Fréttir
Ráðist á leigubílstjóra í nótt Ölvaður maður réðst á leigubílstjóra á Akureyri í nótt, en bílstjórinn slapp ómeiddur út úr ryskingunum og gerði lögreglu viðvart. Hún fann manninn á gangi skömmu síðar og vistaði hann í fangageymslum í nmótt. Ekki er vitað hvað honum gekk til með árásinni, því hann var búinn að borga bílinn þegar hann missti stjórn á skapi sínu. Innlent 23.3.2006 07:11
Óþreyjufullur eftir að mál þokist í átt til friðar Ehud Olmert, starfandi forsætisráðherra Ísraels, er orðinn óþreyjufullur eftir því að mál þokist í átt til friðar fyrir botni Miðjarðarhafs. Í viðtali við ísraelska fjölmiðla í gær sagðist hann ekki ætla að bíða endalaust eftir því að Hamas-samtökin, sem fóru með sigur af hólmi í kosningunum í Palestínu fyrr á árinu, viðurkenni Ísraelsríki svo eiginlegar friðarviðræður geti hafist. Erlent 23.3.2006 07:07
Bíll hafnaði ofan í fjöru Minnstu munaði að fólksbíll með fjórum mönnum í, hafnaði ofan í fjöru við Arnarneshamar á Súðavíkurvegi undir kvöld í gær, þegar ökumaður hans missti stjórn á honum. Innlent 23.3.2006 07:04
Danskir fjárfestar óttast um hag sinn Danskir fjárfestar, sem að undanförnu hafa veðjað á uppgang efnahagslífsins á Íslandi óttast nú um hag sinn, að sögn Jótlandspóstsins. Innlent 23.3.2006 07:00
Óttast að flest öryggiskerfi Keflavíkurflugvallar lamist Rafiðnaðarsambandið óttast að flest öryggiskerfi Keflavíkurflugvallar kunni að lamast við brotthvarf Varnarliðsins og bendir á að allt rafkerfið á Vellinum sé keyrt í gegn um spenna Varnarliðsins. Innlent 23.3.2006 06:58
Lítið þokast í viðræðum Lítill sem enginn árangur var í gær af fundi þeirra fimm þjóða sem hafa neitunarvald í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna þegar þær hittust til að ræða málefni Írans. Erlent 23.3.2006 06:54
Kjaranefnd ákvarði laun embættismanna Stjórnarfrumvarp til laga um kjararáð verður lagt fram á Alþingi á næstu dögum. Í því er gert ráð fyrir að Kjaradómi og Kjaranefnd verði steypt saman í fimm manna kjararáð og mun það ákveða laun forseta, ráðherra, þingmanna og dómara. Nefnd allra þingflokka sem ríkistjórnin skipaði 30. janúar síðast, til að fara yfir lög um Kjaradóm og kjaranefnd skilaði inn niðustöðum sínum í gærkvöldi. Innlent 22.3.2006 22:37
Skiptar skoðanir innan Samfylkingarinnar um flugvöll Skiptar skoðanir eru um það innan þingflokks Samfylkingarinnar hvort Reykjavíkurflugvöllur eigi að víkja úr Vatnsmýrinni, en skoðanirnar grundvallast þó ekki á því hvort um er að ræða landsbyggðarþingmenn eða þingmenn á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram umræðum um staðsetningu sjúkraflugvéla í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Innlent 22.3.2006 22:15
Nígeríumenn í gæsluvarðhaldi vegna meintra fjársvika Tveir Nígeríumenn, búsettir á Spáni, sitja í gæsluvarðhaldi hér á landi eftir að þeir voru teknir með 100 þúsund evrur, jafnvirði hátt í níu milljóna króna, í fórum sínum á leið úr landi á föstudaginn var. Innlent 22.3.2006 22:08
Pólverji áfram í gæsluvarðhaldi fyrir austan Gæsluvarðhald yfir Pólverja, sem handtekinn var með fíkniefni á Seyðisfirði 7. mars síðastliðinn, hefur verið framlengt til 19. apríl. Þrjú kíló af hassi og nærri fimmtíu grömm af kókaíni fundust við tolleftirlit í bíl hans við komu Norrænu til Seyðifjarðar og var hann úrskurðaður í gæsluvarðhald til dagsins í dag. Innlent 22.3.2006 22:05
Umfjöllun um matvælaverð ósanngjörn Ekki er sanngjarnt að segja að matvöruverslanir hriði gengishagnað af neytendum eins og Blaðið hélt fram í umfjöllun sinni um matvælaverð nú fyrir skömmu. Þetta segja Félag íslenskra stórkaupmanna og Samtök verslunar og þjónustu í yfirlýsingu sem þau hafa sent frá sér. Innlent 22.3.2006 21:12
Samfylkingarmenn hlynntastir aðild að Evrópusambandinu Meirihluti Framsóknarmanna og Samfylkingarmanna vilja að Íslendingar taki upp aðildarviðræður við Evrópusambandið samkvæmt nýrri Gallup-könnun. Eins við greindum frá í fréttum okkar fyrr í dag þá eru tæplega fjörtíu og eitt prósent landsmanna hlynntir aðild að Evrópusambandinu. Þegar við skoðum hins vegar hvernig hlutfallið skitpist eftir því hvaða flokk fólk ætlar að kjósa kemur í ljós að Samfylkingarmenn eru hlynntastir aðild að sambandinu. Innlent 22.3.2006 21:10
Samstaða á þingi gegn forgangsgreiðslum Samhljómur var um það meðal þingflokka í utandagskrárumræðu á Alþingi í dag ekki skuli heimila efnameira fólki að kaupa sig fram fyrir á biðlistum í heilbrigðiskerfinu. Heilbrigðisráðherra tilkynnti við umræðurnar að til stæði að leggja fram frumvarp um ný heilbrigðislög nú á vorþingi. Innlent 22.3.2006 17:24
Vill stuðning við baráttu gegn tollum Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra hvatti breska hagsmunaaðila í sjávarútvegi í gær til að styðja Íslendinga í baráttunnin fyrir það að Evrópusambandið aflétti þeim tollum sem eru nú lagðir á íslenskar sjávarafurðir við innflutning til landa Evrópusambandsins. Innlent 22.3.2006 15:32
Áfrýjað í Baugsmálinu Sigurður Tómas Magnússon, settur saksóknari í Baugsmálinu, hefur ákveðið að áfrýja sýknudómi Héraðsdóms Reykjavíkur frá í síðustu viku. Hann áfrýjar sýknun í sex af átta ákæruliðum. Innlent 22.3.2006 15:52
Sjómenn í meiri lífshættu eftir brottflutning varnarliðsþyrlna Sjómenn verða í mun meiri lífshættu eftir að þyrlur varnarliðsins fara, ef ekki verður bætt úr þyrluflota Landhelgisgæslunnar. Þetta segir varaformaður Vélstjórafélags Íslands. Innlent 22.3.2006 15:38
Fagna flutningi starfa út á land Þingmenn úr öllum flokkum fögnuðu því á Alþingi í dag að starfsemi Fæðingarorlofssjóðs skuli flutt í Húnavatnssýslur. Þeir sögðu að með því væri stutt við atvinnulíf á landsbyggðinni. Innlent 22.3.2006 15:38
Rafgeymar splundruðust yfir all stórt svæði Ílát sem notað er til flutnings á notuðum rafgeymum valt af bíl frá Flytjanda í gærkvöldi. Við það splundruðust rafgeymar sem voru í ílátinu yfir all stórt svæði. Óhappið varð um klukkan sjö í gærkvöldi við rætur Öxnadalsheiðar. Hreinsunarstarf gekk vel en fimmtán manns frá Brunavörnum Skagafjarðar og Björgunarsveitinni í Varmahlíð stóðu að hreinsuninni fram undir miðnætti í gær. Innlent 22.3.2006 15:17
Dæmdur fyrir umferðarlagabrot Rúmlega þrítugur Selfyssingur var í dag dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir fjársvik og umferðarlagabrot. Innlent 22.3.2006 15:20
