Fréttir
Fjórir bílar ultu í einu Engan sakaði þegar fjórir bílar ultu í einu út af þjóðveginum um Norðurárdal í gær. Það gerðist með þeim hætti að ökumaður bílaflutningabíls, sem var með þrjá bíla á pallinum, sveilgði út í kant til að koma í veg fyrir árekstur við bíl sem kom úir gagnstæðri átt, en missti bílinn út af og hann valt, með hina þrjá með sér. Mikið eignatjón varð og tók nokkurn tíma að tína alla bíla upp á veginn aftur. Innlent 19.1.2006 07:29
Georgía herðir á aðgerðum gegn fuglaflensu Yfirvöld í Georgíu hafa hert á aðgerðum sínum til að koma í veg fyrir útbreiðslu fuglaflensu þar í landi. Ákveðið hefur verið að setja á stofn miðstöð þaðan sem reynt verður að hefta útbreiðslu hins hættulega H5N1 afbrigðis sjúkdómsins í öllum héruðum landsins Erlent 19.1.2006 07:26
Útvegsmenn halda rækjukvótanum Útvegsmenn, sem eiga rækjukvóta, munu ekki missa hann þótt þeir nýti hann ekki, jafnvel svo nokkrum árum skipti, og ekki verður innheimt veiðigjald af rækjukvótanum. Þeta er gert í ljósi þess að rækjuveiðarnar hafa hrunið á skömmum tíma og engar vísbendingar eru um hvenær rækjustofninn nær sér á ný. Innlent 19.1.2006 07:23
Enn eitt dauðsfallið af völdum fuglaflensu Óttast er að ellefu ára gömul stelpa hafi látist af völdum fuglaflensu í Austur-Tyrklandi í gær. Talið er að stúlkan hafi sýkst af hinu hættulega H5N1 afbrigði veirunnar. Sýni voru send til höfuðborgarinnar Ankara til að fá þetta staðfest. Stúlkan var yngst 10 systkina og eina stelpan. Erlent 19.1.2006 07:20
Geir fundaði með utanríkisráðherra Bretlands Utanríkisráðherra Bretlands telur ekkert knýja á um að Íslendingar sæki um aðild að Evrópusambandinu. Á fundi með Geir Haarde í morgun lýsti hann jafnframt ánægju með aukin umsvif íslenskra fyrirtækja í Bretlandi. Innlent 18.1.2006 22:36
Fimm keppendur komust áfram Forkeppni fyrir Matreiðslumann ársins fór fram í Menntaskólanum í Kópavogi í dag. Keppnin var hörð í ár sem endranær og matreiðslumennirnir töfruðu fram hverja kræsinguna á fætur annarri. Innlent 18.1.2006 22:30
Sameining SBK og Kynnisferða SKB í Keflavík og Kynnisferðir ehf. hafa sameinast en um síðustu áramóti keyptu Kynnisferðir 60% hlutafjár í SBK en áttu fyrir 40%. Í fréttatilkynningu frá Kynnisferðum segir að með sameiningu þessara tveggja félaga er þess vænst að sú góða þjónusta sem SBK hefur veitt Suðurnesjabúum hingað til verði ekki minni en hún hefur verið. SBK mun áfram sjá um akstur strætisvagna, skólabíla og sérleyfisbifreiða milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Innlent 18.1.2006 22:23
Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkar Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands lækkaði um tvö komma sextíu og eitt prósent í dag. En hlutabréf fyrirtækja í Úrvalsvísitölunni hafa hækkað hratt frá áramótum eða um tíu prósent. Innlent 18.1.2006 21:14
Í gæsluvarðhaldi til 10. mars Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag úrskurð Hérðasdóms Reykjaness um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir 18 ára gömlum pilt sem grunaður er um stórfellda líkamsárás. Úrskurðurinn um gæsluvarðhald gildir fram til 10. mars næstkomandi. Innlent 18.1.2006 20:05
Kjararýrnun hjá 90% þjóðarinnar 90% íslensku þjóðarinnar hafa orðið fyrir kjararýrnun vegna aukinnar skattbyrði á síðustu 10 árum. Þetta segir prófessor við Háskóla Íslands og hann segir að fullyrðingar ríkisstjórnarinnar um að skattar hafi lækkað hér á landi séu einhver mestu ósannindi íslenskra stjórnmála í marga áratugi. Innlent 18.1.2006 19:15
