Erlent

Fréttamynd

Undirbúningur hryðjuverkaárásar var á lokastigi

Ástralska lögreglan handtók sautján grunaða hryðjuverkamenn í morgun og segist með því hafa komið í veg fyrir meiri háttar hryðjuverkaárás í landinu. Undirbúningur árásarinnar á að hafa verið á lokastigi.

Erlent
Fréttamynd

Snarráður flutningabílstjóri

Lögreglan í Kaliforníu hafði elt bílstjóra í klukkustund á I-5 hraðbrautinni og reynt allt til að fá hann til að stoppa, þegar skjótráður flutningabílstjóri ákvað að taka málið í sínar hendur.

Erlent
Fréttamynd

Athugasemdir við framkvæmd kosninga

Það fór eins og búast mátti við í þingkosningunum í Aserbædjan um helgina. Flokkur forsetans Ilham Alievs fagnaði sigri, en alþjóðleg eftirlitsnefnd taldi margt athugavert við framkvæmd kosninganna.

Erlent
Fréttamynd

Fimm stjörnu hótel í Kabúl

Fjórum árum eftir að talibanastjórnin var hrakin frá völdum í Afganistan opnaði fyrsta fimm stjörnu hótelið í Kabúl. Sjálfur forsetinn, Hamid Karzai, var mættur til að fagna þessum áfanga, en viðurkenndi að það væru ýmis vandamál óleyst enn.

Erlent
Fréttamynd

Palestínskur unglingur drepinn

Palestínskur unglingur var skotinn til bana af ísraelskum hermönnum í bænum Nablus á Vesturbakkanum í dag. Að sögn talsmanns Ísraelshers var skotið á hóp Palestínumanna sem talið var að hafi verið að reyna að koma fyrir sprengjum í vegkanti á svæðinu.

Erlent
Fréttamynd

Enginn möguleiki á sanngjörnum réttarhöldum

Talsmaður lögmanna Saddams Husseins og samstarfsmanna hans sagði nú síðdegis að enginn möguleiki væri á sanngjörnum réttarhöldum á meðan öryggi manna væri ekki tryggt. Einn verjenda í málaferlunum gegn Saddam var skotinn til bana og annar særðist þegar skotið var á bíl þeirra í Bagdad í dag.

Erlent
Fréttamynd

Fujimori neitað um lausn gegn tryggingu

Hæstiréttur Chile hafnaði í dag kröfu verjenda Albertos Fujimoris, fyrrverandi forseta Perús, um að hann yrði látinn laus gegn tryggingu. Fujimori var handtekinn í gær skömmu eftir að hann kom til Chiles, en hann hefur verið sakaður um mannréttindabrot og spillingu í valdatíð sinni í Perú sem stóð yfir á árunum 1990-2000.

Erlent
Fréttamynd

Evrópuráðið hefur rannsókn á meintum leynifangelsum

Evrópuráðið hóf í dag rannsókn sína á því hvort leyniþjónusta Bandaríkjanna, CIA, starfræki leynifangelsi í Austur-Evrópu. Bandaríska dagblaðið Washington Post greindi frá þessu í síðustu viku og sagði að þar væru meintir hryðjuverkamenn í haldi þar sem þeir væru pyntaðir til sagna.

Erlent
Fréttamynd

Ekki miklar breytingar á hryðjuverkafrumvarpi

Breska ríkisstjórnin mun ekki gera veigamiklar breytingar á umdeildum hryðjuverkalögum sem leggja á fram á breska þinginu á morgun. Þetta segir Charles Clarke, innanríkisráðherra Bretlands. Búist hafði verið við að ríkisstjórnin myndi leggja fram málamiðlun um frumvarp vegna harðrar andstöðu við það í öllum þingflokkum en af því verður ekki.

Erlent
Fréttamynd

Skotið á verjendur í málaferlum gegn Hussein

Einn verjenda í málaferlunum gegn Saddam Hussein, fyrrverandi forseta Íraks, var skotinn til bana og annar særðist þegar skotið var á bíl þeirra í Baghdad í dag. Mennirnir voru verjendur samstarfsmanna Saddam Hussein, sem ákærðir eru fyrir glæpi gegn mannkyni.

