Fótbolti

Barcelona á toppinn eftir stór­sigur

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Þessir tveir komu að fjórum af fimm mörkum barcelona í kvöld.
Þessir tveir komu að fjórum af fimm mörkum barcelona í kvöld. Twitter@LaLiga

Spánarmeistarar Barcelona unnu 5-0 sigur á Real Betis í síðasta leik dagsins í La Liga, spænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Fyrr í kvöld hafði Valencia unnið 3-0 sigur á Atlético Madríd.

João Félix kom heimamönnum yfir um miðbik fyrri hálfleiks eftir undirbúning Oriol Romeu. Robert Lewandowski tvöfaldaði svo forystuna skömmu síðar og staðan 2-0 í hálfleik.

Ferrán Torres bætti við þriðja markinu áður en Lewandowski lagði boltann á Raphinha sem gulltryggði sigurinn á 66. mínútu. Bakvörðurinn João Cancelo skoraði svo fimmta mark leiksins undir lok leiks og aftur var það markamaskínan Lewandowski sem gaf stoðsendinguna.

Lokatölur í Katalóníu 5-0 og Börsungar mættir á toppinn, tímabundið allavega. Real Madríd getur náð toppsætinu á nýjan leik annað kvöld.

Valencia varð svo fyrsta liðið til að leggja Atl. Madríd að velli í La Liga á tímabilinu. Lokatölur 3-0 Valencia í vil.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×