Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. Innlent 26.3.2026 21:21
Þungaflutningarnir með þeim mestu á Íslandi Einhverjir mestu þungaflutningar sem sést hafa á íslenska vegakerfinu fara fram á Suðurlandi fyrri hluta sumars þegar risastórar vindmyllur verða fluttar frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Innlent 25.3.2026 22:10
Stöðvuðu stækkun Sigöldustöðvar Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi leyfi fyrir stækkun Sigöldustöðvar. Ástæðan er sú að áhrif stækkunarinnar á gæði vatns voru ekki metin í umhverfismati stækkunarinnar. Innlent 21.11.2025 16:50
Hryssan Hlökk er „Dekurprinsessa“ hjá Ásmundi Erni Hryssan Hlökk er eitt allra efnilegasta hross, sem hefur komið fram hér á landi en hún og knapi hennar, Ásmundur Ernir Snorrason unnu öll helstu verðlaun á Íslandsmóti á Selfossi um helgina. „ Dekurprinsessa“, segir Ásmundur. Innlent 1. júlí 2025 20:05
Við þurfum hagkvæmu virkjunarkostina Við þurfum meiri raforku á næstu árum og áratugum. Víðtæk samstaða hefur náðst um að kerfið okkar verði að vera skilvirkara, svo virkjunarkostir lendi ekki í margra ára, jafnvel áratuga skilvindu stjórnsýslunnar þar sem tímafrestir eru ekki virtir og mörg tækifæri eru til að kæra þau fjölmörgu leyfi sem veitt eru fyrir hverri virkjanaframkvæmd. Skoðun 22. júní 2025 09:03
Ríkisstjórnarflokkarnir fylgja Landsvirkjun – gegn Þjórsárverum Baráttan fyrir verndun Þjórsárvera er ein sú merkasta í íslenskri náttúruverndarsögu. Hún hefur staðið í áratugi og markað dýrmæt fordæmi um hvernig náttúruverndarhagsmunir geta vegið þungt gegn áformum um virkjanir og aðrar framkvæmdir. Skoðun 19. júní 2025 11:00
Héraðsvötn og Kjalölduveitu í nýtingarflokk Nú liggur fyrir á alþingi og til umræðu í Umhverfis – og samgöngunefnd tillaga til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, nr. 24/152 frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Skoðun 6. júní 2025 11:33
Hafði verið veðurtepptur á Sprengisandsleið í þrjá daga Landhelgisgæslan, lögreglan á Suðurlandi og björgunarsveitir voru kallaðar út vegna manns sem var í vanda á Sprengisandsleið milli Þórisjökuls og Hofsjökuls á þriðjudaginn. Hann hafði verið veðurtepptur á staðnum í þrjá daga og sendi því frá sér neyðarboð. Innlent 7. mars 2025 12:57
Mönnun tryggð út febrúar en staðan óboðleg Fulltrúar sveitarfélaga í Rangárvallasýslu lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu heilbrigðismála í sýslunni og ítreka að núverandi staða og óvissa sé óboðleg 4519 íbúum sýslunnar og öðrum gestum hennar. Innlent 10. janúar 2025 16:52
Hótel Hestheimar í bók National Georgraphic Eigendur sveitahótelsins á Hestheimum í Ásahreppi á Suðurlandi vita varla í hvorn fótinn þau eiga að stíga þessa dagana vegna gleði. Ástæðan er sú að hótelið þeirra var valið eitt af hundrað sérstökustu hótelum í heimi í fjögur hundruð síðna bók, sem National Georgraphic var að gefa út. Innlent 9. janúar 2025 20:06
Telur Sigurð Inga hafa misnotað umboð sitt Landvernd segir Sigurð Inga Jóhannsson fjármála- og innviðaráðherra hafa misnotað umboð sitt með því að staðfesta svæðisskipulag fyrir Suðurhálendið næstu tuttugu árin. Um sé að ræða stefnumarkandi mál sem óeðlilegt sé að starfsstjórn keyri áfram í tómarúmi. Innlent 16. desember 2024 11:14
Ullarvika til heiðurs íslensku sauðkindinni Það verður mikið um að vera á Suðurlandi næstu sjö daga þegar íslenska ullin er annars vegar því sérstök ullarvika er að hefjast með fjölbreyttri dagskrá eins og fjárlitasýningu, spunasamkeppni og tískusýningu. Innlent 28. september 2024 14:05
Vinna málið saman og nýta greinargerð vegna fyrri umsóknar Oddvitar Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps eiga von á því að geta unnið umsókn Landsvirkjunar um framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá fljótt og örugglega. Stefnt er að því að sveitarfélögin afgreiði umsóknina á sama tíma. Innlent 20. september 2024 13:58
