Fréttir
Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf harmar orð biskups Áhugahópur samkynhneigðra um trúarlíf, ÁST, harmar orð biskups Íslands, herra Karls Sigurbjörnssonar, í sjónvarpsviðtali á NFS 2. janúar síðastliðinn þar sem hann ræddi um hjónabandið í tengslum við fram komna tillögu á Alþingi. Innlent 13.1.2006 14:11
Tíu árekstrar og eitt banaslys Tíu árekstrar höfðu orðið í Reykjavík fyrir hádegi og þar af eitt banaslys á Sæbraut. Vegna slæmrar færðar á götum höfuðborgarsvæðisins í morgun gekk umferðin hægt. Starfsmenn ruðningstækja höfðu í nógu að snúast í morgun, en nú ætti færð á öllum helstu umferðaræðum að vera orðin góð. Innlent 13.1.2006 12:04
Yfirlýsing frá stjórn Dagsbrúnar Stjórn Dagsbrúnar ræddi á fundi sínum í dag málefni dagblaðsins DV í kjölfar hinna hörmulegu atburða á Ísafirði. Í yfirlýsingu frá stjórninni segir að hún starfi eftir starfsreglum þar sem m.a. er kveðið á um að stjórnarmönnum sé óheimilt að hlutast til um einstök umfjöllunarefni fjölmiðla í eigu félagsins. Innlent 13.1.2006 10:57
Kostnaður við meðferð og greiningu HIV lækkar í þróunarlöndum Samtök sem Bill Clinton, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, er í forsvari fyrir hafa gert samning við nokkur lyfjafyrirtæki sem felur í sér að kostnaður við meðferð og greiningu HIV-smitaðra í þróunarlöndum lækkar gríðarlega. Erlent 13.1.2006 10:28
Banaslys á Sæbraut Banaslys varð á níunda tímanum í morgun þegar flutningabíll og strætisvagn skullu saman á Sæbraut, rétt ofan við Húsasmiðjuna. Ökumaður annars bílsins lést en enga aðra sakaði. Innlent 13.1.2006 10:25
Ritstjórn norska blaðsins Magazinet berast morðhótanir Ritstjórn og blaðamönnum norska dagblaðsins Magazinet hafa borist morðhótanir með tölvupósti hvaðanæva úr heiminum eftir að það birti teikningar af Múhameð spámanni í vikunni. Þessar sömu myndir birtust í danska Jótlandspóstinum á nýliðnu hausti og fengu starfsmenn þar einnig morðhótanir í framhaldinu. Erlent 13.1.2006 10:22
Páll Baldvin og Björgvin ráðnir ritstjórar DV Páll Baldvin Baldvinsson, menningarritstjóri DV, og Björgvin Guðmundsson, blaðamaður á Markaðinum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, hafa verið ráðnir ritstjórar DV í stað Jónasar Kristjánssonar og Mikaels Torfasonar sem sögðu upp í morgun. Innlent 13.1.2006 09:51
Ritstjórar DV segja upp Ritstjórar DV, þeir Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, hafa sagt upp störfum. Þeir segjast gera það til að skapa að nýju ró um blaðið og koma á vinnufriði hjá því dugandi starfsfólki sem unnið hefur á ýmsum sviðum þess, segir í tilkynningu frá þeim. Innlent 13.1.2006 09:46
Mikill snjór víða á Suðvesturlandi Talsverður snjór féll víða á Suðvesturlandi í nótt og má búast við talsverðum umferðartöfum í morgunsárið á höfuðborgarsvæðinu. Starfsmenn borgarinnar byrjuðu fyrir allar aldir að hreinsa og saltbera aðar umferðaræðarnar en á hliðargötum er sumstaðar þæfingur og auðvitað hálka. Innlent 13.1.2006 08:16
350 pílagrímar létust í Mekka Að minnsta kosti 350 íslamskir pílagrímar létust og um 300 eru taldir hafa slasast þegar þeir hrösuðu um farangur annarra pílagríma og tróðust undir er þeir voru á leið að steinsúlu til að kasta í hana steinum í gær. Erlent 13.1.2006 07:56
