Fréttir
Blása nýju lífi í félagið Forsvarsmenn Skátafélagsins Stróks í Hveragerði og Bandalags íslenskra skáta ætla að vinna saman að því að byggja upp aðstöðu skátafélagsins eftir að skátaheimilið og stór hluti búnaðar brann í eldsvoða í flugeldasölu á Gamlársdag. Innlent 4.1.2006 11:39
Þríhnúkar rannsaka Þríhnúkagíg Kópavogsbær hefur samið við Þríhnúka um rannsóknir á Þríhnúkasvæðinu innan Bláfjallafólkvangs. Komast á að því hvort hægt sé að gera Þríhnúkagíg, dýpstu og næst stærstu hraunhvelfinguheims, manngenga. Innlent 4.1.2006 11:23
Ófært á Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðum Þoka er á Hellisheiði samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni og getur hún gert vegfarendum erfitt fyrir. Ófært er um Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði, flughált í Gufudal, á Klettshálsi og Kleifaheiði. Innlent 4.1.2006 11:08
Nýárskveðjan send með SMS 221 þúsund SMS skeyti voru send frá viðskiptavinum Og Vodafone frá klukkan 21 á gamlársdag til klukkan 9 daginn eftir, nýársdag. Það er nokkur aukning frá því árið á undan. Ef tekið er mið af fyrsta sólarhring ársins voru send 287 þúsund SMS skeyti. Þetta er talsvert meira en á hefðbundnum degi, en jafnan eru send í kringum 180 þúsund SMS skeyti á sólarhring úr GSM kerfi Og Vodafone. Lífið 4.1.2006 10:42
Rannsóknardeildin réð úrslitum Lögreglan á Akranesi verður lykilembætti á Vesturlandi samkvæmt ákvörðun Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra en ekki Borgarnes eins og nefnd sem gerði tillögur um fækkun lögregluumdæma gerði tillögu um. Björn segir helstu ástæðuna þá að rannsókn lögreglumála sé eitt af stærstu verkefnum lykilembætta og mikil og góð reynsla sé af rannsóknastarfi á Akranesi. Innlent 4.1.2006 10:53
Vilja ekki eitt landsfélag sjómanna Félagar í Sjómannadeild AFLs, starfsgreinafélags Austurlands, höfnuðu hugmyndum um sameiningu sjómanna í eitt landsfélag á aðalfundi sínum síðasta fimmtudag. Innlent 4.1.2006 10:34
Skæruliðar sprengdu olíuborholur Skæruliðahópur í Kólumbíu sprengdi átta olíuborholur og þrjár olíuleiðslur í loft upp í Amasonregnskógunum í gær. Olían hefur valdið miklum umhverfisspjöllum og liggur nú á 100 kílómetra löngum kafla árinnar Putumayo. Erlent 4.1.2006 10:29
Hættan minni í Sorpu en talið var Betur fór en á horfðist þegar mikinn reyk lagði frá eimingarpotti í efnamóttöku Sorpu á aðalvinnslusvæði fyrirtækisins í Gufunesi á tíunda tímanum. Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út. Ljóst er að illa hefði getað farið þar sem ýmis hættuleg efni eru meðhöndluð í efnamóttökunni og því var viðbúnaður slökkviliðs þetta mikill. Engan starfsmann sakaði og tjón er talið það lítið að starfsemi verður líklega haldið áfram síðar í dag. Innlent 4.1.2006 10:21
Neiti orkukaupum frá Norðlingaölduveitu Náttúruverndarsamtök Íslands vilja að Alcan lýsi því yfir að fyrirtækið muni ekki kaupa orku frá Norðlingaölduveitu í Þjórsárverum. Með þessu geti fyrirtækið lagt sitt af mörkum til náttúruverndar á Íslandi segir í áskorun samtakanna til Alcan. Innlent 4.1.2006 10:15
ESA kannar jafnréttislög í Noregi Eftirlitsstofnun EFTA hefur hafið rannsókn á því hvort lög í Noregi sem kveða á um að að minnsta kosti fjörutíu prósent stjórnarmanna í fyrirtækjum skuli vera af hvoru kyni samræmist reglum Evrópusambandsins. Þeim verða Norðmenn að hlíta í gegnum EES-samninginn. Erlent 4.1.2006 08:01
