Erlent
Betri forvarnir eru lykilatriði Jarðskjálftinn í gær var gríðarlega öflugur, sjö komma sjö á Richter. Þarna hafa þó orðið sterkari skjálftar í gegnum tíðina, enda er Kasmírhérað á flekamótum tveggja jarðskorpufleka sem rekast saman. Til að minnka tjón og mannfall er lykilatriði að byggja betri hús og þróa betra forvarnarkerfi, segir Ragnar Stefánsson jarðskjálftafræðingur. Erlent 23.10.2005 15:03
Óttast að 30 þúsund hafi farist Óttast er að meira en þrjátíu þúsund manns hafi týnt lífi í skjálftanum, sem gerir hann þann mannskæðasta í manna minnum á þessu mikla jarðskjálftasvæði.</font /> Erlent 23.10.2005 15:03
Babi Yar minningarathöfn Hundruð úkraínskra gyðinga fóru með bænir og kveiktu á kertum til að minnast þeirra þúsunda gyðinga sem nasistar drápu í seinni heimstyrjöldinni við Babi Yar gljúfrið. Erlent 23.10.2005 15:03
Hægrisveifla í Póllandi Báðir frambjóðendurnir sem flest atkvæði hlutu í fyrri umferð forsetakosninga í Póllandi í gær eru hægrimenn. Flokkar þeirra eru að mynda ríkisstjórn. Pólskir hægrimenn hafa boðað nýtt uppgjör við arftaka kommúnista og lýst stríði á hendur spillingu. Með í kaupunum fylgir ströng „þjóðernis-kaþólska". Erlent 23.10.2005 15:03
Átján teknir í gíslingu Vopnaðir menn tóku átján starfsmenn Afríkusambandsins í gíslingu í Darfur héraði í Súdan. Ekki er vitað hverjir standa að baki gíslatökunni en gíslunum er haldið í bænum Tine á landamærum Súdan og Tsjad. Erlent 23.10.2005 15:03
Eiffel turnin rýmdur Lögregluyfirvöld í París rýmdu Eiffel turnin í gær eftir að lögreglustöð barst nafnlaus sprengjuhótun í gegnum síma > Erlent 23.10.2005 17:31
Rúmenar verjast fuglaflensunni Stjórnvöld í Rúmeníu auka nú aðgerðir til að berjast gegn útbreiðslu fuglaflensu í landinu. Engin ný smit hafa verið staðfest og breskir sérfræðingar vonast til þess að geta staðfest innan nokkurra daga hvort veiran sé sú sama og olli fuglaflensunni í Asíu. Erlent 23.10.2005 15:03
Reykingabann í Englandi Breska ríkisstjórnin áformar að koma á reykingabanni á börum og veitingahúsum í Englandi. Áformað hafði verið að leggja á bann sem takmarkaði reykingar að einhverju leyti en samkomulag hefur nú náðst um að banna þær algjörlega. Erlent 23.10.2005 15:03
Harmleikur færir fjandvini saman Talið er víst að meira en þrjátíu þúsund manns hafi farist í jarðskjálftanum nyrst í Pakistan á laugardaginn, langflestir í Pakistan en á Indlandi hafa hundruð manna einnig farist. Erlent 23.10.2005 15:03
Nýr dýrlingur Benedikt páfi sextándi tók þýska kardinálann Clemens August von Galen í tölu blessaðra í gær. Erlent 23.10.2005 15:03
Tala látinna hækkar Enn berast fregnir af mannfalli í jarðskjálftanum sem reið yfir Pakistan, Indland og Afganistan í fyrrinótt. Nýjustu fregnir herma að mannfallið hafi verið allt að 30 þúsund manns. Erlent 23.10.2005 15:03
Von á lausn í Þýskalandi? Gerhard Schröder, leiðtogi jafnaðarmanna í Þýskalandi og Angela Merkel, leiðtogi Kristilegra demókrata munu ekki skrifa undir samkomulag um hvort þeirra verði næsti kanslari landsins á fundi sínum í kvöld, eins og búist var við. Erlent 23.10.2005 15:03
Lögregluofbeldi fest á filmu Lögreglumenn í New Orleans börðu 64 ára gamlan mann til óbóta á laugardagskvöldið og einn lögregluþjónn réðst á sjónvarpsfréttamann frá AP fréttastofunni. Erlent 23.10.2005 15:03
Tíu menn handteknir Breska lögreglan framkvæmdi á laugardaginn húsleit í Derby, Wolverhampton og Croydon Erlent 23.10.2005 15:03
Sleppt úr gíslingu Flestum starfsmönnum Afríkusambandsins sem var rænt í Darfurhéraði í Súdan fyrr í dag hefur verið sleppt. Noureddine Mezni, talsmaður Afríkusambandsins, treysti sér þó ekki til að fullyrða að þeim hefði öllum verið sleppt og sagði óvíst hversu margir væru í raun frjálsir ferða sinna. Óstaðfestar fréttir herma að sextán hafi verið sleppt. Erlent 23.10.2005 16:58
Flóðasvæði verða kirkjugarðar Stjórnvöld í Gvatemala velta því fyrir sér hvort ekki sé ráðlegast að líta á flóðasvæðin sem kirkjugarða og leyfa hinum látnu að hvíla undir aurskriðunum Erlent 23.10.2005 15:03
