Arnar biðst afsökunar | „Ekkert eðlilega hallærisleg ummæli“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlaliðs Víkings Reykjavíkur í knattspyrnu, hefur beðist afsökunar á ummælum sem hann lét falla í viðtali við Fotbolti.net í gær. Íslenski boltinn 16. maí 2023 08:31
Safna í fótboltalið með barneignum Fyrrverandi knattspyrnumaðurinn Garðar Gunnlaugsson og Fanney Sandra Albertsdóttir, fegurðardrottning, flugfreyja og förðunarfræðingur, eiga von sínu öðru barni saman, en um er að ræða sjötta barn Garðars. Lífið 16. maí 2023 08:00
Spiluðu í fyrsta skipti samskipti dómara í vafasömum atvikum Howard Webb, formaður dómarasamtakanna PGMOL í Englandi, var gestur í þættinum Monday Night Football á Sky Sports í gærkvöldi. Þætti sem var afar áhugaverður fyrir hinn almenna knattspyrnuáhugamann sökum þess að þar voru í fyrsta skipti opinberuð samtöl dómara og VAR-dómara í nokkrum af vafasömustu atvikum yfirstandandi tímabils í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 16. maí 2023 07:31
Ömurlegir mánuðir fyrir íþróttaaðdáendur í Philadelphia Sértu frá Philadelphia í Bandaríkjunum og elskar íþróttir má reikna með að það sé heldur þungt yfir þér um þessar mundir. Það hefur bókstaflega ekkert gengið upp hjá íþróttaliðum borgarinnar undanfarna sex mánuði. Sport 15. maí 2023 23:30
Vinstri bakvörður sem enginn þekkir í hópi með De Bruyne og Messi Þegar stoðsendingahæstu knattspyrnumenn Evrópu eru skoðaðir stendur eitt nafn sérstaklega upp úr. Það er Leif Davis, vinstri bakvörður Ipswich Town. Hefur hann gefið tvöfalt fleiri stoðsendingar en leikmenn á borð við Martin Ödegaard, Jack Grealish og Bruno Fernandes. Enski boltinn 15. maí 2023 22:32
„Ekkert nálægt því að vera eins og píkur“ Ummæli þjálfara Víkings í úrvalsdeild karla þar sem hann sagði sig og leikmenn sína hafa verið „algjörar píkur í fyrra“ hafa vakið mikla athygli. Keppast netverjar við að gagnrýna ummælin og segja líkingarmálið í ósamræmi við veruleikann. Fótbolti 15. maí 2023 22:11
Liverpool getur ekki hætt að vinna og lætur sig dreyma um Meistaradeild Evrópu Liverpool vann einstaklega þægilegan 3-0 sigur á Leicester City í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sigurinn heldur vonum Liverpool um Meistaradeildarsæti á lífi. Enski boltinn 15. maí 2023 21:00
Hulda Ósk: Ákvað að dúndra á markið Þór/KA vann 2-0 sigur á Breiðablik í Boganum á Akureyri í kvöld í 4. umferð Bestu deildar kvenna. Hulda Ósk Jónsdóttir skoraði fyrra mark leiksins og átti góðan leik á hægri vængnum. Íslenski boltinn 15. maí 2023 20:55
Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Breiðablik 2-0 | Blikar sáu aldrei til sólar í Boganum Þór/KA vann 2-0 sigur á Breiðablik í Boganum á Akureyri í dag. Hulda Ósk Jónsdóttir kom Þór/KA í forystu í fyrri hálfleik og Sandra María Jessen kláraði leikinn með marki í uppbótartíma. Íslenski boltinn 15. maí 2023 20:00
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Þróttur 3-0 | Eyjakonur skelltu toppliðinu Þrátt fyrir að vera á toppi Bestu deildar kvenna í knattspyrnu þegar 4. umferð hófst þá fengu Þróttarar skell í Vestmannaeyjum. Eyjakonur unnu frábæran 3-0 sigur og sendu gestina heim með skottið á milli lappanna. Íslenski boltinn 15. maí 2023 20:00
