Fjölmennt lögreglulið stöðvar alla bíla 17. desember 2005 17:45 Lögreglumenn stöðva bíl á leið inn í Cronulla. MYND/AP
Um 1.500 lögreglumenn vakta götur Cronulla hverfis í Sidney í Ástralíu og reyna þannig að koma í veg fyrir að kynþáttaóeirðir síðustu helgar endurtaki sig. Mikill viðbúnaður er í Cronulla hverfi í Sidney í Ástralíu þar sem fimmþúsund hvít ungmenni gengu berserksgang í síðustu viku, réðust á þá sem virtust af arabískum uppruna og slógust við lögreglu. Fjölmennt lögreglulið vaktar nú götur hverfisins og allar aðkomuleiðir til að koma í veg fyrir áflog. Lögregla stöðvar allar bifreiðir á leið inn í hverfið og meinar þeim sem ekki búa í hverfinu og þykja ekki hafa fullgilda ástæðu til að vera þar um inngöngu. Síðustu nótt fundu lögreglumenn sveðjur og hnífa í skotti bifreiðar sem sautján ára piltur ók. Íbúar og stjórnmálamenn eru margir hverjir afar ósáttir við óeirðirnar um síðustu helgi og ástandið í hverfinu sínu. Þannig sagði ein kona að hún byggi vissulega í þessum rasistabæ þegar lögregla spurði hana hvort hún væri íbúi í Cronulla. "Þessir glæpamenn hafa í raun og veru lýst stríði á hendur okkur," sagði Morris Iemma, fylkisstjóri í Nýja Suður Wales, og var allt annað en ánægður. Vinsælar baðstrendur eru við Cronulla hverfið. Þar eru alla jafna fleiri þúsund manns um helgar. Í dag voru þar innan við hundrað manns að synda.
Erlent Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Fleiri fréttir Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Árásarmaðurinn enn ófundinn Skipulögð leit eftir skotárás á hátíð „Nú er komið að mér“ Ávarpar norsku þjóðina í fyrsta skipti sem konungur Sjá meira