Fréttir Mál Norðlingaölduveitu aftur í höndum nefndar um skipulag miðhálendisins Umhverfisráðherra segir mál Norðlingaölduveitu nú aftur í höndum samvinnunefndar um skipulag miðhálendis. Ráðherra hafnaði tillögum nefndarinnar í gær á þeirri forsendu að lög sem sett voru í kjölfar úrskurðar setts umhverfisráðherra um veituna heimili ekki breytingar. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands vill að nefndin taki veituna út af skipulaginu og stækki þar með friðlandið. Innlent 30.12.2005 09:49 Aldrei hafa færri banaslys orðið á ársgrundvelli frá árinu 1941 Aldrei hafa færri banaslys orðið á ársgrundvelli frá árinu 1941 en í ár létust 28 einstaklingur í slysum hér á landi og þrír íslenskir ríkisborgarar létust af slysförum erlendis. Í ár urðu flest slys í tengslum við umferðina líkt og oft áður en alls voru 19 einstaklingar sem létust í 16 slysum. Innlent 30.12.2005 09:27 25 létust í snjóflóði í Pakistan Að minnsta kosti 25 létu lífið í Pakistan í gær er snjóflóð féll í norðvesturhluta landsins. Mikil snjókoma hefur verið á svæðinu. Björgunarsveitir og þorpsbúar eru enn í óða önn að grafa upp lík en meirihluti fólksins er þó enn ófundinn. Lögreglan segir svæðið svo afskekkt að fréttir af flóðinu hafi borist degi eftir að það féll. Erlent 30.12.2005 08:53 Lýst er eftir brúnum yorkshire terrier Lítill brúnn yorkshire terrier týndist í Seláshverfinu í gær og er sárt saknað af eigendum sínum. Litla krílið var gestkomandi ásamt eigendum sínum í Seláshverfinu í gærkvöldi þegar hann týndist þannig að hundurinn er ekki kunnugur á þeim slóðum. Allir sem séð hafa til ferða þessa brúna litla hunds er bent á að hafa samband við eigandann í síma 848-3647 Innlent 30.12.2005 09:52 Ráðist á konu á skemmtistað í Keflavík Ráðist var á konu á skemmtistað í Keflavík í nótt. Lögregla og sjúkralið voru kölluð til og var konan flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Var konan nefbrotin og með áverka í andliti. Lögregla segir að vitað sé hver árásarmaðurinn var en hann var farinn af staðnum þegar lögregluna var að. Innlent 30.12.2005 08:52 Hjólför í nýföllnum snjó koma upp um þjófa Nokkur snjór er nú víða í Danmörku en Danir reyna að láta það ekki raska ró sinni, ekki einu sinni þjófarnir sem halda áfram iðju sinni með misjöfnum árangri þó. Starfsmaður á bensínstöð í Nyköbing-Falster hafði samband við lögreglu vegna þess að slökkvitæki hafði verið stolið frá bensínstöðinni. Það reyndist lögreglunni auðvelt að hafa upp á þjófinum, sem var á hjóli og hafði skilið eftir sig slóð í nýföllnum snjónum. Erlent 30.12.2005 08:12 1500 lítrar af áfengi gerð upptæk í Noregi Erlent 30.12.2005 07:31
Mál Norðlingaölduveitu aftur í höndum nefndar um skipulag miðhálendisins Umhverfisráðherra segir mál Norðlingaölduveitu nú aftur í höndum samvinnunefndar um skipulag miðhálendis. Ráðherra hafnaði tillögum nefndarinnar í gær á þeirri forsendu að lög sem sett voru í kjölfar úrskurðar setts umhverfisráðherra um veituna heimili ekki breytingar. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands vill að nefndin taki veituna út af skipulaginu og stækki þar með friðlandið. Innlent 30.12.2005 09:49
Aldrei hafa færri banaslys orðið á ársgrundvelli frá árinu 1941 Aldrei hafa færri banaslys orðið á ársgrundvelli frá árinu 1941 en í ár létust 28 einstaklingur í slysum hér á landi og þrír íslenskir ríkisborgarar létust af slysförum erlendis. Í ár urðu flest slys í tengslum við umferðina líkt og oft áður en alls voru 19 einstaklingar sem létust í 16 slysum. Innlent 30.12.2005 09:27
25 létust í snjóflóði í Pakistan Að minnsta kosti 25 létu lífið í Pakistan í gær er snjóflóð féll í norðvesturhluta landsins. Mikil snjókoma hefur verið á svæðinu. Björgunarsveitir og þorpsbúar eru enn í óða önn að grafa upp lík en meirihluti fólksins er þó enn ófundinn. Lögreglan segir svæðið svo afskekkt að fréttir af flóðinu hafi borist degi eftir að það féll. Erlent 30.12.2005 08:53
Lýst er eftir brúnum yorkshire terrier Lítill brúnn yorkshire terrier týndist í Seláshverfinu í gær og er sárt saknað af eigendum sínum. Litla krílið var gestkomandi ásamt eigendum sínum í Seláshverfinu í gærkvöldi þegar hann týndist þannig að hundurinn er ekki kunnugur á þeim slóðum. Allir sem séð hafa til ferða þessa brúna litla hunds er bent á að hafa samband við eigandann í síma 848-3647 Innlent 30.12.2005 09:52
Ráðist á konu á skemmtistað í Keflavík Ráðist var á konu á skemmtistað í Keflavík í nótt. Lögregla og sjúkralið voru kölluð til og var konan flutt á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Var konan nefbrotin og með áverka í andliti. Lögregla segir að vitað sé hver árásarmaðurinn var en hann var farinn af staðnum þegar lögregluna var að. Innlent 30.12.2005 08:52
Hjólför í nýföllnum snjó koma upp um þjófa Nokkur snjór er nú víða í Danmörku en Danir reyna að láta það ekki raska ró sinni, ekki einu sinni þjófarnir sem halda áfram iðju sinni með misjöfnum árangri þó. Starfsmaður á bensínstöð í Nyköbing-Falster hafði samband við lögreglu vegna þess að slökkvitæki hafði verið stolið frá bensínstöðinni. Það reyndist lögreglunni auðvelt að hafa upp á þjófinum, sem var á hjóli og hafði skilið eftir sig slóð í nýföllnum snjónum. Erlent 30.12.2005 08:12
Heyrnatól iPOD geta verið hættuleg iPOD var meðal vinsælli jólagjafa þessi jólin en þeir sem nota heyrnartólin sem fylgdu með ættu að leggja við hlustir. Þessir litlu, fínlegu og flottu heyrnatól sem eru oft notuð með vasadiskóum af öllum gerðum geta nefnilega verið hættuleg, samkvæmt rannsóknum vísindamanna við Northwestern háskólann í Bandaríkjunum. Erlent 30.12.2005 07:20
Pólskir hermenn verða í Írak til ársloka 2006 Lech Kaczynski forseti Póllands hefur samþykkt beiðni íhaldsstjórnar landsins um að halda pólskum hermönnum áfram í Írak til ársloka 2006. Um 1,500 pólskir hermenn og aðrir starfsmenn pólska hersins eru nú staðsettir í Írak. Erlent 30.12.2005 07:24
Vinstri grænir vilja færa út friðarmörk á miðhálendinu Þingflokkur Vinstrihreyfingarinnar- græns framboðs skorar á samvinnunefnd miðhálendisins að hafna alfarið öllum hugmyndum um Norðlingaölduveitu og leggur til að ný tillaga að skipulagi á svæðinu sunnan Hofsjökuls verði auglýst, þar sem friðlandsmörk Þjórsárvera verði færð út. Innlent 30.12.2005 07:10
NSA fylgdist með ferðum bandarískra þegna á vefsíðum Bandarísk leyniþjónusta, NSA, kom fyrir forritlingum á síðum á Netinu til að fylgjast með ferðum bandarískra þegna um vefsíður, þrátt fyrir að hafa verið bannað að gera það. Þetta þykir reginhneyksli vestan hafs og bætir gráu ofan á svart fyrir Bush forseta, sem situr þegar undir ámæli fyrir að hafa árið 2002 heimilað NSA að lesa tölvupóst og hlera síma án dómsúrskurðar. Erlent 30.12.2005 07:17
3,2 miljónum króna varið til baráttunnar gegn mansali Utanríkisráðherra hefur ákveðið að verja 3,2 milljónum króna til baráttunnar gegn mansali á vegum Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu. Samkvæmt fjárlögum fyrir árið 2005 voru fjórar milljónir króna til ráðstöfunar til stuðnings verkefnum á sviði mannréttindamála og hafði 800 þúsund krónum áður verið ráðstafað til Mannréttindastofnunar Háskóla Íslands. Innlent 30.12.2005 07:12