Tímabilið sem aldrei fór af stað hjá Pogba er nú lokið Endurkoma Paul Pogba til Juventus í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, hefur verið þyrnum stráð. Hann hefur lítið sem ekkert spilað vegna meiðsla og fór tárvotur af velli í gær vegna meiðsla eftir að hafa loks fengið að byrja leik. Fótbolti 15. maí 2023 19:30
Mikið um meiðsli í Keflavík Ekki nóg með að Keflavík hafi tapað 0-2 gegn HK á „heimavelli“ heldur yfirgaf spænski varnarmaðurinn Nacho Heras völlinn í skjúkrabíl ásamt því að fyrirliði liðsins, Magnús Þór Magnússon, og Dagur Ingi Valsson gátu ekki klárað leikinn vegna meiðsla og eymsla. Íslenski boltinn 15. maí 2023 19:00
Lánsmaðurinn ekki meira með á tímabilinu Marcel Sabitzer mun ekki leika meira með Manchester United á tímabilinu. Hann er á láni frá Bayern München. Enski boltinn 15. maí 2023 18:01
Börsungar áttu fótum sínum fjör að launa undan æstum bullum Nýkrýndir Spánarmeistarar Barcelona þurftu að spretta úr spori í gær og flýja eftir að æstar fótboltabullur Espanyol fengu sig fullsadda af fagnaðarlátum liðsins eftir leik liðanna í gærkvöldi. Fótbolti 15. maí 2023 16:00
Arnar þakkar Heimi fyrir | „Vorum algjörar píkur í fyrra“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkings Reykjavíkur í Bestu deild karla, er þakklátur Heimi Guðjónssyni þjálfara FH eftir að sá síðarnefndi sagði lið Víkings vera það grófasta í deildinni. Arnar segir þetta hrós fyrir sína menn því þeir hafi verið „algjörar píkur í fyrra.“ Íslenski boltinn 15. maí 2023 14:06
Upphitun fyrir Bestu kvenna: Vinkonurnar mætast Fjórða umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta hefst í kvöld með tveimur leikjum en umferðin klárast svo með þremur leikjum á morgun. Að vanda hitar Helena Ólafsdóttir upp fyrir umferðina. Íslenski boltinn 15. maí 2023 13:00
Settir í bann eftir að hafa neitað að bera regnbogaliti Nokkrir leikmanna franska úrvalsdeildarfélagsins Toulouse í knattspyrnu voru fjarlægðir úr leikmannahópi félagsins fyrir leik gegn Nantes í frönsku úrvalsdeildinni í gær eftir að þeir neituðu að spila í treyjum með regnbogalituðum númerum. Fótbolti 15. maí 2023 12:31
Sló í brýnu milli fyrrum liðsfélaga í Liverpool Fernando Torres, fyrrum framherji enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool fékk að líta rauða spjaldið í leik undir 19 ára liða Atletico Madrid og Real Madrid um nýliðna helgi. Brottreksturinn hlaut Torres eftir að hann hótaði fyrrum liðsfélaga sínum hjá Liverpool, Alvaro Arbeloa. Fótbolti 15. maí 2023 11:32
Lyngby áfrýjar umdeildu leikbanni Sævars Atla Íslendingalið Lyngby í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu hefur áfrýjað guli spjaldi sem Sævar Atli Magnússon fékk í leik gegn Silkeborg IF um nýafstaðna helgi. Spjaldið veldur því að Sævar er í banni í næsta leik liðsins. Fótbolti 15. maí 2023 11:01
Kjartan harmar sparkið en segir olnbogaskotið óviljaverk Kjartan Henry Finnbogason hefur sent frá sér skilaboð í kjölfar þess að hafa víða verið sakaður um fautaskap í leik með FH gegn Víkingi í Bestu deildinni í fótbolta í gærkvöld. Íslenski boltinn 15. maí 2023 09:29