Vill alþjóðlegt bann við vopnavæðingu í geimnum Paul Martin, forsætisráðherra Kanada og leiðtogi Frjálslynda flokksins vill alþjóðlegt bann við vopnavæðingu í geimnum. Stjórnvöld í Bandaríkjunum er sögð ósátt við afstöðu Frjálslynda flokksins, sem hefur neitað að verða aðili að geimvarnaráætlun Bandaríkjanna. Erlent 13.1.2006 08:14
Olmert ræðir við Bush um stjórnmálaástandið í Ísrael Ehud Olmert, sitjandi forsætisráðherra Ísraels, ræddi í gær við George Bush, forseta Bandaríkjanna, í síma um ástand Sharons, undirbúning að kosningum til þings Palestínumanna, sem haldnar verða í lok janúar, og stjórnmálaástandið í Ísrael en kosningar þar í landi fara fram í lok mars. Erlent 13.1.2006 08:10
Tveir meintir fíkniefnasalar handteknir Tveir meintir fíkniefnasalar voru handteknir í gær og í nótt. Fyrst handtók Selfosslögreglan karl og konu í bíl á Eyrarbakkavegi eftir að fíkniefni fundust í fórum þeirra sem leiddi til handtöku sölumanna í Þorlákshöfn. Innlent 13.1.2006 08:07
Kannaðir kostir þess að sameina KHÍ og HÍ Menntamálaráðherra hefur skipað starfshóp til að kanna kosti þess að sameina Háskóla Íslands og Kennaraháskólann. Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að þetta sé gert í samráði við rektora beggja skólanna. Guðmundur Árnason ráðuneytisstjóri mun leiða starf nefndarinnar og er henni ætlað að skila niðurstöðu fyrir lok febrúarmánaðar. Innlent 13.1.2006 08:04
Norðmenn vilja smíða varðskip fyrir Íslendinga Norðmenn hafa mikinn áhuga á að smíða nýtt varðskip fyrir Íslendinga því þeir eiga þrjár umsóknir af fimmtán, um að fá að taka þátt í lokuðu útboði um smíðina. Annars komu umsóknirnar úr öllum heimshornum, frá Chile, Danmörku, Kína, Póllandi, Spáni og Ítalíu, svo nokkrir séu nefndir. Stefnt er að því að umsækjendur fái útboðsgögn í febrúar og að undirritaður samningur liggi fyrir í sumar byrjun. Upp úr því ætti smíðin að geta hafist Innlent 13.1.2006 07:58
Íranar hafa samþykkt að hefja samningarviðræður Íranar hafa samþykkt að ganga að samningaborðinu með Bretum, Frökkum og Þjóðverjum um kjarnorkuáætlun landsins. Þetta sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, í gær. Erlent 13.1.2006 07:54
Ellefu bíla árekstur í Ártúnsbrekkunni í gær Ellefu bílar lentu í árekstri í Ártúnsbrekkunni um tíu leitið í gærkvöldi, en engin slasaðist. Þunguð kona var þó flutt í sjúkrabíl til skoðunar, en mun ekki hafa orðið meint af hnjaskinu. Ekki liggur ljóst fyrir hvað olli þeirri keðjuverkun að fyrst skullu tveir bílar saman Innlent 13.1.2006 07:53
20 manna hópur sérfræðinga skipaður Þjóðir heimsins verða að vera betur undirbúnar ef fuglaflensan verður að faraldri að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar. Það gæti skipt sköpum hvað varðaði heilsufar jarðarbúa. Erlent 13.1.2006 07:59
Pattstaða í viðræðum um hlut borgarinnar í Landsvirkjun Pattstaða er í viðræðum ríkisins við Reykjavíkurborg og kaup ríkisins á hlut borgarinnar í Landsvirkjun. Viðræðum um málið hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna deilu um verðmat á fyrirtækinu. Innlent 12.1.2006 23:30
