Erlent
Sprengt við sendiráð BNA í Kabúl Tveir særðust þegar sprengja sprakk við bandaríska sendiráðið í Kabúl, höfuðborg Afghanistan í morgun. Enginn hópur hefur lýst verknaðinum á hendur. Árásum hefur fjölgað mikið í borginni að undanförnu en yfir 1400 manns hafa fallið vegna þeirra á síðustu sex mánuðum.> Erlent 23.10.2005 18:59
Græðgi ógnar fótboltanum Forseti alþjóðaknattspyrnusambandsins segir græðgina í fótboltanum vera farna að ógna leiknum sjálfum. Launagreiðslur leikmanna séu orðnar óeðlilega háar og fótboltann orðinn aukaatriði. Eigendur knattspyrnufélaganna hugsi aðeins um peninga og líti ekki á fótbotann sem íþrótt heldur viðskipti og það eingöngu.> Erlent 23.10.2005 18:59
Þrjátíu létust í sprengjuárás Í það minnsta 30 manns létu lífið í sjálfsmorðssprengjuárás við nýliðaskráningu hersins í borginni Tal Afar í norðurhluta Íraks, 35 að særðust í árásinni. Þetta er önnur sjálfsmorðssprengjuárásin í borginni á tveim dögum þrátt fyrir fullyrðingar íraskra og bandaríska yfirvalda í síðasta mánuði um að þau hefðu upprætt sveitir vígamanna í borginni. > Erlent 23.10.2005 18:59
Sagður hafa stytt sér aldur Ghazi Kanaan, innanríkisráðherra Sýrlands og yfirmaður leyniþjónustu landsins í Líbanon, fannst látinn á skrifstofu sinni í gær, að sögn sýrlenskra stjórnvalda. Tvær vikur eru þangað til skýrsla rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna um morðið á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, liggur fyrir og því leikur grunur á að valdamenn í Damaskus hafi látið ráða hann af dögum til að forða sjálfum sér frá alþjóðlegum refsiaðgerðum. > Erlent 23.10.2005 18:59
Stjórnaskrá Íraks tekin fyrir Írakska þingið kemur saman í Bagdad í dag til að gera breytingar á stjórnarskrá landsins, eftir að einn helsti stjórnmálaflokkur landsins, flokkur Súnní-Araba ákvað að hvetja stuðningsmenn sína til að samþykkja stjórnarskrána. > Erlent 23.10.2005 18:59
Thatcher áttræð Haldið verður upp á áttræðisafmæli Margaret Thatcher með miklu hófi í Lundúnum í dag. Á gestalistanum eru 680 manns, þar á meðal Elísabet Englandsdrottning og Tony Blair forsætisráðherra. > Erlent 23.10.2005 18:59
Brutust inn í fangelsi Um fjögur hundruð aðstandendur þeirra sem létust í hryðjuverkaárásunum í Bali árið 2002 brutust í morgun inn í fangelsi til að krefjast aftöku þriggja manna sem fundnir voru sekir um hryðjuverkin. Mennirnir hafa verið dæmdir til dauða en fólkið er ósátt við að mennirnir hafi ekki þegar verið teknir af lífi.> Erlent 23.10.2005 18:59
Engin fuglaflensa í Rúmeníu Engin merki um fuglaflensu hafa fundist í Rúmeníu samkvæmt sérfræðingum á vegum Evrópusambandsins. Er því ekki talin ástæða til að banna útflutning á fuglakjöti þaðan. > Erlent 23.10.2005 18:59
Ætla að sniðganga þingkosningar Morgan Tsvangirai, leiðtogi helsta stjórnarandstöðuflokks Simbabve hefur boðað að flokkur hans muni sniðganga þingkosningar þar í landi sem halda á í næsta mánuði. > Erlent 23.10.2005 18:59
Fimm hjálparstarfsmenn skotnir Talibanar skutu fimm afganska hjálparstarfsmenn til bana í suðurhluta Kandaharhéraðs í morgun. Hjálparstarfsmennirnir, tveir læknar, tvær hjúkrunarkonur og ökumaður þeirra, voru á leið frá þorpi þar sem þeir höfðu sinnt hjálparstarfi þegar ráðist var á þá.> Erlent 23.10.2005 18:59