Mál meints hryðjuverkamanns falið bosnískum yfirvöldum Danska lögreglan hefur hætt við að ákæra einn þeirra sem handteknir voru vegna gruns um að skipuleggja hryðjuverkaárás í landinu og falið bosnískum yfirvöldum málið. Maðurinn sem um ræðir var handtekinn í Bosníu síðla síðasta árs en hann er Dani af tyrknesku bergi brotinn. Erlent 4.1.2006 07:53
Víða er flughált Ófært er um Dynjandis- og Hrafnseyrarheiðar og flughált í Gufudal, á Klettshálsi Kleyfarheiði og á milli Patreksfjarðar og Bíldudals samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Flughált er einnig á Eyjarfjalli, Steingrímsheiði og Lágheiði. Innlent 4.1.2006 09:31
Telja meirihluta þingmanna spilltan Meirihluti þingmanna er spilltur að mati meirihluta Bandaríkjamanna samkvæmt skoðanankönnun Gallup fyrir CNN og USA Today. Ekki nóg með það heldur telja þeir að um fimmtungur þingmanna sé mjög spilltur. Erlent 4.1.2006 09:12
Varað við skemmdarverkum á laxeldiskvíum í Noregi Lögregla í Noregi hefur hvatt laxeldisfyrirtæki til að vera á varðbergi gagnvart skemmdarverkum sem kunni að verða unnin á kvíum þeirra. Þetta kemur fram í norska blaðinu Aftenposten. Lögregla rannsakar nú hvort herskáir umhverfisverndarsinnar hafi skemmt kvíar í Finnmörku í júní í fyrra en þá sluppu um hundrað þúsund laxar úr kvíunum. Erlent 4.1.2006 07:56
Eldur í efnamóttöku Allt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu hefur verið kallað út vegna reyks í efnamóttöku Sorpu á aðalvinnslusvæði fyrirtækisins í Gufunesi. Slökkviliðið kom á staðinn nú rétt fyrir fréttir og var að kanna aðstæður en starfsmaður í efnamóttöku Sorpu sagði að engin hætta hefði reynst á ferðum, þarna hefði verið gufureykur en enginn eldur. Innlent 4.1.2006 09:17
Lést í svifvængjuslysi 32 ára íslenskur karlmaður, Rúnar V. Jensson, lést í Kólumbíu á Gamlársdag þegar svifvængja sem hann flaug hrapaði til jarðar. Hann var einhleypur og barnlaus. Innlent 4.1.2006 09:07
Segir skýringar olíufélaga á hækkunum fyrirslátt Félag íslenskra bifreiðaeigenda telur að þær skýringar olíufélaganna, að rekja megi bensínhækkanir í fyrradag til hækkunar á heimsmarkaðsverði, séu fyrirsláttur. Innlent 4.1.2006 07:24
Strætó til háborinnar skammar Það er til háborinnar skammar að Strætó bs. bjóði ekki upp á sérstakt staðgreitt fargjald fyrir unglinga á þrepi milli þess sem börn og fullorðnir greiða, segir í ályktun frá Ungmennaráði Hafnarfjarðar. Þetta segir ráðið ekki síst til skammar þar sem ungmenni séu stór hluti af viðskiptavinum Strætó. Innlent 4.1.2006 08:48
Unglingspiltar kveikja næstum í Minnstu munaði að þrír unglingspitlar hefðu kveikt í íbúðarhúsi í Kópavogi í nótt þegar þeir tróðu logandi kínverjum og froskum inn um bréfalúgu í húsinu. Húsráðandi náði að slökkva eldinn í forstofunni og lögregla hafði uppi á piltunum, sem reyndust hafa leikið sama leikinn í örðu húsi Innlent 4.1.2006 07:10
Brotist inn í Grafarvogskirkju Brotist var inn í Grafarvogskirkju í nótt og þaðan stolið söfnunarbauk. Engar skemmdir virðast hafa verið unnar nema hvað þjófurinn braut stóra rúðu til að komast inn. Ekki liggur fyrir hversu mikið fé var í bauknum og þjófurinn er enn ófundinn. Innlent 4.1.2006 07:03
Þjófur svaraði í símann Klaufaskapur innbrotsþjófs varð honum að falli á dögunum þegar hann álpaðist til að svara hringingu sænsku lögreglunnar í farsíma sem hann hafði nýlega tekið ófrjálsri hendi. Maðurinn hafði brotist inn í hús í bæ í Norður-Svíþjóð og látið þar greipar sópa og þar á meðal nælt sér í farsíma. Lögregla hringdi í símann og maðurinn svaraði en hirti ekki um að leggja á. Innlent 4.1.2006 07:12
