Inter pakkaði ná­grönnum sínum í AC Milan saman

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Inter vann ótrúlegan sigur í dag.
Inter vann ótrúlegan sigur í dag. EPA-EFE/MATTEO BAZZI

Inter vann ótrúlegan 5-1 sigur á AC Milan í stórleik dagsins í Serie A, ítölsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu.

Það tók Inter ekki langan tíma að komast yfir en Henrikh Mkhitaryan kom heimamönnum yfir eftir aðeins fimm mínútna leik. Marcus Thuram tvöfaldað forystuna áður en fyrri hálfleikur var úti og staðan 2-0 þegar liðin gengu til búningsherbergja.

Rafael Leão minnkaði muninn fyrir AC Milan í upphafi síðari hálfleiks en eftir það sáu gestirnir ekki til sólar.

Mkhitaryan bætti við öðru marki sínu og þriðja marki Inter áður en Hakan Çalhanoğlu skoraði það fjórða úr vítaspyrnu. Davide Frattesi skoraði svo fimmta markið í uppbótartíma, lokatölur 5-1.

Inter er áfram með fullt hús stiga í Serie A eftir fjórar umferðir en leikur dagsins var fyrsta tap AC Milan á tímabilinu. Síðarnefnda liðið er í 3. sæti með 9 stig en Juventus situr á milli Mílanó-liðanna með 10 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira