Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Aron Guðmundsson skrifar 21. maí 2026 07:32 Einar Karl Birgisson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar (til vinstri / Aðsend ljósmynd: Jóhann Jóhannsson tók) og Baldur Þór Ragnarsson, fyrrverandi þjálfari Stjörnunnar sem gerði liðið að Íslandsmeisturum í fyrsta sinn í sögunni árið 2025. Jóhann Jóhannsson (Mynd af Einari) / Hulda Margét (Mynd af Baldri Þór) Einar Karl Birgisson, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar, segir pirring sem er til staðar sökum brotthvarfs Baldurs Þórs Ragnarssonar úr starfi þjálfara karlalið félagsins ekki stafa af því að hann hafi farið, heldur því með hvaða hætti hann hafi yfirgefið Stjörnuna. Leit að nýjum þjálfara gengur vel og er búist við því að formlegar viðræður hefjist í þessari viku.
Það kom mörgum í opna skjöldu þegar að greint var frá því að Baldur Þór Ragnarsson, sem gerði karlalið Stjörnunnar að Íslandsmeisturum í körfubolta í fyrsta sinn í sögunni árið 2025, hefði ákveðið að hætta þjálfun liðsins eftir nýafstaðið tímabil. Eins og það væri ekki nóg féll hakan nánast í gólfið þegar að greint var frá því að Baldur hefði verið ráðinn þjálfari Álftaness, nágrannaliðs Stjörnunnar í Garðabæ. Forráðamenn Stjörnunnar voru ekki á leið í þjálfaraleit en skjótt skipast veður í lofti. „Við héldum að Baldri liði vel í Stjörnunni og hann er stór hluti af því umhverfi sem við erum búin að skapa í kringum körfuboltann síðustu tvö ár,“ segir Einar Karl, formaður körfuknattleiksdeildar Stjörnunnar í samtali við Vísi. Sagði upp degi eftir leik „Auðvitað vissum við hann gæti sagt samningi sínum upp á þessum tímapunkti og við lögðum okkur alla fram við að halda honum. Enda einn af betri þjálfurum deildarinnar. Auðvitað gat hann farið, það var vitað. En hvernig hann fór er meira það sem að situr í okkur.“ Umrædd ákvörðun Baldurs kom degi eftir að Stjarnan féll úr leik í undanúrslitum Bónus deildarinnar gegn Tindastól eftir oddaleik í Síkinu á Sauðárkróki. „Hann nýtti sér uppsagnarákvæði sem var í samningnum daginn eftir síðasta leik gegn Tindastól. Síðan höfum við verið að vinna út frá því.“ „Baldur tók þessa ákvörðun“ Hlynur Bæringsson, einn allra besti körfuboltamaður Íslands frá upphafi og Íslandsmeistari með Stjörnunni á sínum tíma undir stjórn Baldurs sagði frá því í körfuboltakvöldi að pirringur væri meðal Stjörnufólks vegna ákvörðunar Baldurs. Einar endurómar þau orð. „Já það er mikill pirringur. Pirringurinn snýr ekki að því að hann skyldi fara. Heldur því hvernig hann fór. Ég skil að áhorfendur, stuðningsmenn og styrktaraðilar sem ekki sátu við samningaborðið séu pirraðir. Ég skil það mjög vel. Einar Karl með Íslandsbikarinn eftir frækinn sigur Stjörnunnar í Síkinu í oddaleik árið 2025Aðsend mynd Ég er bara kominn í næsta verkefni. Að ráða nýjan þjálfara fyrir Stjörnuna. Metnaður okkar er áfram sá að verða Íslandsmeistari árið 2027. Baldur tók þessa ákvörðun. Við höfum ekkert um hana að segja annað en að við þurfum að halda áfram. Tryggja okkur með lið og þjálfara sem getur unnið deildina.“ Setur þetta svartan blett á ykkar samstarf? Hvernig mun sagan dæma þetta samstarf ykkar? „Tíminn verður að leiða það í ljós. Við berum engan kala til Baldurs. Hann vann með okkur fyrsta Íslandsmeistaratitilinn og það tekur það enginn af honum. En við höfum engan tíma til þess að vera úti í sólbaði. Þurfum að halda áfram á þeirri vegferð sem við erum á. Að klára ráðningu nýs þjálfara.“ Íslandsmeistaratitli fagnað í Síkinu árið 2025vísir/hulda margrét Svíður það að Baldur hafi gerst þjálfari hjá nágrönnum ykkar í Álftanesi? „Nei í raun og veru ekki. Við teljum okkur vera með þannig umhverfi að ef þjálfara vilja ekki vinna í því umhverfi þá endar samstarf svona. Það eru það margir sem vilja þjálfa Stjörnuna að ég kvíði framtíðinni ekki neitt.“ Nálgast ráðningu á þjálfara Og leitin að arftaka Baldurs gengur vel og segir Einar að starfið sem unnið hefur verið í Garðabæ undanfarin tvö ár vinni nú með Stjörnunni. „Hefur orðið til þess að margir íslenskir og erlendir þjálfarar vilja þjálfa Stjörnuna. Það hefur meira verið vinna fyrir okkur að hitta og tala við alla þá sem hafa þann metnað að leiða okkur áfram til þess að verða aftur Íslandsmeistarar. Sú vinna hefur tekið smá tíma. Við erum búnir að þrengja hópinn og ég vænti þess að formlegar viðræður við næsta þjálfara Stjörnunnar hefjist fyrir vikulok.“ Ægir Þór Steinarsson er einn af lykilmönnum Stjörnunnar.vísir / hulda margrét Hvað varðar lykilmenn Stjörnuliðsins á borð við Hilmar Smára Henningsson, Ægi Þór Steinarsson og Orra Gunnarsson segir Einar þau mál hluta af viðræðunum sem eru í gangi samhliða viðræðum við nýjan þjálfara Stjörnunnar. „Ægir og Orri eru meiddir eins og er en við erum á fullu núna að setja saman lið. Það bíður nýs þjálfara að vinna það með okkur.“
Bónus-deild karla Stjarnan UMF Álftanes Mest lesið 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Bakgarðsáskorunin: „Éta eða vera étinn“ Sport Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Sláttuvél tók á loft í Svíþjóð Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ Körfubolti Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Körfubolti Fleiri fréttir Reikna með Kane en vita ekki hvenær „Menn eru að reyna að vera með ábyrgan rekstur“ 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ „Þetta eru alvöru hermenn“ „Ótrúlegt að hann sé tveimur árum eldri en ég“ „Annars er mér bara fokking drullusama“ Uppgjörið: Sindri - ÍR 91-97| ÍR hélt út óvæntan spennutrylli í restina Uppgjörið: Álftanes - Höttur 111-77 | Meistaraefnin fóru illa með Hött Uppgjörið: Valur - Stjarnan 90-77 | 16 ára gutti stal senunni Uppgjörið: Ármann - Keflavík 90-108 | Keflavík með sannfærandi sigur í Laugardalnum Kristinn útskýrir allar reglubreytingar vetrarins Þekkir ekkert annað en pressu Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sjá meira