Lækkanir vegna verðstríðs gengnar til baka Verðbólga nú í janúar mælist 4,4% sem er meira en spáð hafði verið. Hagfræðingur hjá ASÍ segir ljóst að áhrif verðstríðs síðasta vor á matvöruverð sé gengið til baka og sér ekki forsendur fyrir þeim hækkunum sem orðið hafa. Innlent 12.1.2006 23:06
Aðjúnktinn lagði alþingismanninn Snorri Sigurðsson aðjúnkt í líffræði við Kennaraháskóla Íslands lagði Sigurð Kára Kristjánsson alþingismann í æsispennandi viðureign í spurningaþættinum Meistaranum sem sýndur var á Stöð 2 fyrr í kvöld. Lífið 12.1.2006 23:00
Tólf í tveimur árekstrum Lögreglan er enn að störfum í Ártúnsbrekkunni þar sem tíu bílar hið minnsta lentu í árekstri um klukkan tíu. Skömmu ofar lentu tveir bílar í árekstri. Tveir bílar að minnsta kosti lentu út af veginum í fjöldaárekstrinum en þrátt fyrir að margir bílar lentu í árekstrinum virtist ekki sem skemmdir á bílum væru miklar. Ekki er vitað til þess að meiðsl hafi verið á fólki. Innlent 12.1.2006 22:36
Bílar fuku út af veginum Tveir bílar fuku út af veginum á Fjarðarheiði snemma í kvöld. Engin teljandi meiðsl urðu á fólki en annar bíllinn er mikið skemmdur. Innlent 12.1.2006 22:14
Margra bíla árekstur í Ártúnsbrekku Þrettán bílar hafa lent í tveimur árekstrum í Ártúnsbrekkunni um klukkan tíu. Ellefu bílar lentu saman í árekstri neðarlega í Ártúnsbrekkunni og er þar allt stopp. Skömmu ofar lentu tveir bílar í árekstri og því hafa alls þrettán bílar lent í árekstri þarna á fáeinum mínútum að því er fréttamaður NFS á staðnum segir frá. Innlent 12.1.2006 22:00
Bandaríkin með 24 þúsund milljarða halla Ríkissjóður Bandaríkjanna verður rekinn með 24 þúsund milljarða króna halla í ár samkvæmt áætlun fjárlagadeildar Hvíta hússins sem var birt nú í kvöld. Erlent 12.1.2006 21:28
Fá að kjósa blóðsugu Kjósendur í Minnesotaríki í Bandaríkjunum fá að öllum líkindum tækifæri til að kjósa blóðsugu í embætti ríkisstjóra í kosningum sem fram fara í nóvember næstkomandi. Eða svo má ætla af því hvernig Jonathan Sharkey kynnir sig. Erlent 12.1.2006 21:14
Bensínhækkanir ekki í samræmi við heimsmarkaðsverð Undanfarna daga hafa öll olíufyrirtækin hækkað verð á bensíni. Félag íslenskra bifreiðaeigenda er ósátt við hækkanirnar og bendir á að félögin hækki verð sitt á sama tíma og heimsmarkaðsverð lækki. Innlent 12.1.2006 20:19
Íranar vilja halda viðræðum áfram Íranar hafa enn áhuga á að semja af alvöru við Evrópusambandið um kjarnorkuáætlun sína, sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, eftir 40 mínútna langt viðtal við Ali Larijani, aðalsamningamann Írana í kjarnorkumálum nú í kvöld. Erlent 12.1.2006 20:43
Umfjöllun DV gagnast ekki þolendum Thelma Ásdísardóttir sem sagði sögu sína í bókinni Myndin af pabba sem kom út fyrir jólin segir umfjöllun DV um kynferðisglæpi ekki þjóna hagsmunum þolenda í slíkum málum. Mál þeirra systra hafi lent á síðum blaðanna þegar þau voru til meðferðar í réttarkerfinu og það hafi aukið á vanlíðan þeirra og stuðlað að einelti. Fara verði varlega í allri umfjöllun um þessi mál. Innlent 12.1.2006 20:16
Styðja formann og framkvæmdastjórn Aðalstjórn Öryrkjabandalags Íslands lýsir fullum stuðningi við formann og framkvæmdastjórn félagsins. Aðalstjórnin kom saman til fundar í kvöld og ræddi þar meðal annars uppsögn Arnþórs Helgasonar fyrrum framkvæmdastjóra ÖBÍ. Innlent 12.1.2006 20:06