Erlent

Fréttamynd

Upprættu mikla kókaínframleiðslu

Fíkniefnalögreglan í Kólumbíu réðst í gær til atlögu á kókaínframleiðslufyrirtæki þar sem hvorki meira né minna en þrjú tonn af kókaíni eru framleidd í hverjum mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Hugmyndir um kaup Fly Me á Sterling

Hugmyndir eru uppi um að sænska lággjaldaflugfélagið Fly Me kaupi Sterling flugfélagið sem er í eigu FL Group og jafnvel norska flugfélagið Norwegian. Ager Hansen, sem er næststærsti hluthafi í Fly Me, segir í viðtali við Finansavisen að Finnair komi líka til greina, en það á lágjaldaflugfélagið Fly Nordic.

Erlent
Fréttamynd

Bush neitar að tjá sig um hleranir

Bandaríkjaforseti neitar að tjá sig um staðhæfingar bandarískra fjölmiðla þess efnis að Bandaríkjastjórn hafi safnað upplýsingum um símtöl tuga milljóna Bandaríkjamanna frá árinu 2001. Dagblaðið USA Today staðhæfir að þrjú stærstu símafyrirtæki landsins hafi afhent yfirvöldum upplýsingar um símtöl fólksins.

Erlent
Fréttamynd

Boðað til neyðarfundar með Tamíltígrum vegna árásar

Yfirstjórn friðargæslunnar á Sri Lanka hefur boðað til neyðarfundar með uppreisnarmönnum Tamíltígra. Friðargæslan sakar tígrana um gróf brot á vopnahléssamkomulaginu frá 2002, nú síðast í gær, með sjálfsmorðsárás á herskip í sem leiddi til dauða 57 manns, að sögn yfirvalda.

Erlent
Fréttamynd

Sjónvarpsstöð fyrir ungabörn

Sjónvarpsstöð fyrir ungabörn hóf útsendingar í Bandaríkjunum í dag. Þetta er fyrsta stöð sinnar tegundar en markhópurinn er börn yngri en tveggja ára.

Erlent
Fréttamynd

Valdamenn spila fótbolta

Það voru valdamiklir menn sem spörkuðu á milli sín knetti til styrktar góðu málefni í Vín í Austurríki í dag. Þá var efnt til góðgerðarleiks í knattspyrnu þar sem sjö evrópskir forsætisráðherrar og Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, létu ljós sitt skína.

Erlent
Fréttamynd

Breska leyniþjónustan þekkti árásarmennina

Tveir þeirra fjögurra hryðjuverkamanna sem tóku þátt í hryðjuverkaárásunum á Lundúnir í fyrra voru undir takmörkuðu eftirliti fyrir árásirnar auk þess sem breska leyniþjónustan hafði hlerað síma þess þriðja. Þetta kemur fram í skýrslu þingnefndar um árásirnar sem birt var í dag.

Erlent
Fréttamynd

Kona og barn myrt í Antwerpen

Svo virðist sem kynnþáttafordómar hafi ráðið ferð þegar 18 ára piltur varð svartri konu og barni í hennar gæslu að bana í miðborg Antwerpen í Belgíu í dag.

Erlent
Fréttamynd

Norrænir friðargæslumenn í hættu

Vopnahlé, sem norrænir eftirlitsmenn fylgjast með á Sri Lanka, er í uppnámi eftir bardaga á sjó og landi í dag. Talið er að minnst 45 hafi fallið. Íslenskur upplýsingafulltrúi norrænu eftirlitssveitanna segir að tveir norrænir eftirlitsmenn hafi verið í hættu, en þá hafi ekki sakað.

Erlent
Fréttamynd

Eldsneyti aftur flutt á sjálfsstjórnarsvæðin

Ísraelska orkufyrirtækið Dor Alon ætlar að hefja aftur flutning á eldsneyti til sjálfsstjórnarsvæða Palestínumanna á morgun. Fyrirtækið ákvað að hætta eldsneytisflutningum í gær vegna skulda heimastjórnar Palestínumanna.

Erlent
Fréttamynd

Verðbólga á Írlandi 3,8 prósent

Verðbólga hækkaði um 0,3 prósentustig á milli mánaða og mældist 3,8 prósent á Írlandi í apríl. Hún hefur ekki verið jafn há síðastliðin þrjú ár, samkvæmt útreikningum írsku hagstofunnar. Helstu ástæður hækkunarinnar voru verðhækkanir á húsnæði og eldsneyti.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

ECB fylgist með verðbólguþróun

Jean-Claude Trichet, bankastjóri evrópska seðlabankans, segir í mánaðarlegu fréttabréfi bankans í dag að fylgst verði grannt með verðþróun í álfunni til að halda verðbólgu í skefjum. Óstöðugleiki í olíuverði og óbeinir skattar hafi áhrif á aðra liði til hækkunar og séu líkur á að verðbólga á evrusvæðinu verði yfir 2 prósentum til skamms tíma. Búist er við að verðbólgan muni hækka á næsta ári.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Minnisvarði veitir upplýsingar

Fornleifafræðingar í Mexíkó hafa fundið minnisvarða höggvinn úr steindranga í norður hluta landsins. Hann gæti veitt nýjar upplýsingar um eina elstu þjóðmenningu álfunnar.

