Fréttir
Sextíu til nítíu íbúðir skemmast Reikna má með því að sextíu til nítíu íbúðir skemmist um áramótin vegna kertabruna samkvæmt upplýsingum frá Sjóvá. En talið er að á mili þrettán til fimmtán prósent heimila séu með ótryggt innbú og því gæti verið um tjón að ræða á fleiri heimilum en tölur Sjóvá gefa til kynna. Innlent 19.12.2005 15:39
Dagur B. Eggertsson gefur kost á sér í 1. sætið Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi gefur kost á sér í fyrsta sætið í prófkjöri Samfylkingarinnar vegna borgarstjórnakosninganna næsta vor. Þetta tilkynnti Dagur á blaðamaðamannafundi rétt í þessu. Áður hafa Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Stefán Jón Hafstein gefið kost á sér. Innlent 19.12.2005 15:12
Vistvernd í verki Snæfellingar hafa á undanförnum árum lagt ríka áherslu á umhverfismál. Mikið starf er unnin undir merkjum Grænfánans og Bláfáninn blaktir við hún við Stykkilshólmshöfn. Innlent 19.12.2005 15:01
Fær að fara heim á morgun Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels fær líklega að fara heim af spítala á morgun ef rannsóknir á honum í dag leiða ekkert óeðlilegt í ljós. Sharon fékk vægt heilablóðfall í gær og lá á spítala í nótt. Læknir hans sagði upp úr hádeginu í dag að ekkert benti til að Sharon ætti á hættu að fá annað heilablóðfall næstunni. Erlent 19.12.2005 14:24
14 handteknir á Spáni Spænska lögreglan handtók í morgun fjórtán menn, sem grunaðir eru um að hafa þjálfað hryðjuverkamenn og sent þá til Íraks. Erlent 19.12.2005 14:23
Það borgar sig ekki fyrir Dani að mennta sig Það borgar sig ekki fyrir Dani að mennta sig, sérstaklega ekki danskar konur. Eftir háskólanám geta þær átt von á 3% hækkun á launum sínum. Danski karlpeningurinn hefur örlítið forskot á dönsku konurnar en þeir geta átt von á 4,8% launahækkun eftir háskólanám. Innlent 19.12.2005 13:34
Aðeins hálftíma sigling til Eyja Siglingar á milli Vestmannaeyja og lands tækju aðeins um hálftíma ef hugmyndir nefndar um framtíðarsamgöngur til Vestmannaeyja um ferjulægi í Bakkafjöru verða að veruleika. Innlent 19.12.2005 13:27
Á að segja af sér Árni Magnússon félagsmálaráðherra á að segja af sér að mati Ungra vinstri grænna. Innlent 19.12.2005 13:22
Björgólfur fjárfestir í Póllandi Novator Telecom Poland, félag undir forystu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur gert kauptilboð í þrettán prósenta hlut í pólska símafélaginu Netia. Novator hefur þegar eignast tíu prósenta hlut og stefnir að því að eignast fjórðungshlut í félaginu. Markaðsvirði þess hlutar er um tólf milljarðar króna. Viðskipti innlent 19.12.2005 12:15
Lækka tolla ekki ótilneydd Stjórnvöld lækka ekki tolla á innfluttar landbúnaðarafurðir fyrr en þau neyðast til þess vegna alþjóðasamþykkta. Þangað til verða Íslendingar að greiða hæsta matvælaverð í heimi segir formaður Neytendasamtakanna. Innlent 19.12.2005 11:59
1. sætið? Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi hefur boðað til blaðamannafundar síðar í dag. Dagur gekk fyrir skemmstu í raðir Samfylkingarinnar og á fundinum í dag kemur væntanlega í ljós hvort hann ætlar að bjóða sig fram í efsta sæti lista Samfylkingarinnar gegn þeim Steinunni Valdísi Óskarsdóttur og Stefáni Jóni Hafstein. Innlent 19.12.2005 10:35
Jólagjöfin í ár: Sex milljóna króna sími Ertu í vanda með hvað þú vilt gefa ástinni í jólagjöf? Hvað með farsíma sem kostar litlar sex milljónir króna. Það er meðal þess sem rússneskir auðkýfingar geta lagt peninginn sinn í fyrir þessi jólin. Erlent 18.12.2005 14:31
Óvíst hvenær tollar lækka Utanríkisráðherra kveðst ekki reiðubúinn að segja hvenær tollar á landbúnaðarafurðir verða lækkaðir eða felldir niður, eins og hann talaði um á viðskiptaþingi í Hong Kong. Hann segir að það verði ekki gert nema í samráði við önnur ríki heims og tryggt sé að stoðunum verði ekki kippt undan íslenskum landbúnaði. Innlent 18.12.2005 18:53
Sharon fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús Ariel Sharon, forsætisráðherra Ísraels, féll í öngvit fyrir stundu og var fluttur í skyndi á sjúkrahús. Síðustu fregnir herma að Sharon sé kominn til meðvitundar. Sharon fékk vægt slag en er ekki í lífshættu. Erlent 18.12.2005 18:25
Fyrstu kosningarnar síðan 1970 Íbúar Kongó ganga í dag að kjörborðinu í fyrsta skipti í meira en þrjátíu ár til að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Kosningarnar í dag eru þær fyrstu á landsvísu síðan Mobutu Sese Seko, þáverandi einræðisherra, var einn í framboði árið 1970. Erlent 18.12.2005 15:37