Áreitti tvær ungar stúlkur Karlmaður var í dag dæmdur til tveggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að áreita tvær ungar stúlkur á heimili sínu í Kópavogi. Maðurinn hafði boðið stúlkunum heim til sín. Þar þótti sýnt að hann hefði kysst aðra stúlkuna á handlegg og háls og látið hina stúlkuna kyssa sig. Innlent 22.3.2006 15:10
Bílvelta nærri Varmahlíð Ökumaður velti bíl sínum rétt fyrir utan Varmahlíð um klukkan þrjú. Að sögn lögreglunnar á Sauðarkróki er lögreglan á staðnum en bílstjórinn virðist hafa misst stjórn á bílnum í hálku með fyrrgreindum afleiðingum. Innlent 22.3.2006 15:08
Níu menn dæmdir til dauða Dómstóll í Jórdaínu hefur dæmt níu íslamska öfgamenn til dauða fyrir þátt þeirra í óeirðum sem kostuðu sjö manns lífið í suðurhluta landsins árið 2002. Fjórir mannanna hafa ekki verið teknir höndum en voru dæmdir þrátt fyrir það. Erlent 22.3.2006 14:08
Afrískum flugfélögum bannað að lenda innan ESB Evrópusambandið hefur lagt blátt bann við því að hátt hundrað alþjóðaflugfélög fái að lenda á flugvöllum sambandaríkja. Flest flugfélögin eru afrísk, rúmlega helmingur félaganna er með aðsetur í Kongó, 14 í Sierra Leone og 7 í Svasílandi. Erlent 22.3.2006 13:51
Hagvexti spáð í Bretlandi Hagvöxtur verður á bilinu 2 - 2,5% í Bretlandi í ár. Þetta sagði Gordon Brown, fjármálaráðherra, þegar hann kynnti fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár í dag. Það er lítil breyting frá mati hans í lok síðasta árs. Erlent 22.3.2006 13:47
Fuglaflensa á Gasa-ströndinni Hið banvæna H5N1 afbrigði fuglaflensu hefur greinst á Gasa-ströndinni. Talsmaður Palestínumanna í landbúnaðarmálum tilkynnti þetta í dag. Erlent 22.3.2006 13:43
Eldur í kjarnorkuveri Eldur kviknaði í kjarnorkuveri í Vestur-Japan í morgun. Stjórnendur versins segja þó enga hættu á því að geislavirk efni leki út. Tveir starfsmenn voru fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar. Erlent 22.3.2006 13:39
Flugmálastjórnir settar undir einn hatt Flugmálastjórn á Keflavíkurflugvelli verður lögð niður í núverandi mynd og starfsemi hennar flutt undir Flugmálastjórn Íslands. Samgönguráðherra segir hægt að ná fram mikilli hagræðingu með þessum hætti en segir þetta ekki þurfa að hafa mikil áhrif á það fólk sem þar vinnur. Innlent 22.3.2006 13:32
Kínverjar hjálpa við þróun bóluefnis Kínverjar hafa ákveðið að afhenda Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni sýni úr dýrum sem sýkt eru af fuglaflensu. Stjórnvöld í Peking hafa verið sökuð um að liggja á sýnum líkt og ormar á gulli til að tryggja forskot kínverskra vísindamanna í þróun á bóluefni. Erlent 22.3.2006 12:21
Misheppnað bankarán í Þýskalandi Bankarán fór út um þúfur í Þýskalandi með eftirminnilegum hætti í morgun. Lögregla beið ræningjanna eftir að hafa fengið nafnlausa ábendingu og þeir hrökkluðust því á flótta án þess að festa hönd á nokkrum ránsfeng. Erlent 22.3.2006 12:18
Hagnaður Bertelsmanns jókst Hagnaður þýsku fjölmiðlasamsteypunnar Bertelsmann AG jókst um 12,7 prósent á síðasta ári. Aukningin er að mestu komnar frá sjónvarpsdeild samsteypunnar, vegna sölu á nýjustu skáldsögu spennusagnahöfundarinnar John Grisham og útgáfu á nýju bílablaði. Viðskipti erlent 22.3.2006 13:03