Fréttir
Oktavía segir vistaskipti sín ekki vera mistök Oktavía Jóhannesdóttir, sem bauð sig fram í prófkjöri sjálfstæðismanna á Akureyri um helgina eftir að hafa gengið úr Samfylkingunni skömmu fyrir áramót, segir vistaskiptin ekki hafa verið mistök. Oktavía sóttist eftir fjórða sæti á lista Sjálfstæðisflokksins en endaði í því fimmtánda. Innlent 13.2.2006 19:12
Mislæg gatnamót hringvegar í Reykjavík boðin út Vegagerðin hefur boðið út gerð mislægra gatnamóta Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar ofan Grafarvogs Innlent 13.2.2006 19:08
Þingkosningar í Póllandi? Flest bendi til að Kaczynski, forseti Póllands, leysi upp þing landsins og boði til þingkosninga í ræðu sem hann heldur í kvöld. Sú ákvörðun væru svar hans við þeirri ákvörðun þingsins að samþykkti ekki fjárlög þegar greidd voru atkvæði um þau í lok janúar. Erlent 13.2.2006 17:45
Skorað á Símann að opna aftur á Laugavegi Þróunarfélag miðborgarinnar skorar á Símann að endurskoða þá ákvörðun sína að loka verslun sinni við Laugaveg. Félagið hvetur Símann til að hefja þar verslunarrekstur á ný hið fyrsta. Innlent 13.2.2006 17:41
Mannskæð sprenging í Afganistan Fjórir bandarískir hermenn féllu þegar sprengja sprakk í Afganistan í dag. Hermennirnir voru við eftirlit í Uruzgan-héraði ásamt afgönskum hersveitum þegar sprengja sprakk undir bíl þeirra með fyrrgreindum afleiðingum. Erlent 13.2.2006 17:38
Bandaríkjamenn útiloka ekki hernaðaraðgerðir gegn Íran Bandaríkjamenn útiloka ekki hernaðaraðgerðir gegn Íran, en munu reyna samningaviðræður fram í lengstu lög. Þetta sagði Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna í sjónvarpsþætti í gær. Erlent 13.2.2006 17:33
Viðræður um tollalækkun og afnám útflutningsálags Viðræður eru fyrirhugaðar milli fulltrúa Íslands og Evrópusambandsins um mögleika á frekari tollalækkunum á sjávarafurðum gegn hugsnlegu afnámi útflutningsálags á ferskan fisk. Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, átti í dag fund með Joe Borg, sem fer með sjávarútvegsmál í framkvæmdastjórn ESB. Innlent 13.2.2006 17:06
Saddam Hússein lætur ófriðlega í réttarsal Réttarhöldunum yfir Saddam Hússein, fyrrverandi forseta Íraks, var í frestað fram á morgun eftir viðburðarríkan dag í réttarsalnum. Saddam lét þá loks sjá sig eftir nokkurra daga fjarveru en hann virtist þó fyrst og fremst hafa mætt til að valda óskunda. Erlent 13.2.2006 16:13
Flugi Icelandair frá New York seinkaði um 6 tíma Forráðamenn Icelandair hafa ekki farið varhluta af óveðrinu á austurströnd Bandaríkjanna undanfarna daga. Farþegavél félagsins sem átti að lenda hér á landi klukkan sex í morgun seinkaði umtalsvert og lenti á Keflavíkurflugvelli sex tímum á eftir áætlun. Innlent 13.2.2006 16:08
Snjóbylur í Bandaríkjunum Mörg þúsund opinberir starfsmenn á austurströnd Bandaríkjanna hafa í dag reynt hvað þeir geta til að koma borgurum til vinnu eftir mesta bylur sem sögur fara af á svæðinu. Borgaryfirvöld í New Yorkhafa meira að segja gripið til þess ráðs að ráða starfsmenn tímabundið með tíu dali á tímann til að moka burt mesta snjónum. Erlent 13.2.2006 16:04