Alþingi þarf að fara varlega Eiríkur Tómasson lagaprófessor segir að Alþingi verði að fara varlega í að afgreiða frumvarp um kjaradóm og kjaranefnd sem nú liggur fyrir. Formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis útilokar ekki að það dragist fram yfir helgi að afgreiða frumvarpið. Rísi dómsmál, ef frumvarpið verður að lögum, verða allir starfandi dómarar vanhæfir til að fjalla um málið. Innlent 18.1.2006 19:06
Útlit fyrir að fjölmargir leikskólakennarar segji upp störfum Ekkert samkomulag og engar tillögur koma frá samráðshópi um kjaramál leikskólakennara sem ætlað var að leggja fram tillögur um úrbætur á launamálaráðstefnu sveitarfélaganna á föstudag. Vinnuhópurinn hélt sinn síðasta fund í dag og komst ekki að neinni niðurstöðu. Innlent 18.1.2006 18:59
Vilja að deilan fari fyrir Öryggisráðið Bretar, Frakkar og Þjóðverjar hafa formlega farið fram á að deilan um kjarnorkuáætlun Írana verði lögð fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna. Alls óvíst er að það verði samþykkt hjá Alþjóða kjarnorkumálastofnuninni. Erlent 18.1.2006 18:09
Neytendasamtökin harma ákvörðun forsætisráðherra Formaður Neytendasamtakanna harmar að forsætisráðherra hafi ekki séð ástæðu til að verða við ósk samtakanna um fulltrúa í nefnd þeirri sem skipuð var til að kanna hátt matvælaverð hér á landi. Formaður samtakanna vonast til að forsætisráðherra endurskoði þá ákvörðun sína. Innlent 18.1.2006 18:08
2,7% atvinnuleysi Á fjórða ársfjórðungi 2005 var atvinnuleysi 2,7% en að meðaltali voru 4.400 manns án vinnu eða í atvinnuleit. Atvinnuleysi mældist 3,0% hjá körlum en 2,2% hjá konum. Þetta kemur fram í vinnumarkaðsrannsókn Hagstofunnar. Þegar litið er til aldurs var atvinnuleysið mest meðal fólks á aldrinum 16-24 ára en það var 7,9%. Innlent 18.1.2006 17:59
Engin byrði á samfélaginu Gamalt fólk er ekki byrði á samfélaginu segir Guðjón Guðmundsson framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sparisjóða. En í dag var undirritaður samningur um rannsókn á framlagi eldra fólks til samfélagsins í húsakynnim Félags eldri borgara. Innlent 18.1.2006 17:48
Furðar sig á að skýrslur sé teknar af börnum í dómshúsi Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingar, lýsti á Alþingi í dag yfir furðu sinni á því að meirihluti skýrslna sem tekinn sé af börnum, sem grunur leikur á að hafi verið beitt kynferðisofbeldi, fari fram í dómshúsi en ekki Barnahúsi. Innlent 18.1.2006 17:03
Össur kaupir Innovation Sports Össur hf. hefur fest kaup á bandaríska stuðningstækinu Innovation Sports, Inc. og er kaupverðið fyrir 38,4 milljónir Bandaríkjadala eða hátt í 2,4 milljarðar íslenskra króna. Í tilkynningu frá Össuri vegna kaupanna segir að Innovation Sports sé forystufyrirtæki á sviði þróunar og framleiðslu á liðbandaspelkum. Össur tekur við rekstri Innovation Sports frá og með deginum í dag. Innlent 18.1.2006 17:00
Fimm vilja stöðuna Fimm umsækjendur um embætti prests í Laugarnesprestakalli. Reykjavíkurprófastsdæmi vestra auglýsti eftir umsækjendum í desember og er um hálft starf að ræða. Innlent 18.1.2006 16:31
Íslensk verkalýðsfélög hyggja á útrás Íslenska verkalýðsfélög hyggja á útrás í kjölfar íslenskra fyrirtækja þar sem styðja á við uppbyggingu verkalýðshreyfingarinnar Eystrasaltsríkjunum. Verkalýðsforkólfar vonast til þess að íslensk fyrirtæki sem starfa í löndunum taki þátt í verkefninu með þeim. Innlent 18.1.2006 16:09