Erlent
Fréttamynd

Forsetakosningar í Líberíu í dag

Líberíumenn ganga í dag til seinni umferðar forsetakosninga sem eru þær fyrstu síðan fjórtán ára borgarastyrjöld í landinu lauk. Valið stendur á milli tveggja frambjóðenda, fyrrverandi knattspyrnugoðsins George Weah, sem hlaut flest atkvæði fyrri umferð kosninganna, og Ellenar Johnson-Sirleaf, hagfræðings sem menntuð er í Harvard og sækist eftir að verða fyrsta konan í leiðtogaemætti í Afríkuríki.

Erlent
Fréttamynd

Pólskir tannlæknar til Svíþjóðar

Eins og sagt var frá í fréttum Bylgjunnar í gær telst það orðið til kosta meðal verkamanna á Austurlandi að kunna pólsku. Í framtíðinni gæti pólskukunnátta þó komið sér vel víðar.

Erlent
Fréttamynd

Konur betri ökumenn

Heilastarfsemi kvenna gerir þær að betri ökumönnum. Munurinn á heilastarfsemi kynjanna er nú talinn geta útskýrt af hverju konur valda færri slysum í umferðinni en karlar og borga tryggingaiðgjöld í samræmi við það.

Innlent
Fréttamynd

Veita leyfi til að koma á útgöngubanni

Nokkuð dró úr uppþotum í úthverfum Parísar í gærkvöld eftir að frönsk yfirvöld tilkynntu að borgar- og sveitastjórnum yrði heimilt að setja útgöngubann til að stemma stigu við óeirðunum. Nóttin var þó ekki átakalaus því víða annars staðar í Frakklandi voru bílar brenndir og ráðist gegn lögreglu.

Erlent
Fréttamynd

Skútsiglingamenn í vandræðum

Franskir og breskir björgunarmenn reyna nú að bjarga áhöfnum þriggja skútna sem lentu í óveðri vestur af Biscaya-flóa í nótt. Skúturnar voru að taka þátt í kappsiglingu milli Frakklands og Brasilíu þegar óveðrið skall á. Hefur tveimur þeirra þegar hvolft samkvæmt fréttavef breska ríkisútvarpsins og mastrið er brotið á því þriðja.

Erlent
Fréttamynd

Hermenn ákærðir fyrir misþyrmingar í Írak

Fimm bandarískir hermenn í Írak hafa verið ákærðir fyrir að beita fanga harðræði nýlega. Frá þessu greinir Bandaríkjaher. Fimmmenningarnir eiga að hafa kýlt og sparkað í menn sem biðu þess að verða fluttir í fangelsi í landinu í byrjun september.

Erlent
Fréttamynd

Maður deyr af völdum fuglaflensu í Víetnam

Yfirvöld í Víetnam hafa staðfest að banamein manns sem lést í lok október hafi verið fuglaflensa. Hann sá fyrsti sem deyr af völdum hennar eftir að hún greindist aftur í fuglum þar í landi í haust. Maðurinn, sem var 35 ár, dó eftir að hafa borðað kjúkling með fjölskyldu sinni en ættingjar hans hafa ekki kennt sér meins eftir átið.

Erlent
Fréttamynd

Viagra ekki bara stinningarlyf

Þýskir vísindamenn hafa komist að því að Viagra er ekki eingöngu stinningarlyf, heldur virkar einnig á blóðrásarsjúkdóminn Raynauds. Sjúkdómurinn sem hrjáir aðallega ungar konur lýsir sér í hægri blóðrás til handa og fóta sem leiða til mikils handkulda, útbrota og skjálfta. Ekkert lyf hefur dugað á sjúkdóminn hingað til. En eftir nokkra vikna inngjöf Viagra sáust batamerki á flestum konunum.

Erlent
Fréttamynd

De Beers gefur frá sér eignarhald í námum

De Beers demantafélagið, eitt áhrifamesta félagið á demantamarkaðinum, mun í dag láta 15 % af eignarhaldi sínu í suður-afrískum demantanámum í hendur svartra fjárfesta í landinu. Þetta mun vera ein mesta uppstokkun í hundrað og sautján ára sögu félagsins.

Erlent
Fréttamynd

Norsk lögreglukona sektuð

Norsk lögreglukona hefur verið dæmd til að greiða 850.000 norskar krónur í sekt fyrir fjárdrátt. Fjárdrátturinn átti sér stað á margra ára tímabili án þess að nokkurn grunaði, en hin 39 ára gamla kona dró að sér fé við afhendingu vegabréfa til norskra ríkisborgara. Aftenposten sagði frá.