Mikil verslun á Netinu fyrir jólin vestan hafs Það er ekki alveg ljóst hver jólagjöfin í ár var, en vestan hafs eru góðar líkur á að gjafirnar hafi verið keyptar á Netinu. Þvert á spár var nefnilega sprengja í viðskiptum á Netinu fyrir jólin og er talið að aukningin hafi numið tuttugu og fimm prósentum á milli ára. Keypt var fyrir rúma átján milljarða dollara á Netinu í nóvember og desember, samkvæmt New York Times, en það jafngildir nærri tólf hundruð milljörðum króna. Þetta voru því líkast til gleðileg jól hjá Netverslunum. Erlent 30.12.2005 07:28
Mikill snjór í Danmörku Einn maður lést og þrír slösuðust alvarlega þegar tveir bílar rákust saman vegna mikillar hálku í Danmörku í gær en snjóstormur sem farið hefur yfir Mið-Evrópu undanfarið er nú kominn þangað. Slysið varð í Vordingborg, um eitt hundrað kílómetra frá Kaupmannahöfn. Erlent 30.12.2005 07:26
16 ára nemi á Flórída fór til Írak til að kynna sér ásandið það Farris Hassan er sextán ára nemi frá Flórída með mikinn áhuga á fréttamennsku. Svo mikinn að í jólafríinu ákvað hann að sökkva sér ofan í viðfangsefni sitt. Það væri ekki í frásögur færandi væri viðfangsefnið ekki Írak. Farris keypti sér flugmiða án vitundar foreldra sinna og skrópaði í skóla til að kynna sér ástandið frá fyrstu hendi. Eftir ferðalag um Kúveit og Líbanon komst Farris til Bagdad þar sem hann dvaldi í nokkra daga. Erlent 30.12.2005 07:14
Kona lést af völdum byssukúlu sem fór inn um glugga íbúðar hennar Kona lést þegar byssukúlu sem skotið var út í loftið fór inn um glugga á íbúð hennar á fimmtu hæð í New York í gær. Eiginmaður hennar sem var í öðru herbergi þegar atburðurinn gerðist, fann konu sína þar sem hún lá í blóði sínu í svefnherberginu. Nágrannar sögðust hafa séð hóp af háværum og ölvuðum mönnum á götunni fyrir neðan húsið. Lögreglan vinnur nú að því að komast hver skotmaðurinn var. Erlent 30.12.2005 07:07
Kveikt í rusli í sex ruslagámum Slökkvilið Reykjavíkur hefur verið kallað út sex sinnum frá því um kvöldmatarleitið í gærkvöldi vegna elds í ruslagámum. Það er nokkuð mörg útköll en ástæðan er einkum sú að óprúttnir aðilar eru að kveikja á flugeldum og þvíumlíku í ruslagámunum með þeim afleiðingum að eldur brýst út. Eldurinn í ruslagámunum náði ekki að breyðast út en nokkuð tjón varð á gámunum. Ruslagámarnir sex sem kviknaði í eru staðsettir víða um borgina. Innlent 30.12.2005 06:34
Hækkun hlutabréfa langt umfram spár Hækkanir á skráðum hlutabréfum í Kauphöll Íslands hafa aldrei verið meiri á einu ári en á árinu 2005. Forstjóri Kauphallarinnar segir erfitt að spá um hvernig næsta ár þróast. Innlent 29.12.2005 23:35
Svifryk yfir heilsuverndarmörkum á gamlárskvöld Svifryk í borginni fer yfir heilsuverndarmörk á annasamasta tíma hinna skotglöðu á gamlárskvöld. Þetta kemur fram á vef umhverfissviðs Reykjavíkurborgar en þar á bæ búast menn við að 530 þúsund flugeldar seljist að þessu sinni og um 90 þúsund blys. Innlent 29.12.2005 23:15
Hlutverk stjórnenda þurfa að vera skýr Mikilvægi þess að hlutverk stjórnenda séu skýr og óhæði stjórnarmanna er meðal þess sem tekið er á í endurskoðuðum reglum um stjórnarhætti fyrirtækja. Innlent 29.12.2005 23:14
Heimilt að fella allt að 909 hreindýr á næsta ári Umhverfisráðuneytið hefur heimilað að veiða allt að 909 hreindýr á tímabilinu 1. ágúst til 15. september 2006, auk hreindýrakálfa sem fylgt hafa felldum kúm, en þá skal fella sé þess kostur. Þessi heimild er veitt með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun fjölda veiðiheimilda. Innlent 29.12.2005 22:40
