Rooney: Man. City mun ekki bara vinna Real Madrid, þeir munu rústa þeim Wayne Rooney telur að Evrópumeistarar Real Madrid verði ekki mikil fyrirstaða fyrir Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en fyrri leikur liðanna fer fram á morgun. Fótbolti 8. maí 2023 10:00
Sá markahæsti í Bestu deildinni fékk verðlaun úti í Bandaríkjunum Blikinn Stefán Ingi Sigurðarson hefur skorað sex mörk í fyrstu fimm umferðum Bestu deildar karla í fótbolta og var markahæsti leikmaður fyrstu fimm umferða deildarinnar. Íslenski boltinn 8. maí 2023 09:00
Þór/KA stelpurnar skiluðu klefanum tandurhreinum eftir leikinn í Eyjum í gær Húsverðir landsins fagna því eflaust að fá Þór/KA stelpurnar í heimsókn í sumar. Húsvörðurinn í Vestmannaeyjum í gær kvartar örugglega ekki eftir gærdaginn. Íslenski boltinn 8. maí 2023 08:31
Sjáðu „Vindinn“ gefa þrjár stoðsendingar og öll mörkin þegar Valur lék sér að KR Valsmenn fóru illa með nágranna sína í KR í Bestu deild karla í fótbolta í gær og héldu þar áfram að raða inn mörkum. Íslenski boltinn 8. maí 2023 08:00
„Þetta voru hræðileg mistök“ David De Gea gerði sig sekan um slæm mistök í sigurmarki West Ham gegn Manchester United í dag. Baráttan um sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili opnaðist upp á gátt eftir úrslit helgarinnar. Enski boltinn 8. maí 2023 07:00
Birkir Már: Alltaf gaman að vinna KR, hvað þá 5-0 Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörðurinn síungi, lagði upp þrjú marka Vals þegar liðið valtaði yfir KR, 5-0, í leik liðanna í Bestu deild karla í fótbolta á Origo-vellinum í kvöld. Fótbolti 7. maí 2023 22:50
Sex lið tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins Sex leikir fóru fram í annarri umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu í dag. Grótta, FHL, KR, Grindavík, Fram og Víkingur eru öll komin áfram í 16-liða úrslit eftir sigra í dag. Fótbolti 7. maí 2023 22:30
Umfjöllun og viðtöl: Valur - KR 5-0 | Valsmenn tóku nágranna sína í nefið Valur vann afar sannfærandi 5-0 sigur á KR þegar liðin mættust í Bestu deild karla í knattspyrnu á Origo-vellinum að Hlíðarenda í kvöld. Valsmenn skutust upp á topp deildarinnar með þessum stóra sigri. Íslenski boltinn 7. maí 2023 21:08
Nýbakaðir meistarar unnu og Verona náði í dýrmæt stig í fallbaráttunni Nýbakaðir Ítalíumeistarar Napoli í knattspyrnu unnu sigur á Fiorentina í Serie A í dag. Eftir leik voru leikmenn hylltir af stuðningsmönnum liðsins. Fótbolti 7. maí 2023 20:55
United tapaði dýrmætum stigum eftir mistök De Gea Manchester United tapaði dýrmætum stigum í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu þegar liðið tapaði 1-0 fyrir West Ham í dag. West Ham er nú sjö stigum frá fallsæti. Enski boltinn 7. maí 2023 20:00
Ásgeir: Hugarfarið allt annað í seinni hálfleik Ásgeir Sigurgeirsson, leikmaður KA, var að vonum ánægður eftir sigur liðsins gegn HK í Bestu deild karla í dag en hann kom inná sem varamaður og skoraði bæði mörk gestanna. Fótbolti 7. maí 2023 19:48
Umfjöllun og viðtöl: HK - KA 1-2 | Ásgeir hetja KA í endurkomusigri KA kom til baka og bar sigur úr býtum gegn HK í Bestu deild karla í kvöld. Lokatölur 2-1 en það var Ásgeir Sigurgeirsson sem skoraði bæði með KA eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Íslenski boltinn 7. maí 2023 19:09
Umfjöllun: Tindastóll - FH 1-1 | Nýliðarnir sættust á skiptan hlut Tindastóll og FH gerðu jafntefli í Bestu deild kvenna í dag þegar liðin mættust á Sauðárkróki. Lokatölur 1-1 en bæði mörkin komu í fyrri hálfleik. Íslenski boltinn 7. maí 2023 17:59
Arsenal gerði góða ferð norður og hélt titilbaráttunni á lífi Arsenal gerði góða ferð norður til Newcastle í dag og vann 2-0 útisigur í ensku úrvaldsdeildinni. Arsenal heldur því lífi í titilbaráttunni en þeir eru nú einu stigi á eftir Manchester City. Enski boltinn 7. maí 2023 17:31
