Arsenal líklegast til að vinna Evrópudeildina Evrópudeildin í knattspyrnu hefst í kvöld með pompi og prakt. Tölfræðiveitan Gracenote hefur tekið saman hvaða lið er líklegast til að vinna keppnina í ár. Efstu tvö liðin koma frá Englandi. Fótbolti 8. september 2022 12:31
Strax búinn að toppa mínútur Helga Sig en á töluvert í að ná Árna Gauti og Eið Smára Hákon Arnar Haraldsson spilaði síðasta hálftímann er FC Kaupmannahöfn tapaði 3-0 gegn Borussia Dortmund í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á þriðjudaginn var. Þar með varð Hákon Arnar 15. Íslendingurinn til að leika í deild þeirra bestu. Fótbolti 8. september 2022 12:02
„Ekki hægt að vera reyna að klukka í heilan leik“ „Við vorum svo fjandi nálægt þessu. Ein og hálf mínúta eftir og maður var liggur við búin að kippa kampavínsflöskunni út en þá fáum við þetta rothögg. Er sárasta tapið,“ sagði Helena Ólafsdóttir um grátlegt tap Íslands gegn Hollandi í lokaleik undankeppni HM kvenna í fótbolta. Fótbolti 8. september 2022 11:30
Þakkar fyrir ógleymanlegan stuðning eftir útreiðina í Víkinni Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Leiknis í Reykjavík, setti inn færslu á samfélagsmiðilinn Twitter í morgun eftir 9-0 tap liðs hans fyrir Íslands- og bikarmeisturum Víkings í Bestu deild karla í gærkvöld. Hann þakkar fyrir stuðning úr stúkunni við svo erfiðar aðstæður. Íslenski boltinn 8. september 2022 10:30
„Hefur verið draumur síðan maður var lítill pjakkur í ÍA“ „Það var náttúrulega bara ótrúleg tilfinning að koma inn í svona stórum leik, hvað þá í Meistaradeildinni. Hefur verið draumur síðan maður var lítill pjakkur í ÍA. Þetta var bara ótrúlegt,“ sagði Hákon Arnar Haraldsson um innkomu sína í leik Borussia Dortmund og FC Kaupmannahafnar á þriðjudaginn var. Fótbolti 8. september 2022 09:31
Segja Chelsea hafa náð munnlegu samkomulagi við Potter Samkvæmt heimildum Sky Sports hefur Graham Potter samþykkt að verða næsti þjálfari enska úrvalsdeildarliðsins Chelsea. Enn á eftir að setja blek á blað en það virðist styttast í að Potter verði kynntur sem næsti þjálfari Lundúnaliðsins. Enski boltinn 8. september 2022 09:00
Segir að það þurfi aðeins einn kvenkyns þjálfara til að breyta landslaginu Phil Neville, fyrrverandi landsliðsþjálfari kvennalandsliðs Englands, þjálfar Inter Miami í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í dag. Hann segir að það þurfi aðeins einn kvenkyns þjálfara í deildina til að opna dyrnar fyrir enn fleiri. Fótbolti 8. september 2022 08:31
Sjáðu mörkin er Víkingum tókst næstum því að losna við metið slæma Íslandsmeistarar Víkings unnu 9-0 stórsigur á Leikni Reykjavík er liðin mættust í Bestu deild karla í gærkvöld. Víkingar voru þar með einu marki frá því að losna við met sem hefur fylgt þeim frá árinu 1993. Íslenski boltinn 8. september 2022 08:01
Lewandowski fyrstur til að skora þrennu fyrir þrjú félög í Meistaradeild Evrópu Robert Lewandowski er heldur betur að njóta lífsins í Katalóníu um þessar mundir en Barcelona festi kaup á þessum magnaðamarkahrók fyrr í sumar. Hann hóf tímabilið í Meistaradeild Evrópu með því að hlaða í þrennu í 5-1 sigri Börsunga. Fótbolti 8. september 2022 07:30
