Íþróttir
Heiðar ekki með í kvöld Heiðar Helguson, leikmaður Wattford, getur ekki leikið með íslenska landsliðinu í knattspyrnu gegn Möltu í kvöld vegna veikinda. Hannes Þ Sigurðsson, leikmaður Vikings í Noregi og ungmennalandsliðsins, var í gærkvöld valinn í A-landsliðið í stað Gylfa Einarssonar sem á við meiðsli að stríða. Sport 13.10.2005 19:19
Markalaust hjá Perú og Úrúgvæ Perú og Úrúgvæ gerðu í gærkvöld markalaust jafntefli í undankeppni heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Úrúgvæ er í 5. sæti í riðlinum en Perúmenn í 8. sæti. Í kvöld mætast efstu liðin í riðlinum, Brasilía og Argentína. Leikur liðanna, sem sýndur verður beint á Sýn, hefst rúmlega hálf eitt í nótt. Sport 13.10.2005 19:20
Piltalandsliðið vann Svía Piltalandsliðið í knattspyrnu vann Svía með tveimur mörkum gegn engu í Grindavík í gær. Theódór Elmar Bjaranson, sem leikur með Celtic í Skotlandi, skoraði bæði mörk íslenska liðsins. Liðin mætast aftur á fimmtudag. Sport 13.10.2005 19:20
Snóker: Kristján í 16 manna úrslit Kristján Helgason komst í gærkvöld í 16 manna úrslit á Evrópumótinu í snóker sem fram fer í Póllandi. Brynjar Valdimarsson féll hins vegar úr keppni. Sport 13.10.2005 19:20
Schumacher hættur að spá Heimsmeistarinn Michael Schumacher segist vera hættur að spá fyrir um gengi liðs síns í þeim keppnum sem eftir eru á árinu, því þær hafi ekki ræst fram að þessu. Sport 13.10.2005 19:19
París líkleg Ólympíuborg árið 2012 Sérstök nefnd á vegum hefur undanfarin misseri skoðað umsóknir þeirra borga sem sótt hafa um að halda Ólympíuleikana árið 2012 og þykja París og London vera líklegustu borgirnar til að hreppa hnossið. Sport 13.10.2005 19:19
Brian Marshall snýr aftur Á blaðamannafundi í gær tilkynnti Sundsamband Íslands ráðningu Brians Marshall í stöðu landsliðsþjálfara frá og með fyrsta júlí næstkomandi og mun hann gegna starfinu fram yfir Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Sport 13.10.2005 19:19
Ásdís fullkomnaði frábæra viku Ásdís Hjálmsdóttir, tvítug frjálsíþróttakona úr Ármanni, fullkomnaði frábæra viku hjá sér á Smáþjóðaleikunum í Andorra í gær þegar hún tryggði sér gullverðlaun í kringlukasti. Þetta voru þriðju verðlaun Ásdísar á leikunum. Sport 13.10.2005 19:18
Öruggur sigur Loebs í Tyrklandi Frakkinn Sebastien Loeb á Citroën, heimsmeistari í rallakstri, vann sannfærandi sigur í Tyrklandsrallinu í morgun. Loeb var 59,6 sekúndum á undan Norðmanninum Petter Solberg en Finninn Marcus Grönholm varð þriðji. Loeb er efstur að stigum í heimsmeistarakeppninni með 55 stig en Solberg er annar með 42 stig. Sport 13.10.2005 19:19
Fyrstu verðlaunin í tennis Íslenska tennisfólkið náði sögulegum árangri á Smáþjóðaleikunum í Andorra þegar tvö bronsverðlaun komu í hús á síðasta degi leikanna í gær. Þetta eru fyrstu verðlaun Íslendinga frá upphafi í tenniskeppninni leikanna. Sport 13.10.2005 19:18
