Fréttir
Dæmdar bætur vegna áhrifa lyfs Kviðdómur í Texas dæmdi í gær ekkju Bandaríkjamanns sem lést í kjölfar notkunar á verkjalyfinu Vioxx 253 milljónir bandaríkjadala í bætur. Það jafngildir 16,5 milljörðum króna. Búist er við að þessi upphæð lækki verulega við áfrýjun en hlutabréf í Merck's, sem framleiðir Vioxx, féllu skarpt þegar fréttirnar bárust. Erlent 13.10.2005 19:43
Gripnir með marijúana Þrír menn voru handteknir í nótt á Reykjanesbraut þar sem lítilræði af marijúana fannst við leit í bíl þeirra. Mennirnir voru látnir lausir eftir yfirheyrslu. Þá var tilkynnt um minni háttar líkamsárás í heimahúsi í Grindavík í nótt, en hún hefur ekki verið kærð. Innlent 13.10.2005 19:43
Ráðist á flokksskrifstofur í Írak Byssumenn réðust á skrifstofur Lýðræðisflokks Kúrdistans í Kirkuk í norðurhluta Íraks í dag og særðu þrjá menn sem stóðu vörð um skrifstofurnar. Árásin kom í kjölfar mótmæla í borginni á vegum arabískra stjórnmálamanna sem eru andvígir því að Írak verði sambandsríki. Þeir telja að með því muni Kúrdar ná völdum í borginni. Erlent 13.10.2005 19:43
Al-Kaída lýsti ábyrgð Þremur eldflaugum var skotið á skotmörk í Jórdaníu og Ísrael í gær. Ein sprakk rétt hjá bandarísku herskipi en önnur hafnaði nærri flugvelli. Einn maður lést í árásinni. Erlent 13.10.2005 19:43
Dönsk fyrirtæki krafin skýringa Rannsóknarnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur krafið yfir sjötíu dönsk fyrirtæki um skýringar á samskiptum sínum við Íraksstjórn meðan á olíusöluáætlun samtakanna stóð. Erlent 13.10.2005 19:43
Friðarmamman farin heim Friðarmamman Cindy Sheehan, sem hefur haldið til fyrir utan búgarð Bush forseta frá síðustu mánaðamótum gafst upp í gærkvöldi. Hún hafði heitið því að vera við búgarðinn í Texas þar til Bush hitti hana og svaraði spurningum hennar. Erlent 13.10.2005 19:43
Setning HR og Tækniháskólans Fyrsta skólasetning sameinaðs skóla, Tækniháskólans og Háskólans í Reykjavík var í dag. Metfjöldi umsókna er um vist í skólanum eða átján hundruð og fékk liðlega helmingur skólavist. Boðið verður upp á tíu nýjar námsbrautir, en meðal þeirra eru verkfræðigreinar sem ekki hefur verið boðið upp á hér á landi áður, svo sem fjármála- og heilbrigðisverkfræði. Innlent 13.10.2005 19:43
Verðbólga minnst á Íslandi Verðbólga mælist minnst á Íslandi af löndum á evrópska efnahagssvæðinu. Það skal þó tekið fram að í þessum mælikvarða er vísitala eigin húsnæðis ekki tekin með. Ef sú eining er tekin með mælist verðbólgan 3,7 prósent. Innlent 13.10.2005 19:43
Nú má guð bíða aðeins lengur 117 ára gömul kona, sem kann að vera sú elsta í heimi, gekkst í gær undir augnaðgerð. "Hér áður bað ég guð um að fara að taka við mér en nú þoli ég að bíða aðeins lengur," sagði Hanna Barisevitsj frá Hvíta-Rússlandi eftir að hún gekkst undir aðgerðina. Erlent 13.10.2005 19:43
Verðbólgukippur í aðsigi KB-banki spáir því að verðbólga taki kipp á næstu mánuðum. Ekkert lát er á hækkun fasteignaverðs. Nýjasta vísitölumæling sýnir hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu um 3,4 prósent á aðeins einum mánuði og hækkun á sérbýli um 50 prósent á einu ári. Innlent 13.10.2005 19:43
Ástæða fluglsyss enn óljós Frumrannsóknir á líkum farþeganna um borð í kýpversku farþegaþotunni sem fórst á Grikklandi í síðustu viku leiddu í ljós að engar líkur eru á að hættulegar lofttegundir hafi dreifst um vélina og valdið meðvitundarleysi eða dauða þeirra sem voru um borð. Erlent 13.10.2005 19:43
Aldnir mega aka rútum "Frá umferðaröryggissjónarmiði er þetta aldeilis út úr kú og ég mun beita mér fyrir því að þessu verði breytt," segir Birgir Hákonarson, framkvæmdastjóri umferðaröryggissviðs Umferðarstofu. Innlent 13.10.2005 19:43
Flestir ánægðir með innflytjendur Flestir Íslendingar eru tiltölulega ánægðir með innflytjendur hérlendis og áhrif þeirra á efnahagslífið, samkvæmt nýrri könnun Rauða kross Íslands. Þó vildi rúmur fimmtungur síður að múslímar byggju í nánd við þá. Innlent 13.10.2005 19:43
Disney sakað um arðrán Walt Disney fyrirtækið hefur fyrirskipað rannsókn á ásökunum á hendur verksmiðjum í Kína sem framleiða ýmsan varning fyrir fyrirtækið. Erlent 13.10.2005 19:43
Dróst 20 metra með vörubílnum Sjö voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur strætisvagns og vörubifreiðar á gatnamótum Laugavegs, Suðurlandsbrautar og Kringlumýrarbrautar á tíunda tímanum í gærmorgun. Innlent 13.10.2005 19:43