Ronaldo var upphafið af deilum Tuchel og Boehly Thomas Tuchel var rekinn úr starfi knattspyrnustjóra Chelsea í gær. Samband Tuchel við Todd Boehly, eiganda Chelsea, hafði verið slæmt í allt sumar en upphaf þess má rekja til hugsanlegra félagaskipta Cristiano Ronaldo frá Manchester United til Chelsea. Enski boltinn 8. september 2022 07:01
FH-ingar furða sig á rándýru Haukahúsi Viðar Halldórsson, formaður Fimleikafélags Hafnarfjarðar eða FH, hefur sent bæjarfulltrúum í Hafnarfirði opið bréf þar sem hann gagnrýnir harðlega fyrirætlanir um byggingu nýs knatthúss á Ásvöllum, til handa Haukum. Hann segir framkvæmdina mun dýrari en þörf sé á og með henni sé verið að kasta háum fjárhæðum „út um gluggann.“ Innlent 8. september 2022 07:01
Fékk sér Meistaradeildar húðflúr fyrir 14 árum en lék sinn fyrsta leik í kvöld Giovanni Simeone, leikmaður Napoli, lék sinn fyrsta leik í Meistaradeild Evrópu gegn Liverpool fyrr í kvöld og skoraði sitt fyrsta mark eftir hafa spilað í þrjár mínútur. Napoli vann leikinn 4-1. Fótbolti 7. september 2022 23:26
Klopp: Úlfarnir geta ekki hætt að hlæja að okkur Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segir að liðið sitt verði að enduruppgötva sig eftir 4-1 tapið gegn Napoli í Meistaradeild Evrópu fyrr í kvöld. Fótbolti 7. september 2022 23:00
Umfjöllun og viðtöl: Víkingur 9-0 Leiknir | Víkingar jöfnuðu met þegar þeir niðurlægðu Leikni Víkingar rótburstuðu Leikni úr Breiðholti í Bestu deild karla í kvöld. Lokatölur 9-0 þar sem Leiknismenn sáu ekki til sólar.Fyrsta mark Víkinga kom á 14.mínútu og svo komu mörkin á færibandi. Staðan í hálfleik var 5-0 og eftir 42 sekúndur í síðari hálfleik var staðan orðin 6-0. Víkingar stigu aldrei af bensíngjöfinni en með sigrinum jafna þeir metið yfir stærsta sigur í sögu efstu deildar. Íslenski boltinn 7. september 2022 22:20
Arnar hugsaði út í metið: Aðalatriðið að taka ekki fótinn af pedalanum „Frammistaðan var nánast fullkomin. Ég bað um svör eftir síðasta leik og fékk þau svo sannarlega, ég átti nú ekki von á þessu,“ sagði Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga eftir 9-0 sigur liðsins á Leikni í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 7. september 2022 21:38
Napoli ekki í miklum vandræðum með Liverpool Napoli vann öruggan 4-1 sigri á heimavelli gegn lánlausu liði Liverpool í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 7. september 2022 21:30
Hasar og dramatík í Madríd | Tvenna Richarlison kláraði Marseille Fyrstu umferð Meistaradeildar Evrópu er formlega lokið. Atletico Madrid vann hádramatískan 2-1 sigur á Porto, Tottenham vann tveggja marka sigur á Marseille á meðan Club Brugge vann Bayer Leverkusen óvænt, 1-0. Fótbolti 7. september 2022 21:15
Sané sá um Inter Bayern München vann 0-2 útisigur gegn Inter á San Siro í C-riðli Meistaradeildar Evrópu þar sem Leroy Sané sá um mörkin. Fótbolti 7. september 2022 20:59
Lewandowski skoraði þrennu í fyrsta Meistaradeildarleiknum með Barcelona Robert Lewandowski var frábær í 5-1 sigri Barcelona á Viktoria Plzen í C-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Fótbolti 7. september 2022 20:45
Fær ekki að dæma næstu helgi eftir afdrifarík mistök Lee Mason, dómari í ensku úrvalsdeildinni, fær ekki að sinna myndbandsdómgæslu næstu helgi eftir mistök hans í leik Crystal Palace og Newcastle í síðustu umferð. Enski boltinn 7. september 2022 20:00