Harma að Arnþóri hafi verið sagt upp Stjórn Blindrafélagsins harmar þau málalok hjá Öryrkjabandalagi Íslands að Arnþóri Helgasyni, félagsmanni Blindrafélagsins, skuli hafa verið sagt upp störfum sem framkvæmdastjóri bandalagsins. Innlent 18.1.2006 16:01
Átök um norræna vinnumarkaðsmódelið Hætta er á að norræna vinnumarkaðsmódelið verði fyrir bí ef Evrópudómstóllinn úrskurðar sænskum stéttarfélögum í óhag í svo kölluðu Laval-máli sem brátt verður tekið fyrir hjá dómnum. Forsvarsmenn stéttarfélaga á Norðurlöndum óttast félagsleg undirboð verði dómurinn þeim óhagstæður og hafa leitað liðsinnis ríkisstjórna landanna til að reyna að varðveita norræna vinnumarkaðskerfið. Innlent 18.1.2006 15:55
Mikill áhugi fanga að dvelja í Hegningarhúsinu Það skortir síður en svo áhuga hjá föngum að dvelja í Hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Þetta sagði Björn Bjarnason dómsmálaráðherra í umræðum um undirbúning nýrrar fangelsisbyggingar á Alþingi á fjórða tímanum. Einnig kom fram í máli ráðherrans að hann gerði ráð fyrir að undanþágan sem Hegningarhúsið hefur verið á verði framlengd, en hún rennur út innan skamms. Innlent 18.1.2006 15:52
Þakkar öllum sem komu að björgun sinni Það myndi gleðja mig mikið að sjá virkjunaráform í Þjórsárverum hverfa alveg út af borðinu sagði Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, á fréttamannafundi nú fyrir stundu. Að öðru leyti vildi hann ekki ræða um pólitík en sagði sér liði vel miðað við aðstæður. Innlent 18.1.2006 15:11
Stálheppinn að hafa sloppið svo vel Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, segir að sér líði vel miðað við aðstæður. Það sé stjanað við hann á spítalanum. Hann segist stálheppinn að hafa sloppið svo vel sem raun ber vitni. Þetta sagði hann á fréttamannafundi sem nú er í beinni á NFS. Innlent 18.1.2006 14:59
Hafdís Gísladóttir ráðin framkvæmdastjóri ÖBÍ Hafdís Gísladóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands og tekur hún til starfa þann fyrsta febrúar. Frá ráðningu hennar var formlega gengið á fundi framkvæmdastjórnar ÖBÍ í gær en NFS greindi frá fyrirhugaðri ráðningu hennar fyrir rúmri viku. Innlent 18.1.2006 14:37
Almenningur illa upplýstur um virkni loftpúða Rannsóknarnefnd umferðarslysa telur að almenningur sé illa upplýstur um virkni loftpúða í bifreiðum. Vegna slyssins þar sem Steingrímur J. Sigfússon ók útaf í fyrrakvöld, kom fram að loftbúðar bifreiðarinnar, sem er jeppabifreið, hafi ekki virkað sem skildi. Innlent 18.1.2006 13:37
Íslenskir fjárfestar kaupa tíunda stærsta banka Lettlands Íslenskir fjárfestar, þar á meðal félag í eigu forstjóra Norvíkur, hafa fest kaup á ráðandi hlut í tíunda stærsta banka Lettlands, Lateko-banka. Eignir hans nema 30 milljörðum króna og hjá honum starfa 550 manns. Bankinn rekur skrifstofur í Lundúnum og Moskvu. Innlent 18.1.2006 13:31
Íslensk erfðagreining kaupir Urði Verðandi Skuld Íslensk erfðagreining greindi í dag frá kaupum á líftæknifyrirtækinu Urði Verðandi Skuld af Iceland Genomics Corporation Inc. Íslensk erfðagreining greiðir kaupverðið, um 350 milljónir íslenskra króna, með hlutabréfum í deCODE genetics Inc. Markmið kaupanna er að efla rannsóknir á erfðafræði krabbameina sem vonast er til að leiði til aukins skilnings á líffræðilegum orsökum þeirra og nýrra aðferða til að greina og meðhöndla krabbamein. Innlent 18.1.2006 13:28
Lagt á ráðin um að ræna syni Blairs Bresk lögregla hefur komið upp um ráðabrugg um að ræna Leo, yngsta syni Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands. Breska götublaðið Sun greindi frá þessu í morgun. Erlent 18.1.2006 13:15