Gagnrýndi stjórn Berlusconis Romano Prodi, leiðtogi ítölsku stjórnarandstöðunnar, gagnrýndi Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, harkalega á fjöldafundi í gær. Prodi sakaði Berlusconi um að nota stjórnvöld til að koma eigin hugðarefnum á framfæri og gagnrýndi fjárlög ríkisstjórnarninnar. Erlent 23.10.2005 15:03
Sjö létust í sjálfsmorðsárás Sjö létu lífið í sjálfsmorðsárás í vesturhluta Bagdad, höfuðborgar Íraks, fyrir stundu. Árásarmaðurinn keyrði bíl hlöðnum sprengiefnum að hópi lögreglumanna og sprengdi sig í loft upp. Einn lögreglumaður og sex óbreyttir borgarar létust í árásinni. Tíu lögreglumenn og sex óbreyttir borgarar særðust í árásinni. Erlent 23.10.2005 15:03
Neyðarástand í Mið-Ameríku Að minnsta kosti tvö hundruð og fimmtíu manns hafa farist í gríðarlegum aurflóðum í Mið-Ameríku og Mexíkó undanfarna daga. Erlent 23.10.2005 15:03
Flugferðum aflýst Hundrað þrjátíu og átta flugferðum hefur verið frestað eða aflýst og þúsundir farþega eru strandaglópar á Leonardo Da Vinci flugvellinum í Róm. Erlent 23.10.2005 15:03
400 börn létust í skólum sínum Fjögur hundruð börn létu lífið þegar tveir skólar í Pakistan hrundu í jarðskjálftanum sem reið yfir Pakistan, Indland og Afganistan. Skólarnir eru báðir í Mansehra héraði í norðvesturhluta Pakistans. Óttast er að um þúsund manns hafi látist á þeim slóðum. Erlent 23.10.2005 15:03
2000 fuglar drápust Um tvö þúsund fuglar drápust á einni nóttu í Tyrklandi úr hinni skæðu fuglaflensu. Fuglarnir voru í eigu bónda sem býr í þorpi í vesturhluta Tyrklands. Erlent 23.10.2005 15:03
Hundruð smábarna með matareitrun Um 360 leik-skólabörn í vesturhluta Úkraínu hafa verið lögð inn á spítala vegna matareitrunar. Að minnsta kosti fjögur barnanna voru alvarlega veik. Erlent 23.10.2005 15:03
Stefnt að opna landamærin við Gaza Ísraelsk og palestínsk yfirvöld vinna nú aðp samkomulagi um nýjar öryggisráðstafanir á Gaza-ströndinni svo íbúar á svæðinu geti ferðast yfir landamærin til Egyptalands. Erlent 23.10.2005 15:03
Hætti að leigja hermennina út Herforingjar í rússneska hernum verða að hætta að leigja hermenn undir sinni stjórn út í verkamanna- og bændastörf. Þetta er mat ráðamanna í varnarmálaráðuneytinu rússneska sem hafa fengið sig fullsadda af fréttum af að spilltir yfirmenn láti hermenn vinna við uppskeru og byggingarstörf. Erlent 23.10.2005 15:03
Mannskæður jarðskjálfti í Pakistan Óttast er að þúsundir hafi farist í mjög öflugum jarðskjálfta sem reið yfir norðurhluta Pakistans, Afganistans og Indlands skömmu fyrir klukkan fjögur í nótt. Erlent 23.10.2005 15:03
Þúsundir látin og óttast um fleiri Þúsundir létust þegar öflugur jarðsjálfti reið yfir Pakistan, Indland, Bangladesh og Afghanistan um klukkan níu í gærmorgun að staðartíma. Upptök skjálftans voru um hundrað kílómetra norðaustan við höfuðborg Pakistans, Islamabad, í skógivöxnum fjallahlíðum Kasmír-héraðs. Erlent 23.10.2005 15:03
Spenna fram á síðustu stundu Skoðanakannanir gefa til kynna að litlu muni á fylgi þeirra Donald Tusk og Lech Kaczynski, tveggja helstu frambjóðendanna, í pólsku forsetakosningunum sem fara fram á morgun. Tusk hefur þó naumt forskot á Kaczynski samkvæmt nýjustu skoðanakönnuninni. Hvorugur er þó líklegur til að fá helming atkvæða sem þarf til tryggja sér sigur. Erlent 23.10.2005 15:03
Stálu kreditkortanúmerum Hollenska lögreglan hefur handtekið þrjá menn, grunaða um að hafa brotist inn í meira en eitt hundrað þúsund einkatölvur um allan heim og stolið þannig kreditkortanúmerum og upplýsingum um bankareikninga. Erlent 23.10.2005 15:03
Svarar gagnrýni fullum hálsi Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, segist viss um að hafa tekið rétta ákvörðun þegar hann jók öryggisgæslu til muna í neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar í gær og í fyrradag eftir að hafa fengið einhvers konar ábendingu um yfirvofandi hryðjuverk. Hann hafi ekki hrætt borgarbúa að óþörfu. Erlent 23.10.2005 15:03