Sveitarstjórnarkosningar 2026

Sveitarstjórnarkosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar kosningum til sveitarstjórna sem fram fara 16. maí 2026.

Fréttamynd

Ingi­björg Sól­rún biður Guð­mund Árna af­sökunar

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar segist á Facebook-síðu sinni hafa beðið Guðmund Árna Stefánsson, varaformann Samfylkingarinnar og oddvita flokksins í Hafnarfirði afsökunar á orðum sínum í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins þess efnis að hann hefði kannski mátt íhuga stöðu sína fyrr.

Innlent
Fréttamynd

Á­fellis­dómur fyrir ríkis­stjórnina

Formenn Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins segja niðurstöður sveitarstjórnarkosninganna áfellisdóm yfir ríkisstjórninni og vísbendingu um hvernig fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla fer. 

Innlent
Fréttamynd

Sam­fé­lagið eftir kosningar

Eftir kosningar hverfa skiltin, loforðin þagna, umræðan hægir á sér og lífið heldur áfram sinn vanagang. Börn mæta aftur í skólann á mánudagsmorgni, foreldrar fara í vinnuna og fólk heldur áfram að lifa inni í samfélaginu sem við höfum sameiginlega ákveðið að byggja. Kannski er það einmitt þess vegna sem kosningar skipta meira máli en bara út frá stjórnmálum. Þær snúast ekki eingöngu um framkvæmdir, fjármál eða hver situr við völd næstu árin. Þær snúast líka um það hvernig samfélag við viljum vera og hvernig manneskjur við viljum hjálpa til við að móta.

Skoðun
Fréttamynd

„Nú er Hildur'ann – línur verða logandi“

Borgarlínan gæti verið skipt öllu máli þegar næsti borgarstjórnarmeirihluti verður skrúfaður saman. Það segja þau Björg Magnúsdóttir hjá Viðreisn, Einar Þorsteinsson hjá Framsókn og Sanna Magdalena Mörtudóttur hjá Vinstrinu, sem mættu á Sprengisand og fóru yfir niðurstöður í nýafstöðnum sveitarstjórnarkosningum.

Innlent
Fréttamynd

Meirihlutaviðræður í vikunni

Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hyggst funda með oddvitum hinna flokkanna í vikunni með meirihlutaviðræður í huga eftir að flokkurinn vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum. Oddviti Samfylkingarinnar er „drullusvekktur“ á meðan oddviti Miðflokksins hampar honum fyrir varnarsigur.

Innlent
Fréttamynd

Bein út­sending: Kosningaveisla á Sprengi­sandi

Sprengisandur verður í kosningaham frá klukkan tíu þennan sunnudaginn eftir æsilega kosninganótt þar sem Sjálfstæðisflokkurinn vann stórsigur. Lykiloddvitar mæta í heimsókn og fara yfir stöðuna nú þegar atkvæði eru komin upp úr kjörkössunum.

Innlent
Fréttamynd

Stefán Páls­son og Vinstrið sleikja sárin

Stefán Pálsson, sem er þriðji maður á lista Vinstrisins í Reykjavík, sér fram á annað kjörtímabil á bekknum – sér til nokkurrar hrellingar. Framboðið náði tveimur mönnum inn í Reykjavík sem eru þá Sanna Magdalena Mörtudóttir og Líf Magneudóttir. Stefán sleikir sárin. Gauti B. Eggertsson hagfræðiprófessor telur að afskipti Kristrúnar Frostadóttur hafi verið mistök.

Innlent
Fréttamynd

Hildur með pálmann í höndunum

Sjálfstæðisflokkurinn situr í bílstjórasætinu eftir borgarstjórnarkosningar í Reykjavík í gær og getur ýmist myndað hægri meirihluta með Miðflokknum eða miðju hægri meirihluta með Framsókn og Viðreisn. Samfylkingin hefur aldrei fengið eins dræma kosningu í höfuðborginni og vinstri meirihluti er útilokaður.

Innlent
Fréttamynd

Mótframbjóðendur „hvísla ástar­orðum“

Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir að oddvitar annarra flokka séu farnir að hvísla ástarorðum eftir að Sjálfstæðisflokkurinn bar sigur úr býtum í sveitarstjórnarkosningum í nótt, samkvæmt nýjustu tölum.

Innlent
Fréttamynd

Loka­tölur úr Fjalla­byggð: Meiri­hlutinn heldur velli

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig einum fulltrúa frá síðustu kosningum og er með þrjá. Nýr listi, Listi fyrir heildina fær tvo. Listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar fær einnig tvo. Jafnaðarmannafélagið og Sjálfstæðisflokkur mynda í dag meirihluta og heldur hann velli samkvæmt þessu.

Innlent