
Grindavík

Stór skjálfti í Krísuvík í nótt
Jarðskjálftinn mældist 3,4 að stærð.

Ár og vötn þornað upp í sumar
Kleifarvatn hefur lækkað um einn metra frá því um miðjan maí og eru ár víðast hvar orðnar mjög vatnslitlar vegna lítillar úrkomu.

Gæslan slökkti eld í djúpum mosa
Síðdegis á laugardag óskaði slökkviliðsstjórinn í Grindavík eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar vegna elds sem logaði í djúpum mosa austan Djúpavatns við Lækjarvell

Eldurinn talinn hafa kviknað af völdum göngufólks
Eldur sem kviknaði í mosa við Grindavík í dag er talinn hafa kviknað af völdum göngumanna sem fóru þar um.

Eldur í mosa við Grindavík
Slökkviliðið í Grindavík óskaði eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna elds sem logar í mosa í hrauninu við Grindavík.

Ný tegund hraðamyndavéla á Grindavíkurvegi
Bæjarstjóri Grindavíkur bindur vonir við að myndavélaeftirlitið dragi úr hraða inn til bæjarins.

Arðgreiðslur frá Bláa Lóninu nema yfir 4 milljörðum króna
Velta Bláa Lónsins á árinu 2018 var um 17,4 milljarðar króna en þetta kemur fram í ársreikningi Bláa Lónsins hf.. Þá var hagnaður eftir skatta rúmir 3,7 milljarðar króna

Sveitarfélög lengi þrýst á nýtingu fjármuna Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar
Þegar bandaríski herinn fór frá Íslandi fyrir þrettán árum var félagið Kadeco stofnað, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar. Markmið félagsins var að stýra því hvernig svæðinu yrði breytt og eignir nýttar. Nú hefur félagið selt síðustu eignirnar á svæðinu.

Kastaðist sjö metra af mótorhjólinu
Rúmlega fertugur karlmaður var fluttur á bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi um helgina eftir mótorhjólaslys á Suðurnesjum.

Síðasti malarkaflinn til Krýsuvíkur malbikaður
Síðasti malarkaflinn á leiðinni milli Hafnarfjarðar og Krýsuvíkur heyrir brátt sögunni til. Endurbætur eru að hefjast á 1,5 kílómetra kafla Krýsuvíkurvegar um Vatnsskarð.

Hlutfall ungra mæðra hátt á Suðurnesjum
Hlutfall mæðra sem ekki hafa náð tvítugsaldri er mun hærra á Suðurnesjum en á landsvísu. Á landinu öllu fæddu 6,8 stúlkur af hverjum 1.000, á aldrinum fimmtán til nítján ára, börn á árunum 2014-2018 en á Suðurnesjum voru þær 17 af 1.000.

Vandræðagangur með gírskiptingu olli slysi við flugstöðina
Taldi ferðamanninn hafa ekið afturábak.

Misstu stjórn á fjórhjóli og voru fluttar á spítala
Um erlenda ferðamenn var að ræða.

Bæjarstarfsmenn fá gjafabréf fyrir aðhald
Um 240 starfsmenn Grindavíkurbæjar fá 10 þúsund króna gjafabréf frá bænum. Verðlaun fyrir góða afkomu bæjarins og að sviðsstjórum tókst almennt vel að halda fjárhagsáætlun. Hógvær þakklætisvottur, segir bæjarstjóri.

Gestum Bláa lónsins fækkaði í fyrsta sinn í mörg ár
Gestum Bláa lónsins fækkaði í apríl miðað við sama mánuð í fyrra en þetta er í fyrsta skipti í mörg ár sem ferðaþjónusturisinn fær færri gesti til sín en árið á undan.

Hefja uppbyggingu við Reykjanesvita
Ekki liggur fyrir hver kostnaðurinn verður við uppbyggingu ferðamannaaðstöðu við Reykjanesvita sem til stendur að ráðast í. Engin aðstaða fyrir ferðamenn er við vitann nú en talið er að á bilinu tvö til þrjú hundruð þúsund gestir heimsæki hann árlega.

Grindavik: The Happiest Place In Iceland
According to a poll the residents of the southwest Icelandic town of Grindavík are Iceland's happiest.

„Þetta mun líka skapa félagsleg vandamál sem þarf að taka á strax“
Þingmenn Suðurkjördæmis funduðu með sveitarstjórnarmönnum á Suðurnesjum í dag en fall WOW air hefur gríðarleg áhrif á fjölda starfa á svæðinu.

„Ekki loku fyrir það skotið að það komi fleiri uppsagnir á næstunni”
Andrúmsloftið er nokkuð þungt á Suðurnesjum eftir fall WOW air og fjölda uppsagna hjá fyrirtækjum á svæðinu að sögn forseta sveitarstjórnar í Reykjanesbæ.

Drengirnir komnir í leitirnar
Tveir níu ára drengir frá Grindavík, sem Lögreglan á Suðurnesjum leitaði að, eru komnir í leitirnar.

Drengirnir í Grindavík fundnir
Lögreglan á Suðurnesjum leitar nú að tveimur níu ára drengjum sem höfðu ekki skilað sér heim eftir skóla í dag.

Tekjur Bláa lónsins 15,5 milljarðar
Til samanburðar voru tekjurnar um 13,9 milljarðar króna allt árið 2017.

Ætla að taka á skiltafargani í Grindavík
Bæjarstjórinn segir marga góða veitingastaði í bænum sem sjálfsagt sé að vekja athygli á, en það þurfi að gerast skipulega.

Ekki grunur um saknæmt athæfi í Grindavík
Kona fannst látin í íbúðarhúsnæði í Grindavík síðdegis í gær. Ólafur Helgi Kjartansson, lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir að einn hafi verið handtekinn vegna málsins.

Andlát í Grindavík til rannsóknar
Lögreglan verst allra fregna.

Breikkun þjóðvegarins um Kjalarnes frestast
Breikkun Vesturlandsvegar um Kjalarnes hefur verið frestað og fjárveiting flutt til Grindavíkurvegar. Ástæðan er sögð sú að verkhönnun og samningum við landeigendur sé ólokið.

Segir starfsmennina ekki taka við mútum
Eftirlitsmönnum Fiskistofu er iðulega boðið að þiggja fisk án endurgjalds. Eftirlitsmaður var settur í leyfi vegna gruns um alvarlegt brot við eftirlit í Grindavík. Um afmarkað tilvik að ræða, segir fiskistofustjóri.

Bílvelta á Grindavíkurvegi
Bílvelta varð á Grindavíkurvegi í gær þegar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni á Selhálsi norðanverðum. Bíllinn fór út af veginum og valt í vegkantinum.

Grindvíkingar hækka lægstu laun einhliða
Grindavíkurbær ætlar sér að hækka laun þeirra starfshópa í bæjarfélaginu sem eru með hvað lægstu launin. Bæjarfulltrúar telja lægst launuðu starfsmenn sveitarfélagsins hafa of lág laun og vilja bæta þau.

Lyftara ekið á hafnarvörð í Grindavík
Lyftara var ekið á hafnarvörð í Grindavík í vikunni, en þrjú fiskikör voru á lyftaranum þegar óhappið varð.