Innflytjendur hafa góð áhrif Meirihluti Íslendinga telur að innflytjendur hafi góð áhrif á efnahagslífið en aðeins sextán prósent telja áhrifin slæm. Þetta eru niðurstöður könnunar sem IMG Gallup gerði fyrir Rauða krossinn. Neikvæðustu viðhorfin eru gagnvart múslímum og geðfötluðum. Innlent 13.10.2005 19:43
BTK morðinginn dæmdur BTK-fjöldamorðinginn, Dennis Rader, var í gær dæmdur í ævilangt fangelsi fyrir dómstóli í Kansas í Bandaríkjunum. Rader sem er 60 ára gamall myrti 10 manns með hrottafengnum hætti í Kansas á árunum 1974 til 1991. Erlent 13.10.2005 19:43
Harma umferðaslys Stjórn og starfsmenn Strætó bs. sendu frá sér fyrir stundu yfirlýsingu þar sem þeir harma alvarlegt umferðarslys strætisvagns og vörubíls í Reykjavík í dag. Vagnstjórinn slasaðist alvarlega og er nú á gjörgæslu í kjölfar aðgerðar sem hann gekkst undir. Fjórir af sex farþegum vagnsins voru útskrifaðir eftir skoðun en tveir eru enn undir eftirliti lækna þó meiðsl þeirra séu ekki talin alvarleg. Innlent 13.10.2005 19:43
Gaslind finnst í Norðursjó Norska orku- og iðnfyrirtækið Hydro staðfesti í gær að það hefði fundið miklar gaslindir undan ströndum Noregs. Erlent 13.10.2005 19:43
Lögreglustjóri neitar ásökunum Yfirmaður Lundúnalögreglunnar, Ian Blair, neitar því staðfastlega að hafa reynt að hafa áhrif á rannsókn á dauða Brasílíumannsins Jean Charles de Menezes, sem lögreglumenn skutu til bana á neðanjarðarlestarstöð í Lundúnum í júlí. Erlent 13.10.2005 19:43
Frjálslyndir ætla ekki í samstarf Frjálslyndi flokkurinnn ætlar ekki í samstarf við Framsóknarflokkinn eða Samfylkinguna fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, en þetta kemur fram í yfirlýsingu frá borgarstjórnarflokki F-listans. Innlent 13.10.2005 19:43
Skólastarf hefst í dag Skólahald í grunnskólum Reykjavíkurborgar hefst á mánudaginn. Rúmlega fimmtán þúsund nemendur koma til með að stunda nám við skólana í vetur, sem er svipaður fjöldi og í fyrra.<font face="Helv"></font> Innlent 13.10.2005 19:43
Tildrög óljós Strætisvagnstjóri liggur alvarlega slasaður á gjörgæsludeild eftir að strætisvagn og vörubíll skullu saman á gatnamótum Suðurlandsbrautar, Laugavegar og Kringlumýrarbrautar um klukkan níu í morgun. Innlent 13.10.2005 19:43
Ian Blair segir ekki af sér Ian Blair, lögreglustjóri Lundúnaborgar, ætlar ekki að segja upp starfi sínu þrátt fyrir háværar kröfur þess efnis. Ástæðan eru rangfærslur hans eftir að brasilískur karlmaður var skotinn til bana í misgripum á neðanjarðarlestarstöð í borginni. Erlent 13.10.2005 19:43
Vill ekki flugvöll á Löngusker "Þeir hugsa nú bara um sjálfa sig þessir kappar og hugsa ekki um aðra," segir Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, og líst ekkert á hugmyndir um byggingu nýs flugvallar á Lönguskerjum sem borgaryfirvöld hafa rætt um við fulltrúa FL Group og dótturfélags þess, Flugfélags Íslands. Innlent 13.10.2005 19:43
Fjöldi mála í rannsókn Átakið Einn réttur - ekkert svindl sem Alþýðusamband Íslands hleypti af stokkunum í vor gengur vel en fjölmörg mál hafa komið til kasta þeirra tveggja starfsmanna sem með þau fara. Innlent 13.10.2005 19:43
Atvinnuleysi á Þingeyri Á þriðja tug manna eru nú atvinnulausir á Þingeyri í kjölfar lokunar fiskvinnslufyrirtækisins Perlufisks, en eigandi fyrirtækisins gerði einnig út tvo báta sem lögðu upp á staðnum. Innlent 13.10.2005 19:43
Bíða álits forsætisnefndar Þingflokkur Samfylkingarinnar hyggst bíða með að birta upplýsingar um fjárhags- og hagsmunatengsl þingmanna sinna þar til forsætisnefnd hefur fjallað um málið og ákveðið hvort setja skuli almennar reglur fyrir þingmenn um slíkt. Framsóknarmenn gagnrýna þetta og kalla eftir efndum. Innlent 13.10.2005 19:43
Grundfos mútaði ríkisstjórn Íraks Danska fyrirtækið Grundfos hefur gengist við því að hafa greitt embættismönnum í ríkisstjórn Saddams Hússeins mútur á þeim tíma sem áætlun Sameinuðu þjóðanna um olíu fyrir mat stóð yfir. Erlent 13.10.2005 19:43
Mestu eldar frá 1945 Skógareldarnir sem geysað hafa um norðurhluta Portúgals í allt sumar hafa kostað alls tíu slökkviliðsmenn lífið. Yfir 100 hús hafa brunnið til kaldra kola vegna þeirra og 17 verksmiðjur. Þá hafa um 500 byggingar við bóndabæi orðið eldinum að bráð og yfir 135 þúsund hektarar lands eyðilagst. Eldarnir í ár eru þeir mestu í Portúgal frá árinu 1945. Erlent 13.10.2005 19:43