Fréttir

Fréttamynd

Iceland Express bætir við sig vélum

Iceland Express hefur gert samning við svissneskt flugfélag um leigu á vélum og áhöfnum frá mars á næsta ári. Þrjár vélar af gerðinni MD-90 verða í ferðum fyrir Iceland Express en vélarnar og áhafnir þeirra koma frá flugfélaginu Hello sem hóf rekstur fyrir rétt rúmu ári.

Innlent
Fréttamynd

Íslendingar greiði viðbótarkostnað

Bandaríska sendiráðið hér á landi segist ekki hafa upplýsingar um það að svo stöddu hvort bandaríska varnarmálaráðuneytið vilji að Íslendingar standi straum af öllum viðbótarkostnaði vegna veru varnarliðsins hér á landi. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi frá því í gær að hún hefði heimildir fyrir því að Bandaríkjamenn færu fram á að Íslendingar greiddu allan umframkostnað sem hlytist sérstaklega af vörnum þeirra hér.

Innlent
Fréttamynd

Loksins sigur hjá New York

Sex leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Lærisveinar Larry Brown í New York unnu sinn fyrsta leik í deildarkeppninni þegar þeir skelltu Sacramento Kings á útivelli, en Toronto Raptors er enn án sigurs.

Sport
Fréttamynd

Tólf létust í átökum í Sómalíu

Að minnsta kosti tólf létust og 21 særðist í átökum í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, um helgina. Átökin eru sögð hafa blossað upp eftir að hópur íslamskra ofstækismanna reyndi að loka kvikmyndahúsum og myndbandaleigum vegna þess að vestrænar og indverskar myndir voru þar til sýninga sem skæruliðarnir telja sýna ósiðlegt athæfi. Í

Erlent
Fréttamynd

Voksne mennesker kom, sá og sigraði

Dagur Kári sópaði að sér Edduverðlaunum í gærkvöldi þegar kvikmynd hans, Voksne Mennesker fékk Edduna sem mynd ársins, fyrir bestu leikstjórn, besta handritið og bestu tónlistina.

Innlent
Fréttamynd

Áhugalaus um að borga reikningana sína

Sjónvarpsstöð í Svíþjóð, sem Sigurjón Sighvatsson fjármagnar, er sögð áhugalaus um að borga reikningana sína. Stöðinni, sem nefnist Big TV og á að höfða til unglinga, verður hleypt af stokkunum í desember.

Erlent
Fréttamynd

Gunnar Heiðar metinn á 2 milljónir punda

Breska dagblaðið Sunday Mirror greindi frá því í gær að Steve Bruce, knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Birmimgham, ætli að gera sænska liðinu Halmstad tilboð í Eyjamanninn Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Eyjapeyjinn er sagður metinn á 2 mlljónir punda en það jafngildir um 216 milljónum íslenskra króna.

Sport
Fréttamynd

Ungliðar Vinstri- grænna á Akureyri gagnrýna menntamálaráðherra

Ungliðar í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði á Akureyri skora á menntamálaráðherra að taka þátt í málefnalegri og samfélagslegri umræðu um skerðingu náms til stúdentsprófs og samræmd stúdentspróf. Þetta var samþykkt á fundi ungliðahreyfingarinnar í síðustu viku.

Innlent
Fréttamynd

Fangelsisvist og hýðing fyrir að ræða önnur trúarbrögð

Kennari í Sádi-Arabíu hefur verið dæmdur til að sæta fjörutíu mánaða fangelsisvist og 750 svipuhöggum opinberlega fyrir að ræða Biblíuna og tala vel um gyðingatrú í kennslustund. Auk þess bannaði hann nemendum að þvo sér fyrir bænir eins og venja er hjá múslímum.

Erlent
Fréttamynd

Metár í útgáfu atvinnuleyfa

Aldrei áður í sögunni hafa verið gefin út jafnmörg atvinnuleyfi hér á landi og það sem af er þessu ári. Morgunblaðið greinir frá því í dag að útgefin atvinnuleyfi séu nú orðinn rúmlega 4800 á þessu ári, en til samanburðar voru gefin út rúmlega 3700 atvinnuleyfi allt árið í fyrra.

Innlent
Fréttamynd

Aðalmeðferð í Baugsmálinu ákveðin í dag

Taka á fyrir þau átta ákæruatriði sem eftir standa í Baugsmálinu í dag og verður aðalmeðferð í málinu væntanlega ákveðin í dag. Fyrirtakan nú er sú fyrsta frá því hæstiréttur ákvað að vísa 32 af 40 ákæruliðum á hendur forsvarsmönnum Baugs og endurskoðendum frá dómi í haust.

Innlent
Fréttamynd

Mótmælendur að róast

Evrópusambandið hefur samþykkt að leggja til tæpa fjóra milljarða króna, til aðstoðar Frökkum vegna daglegra óeirða þar í landi síðustu 18 daga.

