Íslenski boltinn

Sjáðu þrumu Örvars beint úr aukaspyrnu og öll hin mörkin úr Bestu í gær

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Örvar Eggertsson heldur áfram að raða inn mörkum í Bestu deild karla í fótbolta.
Örvar Eggertsson heldur áfram að raða inn mörkum í Bestu deild karla í fótbolta. Vísir/Hulda Margrét

Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær og lauk þar með sjöundu umferð deildarinnar. Hér má sjá mörkin úr leikjunum í gær.

Nýliðar HK héldu áfram að safna stigum og að þessu sinni með 2-0 sigri á Keflavík á útivelli. Arnþór Ari Atlason skoraði fyrra markið en það síðara skoraði Örvar Eggertsson með þrumuskoti beint úr aukaspyrnu.

Víkingar eru áfram með fullt hús en þeir unnu 2-0 sigur á FH í Víkinni í gær þar sem þeir Birnir Snær Ingason og Nikolaj Hansen skoruðu mörk liðsins í fyrri hálfleiknum.

Framarar komust 1-0 yfir á móti Fylki í Árbænum en Fylkismenn svöruðu með þremur mörkum í röð, unnu sinn annan leik í sumar og hoppuðu upp úr fallsætinu.

Hér fyrir neðan má sjá mörkin átta sem voru skoruð í Bestu deild karla í gær.

Klippa: Mörkin úr leik Víkings og FH
Klippa: Mörkin úr leik Keflavíkur og HK
Klippa: Mörkin úr leik Fylkis og Fram



Fleiri fréttir

Sjá meira


×