Erlent
Fréttamynd

Sirkusfílar á vappi í Svíþjóð

Það voru sirkusfílar sem mættu þeim sem áttu leið um nálægt vænum Väsby í Svíþjóð í gærkvöldi. Verið var að ferja fílana með flutningbíl þegar ökumaður missti bílinn útaf veginum þar sem hann valt síðan.

Erlent
Fréttamynd

Klekar hvetja Íraka til sameiningar

Um það bil fimmtíu klerkar kúrda, súnnía og sjía hittust til fundar í Bagdad, höfuðborg Íraks, í dag til að ræða hvernig binda megi enda á átök trúarbrota í landinu. Íraksforseti segir að þau hafi kostað rúmlega þúsund Íraka lífið í aprílmánuði einum.

Erlent
Fréttamynd

Áttræður fyrrverandi kommúnisti í embætti forseta

Ítalska þingið kaus í dag Giorgio Napolitano í embætti forseta landsins. Napolitano er frambjóðandi olívubandalags Romanos Prodis. Þetta var í fjórða sinn sem þingið kaus milli frambjóðenda síðan á mánudag en enginn hafði fengið tilskylinn meirihluta atkvæða sökum þess hve margir þingmenn sátu hjá í fyrstu atkvæðagreiðslunum. Napolitano er áttræður fyrirverandi kommúnisti. Nýr forseti mun veita Prodi umboð til stjórnarmyndunar, en bandalag mið- og vinstir flokka, sem hann fer fyrir vann nauman sigur í ítölsku þingkosningunum í síðasta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Börn misnotuð af háttsettum aðilum

Brögð eru að því að börn í Líberíu séu kynferðislega misnotuð af hjálparsarfsmönnum, friðargæsluliðum, kennurum og ýmsum háttsettum innfæddum karlmönnum. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu samtakanna Save the Children eða Barnaheilla Bretlandi sem kynnt var nýverið.

Erlent
Fréttamynd

Hættir eldsneytisflutningum á Vesturbakka og Gaza-svæðið

Ísraelska olíufyrirtækið Dor Energy hefur ákveðið að hætta eldsneytisflutningum á Vesturbakkan og Gaza-svæðið. Fulltrúar fyrirtækisins segja þetta gert vegna skulda Palestínumanna en palestínskir fulltrúar segja þetta auka en á vanda íbúa á þessum svæðum.

Erlent
Fréttamynd

Hollinger tapaði rúmum 800 milljónum króna

Bandaríska dagblaðaútgáfan Hollinger International tapaði 11,7 milljónum Bandaríkjadölum, jafnvirði 824,6 milljóna íslenskra króna, á fyrsta ársfjórðungi 2006. Tapið nemur 13 sentum á hlut. Þetta er ófullnægjandi afkoma, að sögn stjórnar útgáfunnar.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hlutabréf hækkuðu í Japan

Gengi hlutabréfa lækkaði töluvert í kauphöllinni í Tókýó í Japan í dag, m.a. vegna styrkingar jensins gagnvart dollar. Það kemur fyrirtækjum í útflutningi illa. Nikkei-225 hlutabréfavísitalan lækkaði um 1,39 prósent, 238,98 punkta, og endaði í 16.951,93 stigum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Ætla að veita Palestínumönnum stuðning

Fjórveldin sem standa að baki vegvísinum til friðar í Miðausturlöndum ætla að koma upp alþjóðlegu kerfi svo hægt sé að veita Palestínumönnum fjárhagslegan stuðning.

Erlent
Fréttamynd

Námaverkamönnunum loks bjargað

Tveir ástralskir verkamenn sem setið höfðu fastir í gullnámu í hartnær hálfan mánuð sluppu loks úr prísund sinni í morgun. Þeir voru glorhungraðir þegar þeir komu upp úr námunni en að öðru leyti amaði ekkert að þeim.

Erlent
Fréttamynd

Aðeins 30 prósent styðja Verkamannaflokkinn

Skiptar skoðanir eru um þá ákvörðun Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, að greina ekki frá hvenær hann hyggst láta af embætti. Skoðanakannanir benda til að Verkamannaflokkurinn hafi ekki verið óvinsælli síðan 1992.

Erlent
Fréttamynd

Gullverð ekki hærra í aldarfjórðung

Gullverð hækkaði um 19,90 Bandaríkjadali í framvirkum samningum á mörkuðum í New York í Bandaríkjunum í dag og endaði í 699,90 dölum á únsu. Verðið hefur ekki verið jafn hátt síðan í október árið 1980 en þá fór verð á únsu í 850 dali. Fjármálasérfræðingar segja verðið ekki undrunarefni í sjálfu sér heldur sé það athyglisvert hversu mikil hækkunin hafi verið.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

AOL segir upp 1.300 manns

Bandaríska netveitan American Online (AOL) greindi frá því í dag að hún ætli að segja upp 1.300 manns, sem er um 7 prósent allra starfsmanna fyrirtækisins. Þá mun fyrirtækið loka þremur skrifstofum sínum í Bandaríkjunum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Olíuverð hækkaði í dag

Olíuverð fór rétt yfir 70 dollara markið á helstu mörkuðum í dag vegna óvissu um hvort Íranar íhugi að draga úr olíuframleiðslu sinni vegna yfirvofandi refsiaðgerða vegna kjarnorkuáætlunar landsins. Íran er annað stærsta olíuframleiðsluríkið innan OPEC og gæti samdráttur á olíuframleiðslu landsins haft áhrif á olíuframboð á heimsvísu.

Viðskipti erlent