Uppgjörið: Grindavík - Valur 75-83 | Valur vann framlengdan naglbít Siggeir Ævarsson skrifar 4. mars 2026 21:15 Frá leik Grindavík og Vals fyrr á tímabilinu. vísir / anton Grindavík og Valur mættust í stórleik í A riðils Bónus deildar kvenna í körfubolta í kvöld en liðin eru í harði baráttu um heimavallarrétt í þéttum pakka í A riðli. Grindavíkurkonur mættu nokkuð vanstilltar til leiks á báðum endum vallarins. Vörnin virkaði illa skipulögð og opnaðist oft upp á gátt og á sama tíma gekk flest á afturfótunum sóknarmegin. Þannig náði liðið að tapa átta boltum í fyrsta leikhluta og þar af tvisvar þegar Abby Beeman dripplaði boltanum í fótinn á sér og útaf. Staðan 16-25 eftir fyrsta leikhluta. Þær mættu öllu beittari til leiks í öðrum leikhluta, minnkuðu muninn og jöfnuðu metin en Valskonur leiddu þó í hálfleik með þremur stigum, 38-41. Þar munaði mestu um ótrúlega frammistöðu Reshawna Rosie Stone sem var með 21 stig í hálfleik. Aftur virtust heimakonur ekki vera alveg með á nótunum þegar flautað var til seinni hálfleiks. Gestirnir skoruðu fyrstu sjö stigin og munurinn kominn upp í tíu stig. Grindvíkingar náðu þó vopnum sínum á ný áður en leikhlutinn var á enda og Ellen Nyström kom Grindavík yfir með „step-back“ flautuþristi, staðan 54-51 fyrir lokaátökin. Lokaleikhlutinn varð æsispennandi þar sem liðin skiptust á forystunni og hvorugu tókst að slíta sig frá hinu. Grindavík virtist stundum vera að ná því en þá kom svar frá Val og síðustu sekúndur leiksins urðu algjör naglbítur en áðurnefnd Reshawna jafnaði metin í 70-70 með 19 sekúndur á klukkunni og leikurinn fór í framlengingu. Valskonur reyndust sterkari þar, ekki síst títtnefnd Reshawna sem hitti bara úr öllu sem henni datt í hug að skjóta en hún endaði með 42 stig. Lokatölur í Grindavík 75-83. Atvik leiksins Þristurinn sem tryggði Val framlengingunni fær þennan titil, það er engin spurning. Reshawna virtist hreinlega henda boltanum upp í algjöru vonleysi en eins og flest hennar skot í kvöld þá rataði þetta ofan í. Stjörnur og skúrkar Hversu oft er ég eiginlega búinn að skrifa Reshawna hérna? Hún var algjör yfirburðakona á vellinum í kvöld. 42 af 83 stigum Vals og tók einnig fimm fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Þá var Alyssa Cerino einnig mjög mikilvæg fyrir Val í kvöld. 21 stig og 14 fráköst. Hjá Grindavík var Abby Beeman eiginlega bæði stjarnan og skúrkurinn. Hún skoraði 20 stig og gaf tíu stoðsendingar, en hún tapaði líka sjö boltum og hitti ekki vel, þar á meðal ekki úr skotinu sem hefði tryggt Grindavík sigurinn í venjulegum leiktíma. Dómararnir Mér fannst þetta ekkert voðalega vel dæmdur leikur og ég held að Jamil Abiad sé sammála mér. Oft sem hlutum var sleppt öðrumegin og svo flautað á það nákvæmlega sama hinumegin og það er alltaf pirrandi. Viðtöl Jamil Abiad: „Frábært fyrir hana og hennar sjálfstraust“ Jamil Abiad þjálfari ValsAnton Brink/Vísir Jamil Abiad þjálfari Vals var sáttur í leikslok, en það var ekki hægt að byrja viðtalið öðruvísi en að spyrja út í frammistöðu Reshawna Rosie Stone. „Hún var alveg með þetta í dag. Þegar þú leyfir góðum leikmanni að komast í takt þá er erfitt að stoppa hann. Öll lið eru með einn eða tvo svona leikmenn. Ég er mjög ánægður fyrir hennar hönd. Í síðustu leikjum hafa lið verið að leggja mikla áherslu á að stoppa hana og hún hefur ekki komist í neinn takt við leikina. Þetta er frábært fyrir hana og hennar sjálfstraust og líka fyrir liðið og fyrir næstu leiki hjá okkur.