Henin-Hardenne sigraði í París Justine Henin-Hardenne frá Belgíu tryggði sér í dag sigur í einliðaleik kvenna á opna franska meiataramótinu í tennis en mótið fer fram í París. Hún vann öruggan sigur á frönsku tenniskonunnni Mary Pierce í úrslitaleik í tveimur settum, 6-1 og 6-1. Sport 13.10.2005 19:18
Stefán byrjar inn á í fyrsta sinn Stefán Gíslason verður í fyrsta skipti í byrjunarliði íslenska landsliðsins í knattspyrnu þegar við mætum Ungverjum í undankeppni heimsmeistaramótsins á Laugardalsvelli í dag. Sport 13.10.2005 19:18
Tap gegn Ungverjum Íslenska U-21 landsliðið tapaði fyrir Ungverjum 1-0 á Víkingsvelli í gærkvöldi en leikurinn var liður í undankeppni Evrópumótsins. Sigurmarkið kom á 12. mínútu. Sport 13.10.2005 19:18
Húsvíkingar í heimsókn í Kópavogi HK og Völsungur mætast á Kópavogsvelli klukkan tvö í dag í fyrstu deild karla í fótbolta, Fjarðarbyggð tekur á móti ÍR á Eskifjarðarvelli í annarri deild og á Ólafsfjarðarvelli mætast Leiftur/Dalvík og Huginn klukkan fjögur. Sport 13.10.2005 19:18
Loeb á sigurinn vísan Heimsmeistarinn í rallakstri, Sebastian Loeb á Citroen, á sigurinn vísan í Tyrklandsrallinu. Hann er rúmri mínútu á undan Marcusi Grönholm þegar tólf sérleiðir af átján eru að baki. Sport 13.10.2005 19:18
Federer tapaði fyrir unglingi Svisslendingurinn Roger Federer, besti tennismaður heims, tapaði fyrir Spánverjanum unga, Rafael Nadal, í undanúrslitum Opna franska meistaramótsins í tennis í gær. Nadal vann í fjórum settum en hann hélt upp á 19 ára afmæli sitt í gær. Sport 13.10.2005 19:18
Þjálfari Genk tók poka sinn Belgíska liðið Genk, sem Indriði Sigurðsson leikur með, rak í morgun Rene Vanderceycken eftir aðeins eitt ár í starfi. Brottvikning hans kemur á óvart þar sem Genk kom verulega á óvart og tryggði sér sæti í Evrópukeppni félagsliða. Sport 13.10.2005 19:18
Breiðablik með fullt hús Breiðablik sigraði Þór á Akureyri 3-1 í 1. deild karla í knattspyrnu í gær. Olgeir Sigurgeirsson skoraði tvö síðustu mörk Breiðabliks úr vítaspyrnum undir lok leiksins. Breiðablik er með fullt hús stiga eða tólf stig en Þór hefur fjögur stig. Sport 13.10.2005 19:18
Búið að selja 3000 miða Búið er að selja um þrjú þúsund aðgöngumiða á landsleik Íslendinga og Ungverja á Laugardalsvelli á morgun að sögn Geirs Þorsteinssonar, framkvæmdastjóra KSÍ. Forsölunni lýkur í kvöld og er hægt að nálgast miða á bensínstöðvum Esso. Sport 13.10.2005 19:18
21 árs leikurinn í kvöld 21 árs landslið Íslands og Ungverjalands mætast á Víkingsvelli í kvöld klukkan 18. Búast má við hörkuleik en Ungverjar eru í 2. sæti riðilsins ásamt Svíum með níu stig en Ísland er í 4. sæti með sex stig. Króatar eru langefstir með 15 stig eða fullt hús stiga. Sport 13.10.2005 19:18
Björgvin og Þórey Edda unnu gull Björgvin Víkingsson og Þórey Edda Elísdóttir unnu bæði gull á Smáþjóðaleikunum í Andorra í dag á öðrum keppnisdegi frjálsra íþrótta, Björgvin vann 400 metra grindarhlaup á 53,49 sekúndum og Þórey Edda vann stangarstökkið mjög örugglega þegar hún stökk 4,40 metra. Sport 13.10.2005 19:18