Ekkert lát á voðaverkum í Írak Bið fátækra Íraka eftir matarstyrk breyttist í martröð í morgun, þegar maður hlaðinn sprengiefni gekk að röðinni og sprengdi sig í loft upp. En í skugganum af hrinu ódæðisverka virðist ný ríkisstjórn loks í sjónmáli í Írak. Erlent 13.2.2006 15:33
Telur Samfylkinguna og Sjálfstæðisflokkinn ekki eiga samleið Dagur B. Eggertsson, borgarstjóraefni Samfylkingarinnar, telur að Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn eigi ekki samleið í borgarstjórn. Hins vegar geti gömlu R-listaflokkarnir unnið saman áfram þar sem enginn málefnaágreiningur sé á milli þeirra. Innlent 13.2.2006 15:25
Þarf ekki í umhverfismat Skipulagsstofnun hefur úrskurðað að ekki þurfi að fara fram umhverfismat vegna lagningar hitaveitu í Grundafirði. Í ákvörðun stofnunarinnar segir að sjónræn áhrif veitunnar og hávaði verði óveruleg auk þess sem lagningin hafi engin neikvæð áhrif á fornleifar. Innlent 13.2.2006 14:57
Landsbankinn hættir á tveimur stöðum Landsbankinn hættir í næsta mánuði rekstri útibúa sinna á Kópaskeri og Raufarhöfn. Bankinn hefur selt Sparisjóði Þórshafnar afgreiðslur sínar á þessum stöðum og tekur Sparisjóðurinn til starfa á Raufarhöfn í stað Landsbankans. Innlent 13.2.2006 13:48
Misvísandi spár um verðbólguþróun Greiningardeildir bankanna eru klofnar í afstöðu sinni til þess hvort verðbólga hækki eða lækki á næstunni. Innlent 13.2.2006 13:21
200 milljarða króna markið rofið Útgáfa erlendra skuldabréfa í innlendri mynt er komin yfir 200 milljarða króna markið. Það var ný útgáfa Deutsche Bank á föstudag sem rauf 200 milljarða króna markið. Innlent 13.2.2006 12:01
Samningafundur hjá LN og slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum Samninganefndir launanefndar sveitarfélaganna og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna funda í Karphúsinu nú klukkan eitt um kjaramál síðarnefnda hópsins, en eins og greint hefur verið frá höfnuðu slökkviliðs- sjúkraflutningamenn tilboði launanefndarinnar um 24 prósenta launahækkun fyrir helgi. Innlent 13.2.2006 12:49
Ætlar að berjast fyrir bættri stöðu sjálfstæðra skóla Talsmaður Samfylkingarinnar í menntamálum segist ætla að beita sér fyrir því að fleiri sjálfstætt starfandi skólum verði komið á fót í höfuðborginni. Þetta sjónarmið gengur þvert á málflutning R-listans undanfarin ár. Innlent 13.2.2006 12:01
Telja hval hafa hrundið af stað leit Nú er talið fullvíst að hvalur hafi hrundið af stað umfangsmikilli leit úr lofti, á sjó og með ströndum út af norðanverðu Seltjarnarnesi og á voginum út af Ánanaustum í gærkvöldi. Innlent 13.2.2006 12:06
Saddam með ólæti í réttarsal Saddam Hússein lét loks sjá sig við réttarhöld yfir honum í morgun. Hann virtist þó fyrst og fremst hafa mætt til að valda óskunda. Saddam kvartaði sáran yfir að vera neyddur til að mæta og hrópaði ,,niður með Bush og lengi lifi hin íslamska þjóð." Ekki er vitað til að honum hafi verið vísað úr réttarsalnum enn sem komið er. Erlent 13.2.2006 12:02
