Real Madrid tapaði og Börsungar með níu fingur á titlinum Real Madrid mátti þola 2-0 tap er liðið heimsótti Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fyrr í kvöld vann Barcelona 1-0 sigur gegn Osasuna og Börsungar eru því komnir með níu fingur á spænska meistaratitilinn. Fótbolti 2. maí 2023 21:57
Kristján: Eigum að klára leikinn í upphafi seinni hálfleiks Kristján Guðmundsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum ánægður með 1-0 sigur liðsins gegn ÍBV í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 2. maí 2023 21:52
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - ÍBV 1-0 | Gunnhildur Yrsa tryggði Stjörnunni fyrsta sigurinn Stjarnan lagði ÍBV í 2. umferð Bestu deildar kvenna 1-0 í kvöld. Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoraði eina mark leiksins um miðjan fyrri hálfleikinn. Íslenski boltinn 2. maí 2023 21:44
Arsenal kláraði Lundúnaslaginn í fyrri hálfleik og komst aftur á toppinn Arsenal vann öruggan 3-1 sigur er liðið tók á móti Chelsea í Lundúnaslag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Með sigrinum lyfti Arsenal sér aftur í toppsæti deildarinnar, í það minnsta tímabundið. Fótbolti 2. maí 2023 20:55
Tryggðu sér sæti í úrslitum á troðfullum Emirates velli: „Vonandi verður þetta bara normið“ Þýska liðið Wolfsburg komst í gærkvöldi í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa unnið Arsenal 3-2 á Emirates vellinum í gærkvöldi. Jafnt var eftir venjulegan leiktíma 2-2 og því varð að framlengja leikinn. Sigurmarkið kom rétt fyrir lok framlengingarinnar, en fyrri leikurinn í Þýskalandi endaði einnig 2-2. Fótbolti 2. maí 2023 20:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur - FH 2-0 | Vísað á dyr með fölsuð skilríki Íslands- og bikarmeistarar Vals áttu ekki í teljandi vandræðum með að vinna spræka nýliða FH í 2. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 2. maí 2023 20:21
„FH spurði mig ekkert að því“ „Mér fannst þetta bara góður leikur hjá báðum liðum. FH er erfitt að spila á móti, erfitt að vinna. Við berum mikla virðingu fyrir þeim og þegar upp er staðið er ég bara mjög sáttur með að vinna 2-0,“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir sigurinn gegn FH í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 2. maí 2023 19:54
PSG setur Messi í tveggja vikna agabann Franska stórveldið Paris Saint-Germain hefur ákveðið að setja Lionel Messi, einn besta knattspyrnumann sögunnar, í tveggja vikna agabann eftir að leikmaðurinn ferðaðist til Sádi-Arabíu í leyfisleysi. Fótbolti 2. maí 2023 19:16
Selma Sól og stöllur misstu frá sér sigurinn Selma Sól Magnúsdóttir og stöllur hennar í Rosenborg þurftu að sætta sig við svekkjandi jafntefli er liðið heimsótti Avaldsnes í norskú úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 1-1, en sigur hefði lyft Rosenborg á toppinn. Fótbolti 2. maí 2023 18:56
Segir vinnubrögð Sýnar og KSÍ vera til skammar og hótar löngu fjölmiðlabanni Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu, er allt annað en sáttur við vinnubrögð KSÍ og Sýnar eftir að leik liðsins gegn Selfossi var frestað í annað sinn á innan við viku. Fótbolti 2. maí 2023 17:54
Van Nistelrooy dansaði í klefanum eftir leik Hollenska knattspyrnugoðsögnin Ruud van Nistelrooy vann marga titla með PSV, Manchester United og Real Madrid á sínum leikmannaferli og nú er hann farinn að vinna titla sem þjálfari. Fótbolti 2. maí 2023 17:00
Arteta vill breyta leikmannahópi Arsenal eftir tímabilið Mikel Arteta, þjálfari Arsenal, segist vera tilbúinn að taka erfiðar ákvarðanir eftir tímabilið. Jafnframt segir hann að yfirstandandi tímabil sé það mest spennandi í 22 ár. Enski boltinn 2. maí 2023 16:31
Súrt í Sádí-Arabíu hjá Ronaldo Cristiano Ronaldo er ekki lengur ánægður hjá Al Nassr og ku vilja yfirgefa sádí-arabíska félagið aðeins fimm mánuðum eftir að hann kom til þess. Fótbolti 2. maí 2023 14:00
Kjóstu besta leikmann apríl Lesendur Vísis geta nú valið um það hvaða leikmaður skaraði fram úr í Bestu deild karla í fótbolta í fyrsta mánuði leiktíðarinnar, apríl. Íslenski boltinn 2. maí 2023 12:31
Vatnsflaska Pickfords hafði rétt fyrir sér Jordan Pickford, markvörður Everton, kom sínu til bjargar í fallbaráttunni um helgina þegar hann varði vítaspyrnu í 2-2 jafntefli á móti Leicester. Enski boltinn 2. maí 2023 12:00