Valgeir byrjaði í tapi meistaranna Valgeir Lunddal Friðriksson var í byrjunarliði Häcken sem tapaði 1-0 gegn Halmstad á útivelli í dag. Með tapinu er Häcken búið að missa Malmö FF sex stig fram úr sér í toppbaráttunni. Fótbolti 7. maí 2023 17:24
Birkir tryggði Viking stig Birkir Bjarnason tryggði Viking eitt stig í norsku úrvalsdeildinni þegar hann jafnaði metin einni mínútu fyrir leikslok gegn Strömgodset. Fleiri Íslendingar voru í eldlínunni í dag. Fótbolti 7. maí 2023 17:08
Dagný gat ekki komið í veg fyrir tap West Ham Íslenska atvinnu- og landsliðskonan í knattspyrnu, Dagný Brynjarsdóttir, var í byrjunarliði West Ham United og spilað allan leikinn er liðið laut í lægra haldi gegn Brighton í efstu deild Englands í dag. Fótbolti 7. maí 2023 17:01
Sandra María himinlifandi með sprungna vör Sandra María Jessen, hetja Þórs/KA gegn ÍBV í Bestu deild kvenna í dag, var að vonum ánægð eftir að liðið tryggði sér stigin þrjú sem í boði voru í Vestmannaeyjum í dag. Íslenski boltinn 7. maí 2023 16:53
Stjóri Jóhanns Bergs skrifar undir nýjan 5 ára samning Vincent Kompany, knattspyrnustjóri Jóhanns Bergs Guðmundssonar hjá enska knattspyrnufélaginu Burnley hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið. Enski boltinn 7. maí 2023 16:29
Ingibjörg og Selma Sól skildu jafnar í toppslag dagsins Íslendingaslag dagsins milli Rosenborg og Valerenga, sem jafnframt var toppslagur dagsins í úrvalsdeild kvenna í Noregi, lauk með markalausu jafntefli. Fótbolti 7. maí 2023 14:53
Sævar Atli og Kolbeinn hetjur Lyngby í mikilvægum sigri Sævar Atli Magnússon reyndist hetja danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby í dag er hann skoraði sigurmarkið í leik liðsins gegn Midtjylland. Vonir Lyngby um að halda sæti sínu í deildinni lifa enn. Fótbolti 7. maí 2023 14:41
Sjáðu markið: Willum tryggði GA Eagles stig Willum Þór Willumsson skoraði eina mark GA Eagles í 1-1 jafntefli liðsins við Groningen í hollensku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 7. maí 2023 14:28
Umfjöllun: Sandra María tryggði Þór/KA sigur í Eyjum Þór/KA vann í dag góðan útisigur á ÍBV er liðin mættust á Hásteinsvelli í Vestmannaeyjum. Sandra María Jessen skoraði sigurmark leiksins í fyrri hálfleik. Íslenski boltinn 7. maí 2023 13:15
Sjáðu myndbandið: Liðsfélagi Andra skallaði stöngina af reiði eftir ótrúleg mistök Jasper Cillessen, fyrrum landsliðsmarkvörður Hollands í knattspyrnu og núverandi markvörður NEC Nijmegen, gerði sig sekan um afar slæm mistök í leik liðsins gegn Heerenveen í hollensku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 7. maí 2023 12:45
Býst við dýrvitlausum KR-ingum í kvöld Sannkallaður stórleikur er á dagskrá Bestu deildar karla í knattspyrnu í kvöld þegar að Valur og KR mætast á Origovellinum að Hlíðarenda. Íslenski boltinn 7. maí 2023 12:15
Hafa áhuga á að fá Greenwood til liðs við sig Ítalska stórveldið Juventus hefur áhuga á því að fá Mason Greenwood, sóknarmann Manchester United, til liðs við sig. Enski boltinn 7. maí 2023 11:00
Pep ósáttur með vítavesen gærdagsins Manchester City vann í gær góðan 2-1 sigur á Leeds sem færir liðið einu skrefi nær Englandsmeistaratitlinum í knattspyrnu. Pep Guardiola var þó ekki yfir sig ánægður eftir leik í gær. Enski boltinn 7. maí 2023 07:01
Stuðningsmenn Liverpool sendu nýjum konungi kaldar kveðjur Hinn nýkrýndi konungur Bretlands fékk kaldar kveðjur frá stuðningsmönnum Liverpool á leik liðsins gegn Brentford á Anfield í dag. Enski boltinn 6. maí 2023 22:31
Tuttugasti bikartitill Real Madrid í höfn Real Madrid er spænskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Osasuna í bikarúrslitaleik í kvöld. Rodrygo var hetja Real en hann skoraði bæði mörk liðsins í leiknum. Fótbolti 6. maí 2023 22:02
Gylfi Þór mættur í stúkuna að Hlíðarenda Fyrsti leikur Vals og Tindastóls í lokaúrslitum Subway-deildar karla í körfuknattleik er nú í gangi í Origo-höllinni að Hlíðarenda. Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er á leiknum. Fótbolti 6. maí 2023 20:19