Kínverjar á sporbraut Geimflaug með tvo kínverska geimfara innanborðs var skotið á loft frá herstöð í Norðvestur-Kína í fyrrinótt. Þetta er í annað sinn í sögunni sem geimferðaáætlun Kínverja skilar mönnuðu fari út í geim. Fyrsta slíka geimskotið átti sér stað fyrir tveimur árum. > Erlent 23.10.2005 18:59
Efnahagsumbætur lykilatriði Viðræður um myndun samsteypustjórnar tveggja stærstu flokka Þýskalands munu fara út um þúfur takist ekki að samkomulag um víðtækar efnahagsumbætur. Þetta sagði samherji Angelu Merkel, leiðtoga kristilegra demókrata og væntanlegs kanslara, í gær. Gerhard Schröder, fráfarandi kanslari, staðfesti að hann yrði ekki í nýju ríkisstjórninni. > Erlent 23.10.2005 18:59
Schröder tvístígandi Gerard Schröder, kanslari Þýskalands, gaf það í skyn á fundi sem haldinn var í gær að hann myndi kannski ekki verða með í ríkisstjórn sem leidd verður áfram af Angelu Merkel formanni Kristilegra. Schröder hefur samþykkt að láta embættið af hendi til Merkel. > Erlent 23.10.2005 18:59
Sjö og hálft tonn haldlögð Kólumbíski sjóherinn lagði í gær hald á sjö og hálft tonn af kókaíni sem talið er hafa verið í eigu uppreisnarmanna í landinu. Talið er að andvirði efnisins sé um 188 milljónir dollara, eða um 11,5 milljarðar íslenskra króna. Yfirvöld í Kólumbíu hafa lagt hald á um 90 tonn af kókaíni það sem af er ári en hvergi í heiminum er framleitt jafn mikið magn af kókaíni og í Kólumbíu.> Erlent 23.10.2005 18:59
Stúlku bjargað úr jarðskjálftarúst Björgunarliðsmönnum tókst í gær að bjarga fimm ára gamalli stúlku úr rústum heimilis hennar, sem hrundi í jarðskjálftanum í Pakistan síðastliðinn laugardag. Stúlkan var með meðvitund og bað um vatn að drekka. > Erlent 23.10.2005 18:59
Breytingar á stjórnarskrá Að minnsta kosti þrjátíu týndu lífi þegar uppreisnarmenn gerður sjálfsmorðsárás í norðurhluta Íraks í morgun. Þetta gerðist skömmu áður en írakska þingið kom saman í Bagdad í dag til að gera breytingar á stjórnarskrá landsins. > Erlent 23.10.2005 18:59
Impregilo byggir Sikileyjarbrú Ítölsk stjórnvöld gengu frá samningi við verktakafyrirtækið Impregilo í dag um byggingu brúar frá Sikiley til meginlands Ítalíu. Þetta er fyrsta eiginlega landtenging Sikileyjar við meginlandið en brúin verður lengsta hengibrú í heimi. > Erlent 23.10.2005 18:59
Þrjátíu biðu bana í Tal Afar Þrjátíu verðandi hermenn biðu bana í sjálfsmorðsprengjuárás í borginni Tal Afar í Írak í gær. Sátt virðist vera að skapast á milli stjórnmálamanna um stjórnarskrárdrög landsins.> Erlent 23.10.2005 18:59
Prófsteinn á lýðræði og frið Þjóðaratkvæðagreiðslan um drög að stjórnarskrá Íraks á laugardaginn getur ráðið úrslitum um hvort hægt verði að koma á friði og réttlæti í þessu stríðshrjáða landi. Þjóðfélagsleg sundrung gefur hins vegar ekki tilefni til mikillar bjartsýni.> Erlent 23.10.2005 18:59
Hagnaður Apple fjórfaldast Hagnaður Apple fjórfaldaðist á síðasta ársfjórðungi í samanburði við sama tímabil í fyrra en hagnaður fyrirtækisins nam 26 milljörðum íslenskra króna. Ástæða góðs gengis er án efa góð sala á iPodinum svokallaða en fyrirtækið seldi 6,5 milljónir tækja af þessu tagi á tímabilinu. Tekjur Apple voru samt sem áður minni en sérfræðingar á Wall Street höfðu búist við og gengi hlutabréfa félagsins lækkaði um 10% eftir að hagnaðartölur birtust. > Erlent 23.10.2005 18:59