Fjögur gull í frjálsum í gær Íslenska íþróttafólkið hélt áfram að safna að sér verðlaunum á þriðja keppnisdegi Smáþjóðaleikanna. Ísland vann alls 17 verðlaun í gær og hafa því 18 gull og alls 49 verðlaun komið í hlut Íslendinga á leikunum. Sport 13.10.2005 19:18
Sundfólkið mjög sigursælt Íslenska sundfólkið var mjög sigursælt á öðrum degi Smáþjóðaleikanna í Andorra en Ísland vann alls til þrettán verðlauna í sundlauginni í gær. Sport 13.10.2005 19:18
Ísland með 11 gull í Andorra Ísland hefur hlotið næst flest gullverðlaun á eftir Kýpurmönnum á Smáþjóðaleikunum sem nú standa yfir í Andorra. Íslensku keppendurnir stóðu sig vel í dag. Borðtenniskappinn Guðmundur Stephensen sigraði Marco Vannucci frá San Marínó, 3-0 í einliðaleik karla og íslenska karlalandsliðið í körfubolta fór létt með heimamenn í Andorra og vann 30 stiga sigur. Sport 13.10.2005 19:18
Jafntefli í Íslendingaslag Valerenga og Start gerðu 1-1 jafntefli í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Árni Gautur Arason var í marki Valerenga og Jóhannes Harðarson lék með Start en eins og kunnugt er var hann valinn í íslenska landsliðið sem mætir Ungverjum á laugardag og Möltu á miðvikudag. Sport 13.10.2005 19:17
Pétur í sigurliði Hammarby Pétur Hafliði Marteinsson lék allan leikinn með Hammarby í 3-1 sigri liðsins á Hacken í sænsku úvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Hjálmar Jónsson lék fyrri hálfleik með IFK Gautaborg þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Elfsborg. Hammarby og Gautaborg eru um miðja deild. Sport 13.10.2005 19:17
Fjórða mark Veigars á leiktíðinni Veigar Páll Gunnarsson skoraði fyrir Stabæk þegar liðið sigraði Hödd, 2-0, í 1. deild norsku knattspyrnunnar í gær. Þetta var fjórða mark Veigars Páls á leiktíðinni en Stabæk og Sandefjörd hafa forystu í 1. deildinni, næstefstu deildinni í Noregi. Sport 13.10.2005 19:17
Hagi sagði upp Rúmeninn Gheorge Hagi sagði í morgun upp starfi sínu sem knattspyrnustjóri tyrkneska fótboltaliðsins Galatasaray. Hagi, sem er þekktasti knattspyrnumaður Rúmeníu, er sagður á leið heim til þess að taka við liðinu sem hann lék með í mörg ár, Steaua Búkarest. Sport 13.10.2005 19:17
Fjöldi Íslendinga í Andorra Á mánudagskvöldið verða smáþjóðaleikarnir settir í Andorra þar sem keppnin fer fram í ár. 126 íslenskir keppendur halda utan í dag ásamt fylgdarliði. Íslenska keppnisliðið á harma að hefna, eftir að hafa hlotið flest verðlaun á leikunum nokkur skipti í röð, urðu þeir að láta í minni pokann fyrir tveimur árum á Möltu, er leikarnir fóru síðast fram Sport 13.10.2005 19:16
Heidfeld á ráspól Ökumenn Williams-liðsins voru í fantaformi þegar tímatakan fyrir kappaksturinn á Nurburgring fór fram í gær. Hraðast allra ók Nick Heidfeld og hann verður því á ráspól í fyrsta skipti á ferlinum í dag.Raikkonen keyrði aðeins hægar en Heidfeld og Íslandsvinurinn Mark Webber var með þriðja besta tímann. Sport 13.10.2005 19:16