Fjögur gull í frjálsum í gær 2. júní 2005 00:01
Íslenska íþróttafólkið hélt áfram að safna að sér verðlaunum á þriðja keppnisdegi Smáþjóðaleikanna. Ísland vann alls 17 verðlaun í gær og hafa því 18 gull og alls 49 verðlaun komið í hlut Íslendinga á leikunum. Það gekk vel á frjálsíþróttavellinum í gær og fjögur íslensk gull litu dagsins ljós. Björgvin Víkingsson vann glæsilegan sigur í 400 metra grindahlaupi og varð þar á undan tveimur Kýpverjum. Þórey Edda Elísdóttir vann öruggan sigur í stangarstökki, stökk 30 sentímetrum hærra en silfurhafinn frá Kýpur og átti auk þess þrjár góðar tilraunir við eigið Norðurlandamet. Óðinn Björn Þorsteinsson vann gull þegar hann kastaði kúlunni 17,15 metra og vann með miklum yfirburðum en Jón Arnar Magnússon varð í fjórða sæti. Þetta eru önnur verðlaun Óðins á leikunum, hann hlaut silfur í kringlukasti í fyrradag. Jón Arnar vann síðan brons þegar hann stökk 7,30 metra í langstökki og Vilborg Jóhannsdóttir vann silfur í sleggjukasti. Ásdís Hjálmsdóttir var aðeins fimm sentimetrum frá fimm daga gömlu Íslandsmeti sínu í spótkasti þegar hann vann gull í gær en í öðru sæti varð Vigdís Guðjónsdóttir. Þetta voru önnur verðlaun Ásdísar en hún vann brons í kúluvarpi á þriðjudaginn. Hin 15 ára gamla Íris Anna Skúladóttir vann einnig sín önnur verðlaun þegar hún bætti bronsverðlaunum í 1.500 metra hlaupi við gullið sem hún vann svo eftirminnilega í fyrrakvöld. Ragnheiður Ragnarsdóttir vann eina gullið í einstaklingskeppni sundsins í gær þegar hún vann 50 metra skriðsundið. Ísland vann silfur (Erla Dögg Haraldsdóttir) og brons (Helena Ósk Ívarsdóttir) í 200 metra bringusundi kvenna, Jakob Jóhann Sveinsson vann silfur í 200 metra bringusundi, strákasveitin vann silfur í 4x100 metra fjórsundi og þá vann Sigrún Brá Sverrisdóttir brons í 200 metra skriðsundi. Íslandsmet hjá Önju Hitt gull dagsins vann kvennasveit í 4x100 metra fjórsundi en Anja Ríkey Jakobsdóttir gerði sér lítið fyrir og bætt þar íslandsmetið í 100 metra baksundi í fyrsta sprettium. Anja synti á 1.05.29 mínútum og bætti gamla metið um 19/100 úr sekúndu. Kvennalandsliðið í júdó vann gull í liðakeppninni en strákarnir urðu að sætta sig við fjórða sætið. Kvennasveitin skipa þær Gígja Guðbrandsdóttir og Margrét Bjarnadóttir en Margrét vann þarna sitt annað gull á leikunum. Kvennalandsliðið í körfubolta varð að sætta sig við silfur eftir 48-57 tap fyrir Lúxemborg í úrslitaleik. Birna Valgarðsdóttir var stigahæst með 19 stig og Helena Sverrisdóttir skoraði 11 stig. Karlaliðið vann sinn annan leik, nú nauman 73-69 sigur á Lúxemborg. Sigurður Þorvaldsson var stigahæstur með 14 stig.
Íþróttir Mest lesið Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sport Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sport Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Sport Orri áfram heitur á Spáni Fótbolti Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Körfubolti Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Enski boltinn Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Enski boltinn Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Fótbolti Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Handbolti Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Körfubolti Fleiri fréttir Lærði að ganga og tala upp á nýtt: „Þessi röskun er ekkert grín“ Sjáðu mörkin: Frábær Doku og aukaspyrnan sem rúllaði í mark Liverpool Elísa rétt missti af silfri: „Svo kemur þetta helvítis sikk sakk“ Arnar: Ákefðin var til staðar en hún var ekki á réttum hlutum Guardiola hvatti West Ham og uppskar hlátur Grindavík - Tindastóll 85-80 | Gáfu færi á sér en fögnuðu fyrsta sigri Óli Óla: Mér líður vel í Skagafirðinum líka Orri áfram heitur á Spáni Skoruðu eftir 15 sekúndur og Þórir fékk engu breytt Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Kristall skoraði af 45 metra færi en gullið rann úr greipum í vító Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Lið Benónýs í góðri stöðu eftir dramatískt sigurmark Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Fullkomin byrjun Þróttara heldur áfram Skjöldur á loft hjá Glódísi og Bayern Munchen Héldu pressu á Arsenal með þriggja marka sigri Markalaust á Leikvangi ljóssins og Evrópubaráttan heldur áfram Birta fallin með Genoa eftir tap í Íslendingaslag Sjáðu markið: Róbert Frosti hetja GAIS Liverpool - Chelsea 1-1 |Sóttu stig á Anfield eftir sex tapleiki í röð Ísak Snær aftur upp í efstu deild með Lyngby Arteta uppskar hlátur eftir að hafa verið spurður út í gagnrýni á fagnaðarlæti Svaf í Grindavík fyrir stóru stundina: „Fæ meira kitl í magann“ Freyr getur unnið sinn fyrsta titil með Brann í dag: „Yrði stórkostlegt“ Úrsliteinvígið hefst í kvöld: Mun tala sinn skít ef þess er þörf Sjáðu magnaða endurkomu KR og flautumark Fram Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Tugir hlupu af stað í Bakgarðshlaupinu Sjá meira