Mæta Þýskalandi og Danmörku í nýju Þjóðadeildinni Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður í riðli með Þýskalandi, Danmörku og Wales í haust á fyrstu leiktíðinni í Þjóðadeildinni. Fótbolti 2. maí 2023 11:31
Vilja að Klopp verði refsað og leggja til frádrátt stiga Chris Sutton, sérfræðingur BBC, og stuðningssamtök knattspyrnudómara í Bretlandi eru meðal þeirra sem kallað hafa eftir því að Jürgen Klopp verði úrskurðaður í bann fyrir hegðun sína um helgina. Enski boltinn 2. maí 2023 10:00
Xavi: Manchester City á skilið að vinna þrennuna Manchester City er komið á topp ensku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Fulham um helgina. Liðið er því áfram á góðri leið að vinna sögulega þrennu. Enski boltinn 2. maí 2023 09:31
KR-ingar spila heimaleikinn sinn á Seltjarnarnesi KR-völlurinn er ekki tilbúinn eins og flestir grasvellir á landinu. KR-ingar þurftu því að færa heimaleik sinn á móti HK í Bestu deild karla. Íslenski boltinn 2. maí 2023 08:41
Hótar því að HM kvenna verði ekki sýnt vegna lélegra tilboða Svo gæti farið að heimsmeistaramót kvenna í fótbolta verði ekki sýnt í sjónvörpum fimm stórra Evrópuþjóða vegna þess hve lág tilboð hafa borist í sýningarréttinn. Fótbolti 2. maí 2023 08:30
Allardyce á leið aftur í ensku úrvalsdeildina Útlit er fyrir að knattspyrnustjórinn Sam Allardyce snúi afar óvænt aftur í ensku úrvalsdeildina og taki við Leeds sem hefur verið í frjálsu falli undanfarnar vikur. Enski boltinn 2. maí 2023 08:01
Sveindís Jane þriðji Íslendingurinn til að komast í úrslit Meistaradeildar Evrópu Sveindís Jane Jónsdóttir er þriðji Íslendingurinn sem kemst í úrslit Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu. Hin tvö eru Eiður Smári Guðjohnsen og Sara Björk Gunnarsdóttir. Fótbolti 2. maí 2023 07:01
Rifust á vellinum eftir sigurinn gegn Aston Villa Samherjarnir Bruno Fernandes og Casemiro enduðu 1-0 sigur Manchester United á Aston Villa um helgina með léttum rökræðum út á velli áður en þeir fögnuðu með samherjum sínum. Enski boltinn 1. maí 2023 23:30
Fagna sigrinum með því að bjóða leikmönnum Wrexham til Syndaborgarinnar Hollywood-stjörnurnar og eigendur knattspyrnuliðsins Wrexham, Rob McElhenney og Ryan Reynolds, hafa ákveðið að bjóða leikmönnum liðsins til Las Vegas eftir að liðið sigraði ensku E-deildina. Enski boltinn 1. maí 2023 23:01
Skoraði en fór svo meiddur af velli Rúnar Már Sigurjónsson var á skotskónum í rúmensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Hann meiddist hins vegar einnig í leiknum. Fótbolti 1. maí 2023 22:30
„Við vorum heppnar“ „Þetta var erfiður leikur með framlengingunni. Ég hélt við værum að fara í vítaspyrnukeppni en við unnum,“ sagði Jill Roord, einn af markaskorurum Wolfsburg í ótrúlegum 3-2 sigri liðsins á Arsenal í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Fótbolti 1. maí 2023 21:30
Maddison brenndi af víti í fallslag Leicester og Everton Leicester City og Everton gerðu 2-2 jafntefli í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. James Maddison, leikmaður Leicester, brenndi af vítaspyrnu í stöðunni 2-1 fyrir Leicester. Enski boltinn 1. maí 2023 21:03
Sú besta sneri aftur þegar Barcelona tryggði sér titilinn Barcelona tryggði sér sigur í La Liga, spænsku úrvalsdeild kvenna, með þægilegum 3-0 sigri á Huelva. Það sem meira er, Alexia Putellas – besta knattspyrnukona heims, sneri aftur á völlinn eftir margra mánaða fjarveru. Fótbolti 1. maí 2023 20:30
Leeds íhugar að skipta aftur um stjóra Það hefur hvorki gengið né rekið hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Leeds United á leiktíðinni. Liðið mátti þola stórt tap gegn nýliðum Bournemouth um liðna helgi og nú íhuga forráðamenn félagsins að reka Javi Gracia. Sá hefur aðeins verið í starfi í 10 vikur. Enski boltinn 1. maí 2023 20:01
Sjáðu mörkin: Sveindís Jane og Wolfsburg í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir framlengingu Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru komnar í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir dramatískan 3-2 sigur á Arsenal í leik sem þurfti að framlengja. Sigurmarkið kom ekki fyrr en á 118. mínútu leiksins. Fótbolti 1. maí 2023 19:30