Erlent
Fréttamynd

Óttast víðtækt salmonellusmit

Mikill ótti við stórt salmonellusmit hefur nú gipið um sig í Noregi. Norska heilbrigðiseftirlitið og Lýðheilsustöðin eru nú sannfærð um að sýkt kjöt frá Póllandi eigi eftir að breiðast hratt um landið og valda alvarlegum veikindum.

Innlent
Fréttamynd

14 þúsund til viðbótar talin af

87.350 manns fórust í jarðskjálftanum mikla í Pakistan í síðasta mánuði samkvæmt nýjum tölum sem Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið út og byggja á áætlunum pakistanskra stjórnvalda. Þetta er fjórtán þúsund manns fleira en áður hafði verið áætlað að hefðu látist í hamförunum. Hundrað þúsund manns eru slasaðir.

Innlent
Fréttamynd

Ákærðir fyrir stríðsglæpi

Fimm grunaðir hryðjuverkamenn, sem eru í haldi í hinu bandaríska Guantanamo fangelsi á Kúbu, hafa verið ákærðir fyrir stríðsglæpi og munu mæta fyrir herrétt. Þar með hafa níu manns, sem sitja í Guantanamo, sætt ákæru.

Erlent
Fréttamynd

Sveitarstjórnir fá leyfi til að koma á útgöngubanni

Sveitastjórnir í Frakklandi hafa fengið leyfi til að setja á útgöngubann frá og með morgundeginum. Þetta er gert til að reyna að stemma stigu við óeirðunum sem geisað hafa síðustu tólf kvöld í úthverfum Parísar og víðar um landið.

Erlent
Fréttamynd

Eyddi tölvuskeytum og var rekinn

Það getur kostað Dani vinnuna að eyða tölvupóstinum úr vinnutölvunni. Slíkt fékk danskur tölvunarfræðingur sem vann hjá upplýsingarfyrirtæki að reyna í síðustu viku. Hann hafði ráðið sig hjá samkeppnisfyrirtæki og tók sig til og eyddi öllum tölvuskeytum úr tölvunni sinni, bæði persónulegum og vinnutengdum. Fyrirtækið rak hann, stöðvaði launagreiðslur og lögsótti. Hann fór þá í mál og Eystri landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að uppsögnin væri að nokkru leyti ólögmæt þar sem engin skýr lög væru um meðferð tölvuskeyta. Hann fékk launin og einnig bætur en missti þó vinnuna.

Innlent
Fréttamynd

Úrskurðar um vald Bandaríkjaforseta

Hæstiréttur Bandaríkjanna mun úrskurða um hvort bandarískum stjórnvöldum sé stætt á að láta herdómstóla fjalla um mál meintra hryðjuverkamanna al-Kaída.

Innlent
Fréttamynd

Fjárhagstjónið verður mikið

Alþjóðabankinn telur að heimsframleiðslan dragist saman um 50.000 milljarða króna á ári verði fugla­flensan að heimsfaraldri.

Erlent
Fréttamynd

Áhyggjur af drykkju lækna

Svíar hafa vaxandi áhyggjur af vímuefnavanda heilbrigðis­stétta í landinu. Tilkynningum um drukkna og timbraða lækna fer fjölgandi og sama er að segja um hjúkrunarfólk.

Erlent
Fréttamynd

Verður líklega framseldur

Alberto Fuji­mori, fyrrverandi forseti Perú, var handtekinn í gærmorgun, skömmu eftir að hann kom í óvænta heimsókn til Chile. Fujimori er eftirlýstur í heimalandi sínu vegna spillingar og mannréttindabrota í valdatíð sinni á árunum 1990 til 2000.

Erlent
Fréttamynd

Grunaðir hryðjuverkamenn handteknir í Ástralíu

Ástralska lögreglan handtók í gær sextán manns sem grunaðir eru um að hafa lagt á ráðin um stórfellda hryðjuverkaárás. Talið er að undirbúningur hryðjuverkaárásanna hafi verið á lokastigi. Á meðal þeirra sem var handtekinn var róttækur múslímaklerkur sem sakaður er um að hafa stýrt undirbúningi árásanna.

Erlent