Þak hrundi á stórmarkað í Ostrava Þak hrundi á stórmarkaði í bænum Ostrava í norðausturhluta Tékklands um hálfáttaleytið í gærkvöld. Mikill snjór hafði safnast fyrir á þakinu sem gaf undan. Stórmarkaðurinn var enn opinn þegar slysið varð en ekki hafa enn borist fregnir af því hvort slys hafi orðið á fólki. Innlent 4.1.2006 07:11
Samningaviðræður hafnar um gasútflutning Samningaviðræður hófust að nýju í gærkvöld á milli Úkraínumanna og Rússa um gasútflutning til Úkraínu. Rússneska gasfyrirtækið Gazprom lokaði fyrir gasútflutning til Úkraínu á nýársdag eftir að Úkraínumenn höfðu neitað að borga uppsett verð en stjórnmálskýrendur segja málið frekar snúast um stjórnmál en peninga Innlent 4.1.2006 07:08
Allir námuverkamennirnir í Virginíu látnir nema einn Aðeins einn af kolanámuverkamönnunum sem sátu fastir í námu í Vestur-Virginíu komst lífs af samkvæmt nýjustu fregnum, en svo virðist sem upplýsingum um málið hafi verið snúið við. Tólf menn létu því lífið en ekki einn. Talsmaður kolanámufyrirtækisins greindi fjölskyldum mannanna frá þessu. Erlent 4.1.2006 08:09
Vertíð „póstkassaskemmdarvarga" hafin Vertíð þeirra sem stunda þá iðju að sprengja póstkassa bæjarins er nýhafin. Þar til gerðar læsingar á póstkössunum virðast ekki stöðva skemmdarvargana. Innlent 3.1.2006 22:43
Skæruliðahópar sprengja olíuborholur Skæruliðarhópur í Kólumbíu sprengdi átta olíuborholur og þrjár olíuleiðslur í loft upp í Amasonregnskógunum í gær. Olían hefur valdið miklum umhverfisspjöllum og liggur nú á 100 km löngum kafla árinnar Putumayo. Innlent 4.1.2006 06:59
Allt að 200 manns fórust í aurskriðu í Indónesíu Talið er að allt að 200 manns hafi farist þegar aurskriða féll á þorp í um 130 kílómetra fjarlægð frá Jakarta, höfuðborg Indónesíu, í gær en aurskriðan reif með sér heilt þorp og hafa björgunarmenn aðeins fundið tólf manns á lífi. Þá eyðilögðust brýr og vegir sem hefur gert björgunarmönnum enn erfiðara fyrir sem og veðrið en mikið hefur rignt á svæðinu síðustu vikur. Milljónir manna búa upp til fjalla í Indónesíu og hefur dánartíðni vegna aurskriða hækkað mikið á síðustu árum. Innlent 4.1.2006 06:56
Kveikt í fólksbíl Grunur leikur á að kveikt hafi verið í fólksbíl, sem sem stóð fyrir utan Krónuna við Jafnasel í Breiðholti og barst eldurinn í annann bíl við hliðina. Slökkviliðinu var tilkynnt um eldinn um klukkan hálf sex í morgun og logaði í báðum bílunum, þegar að var komið. Innlent 4.1.2006 07:05
Grunar lögbrot í stofnfjárviðskiptum í SPH Fjármálaeftirlitið grunar að lög um fjármálafyrirtæki hafi verið brotin við kaup á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar í fyrrasumar og hefur Ríkislögreglustjóri hafið rannsókn á málinu, að sögn Morgunblaðsins. Grunur leikur á að ýmist hafi upplýsingum verið leynt, eða rangar upplýsingar verið gefnar. Innlent 4.1.2006 07:19
Ökumaður slapp ótrúlega Ökumaður, sem var einn í bíl sínum, slapp ótrúlega lítið meiddur þegar bíll hans fór út af Reykjanesbraut í gærkvöld, valt niður grasbala og hafnaði niður á Fífuhvammsveginum, Svo vel vildi til að þar var engin á ferðinni þegar slysið varð. Bíllinn aflagaðist svo mikið í veltunni að beita þurfti klippum til að ná ökumanni út úr flakinu og var hann fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Hann reyndist ekki alvarlega slasaður. Bíllinn er hinsvegar gjör ónýtur. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir en engin hálka var á veginum og ökumaðurinn var ódrukkinn. Innlent 4.1.2006 06:55