Fimm látnir í eldum í Texas og Oklahoma Að minnsta kosti fimm manns hafa látið lífið í eldum sem geisað hafa í Texas og Oklahoma í Bandaríkjunum. Talið er að þeir hafi kviknað út frá fikti barna en nú þegar hafa nærri 200 hús orðið eldinum að bráð og þúsundir ekra af ræktarlandi hafa brunnið. Erlent 29.12.2005 22:26
Forsætisráðherra hafði ekki samráð við stjórnarandstöðu Þingflokkar Samfylkingarinnar og Vinstri - grænna vilja að þingið verði kallað saman á morgun eða hinn, til að fresta gildistöku úrskurðar Kjaradóms um hækkun launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna. Formenn flokkanna segja rangt að forsætisráðherra hafi haft samráð við formenn þingflokkanna áður en hann ákvað að biðja formann Kjaradóms að endurskoða úrskurð sinn frá nítjánda desember. Innlent 29.12.2005 22:17
Leikskólakennarar í Kraganum krefjast launaleiðréttingar Óánægja leikskólakennara í sveitarfélögunum í kringum Reykjavík fer vaxandi og þeir krefjast þess að laun þeirra verði leiðrétt hið fyrsta. Þegar hafa ellefu kennarar á leikskóla á Seltjarnarnesi sagt upp störfum og frekari uppsagnir eru yfirvofandi bæði í þessum sveitarfélögum og í Reykjavík um áramótin verði ekki orðið við kröfum leikskólakennara um kjaraleiðréttingu. Innlent 29.12.2005 22:13
Norðlingaölduveita aftur komin á byrjunarreit Norðlingaölduveita er aftur komin á byrjunarreit eftir að umhverfisráðherra hafnaði því að staðfesta breytingar nefndar um skipulag miðhálendisins. Innlent 29.12.2005 21:13
OR afhenti jólaskreytingarverðlaun í dag Iðnustu skreytingamenn landsins fengu í dag viðurkenningu fyrir að lífga upp á borgina um jólin með ævintýralegum skreytingum af ýmsum toga. Venju samkvæmt hefur Orkuveita Reykjavíkur valið bestu jólaskreytingarnar í þeim bæjarfélögum sem veitusvæði Orkuveitunnar nær til. Í Reykjavík varð Urriðakvísl þrjú fyrir valinu og eins og sjá má á þessum myndum var það ekki að ástæðulausu. Fjölbreyttar ljósaskreytingarnar féllu vel í kramið hjá dómnefndinni. Innlent 29.12.2005 21:35
Tvær og hálf milljón söfnuðust til styrktar SKB Rúmlega tvær og hálf milljón söfnuðust á styrktartónleikum sem haldnir voru í Háskólabíói í kvöld til styrktar SKB eða Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Tónleikarnir eru orðnir að árvissum viðburði og fara fram við hver áramót. Innlent 29.12.2005 20:48
Menntamálráðherra undirritar samninga um árangursstjórnun Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra undirritaði í dag árangursstjórnunarsamninga við menningarstofnanir menntamálaráðuneytisins. Innlent 29.12.2005 20:39
Húsfyllir í Háskólabíói og hálf þriðja milljón Tæplega tvær komma fimm milljónir króna söfnuðust á tónleikum sem efnt var til í Háskólabíói í dag til styrktar SKB, Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna. Húsfyllir var á tónleikunum en allir listamenn gáfu vinnu sína nú sem fyrr. Lífið 29.12.2005 19:57
Íhuga að bjóða fram foreldralista vegna leikskólavanda Foreldrar leikskólabarna í Kópavogi ræða nú í fullri alvöru um að bjóða fram sérstakan foreldralista í bæjarstjórnarkosningum. Fjórir fílefldir starfsmenn hafa þó ráðist til starfa á leikskólann Dal en til stóð að loka deildum á skólanum sökum manneklu. Einn er sonur starfsmannastjóra bæjarins, annar dóttir fræðslustjórans og tveir eru fyrrverandi starfsmenn verktakafyrirtækis bæjarstjórans. Innlent 29.12.2005 19:21