“ Jamil var oft ansi pirraður á dómurum í kvöld en var búinn að jafna sig á því eftir leik. „Já, engin spurning. Ég var ekki alltaf ánægður með það hvernig dómarnir voru að falla en svo þarf maður að segja stelpunum að einbeita sér að næstu sókn og næstu vörn. Ég er ánægður með hvernig við girtum bara í brók í dag og héldum áfram þrátt fyrir að hlutirnir væru ekki allir að falla með okkur. Það er auðvelt að gefast upp og verða pirraðar þegar þannig er svo að ég er mjög ánægður með hvernig við kláruðum leikinn.“ Sigurinn í kvöld er frábær endurkoma fyrir Val, bæði eftir tapið gegn Haukum í síðasta leik en líka eftir að hafa næstum verið búnar að tapa leiknum í venjulegum leiktíma. „Við erum mikið að hlaupa og einbeita okkur að því að vera í góðu formi þegar við æfum og sýndum það í dag. Svo eru þetta bara allir litlu hlutirnir sem stelpurnar sýndu í dag og skópu þennan sigur.“ Nú kemur smá pása hjá liðunum en það verður nóg að gera hjá Valskonum í pásunni. „Stelpurnar þurfa á pásunni að halda og jafna sig líkamlega en við ætlum líka að nýta þennan tíma til að bæta okkur. Við eigum Njarðvík eftir pásuna sem verður ekki auðveldur leikur og svo er það bara úrslitakeppnin. Þetta verður pása en samt ekki pása!“ Lalli: „Bensínið búið, er það ekki bara?“ Þorleifur Ólafsson er þjálfari GrindavíkurVísir/Pawel Cieslikiewicz Þorleifur Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, var svekkur með margt í leik Grindavíkur í kvöld. „Bensínið búið, er það ekki bara? Einhver vonleysisþristur sem þær jafna með og við náum ekki nógu skoti í restina. Svekkjandi að klára þetta ekki bara í venjulegum leiktíma.“ Grindvíkingar virkuðu ekki í góðum takti stóran part leiksins, á báðum endum vallarins, og Lalli tók undir það. „Bara svolítið bras í leiknum. Komu kaflar sem voru ekki alveg nógu góðir. Ég er brjálaður að hafa tapað leiknum en ákvað að einblína á það sem við erum að vinna með. Við héldum áfram og komust aftur inn í þetta. Erum með tökin á leiknum og spilum frábæra vörn undir lokin. Þessi þristur? Betra að hún hitti þessu hérna en í leik fimm í úrslitakeppninni. Svona er bara körfuboltinn.“ „Ef ég myndi taka saman öll skotin undir körfunni sem við klikkuðum úr þá myndum við vinna þetta kannski með 30 stigum. Við erum að búa okkur til færi, við erum að búa okkur til opin skot. Það er það sem ég er búinn að vera að vinna í með þeim. Við erum að láta boltann ganga en mikið hikst á köflum.“ Lalli er mjög meðvitaður um hversu stutt er eftir af deildarkeppninni og nú fer hver að verða síðastur að koma sér í stand. „Það er mjög lítið eftir. Þetta er bara einn leikur og svo úrslitakeppni. Þannig að við þurfum bara að fara að gjöra svo að gíra okkur í gang. Frí núna í einhverja 5-6 daga svo koma þær bara aftur við förum á fulla ferð. Þurfum að koma vel gíraðar inn í þessa úrslitakeppni.“ Bónus-deild kvenna Valur Grindavík