," segir Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri Sandgerðisbæjar. Hann hefur stórar hugmyndir um uppbyggingu sædýrasafns á staðnum og hefur þegar leitað liðsinnis þingmanna suðurkjördæmis.

Innlent
Fréttamynd

Gyðingum var vísað frá Íslandi

Íslendingar vísuðu að minnsta kosti 16 Gyðingum úr landi skömmu fyrir síðari heimsstyrjöldina og sýndu því Gyðingum síst meiri samúð en Danir. Forsætisráðherra telur að fara verði varlega í að biðjast afsökunar á löngu liðnum atburðum.

Innlent
Fréttamynd

Kaupa fimm vélar í viðbót

Stjórn Flugleiða, eða FL GROUP, samþykkti á fundi sínum í dag að undirrita samning við Boeing-flugvélaverksmiðjurnar í Bandaríkjunum um kaup á fimm Boeing 737-800 flugvélum til viðbótar við þær 10 sem samið var um í febrúar. Félagið fékk kauprétt á þessum fimm flugvélum sem hluta af samningnum sem undirritaður var í febrúar og hefur nú ákveðið að nýta þennan rétt.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fleiri um Leifsstöð

Alls fóru 125 þúsund farþegar um Flugstöð Leifs Eiríkssonar í mars. Þeim fjölgaði um tæp 27 prósent miðað við sama tíma í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Þétt dagskrá hjá forsetahjónunum

Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og Dorrit Moussaieff forsetafrú komu í opinbera heimsókn til Akureyrar í morgun. Eftir móttökuathöfn á Akureyrarflugvelli tók við þétt dagskrá þar sem forsetahjónin kynntu sér meðal annars nokkrar af helstu menntastofnunum bæjarins.

Innlent
Fréttamynd

Féll illa á sorptunnu

Alvarlegt vinnuslys varð við Hlíðarhjalla í Kópavogi rétt fyrir hádegi í dag. Karlmaður, sem starfar fyrir gámafyrirtækið Sorpu, var að draga sorpílát upp tröppur þegar hann missti jafnvægið og féll aftur fyrir sig og lenti á ílátinu. Að sögn lögreglunnar er talið að maðurinn hafi brákast á hrygg en meiðsli hans eru þó ekki ljós á þessari stundu.

Innlent
Fréttamynd

Misjafnar sættir í fjölmiðlamálum

Sigur fyrir lýðræðið í landinu og sigur fyrir þingræðið! Þessi orð féllu á Alþingi í dag þegar þingmenn allra flokka lýstu sögulegri sáttargjörð með fjölmiðlaskýrslunni. Sáttartónninn stóð hins vegar ekki lengi því átök blossuðu upp síðdegis þegar umræður hófust í kjölfarið um stjórnarfrumvarp um Ríkisútvarpið.

Innlent
Fréttamynd

Risaborar nýtast vart lengur

Risaborar þeir er notaðir eru vegna framkvæmdanna við Kárahnjúka og hafa reynst framar vonum munu að líkindum ekki nýtast í önnur verkefni þegar að framkvæmdum fyrir austan lýkur.

Innlent