Hafa veitt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun Orkustofnun gaf í dag út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Landsvirkjun mun í kjölfarið sækja um framkvæmdaleyfi til bæði Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, en mannvirki tengd virkjuninni verða í báðum sveitarfélögunum. Enn er stefnt að því að Hvammsvirkjun taki til starfa fyrir árslok 2028. Viðskipti innlent 13. september 2024 13:39
Skoða að kæra útgáfu virkjanaleyfis fyrir Búrfellslund Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps, segir sveitarfélögin á áhrifasvæði fyrirhugaðs vindmyllugarðs í Búrfellslundi verða fyrir umtalsverðu fjárhagslegu tjóni af framkvæmdunum og segir ákvörðun munu verða tekna um hvort kæra eigi útgáfu Orkustofnunar á virkjanaleyfi á næstu sveitarstjórnarfundum. Innlent 14. ágúst 2024 10:19
Óska eftir sameiningarviðræðum þrátt fyrir andstöðu meirihluta Hreppsnefnd Ásahrepps ætlar að óska eftir viðræðum um sameiningu við tvö önnur sveitarfélög, þrátt fyrir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi í skoðanakönnun íbúa. Sveitarstjórinn segir að íbúar muni fá lokaorðið um sameiningu. Innlent 7. júní 2024 12:01
Verður Rangárvallasýsla eitt og sama sveitarfélagið? Svo gæti farið að sveitarfélögin þrjú í Rangárvallasýslu, þar að segja, Rangárþing ytra, Rangárþing eystra og Ásahreppur sameinist í eitt sveitarfélag en sveitarstjórnirnar hafa fundað um sameiningu sveitarfélaganna. Yrði það raunin verður til um fjögur þúsund og fimm hundruð manna sveitarfélaga og þriðja landstærsta sveitarfélag landsins. Innlent 30. mars 2024 13:31
„Þetta voru vinir mínir, skepnurnar” Guðmunda Tyrfingsdóttir, bóndi á tíræðisaldri sem vann fullnaðarsigur gegn Matvælastofnun þegar skepnum hennar var slátrað, ætlar ekki að gefast upp í búskapnum því hún er búin að fá sér hænur. Matvælastofnun hefur sent henni afsökunarbeiðni og lagt inn á hana andvirði skepnanna, sem var slátrað í óleyfi. Innlent 8. janúar 2024 20:03
Mál Guðmundu þyngra en tárum taki Helga Arnardóttir, kvikmyndagerðarkona, segir mál Guðmundu Tyrfingsdóttur sem var vörslusvipt búfénaði sínum og honum ólögmætt slátrað, vera þyngra en tárum tekur í færslu sem hún birti á Facebook í dag. Innlent 28. desember 2023 18:11
Lónstaða Þórisvatns með versta móti Landsvirkjun hefur skert raforku til stórnotenda á suðvesturhluta landsins. Ert það gert vegna lélegs vatnsbúskaps en lónstaða Þórisvatns er með versta móti. Innlent 19. desember 2023 16:59
MAST mátti ekki slátra skepnum Guðmundu Ákvörðun Matvælastofnunar um að vörslusvipta Guðmundu Tyrfingsdóttur bónda búfénaði sínum og slátra honum hefur verið úrskurðuð ólögmæt af matvælaráðuneytinu. Lögmaður Guðmundu segir Guðmundu sátta með úrskurðinn þó dýrin snúi aldrei heim. Innlent 19. desember 2023 16:36
Urriðafoss virkjaður en Héraðsvötn vernduð Þrír virkjunarkostir færast úr biðflokki yfir í nýtingarflokk en tveir úr biðflokki yfir í verndarflokk, samkvæmt tillögudrögum verkefnisstjórnar að rammaáætlun sem kynnt voru í dag. Innlent 4. desember 2023 20:40
Þriggja barna móðir berst við kerfið eftir banaslys á bænum Ekkja með þrjú lítil börn, sem missti manninn sinn snemma í vor í vinnuslysi á bæ þeirra hjóna í Rangárvallasýslu er mjög ósátt við það hvernig stjórnkerfið sækir á hana með allskonar leyfum og rukkunum eftir að maður hennar dó því búið var á hans kennitölu. Hjónin voru búin að vera í tíu ár í kúabúskap þegar maðurinn dó og rétt áður brunnu kindurnar þeirra inni í eldsvoða á bænum. Innlent 15. október 2023 21:01
Oddafélagið kynnir tillögu að nýrri höfuðkirkju Rangæinga Félag um endurreisn Odda á Rangárvöllum hefur kynnt hugmynd að útliti nýrrar höfuðkirkju Rangæinga ásamt Sæmundarstofu sem yrði fjölnota menningarhús með rými fyrir allt að fjögurhundruð manna tónleika. Innlent 4. júní 2023 21:41