Erlent
Fréttamynd

Ætlaði að fremja sjálfsmorðsárás í Amman

Írösk kona, sem er grunuð um að hafa ætlað að taka þátt í sjálfsmorðssprengjuárásinni í Amman, höfuðborg Jórdaníu í vikunni, en án árangurs, viðurkenndi brot sitt í ríkissjónvarpi Jórdaníu í gær.

Erlent
Fréttamynd

CIA reyndi að leyna dauða fanga í Abu Ghraib

Bandaríska leyniþjónustan CIA reyndi að leyna dauða írasks fanga í Abu Ghraib fangelsinu í Írak. Segir fréttatímaritið Time að meðal skjala, sem það hafi fengið um málið, séu myndir sem sýni limlest lík mannsins sem síðan var settur í frysti.

Innlent
Fréttamynd

Kviknaði í bíl

Eldur kviknaði í jeppa þegar honum var ekið upp vestanvert Víkurskarðið í nótt, en ökumaður, sem var einn í bílnum, slapp ómeiddur. Þegar bíllinn missti afl, nam ökumaðurinn staðar og ætlaði að kíkja á vélina, en þá gaus eldurinn á móti honum. Ekki varð við neitt ráðið og var bíllinn alelda þegar lögregla og slökkvilið komu frá Akureyri. Kranabíll fjarlægði flakið en ekki er vitað um eldsupptök.

Innlent
Fréttamynd

Ölóðir menn í Keflavík

Lögreglan í Keflavík þurfti að taka tvo ölóða menn úr umferð á krá í bænum í nótt , eftir að þeir tóku að berja hvorn annan. Annar þurfti læknishjálp eftir ósköpin. Lögreglan á Akureyri þurfti líka að taka tvo ölvaða menn eftir að þeir fóru að berja veitingastað að utan, en þeim hafði verið hent þaðan út. Lögreglumönnum víða um land finnst nú komið eftir óvenju erilssama helgi vegna ofneyslu áfengis og fíkniefna.

Innlent
Fréttamynd

Handsprengju kastað inn í verslun

Tvö börn og einn maður létust eftir að handsprengju var kastað inn í verslun í Bogota, höfuðborg Kólumbíu í gær. Maðurinn sem lést var þekktur íþróttafréttamaður í útvarpi. Þá særðust tveir til viðbótar í árásinni en enginn hefur lýst verknaðinum á hendur sér og hefur enginn verið handtekinn. Málið hefur valdið gíurlega reiði í landinu en rannsókn stendur nú yfir.

Erlent
Fréttamynd

Breskar konur ofbeldishneigðar

Sífellt fleiri konur berja eiginmenn sína, samkvæmt breska blaðinu Independent on Sunday. Samkvæmt blaðinu segja sálfræðingar ofdrykkju og fíkniefnaneyslu kvenna hafa aukist hratt og leysi úr læðingi ofbeldishneigð hjá sumum.

Erlent
Fréttamynd

Fæddist í Ártúnsbrekkunni

Lítilli telpu lá svo á í heiminn í nótt að hún yfirgaf móðurkvið í skyndingu, þegar verið var að flytja móðurina í sjúkrabíl á fæðingardeildina við Landsspítalann. Sjúkarbíllinn var þá neðst í Ártúnsbrekkunni og tóku sjúkraflutnignamenn og faðirinn á móti stúlkunni, auk þess sem lögregla kom til aðstoðar. Að sögn lögreglu heilsast móður og dóttur vel.

Innlent
Fréttamynd

Rændi stúlku eftir að hafa myrt foreldra hennar

14 ára stúlku er leitað eftir að foreldrar hennar voru myrtir á heimili þeirra í Pensilvaníu í Bandaríkjunum í gærmorgun. Talið er að kærasti stúlkunnar hafi myrt foreldra hennar en ekki er vitað með vissu hvort stúlkan hafi farið með stráknum sjálfviljug eða hvort hann hafi numið hana á brott.

Erlent
Fréttamynd

Átök í Mogadishu

Að minnsta kosti tólf létust og 21 særðist í átökum í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, um helgina. Átökin eru sögð hafa blossað upp eftir að hópur íslamskra ofstækismanna reyndi að loka kvikmyndahúsum og myndbandaleigum vegna þess að vestrænar og indverskar myndir voru þar til sýninga sem skæruliðarnir telja sýna ósiðlegt athæfi.

Erlent
Fréttamynd

Hundar finna lyktina af krabbameini

Hundar kunna að skipta sköpum í rannsóknum á krabbameini í framtíðinni. Nýlegar rannsóknir í Noregi benda til þess að þeir geti fundið lyktina af krabbameini og þefað það uppi hjá fólki með ótrúlegri nákvæmni.

Erlent
Fréttamynd

Minnka má eldsneytisflutninga

Hægt væri að minnka eldsneytisflutninga um höfuðborgarsvæðið um 130 þúsund tonn á ári með því að nýta olíubirgðarstöðina í Helguvík undir flugvélaeldsneyti. Minnstu munaði að rýma þyrfti hluta Hafnarfjarðar nýverið þegar tengivagn með flugvélaeldsneyti losnaði frá olíuflutningabíl.

Innlent