Fótbolti

Mark Ingi­bjargar dugði ekki til sigurs

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ingibjörg hefur spilað frábærlega með Vålerenga á tímabilinu.
Ingibjörg hefur spilað frábærlega með Vålerenga á tímabilinu. Vålerenga

Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðardóttir kom Vålerenga yfir í norsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu undir lok leiks en það dugði því miður ekki til sigurs.

Fyrirliðinn Ingibjörg var á sínum stað í vörn Vålerenga þegar liðið sótti Åsane heim. Staðan var markalaus framan af leik en á 82. mínútu kom Ingibjörg gestunum yfir eftir sendingu frá Selmu Pettersen.

Það stefndi í mikilvægan sigur Vålerenga en því miður fyrir Ingibjörgu og stöllur þá jafnaði heimaliðið á 94. mínútu og þar við sat, lokatölur 1-1.

Vålerenga hefur nú aðeins unnið einn af síðustu fimm deildarleikjum sínum og er þremur stigum á eftir toppliði Rosenborgar sem vann 3-0 sigur á Røa. Selma Sól Magnúsdóttir lagði upp annað mark Rosenborgar.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×