Bono, Bill og Melinda Gates fólk ársins Bono, söngvari hljómsveitarinnar U2, og hjónin Bill og Melinda Gates voru í dag útnefnd fólk ársins 2005 af tímaritinu Time. Bono fær útnefninguna fyrir að berjast fyrir niðurfellingu skulda fátækustu ríkja heims en Bill og Melinda Gates fá hana fyrir að gefa meira fé til góðgerðarstarfa á skemmri tíma en nokkurt annað fólk í sögunni. Erlent 18.12.2005 15:05
Samþykkja að fella útflutningsstyrki niður Fulltrúar allra 149 aðildarríkja Alþjóða viðskiptastofnunarinnar samþykktu fyrir stundu samkomulag sem heldur lífi í viðræðum um aukið frjálsræði í verslun með landbúnaðarafurðir. Erlent 18.12.2005 14:40
Cheney til Bagdad Dick Cheney varaforseti Bandaríkjanna kom í óvænta heimsókn til Bagdad í hádeginu til að kynna sér stjórnmálaástandið í landinu. Hann fagnaði nýafstöðnum þingkosningum og hélt til fundar við Ibrahim al-Jaafari forsætisráðherra. Erlent 18.12.2005 12:59
Um hundrað féllu í bardögum Um hundrað manns létust í bardögum stjórnarhermanna og uppreisnarmanna við bæinn Adre í Tsjad, nærri landamærunum að Súdan í morgun, að sögn stjórnvalda í Tsjad. Þau segja uppreisnarmenn hafa ráðist á bæinn en stjórnarhermenn hrundið atlögu þeirra. Erlent 18.12.2005 12:37
Strandaði við Grundartanga Gríska flutningaskipið Polyefkis, strandaði í fjörunni við álverið á Grundartanga um miðnætti síðustu nótt. Engin slys urðu á áhöfninni og litlar skemmdir er taldar hafa orðið á skipinu. Skipið var dregið að höfninni í Grundartanga í nótt. Innlent 18.12.2005 11:50
Óvenju margar ófrískar konur á flóðasvæðunum Óvenjumargar konur eiga von á barni í Ache-héraði í Indónesíu þar sem tugþúsundir barna fórust í flóðbylgjunni miklu á síðasta ári. Fæðingalæknar og ljósmæður segja að þau þurfi enga tölfræði til þess að vita að miklu fleiri konur eigi von á barni, en venjulegt sé. Þau telja að þetta sé eðlilegt náttúrulögmál. Erlent 18.12.2005 12:00
Fella niður útflutningsstyrki Ríkari þjóðir heims verða að fella niður alla útflutningsstyrki í landbúnaði fyrir árslok 2013 samkvæmt samkomulagi sem samningamenn á fundi Alþjóða verslunarstofnunarinnar komust að snemma í morgun. Erlent 18.12.2005 11:46
Laus úr gæsluvarðhaldi Maðurinn sem úrskurðaður var í einnar viku gæsluvarðhald síðastliðinn þriðjudag, eftir að um 200 kannabisplöntur og nokkur kíló af kannabisefnum fundust á heimili hans í uppsveitum Árnessýslu, hefur verið látinn laus. Innlent 18.12.2005 10:49
Nær fimmtíu farist í flóðum og aurskriðum 47 hafa látið lífið í flóðum og aurskriðum í Víetnam síðustu daga, hugsanlega fleiri. Nokkurra er saknað og má ætla að fleiri hafi drukknað en opinberar tölur segi til um á þessu stigi. Erlent 18.12.2005 10:47
Leggja til niðurfellingu útflutningsstyrkja Útflutningsstyrkir í landbúnaði verða felldir niður fyrir árslok 2013 samkvæmt drögum að samkomulagi sem verður lagt fyrir fulltrúa ríkja heims á fundi Alþjóða viðskiptastofnunarinnar í dag. Erlent 18.12.2005 10:46
Fundu genið sem ræður hörundslit fólks Bandarískir vísindamenn segjast hafa fundið hluta gensins sem ræður því hvort fólk verði dökkt eða ljóst á hörund. Rannsóknin bendir líka til að mannkynið skiptist í kynþætt með öðrum hætti en talið hefur verið. Erlent 17.12.2005 17:04
Mikil breyting á lista Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði Á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði í fyrradag var samþykktur framboðslisti flokksins til bæjarstjórnar næsta vor. Mikil breyting er á listanum frá núverandi kjörtímabili. Innlent 17.12.2005 17:51
Fjölmennt lögreglulið stöðvar alla bíla Um 1.500 lögreglumenn vakta götur Cronulla hverfis í Sidney í Ástralíu og reyna þannig að koma í veg fyrir að kynþáttaóeirðir síðustu helgar endurtaki sig. Erlent 17.12.2005 16:58
Fórst í sprengingu Palestínskur vígamaður lét lífið þegar bíll sem hann var í sprakk í loft upp á suðurhluta Gazastrandarinnar fyrr í dag. Maðurinn, Khaled Abu Sitta, var einn af helstu leiðtogum Abu el-Reesh vígasveitanna en félagar í þeim lýstu því yfir að Ísraelar hefðu banað Sitta með flugskeyti, því neituðu ísraelsk yfirvöld. Erlent 17.12.2005 17:44
Vélar á leið frá Bandaríkjunum lentu á Egilsstaðaflugvelli Tvær farþegavélar á leið frá Bandaríkjunum þurftu að lenda á Egilsstaðaflugvelli í morgun vegna snjókomu í Keflavík. Nú hins vegar hefur snjókoman breyst í slydduél og samgöngur komnar því sem næst í eðlilegt horf á Keflavíkurflugvelli. Innlent 17.12.2005 17:07