Sakaður um mútuþægni Innanríkisráðherra Sýrlands framdi sjálfsmorð í dag. Innanríkisráðherrann, Ghazi Kanaan var yfirmaður leyniþjónustu Sýrlands í Líbanon í tuttugu ár. > Erlent 23.10.2005 18:59
Haglél tefur hjálparstarfið Neyðaraðstoð til bágstaddra á jarðskjálftasvæðunum í Kasmír berst nú víðs vegar að en óveður hamlaði hins vegar hjálparstarfi í gær. Rúmlega fjörutíu þúsund manns eru taldir látnir. Erlent 23.10.2005 15:03
Kafbátur í minningu Lennons John Lennon hefði orðið sextíu og fimm ára á þessu ári. Til að minnast þess tóku nokkrir frumlegir Rússar sig til og smíðuðu gulan kafbát. Báturinn er þriggja metra langur og gerður úr gosdósum og plasti. Í einu kýrauganu má sjá Lennon gægjast út. Lífið 23.10.2005 15:03
Fiskur kemur í veg fyrir minnistap Fiskmeti kemur í veg fyrir heilarýrnun, minnistap og önnur öldrunareinkenni sem fylgja hækkandi aldri að því er nýleg bandarísk rannsókn sýnir. Í niðurstöðum þeirrar rannsóknar kemur fram að að borði fólk fisk einu sinni í viku minnkar minnistap einstaklinga um 10-13 %. Erlent 23.10.2005 15:03
Vaxandi reiði í garð yfirvalda Vaxandi reiði gætir hjá eftirlifendum á hamfarasvæðunum í Asíu vegna seinagangs yfirvalda eftir jarðskjálfta upp á 7,6 á Richter sem skók svæðið á laugardag. Óöld ríkir á sumum stöðum þar sem ræningjar hafa látið til sín taka, þar á meðal í Muzaffarabad í Pakistanshluta Kasmírhéraðs sem varð mjög illa úti í skjálftanum, en talið er að allt að ellefu þúsund manns hafi látist þar. Erlent 23.10.2005 15:03
Handteknir fyrir að smygla fólki Breska lögreglan hefur handtekið tíu menn sem eru grunaðir um að hafa rekið gríðarstórt og vel skipulagt smygl á tugþúsundum Tyrkja, fyrst og fremst Kúrdum, til Bretlands. Mennirnir voru fluttir til Bretlands með flutningabílum og í flugi. Mennirnir í glæpagenginu eru sjálfir Kúrdar en þeir höfðu fengið hæli í Bretlandi. Erlent 23.10.2005 15:03
Léstust þegar ekið var á hús Fjórar eldri konur létust þegar bifreið sem þær voru farþegar í hafnaði inni í húsi í Wisconsin í Bandarískjunum um helgina. Svo virðist sem bílstjóri bifreiðarinnar hafi ekki virt stöðvunarskyldu, tekist á loft og hafnað inni í húsinu. Ekki er vitað hvað olli slysinu en enginn vitni urðu að því. Bílstjórinn, sem er 89 ára, slasaðist alvarlega en íbúar í húsinu sluppu þó allir ómeiddir. Erlent 23.10.2005 15:03
The Times segir dóminn áfall Þar sem Jón Ásgeir Jóhannesson hefur lýst því yfir að hann haldi sér til hlés í fjárfestingum á meðan málaferli gegn honum standa yfir er ákvörðun Hæstaréttar Íslands í fyrradag áfall. Þetta segir Lundúnablaðið Times í umfjöllun sinni. Erlent 23.10.2005 15:03
Forsetakjör í Líberíu Fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afríkulýðveldisins Líberíu eftir fjórtán ára borgarastyrjöld var kjörinn í dag. Niðurstaðan liggur ekki fyrir en knattspyrnuhetjan George Weah er meðal þeirra sem þykja líklegir. Innlent 23.10.2005 15:03
Hjólreiðar auki líkur á geturleysi Karlmenn sem stunda miklar hjólreiðar geta átt getuleysi á hættu allt upp í þrjá mánuði og jafnvel lengur. Þetta hafa nokkrar rannsóknir sýnt. Þegar karlmenn hjóla minnkar blóðflæði til kynfæranna um allt að 80 prósent. Taugarnar virka þá ekki eins og þær eiga að gera, tilfinningin í kynfærunum minnkar og getuleysi getur komið upp. Erlent 23.10.2005 15:03