Mikil endurnýjun í borgarstjórn Útlit er fyrir mikla endurnýjun í borgarstjórn eftir kosningarnar í vor. Miðað við uppröðun á lista og niðurstöður skoðanakannana að undanförnu má búast við að átta af fimmtán borgarfulltrúum komi nýir inn. Innlent 13.2.2006 11:57
Ók á bíl og stakk af Ökumaður á leið til Reykjavíkur ók yfir á rangan vegarhelming nærri Litlu kaffistofunni um tíuleytið í gærkvöldi og utan í bifreið sem á móti kom, skipti engu þó ökumaður þeirrar bifreiðar hefði vikið vel yfir í sinn vegarkant. Innlent 13.2.2006 11:52
Fyrirtaka í máli Bubba gegn Garðari og 365 - prentmiðlum Héraðsdómur tók í morgun fyrir meiðyrðamál Bubba Morthens á hendur Garðari Erni Úlfarssyni, fyrrverandi ritstjóra Hér og nú, og 365 - prentmiðlum. Bubbi krefur Garðar og 365 um 20 milljónir króna vegna umfjöllunar og myndbirtinga í Hér og nú í júní í fyrra um einkalíf hans. Innlent 13.2.2006 11:43
Heildarafli í janúar aðeins 1/6 af aflanum í fyrra Heildarfiskaflinn í janúar í ár var aðeins um einn sjötti af aflanum í sama mánuði í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Rúm fjörutíu þúsund tonn veiddust í síðasta mánuði og hefur janúaraflinn ekki verið minni síðan 1995 þegar hann var um 37.400 tonn. Afli dróst saman í flestum tegundum en þó munar mest um loðnuna. Innlent 13.2.2006 09:09
Efast um að fuglaflensa verði að heimsfaraldri Dönsk heilbrigðisyfirvöld draga í efa að fuglaflensan verða að næsta heimsfaraldri eins og Alþjóðaheilbrigðisstofnunin óttast. Þetta kemur fram í viðbragðsáætlun sem yfirvöldin hafa sent frá sér og greint er frá í Jótlandspóstinum. Erlent 13.2.2006 09:02
Fyrsti farfuglinn kominn til landsins Fyrsti farfuglinn í ár er kominn til landsins. Á vefnum Fuglar.is er greint frá því að súla hafi nýverið sést á Kópaskeri, en algengt er að hún komi til landsins um þetta leyti. Næst er von á sílamávi og skúm. Innlent 13.2.2006 09:00
Flugvél Icelandair tafðist vegna ofsaveðurs í New York Flugvél Icelandair á leið frá New York og til Keflavíkur tafðist töluvert í nótt vegna ofsaveðursins sem geisað hefur í New York síðan í gær. Vélin fór í loftið um fimm og hálfum tíma á eftir áætlun og er væntanleg hingað til lands um hádegisbil. Innlent 13.2.2006 09:53
Létust þegar sýningarflugvél flaug á hús Tveir létust þegar lítil sýningarflugvél flaug á hús í úthverfi Roseville í Kaliforníu í gær. Húsið er gjörónýt enda klauf vélin það nánast í tvennt auk þess sem mikill eldur blossaði upp. Erlent 13.2.2006 08:51
Líklega hætt við að selja Iceland Express Sænska lágjaldaflugfélagið Fly Me hefur kaypt ráðandi hlut í í Lithuanian Airlines í Litháen, en íslenska eignarhaldsfélagið Fons á meirihluta í Fly Me. Litháíska flugfélagið rekur sjö þotur og eru starfsmenn hátt í sex hundruð. Innlent 13.2.2006 08:55
Flughált á Kleifaheiði og Klettshálsi Vegagerðin varar við flughálku á Kleifaheiði og Klettshálsi. Á Vestfjörðum og Norðausturlandi er hálka og hálkublettir. Þá er hálka á Austfjörðum og éljagangur á Fjarðarheiði, snjóþekja og éljagangur á Fagradal og Oddsskarði. Innlent 13.2.2006 09:22