„Hann lítur til hliðar og lemur hann í andlitið“ Það var mikill hiti í mönnum í leik Víkings og FH í Bestu deild karla í fótbolta í gærkvöldi og eftir leikinn töluðu báðir þjálfarar liðanna, Arnar Gunnlaugsson og Heimir Guðjónsson, um grófan leik andstæðinganna. Íslenski boltinn 15. maí 2023 09:19
Sjáðu þrumu Örvars beint úr aukaspyrnu og öll hin mörkin úr Bestu í gær Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og lauk þar með sjöundu umferð deildarinnar. Hér má sjá mörkin úr leikjunum í gær. Íslenski boltinn 15. maí 2023 09:01
Myndskeið varpar ljósi á góðmennsku Jóns Daða Íslenska atvinnu- og landsliðsmanninum Jóni Daða Böðvarssyni er hrósað í hástert á samfélagsmiðlinum Twitter eftir að myndband af honum, að gefa sér tíma til þess að sinna ungum stuðningsmanni Bolton Wanderers, skaut upp kollinum á miðlinum. Fótbolti 15. maí 2023 08:01
Hodgson um tapið gegn Íslandi: „Auðvelt að falla í þá gryfju að sumir hlutir gangi einfaldlega ekki upp“ Sparkspekingurinn og landsliðsmaðurinn fyrrverandi Gary Neville ræddi við Roy Hodgson, þjálfara Crystal Palace, í nýjasta þætti af The Overlap. Ræddu þeir frækinn 2-1 sigur Íslands á Englandi á EM 2016. Það var síðasti leikur Roy með enska landsliðið. Fótbolti 15. maí 2023 07:01
Hareide ræddi við Gylfa á fimmtudag Åge Hareide, nýr þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segist áhugasamur um að fá Gylfa Þór Sigurðsson til að spila með liðinu. Hann ræddi við Gylfa á fimmtudaginn í síðustu víku. Fótbolti 15. maí 2023 06:24
Leik hætt eftir að stuðningsfólk kastaði reyksprengjuminn á völlinn Leik Groningen og Ajax í hollensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu var hætt eftir að stuðningsfólk heimaliðsins kastaði reyksprengjum inn á völlinn. Fótbolti 14. maí 2023 23:00
„Gekk einfaldlega allt upp hjá okkur í dag“ Fylkir vann glæsilegan 3-1 sigur á Fram í Bestu deild karla. Fyrir leik voru fyrstu bikarhafar Fylkis heiðraðir og strákarnir náðu í þrjú stig fyrir þá hér í kvöld. Rúnar Páll Sigmundsson var að vonum ánægður með sigurinn og sagði að þetta hafi verið einn af þessum leikjum þar sem allt gekk upp. Íslenski boltinn 14. maí 2023 22:40
„Arnar Gunnlaugsson talar oft mikið og Víkingur er grófasta liðið í deildinni“ Heimir Guðjónsson var ánægður með síðari hálfleik sinna manna eftir 2-0 tap FH gegn toppliði Víkings í Fossvogi. Heimir var hins vegar ekki parsáttur með ummæli Arnars Gunnlaugssonar, þjálfara Víkings, um að FH-ingar hafi komið út í síðari hálfleikinn til að meiða leikmenn Víkinga. Íslenski boltinn 14. maí 2023 21:57
„Ef þú ætlar að gera það segi ég bara „Fuck you“ og við svörum í sömu mynt“ Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga sem sitja á toppi Bestu deildar karla í knattspyrnu, var allt annað en sáttur með FH-inga í kvöld. Sagði Arnar að andstæðingur kvöldsins hefði einfaldlega lagt upp úr að meiða sína menn. Íslenski boltinn 14. maí 2023 21:40
Umfjöllun og viðtöl: Fylkir – Fram 3-1 | Heimamenn komu til baka og lyftu sér af botninum Fylkir kom til baka gegn Fram í 7. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu eftir að lenda 0-1 undir. Sigur Fylkis þýðir að KR er komið á botn Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 14. maí 2023 21:15