Rangers fékk skell í endurkomunni | Öruggur sigur hjá Sporting í Frankfurt Fyrstu tveimur leikjunum kvöldsins í Meistaradeild Evrópu er lokið en Ajax og Sporting unnu þar stórsigra. Fótbolti 7. september 2022 18:45
Carragher óviss: Þetta er miskunnarlaust félag Jamie Carragher, sérfræðingur á Sky Sports og fyrrum leikmaður Liverpool til fjölda ára, kveðst óviss um hvort það væri rétt skref fyrir Graham Potter, þjálfara Brighton, að taka við Chelsea. Lundúnafélagið hefur haft samband við stjórann í dag. Enski boltinn 7. september 2022 18:31
Stuðningsmönnum Liverpool ráðlagt að klæðast ekki treyju liðsins í Napolí Seinna í kvöld verður Liverpool í heimsókn hjá Napoli í fyrsta leik beggja liða í Meistaradeild Evrópu á þessu tímabili. Enska félagið ráðleggur öllum stuðningsmönnum sem fylgdu liðinu til Ítalíu að hafa varan á. Fótbolti 7. september 2022 18:00
Terry spenntur: „Hann tikkar í öll box“ John Terry, fyrrum fyrirliði Chelsea til fjölda ára, kveðst mjög spenntur fyrir möguleikanum að Graham Potter þjálfi félagið. Thomas Tuchel var sagt upp störfum í morgun. Enski boltinn 7. september 2022 16:45
„Lögfræðingurinn minn mun hafa nóg að gera“ Maurizio Sarri, þjálfari Lazio á Ítalíu, er undir rannsókn ítalskra fótboltayfirvalda vegna ummæla í garð dómara um helgina. Lið hans tapaði 2-1 fyrir Napoli. Fótbolti 7. september 2022 16:31
Barcelona kaupir dýrasta leikmann heims Barcelona hefur gengið frá kaupum á Evrópumeistarann Keiru Walsh frá Manchester City á Englandi. Hún verður dýrasta knattspyrnukona sögunnar með skiptunum. Fótbolti 7. september 2022 16:00
Fær ekki að spila með landsliðinu meðan hann leikur í Rússlandi Norska knattspyrnusambandið hefur bannað Mathias Normann frá þátttöku í landsleikjum á meðan hann er á snærum rússnesks fótboltafélags. Þetta er vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Fótbolti 7. september 2022 15:30
Segir bölvun hvíla á treyju númer níu hjá Chelsea Pierre Emerick-Aubameyang skrifaði undir hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea á dögunum. Hann mun klæðast treyju númer níu hjá félaginu en talið er að það hvíli á henni bölvun. Má eflaust færa rök fyrir því með því að benda á hvernig fyrsti leikur Aubameyang í téðri treyju fór og hvað gerðist í kjölfarið. Enski boltinn 7. september 2022 14:10
Liverpool þarf að stöðva „Kvaradona“ ef það ætlar heim með stig Meistaradeild Evrópu í fótbolta er farin á fullt á nýjan leik og verður leikur Napoli og Liverpool sýndur beint á Stöð 2 Sport 2 í kvöld. Gestirnir frá Bítlaborginni þurfa að stöðva manninn sem kallaður er „Kvaradona“ ætli þeir sér heim með stig eða þrjú í farteskinu. Fótbolti 7. september 2022 13:01
Rétta þarf aftur í máli Ryan Giggs Kviðdómi í máli Ryan Giggs tókst ekki að komast að niðurstöðu eftir að hafa rætt málið saman í alls tuttugu klukkustundir. Réttað verður aftur í málinu þann 31. júlí á næsta ári. Enski boltinn 7. september 2022 12:30
Dagur brjálaður á blaðamannafundi: Króatía eins og frosinn kjúklingur í skyndibitakeðju EHF Handbolti
Um 150 Íslendingar í höllinni: „Fjárhagslega höfum við ekki bolmagn í að kaupa mörg hundruð miða“ Handbolti